Þjóðviljinn - 09.11.1952, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 09.11.1952, Blaðsíða 8
ALÞÝÐUSAMBANDSSTJÓRN OFSÆKIR SMÁFÉLAG YEGNA FULLTRÚAKJÖRS Beilur vakiar á íundi sem eingöngu átti að fjalla um hagsmunamálin og hindsuð aígreiðsla þeirra 1 fyrradag um fimmleytið barst form. Prentmyndasmiðafél. Islands bréf frá Alþýðusambandi Islands, dagsett sama dag, þar sem sambandsstjórn fyrirskipar félaginu að láta fram fara að nýju kosningu fulltrúa á Afþýðusambandsþing. Tilefni þessa er það að tveir menn höfðu verið látnir kæra kosningu f'ulltrúa í þessu félagi á þeirri forsendu að þeir hefðu ekki fengið fundarboð norður á Akureyri. Fyrir sambandsstjórn lágu frá meirihluta félagsstjórnar m. a. þær skýringar 1. að aðalfulltrúi hefði verið sjálfkjörinn á 9 manna fundi og hefðu því þessir tveir menn ekki getað haft nein úrslitaá- hrif á fulltrúakjörið. 2. að þessir tveir menn stund- uðu eigin atvinnurekstur þegar fuiltrúakosning fór fram, og hefðu því verið samkv. lögum félagsins í engum félagsrétti auk þess sem þeir voru í ó rétti vegna skulda. 3. að sú venja hefði ríkt frá stofnun félagsins að aug iýsa ekki fundi utan Reykja víkur og ef stjómir þær sem starfað hefðu í félaginu til þessa væru löglegar hlyti þetta fuiltrúakjör sem önnur einnig að vera löglegt. I gær um 12 leytið var fund- Aðalfundur Æ.F.R. Aðalfundur ÆFR var hald- inn í Tjarnarkaffi 4. þm. Fráfarandi tformaður, !Jón Norðdahl, setti fundinn og flutti skýrslu um sumarstarfið. Eftir skýrslu formannsins hóf- ust mjög fjörugar umræður ■um væntanlegt vetrarstarf. Jón Norðdahl hefur verið formaður ÆFR frá því sl. haust og var ‘honum og féiögum hans í stjórninni þakkað ágætt starf. Að loknum umræðum um vetrarstarfið fór fram kosning stjórnar fyrir næsta kjörtíma- bil. Hlutu þessir kosningu: Tryggvi ífveinbjörnBson for- maður, Ingólfur Ólafsson vara- formaður, Hannes Vigfússon ritari, Margrét Tómasdóttir gjaldkeri; meðstj.: Sygnur Jó- hannesson, Guðmundur Hall- grímsson og Ólöf Hraunfjörð. Ákveðið var að h;n nýja stjórn semdi starfsáætlun fyrir veturinn og yrði hún lögð fyrir næsta fund til umræðu og end- anlegrar ákvörðunar. -— Margir nýir félagar gengu inn á fund- inum. ur í Prentmyndasmiðafélaginu boðaður til þess samkv. aug- lýsingu að ræða og afgreiða liagsmunakröfur félagsmanna í sambandi við uppsögn samn- inga. Þegar fulltrúi félagsins í sameiginlegri nefnd verkalýðs- félaganna hafði gefið skýrslu sína, kvaddi Þorsteinn Péturs- son, starfsmaður Fulltrúaráðs- ins, sem mættur var á fundin- um, sér hljóðs. Hélt hann sér fyrst við dagskrármálið en fór svo að ræða um nauðsyn þess, að skipta um fulltrúa í sam- starfsnefnd verkalýðsfélaganna á þessum fundi. Ekki skeytti hann því neitt að formaður gaf þá skýringu að í fyrsta lagi væri mál þetta ekki á dagskrá og í öðru lagi hefði stjórn þessa félags tilnefnt full- trúann með einróma samþykki Rauk þá upp annar maður, sjá- anlega undirstunginn af Þor- steini Péturssyni og studdi hann að máium í þessu í stað þess að ræða dagskrármálið Ennfremur var lögð fram í þessari svipan tillaga undirrit- uð af fjórum mönnum þess efnis að fram skyldi fara að nýju tiltekinln 'dag kosning fulltrúa á Alþýðusambandsþing og ennfremur fylgdu þau við- urlög tillögunni að ef formað- ur eða meirihluti stjórnar ekki hlýddi þessum fyrirmælum væri varaformanni falið að kalla saman þennan fund. Formaður bað menn eindreg- ið halda sér við dagskrármálið. Bréf Aiþýðusambandsins varð- andi endurkjör fulltrúa væri nýkomið í sínar hendur, stjórn félagsins hefði ekki enn haft tíma