Þjóðviljinn - 21.11.1952, Qupperneq 1
Föstudagur 21. nóv.
17. árgangur — 264. tölublað
HERNAMSSAMNIN6NUM VERÐISA6T UPP
Bæjarstjóra-
fiiníliirimi )
Kl. 14.00 í g«r var settur í
kaupþingssalnum fundur bæj-
arstjóra í kaupstöðum lands-
ins.
Forseti fundarins var kos-
inn Gunnar Thoroddsen.
Á fundinum voru mættir full-
trúar 8 kaupstaða, en 2 munu
væntanlegir síðar. — Fundin-
um verður haldið áfram í dag.
Allir sóslalistar / neÓri deild Alþingis flytja
frumvarp um uppsögn hernámssamningsins
Allir þingmenn sósíalista í neðri deild, Ein ar Olgeirsson, Ásmundur Sigurðsson, Jónas
Árnason, Sigurður Guðnason, Lúðvík Jósepsson og Áki Jakobsson, flytja frumvarp „um
uppsögn varnarsamnings milli Islands og Bandaríkjanna og afnám laga um lagagildi hans.“
Frumvarpinu var útbýtt í gær, en greinar f rumvarpsins eru á þessa leið:
★ Ríjrisstjóm Islands sk»l tilkynna ráði Norður-Atlantshafsbandalagsins, þegar eftir að lög
þessi hafa öðlazt gildi, að ísland hafi ákveðið