til að koma saman á fund. Hinsvegar mætti félagið treysta því að þetta mál yrði af stjórnarinnar hálfu afgreitt á löglegan hátt á fundi. En þegar Þorsteinn Péturs- son og bandamenn hans feng- ust ekki til að hlíta fundar- sköpum og halda sér við aug- lýst dagskrármál sá formaður sig tilneyddan að slíta fundi. Augljóst er að þarna er ver- ið að láta valdabrölt einræðis- herra Alþýðusambandsins sitja í fyrirrúmi fyrir hagsmuna málunum, og ekki skirrzt við að niðast á litlu félagi og gera tilraun til að eyðileggja það. Að þessu framferði mun nán- ar vikið síðar. Árni Páisson IIIÓÐVIUmN Sunnudagur 9. nóvember 1952 — 17. árgangur — 254. tölublað Árni Pálsson prófessor lézt í fyrradag 74 ára að aldri. Árai Pálsson las sögu við Hafnarháskóla, kenndi síðan við Menntaskólann í Reykja- vík og var bókavörður á Lands- bókasafninu. Prófessor var hann skipaður 1931. ■—- Þessa þjóðkunna manns verður nán- ar getið síðar. Merkjasölndagnr Blindrafélagsins I dag fer fram í Reykjavík og úti nm land, hin árlega merkja^ sala Blindrafélagsins. Það er full ástæða til að vekja athygli bæjarbúa á að hér er um að ræða eina af himini vinsælnstu merkjasölum, sem haldnar eru. Blinda fólkið og félagssamtök þess, eiga óskipta samúð alþjóðar eir.s og vera ber. Þarf því ekki að draga I efa að almenningur tekur vel á móti þeim, sem bjóða merkin fram. Blindrafélagið hefur sýnt mikinn dugnað í starfi frá f’yrstu tíð. Það voru nokkrir blindir menn sem mynduðu fé- lagið og hófu starfsemi þess algjörlega févana. Að vísu 5 NorSra- bœkur Nýkomnar eru út hjá Norðra 5 bækur, eru 3 þeirra barna- og unglingabækur, ein sagna' þættir skráðir af Hagalín og Ioks þýdd skáldsaga. Ein unglingabókin er íslenzk: Áslákur í álögum, eftir Dóra Jónsson, 'greinir frá böidnum 13 ára kaupstaðarstrák í sveit. Benni sækir sína menn, nefnist ný Bennabók, og loks er Stúlk- an frá London, þýdd saga fyr- jr ungar stúlkur. tír blámóðu alda, nefmast sagnaþættir Guðmundar Haga hn, 15 talsins, skrifaöir upp eftir frásögnum fólks að vest- an og minni höfundar, og mun fótur fyrir öllum þótt höfund- ur segist ekki vita gerla livað kunni að vera til orðið í sínum huga. Allt um það, það er feagur að því að fá þessar frásagnir af sérkennilegu fólki gefna út í bók, en flestar munu áður hafa birzt á víð og dreif. Mannskœður bardagi Eög- reglu og Afríkumanna 14 Aíríkumenn skotnir til bana og opin- berar byggingar brenndar í Kimberley í dag sló í blóöugan bardaga milli lögreglu og Afríku- manna í bæum Kimberley í Suöur-Afríku. Fréttaritari United Press í bænum Kimberley í Höfða- fylki skýrði frá því í gær- kvöld, að enn kvæði öðru hvoru við gelt í handvélbyss- um lögreglunnar, og Afríku- menn færu flokkum um göt- urnar og létu í Ijós viðbjóð sinn á blóðþorsta lögreglunn- ar fyrr um daginn. Lögregla Malanstjórnarinn- ar segir að í gær hafi kast- azt í kekki mili Afríkumanna á veitingahúsi. Lögreglan kom á vettvang og greip til skot- vopna. Allt komst í uppnám og reiður mannfjöldi bar eld að ýmsum opinberum bygg- ingum, svo sem ráðhúsinu og pósthúsinu. — Var skýrt frá því í gærkvöld að 14 Afríku- menn hefðu verið skotnir til bana og yfir 40 særzt. Nokkr- ir lögregluþjónar voru meidd- ir af steinkasti. Ýmis hús voru brunnin til grunna. en ekki fákn Sú meinlega prentvilla slædd- ist inní upphaf greinar Sverris Kristjánssonar í bláðinu í gær i^m Atvinnulaust trúboð og Asíumál, að sagt var að Ijóði ungs skálds hefði verið úthýst hjá Morgunblaðinu með þeim ummælum ,,að orðiö tákn ætti ekki heima í Iýrik“. Þarna átti auðvitað að standa tálkn en ekki tákn og er höfundur og Morgunblaðið beðið afsök- unar á prentvillunni. Ársþing BÆR Ársþing BÆR var sett í I4á- skólanum í fyrrakvöld, 7. þin. Formaður bandalagsins, Ásm. Guðmundsson, prófessor, setti þingiö með ræðu, og var síðan einróma kjörinn 1. forseti þingsins Sigurgeir Sigurðsson biskup. Kosið var í nefndir og rædd ýmis mál, sem fyrý^ lágu- Stóðu umræður fram á nótt. Þinginu lýkur föstudaginn 14. þm. og skila þá nefndir áliti og til- lögum, og verður þá endanlega gengið frá undirbúrtingi áð merkjasölu á vegum BÆR dag- ana 15. og 16. nóvember. höfðu þeir stuðning frá upp- hafi, fáeinna sjáandi manna. En lög félagsins eru þannig út- búin, að sjáandi menn hafa ekki neinn atkvæðisrétt í fé- lagi. Völdin eru þvi aigjörlega hjá þeim blindu sjálfum. I stjórn félagsins sitja sam- kvæmt lögum þess, þrir blindir aðalfélagar og tveir sjáandi áð- stoíarmenn. Fyrir nokkrum árum keypti félagið sér stórt íbúðarhús á Grundarstíg 11. Þar rekur það vinnustofu fyrir blinda. Auk- þess búa nokkrir blindir menn í því við góða aðbúð og mjög væga húsaleigu. Æskufólk og aðrir, sem á- stæöu hafið til, ættu að taka við af börnunum eða létta undir sölustarfið þegar halla tekur degi. Börnin eru dug’.eg og áhugasöm fyrripart dags, en þreytast sem eðiilegt-er, og draga sig í hlé þegar fer að líða framyfir hádegi. Þá væri einmitt nauðsynlegt að dug- legra eldra fólk kæmi á vett- vang og tæki við þó ekki væri nema litla stund. Allir bæði yngri og eldri sem selja merkin, fá 50 aura í sölu- laun af hverju merki, sem þeir selja. Þau eiga að seljast fyrir 5 krónur stykkið eins og ávalit áður og eru því eitt af því fáa, sem ekki liefur hækkað í verði þrátt fyrir gengisbreytingu og vaxandi verðlag. Hjálpumst öll að því að ár- angur þessarar merkjasölu Blindrafélagsins verði sem al!ra beztur. Og verum öll minnug þess að hér er fyrir gott og göfugt málefni að vinna. Alalfundur S.Í. Aðalfundur SÍF hefst á morgun í Hafnarhvoli og mun honum ljúka á þriðjudaginn. Mynd á sýningu Valtýs Pét- urssonar- (Sjá grein á 5. síðu). Hrað er nútímalist? Llfkvikmynd sýnd í dag í Lisfvinasalnum Á málverkasýningu Valtýs Péíurssonar i Listvinasalnum við Freyjugötu verður í dag sýnd kvikmynd, sem nefnist: Hvað er nútímalist? 1 mynd- inni er gerð grein fyrir nokkr- um heiztu stefnum, sem fram haía komið í málaralist á síð- ari árum og notuð sem dæmi málverk á hinu fræga safni nú- tímalistar í New York, Museum of Modera Art, en myndin er gerð að tilhlutan þess. Meðal annars getur þama að líta málverk eftir Picasso, Dali, Modigliani og fleiri mynd- listarmenn. Myndin er í litum og með ensku tali. Hún verður sýnd kl. 6 og 8.30 í dag og stendur í hálftíma. Þetta er sfð- asta helgin, sem sýning Valtýs Péturssonar verður opin. Samband ísl. sveitafélaga heMur fund 21. þ. m. — bæfarsfjórafundur um svípað ieyfi Ákveðið hefur verið að full- trúaráð Sambands ísl. sveitar- félaga komi saman til fundar 21. nóvember n.k. Fulitrúaráð Sambandsins er skipað sveitarstjórnarmönnum úr öllum landsfjórðungum alls 20 að tölu, 10 úr Sunnlendinga- fjórSungi, 4 úr Vestfirðinga- fjórðungi, 4 úr Norðlendinga- fjórðungi og 2 úr Austfirðinga- fjórðungi. Á fulltrúaráðsfundi þessum verða tekin til meðferðar sam- eiginleg viöfangs- og vandamál sveitarfélaganna og framkvstj. beirra, samræming og breyting á reikningum og fjárhagsá- ætlur. sveitarfélaganna o. fl. Þá verður rætt um framtíðar- starfsemi Sambandsins og út- gáfu Sveitarstjórnarmála. Um líkt leyti kemur og sam- Framhald á 6. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.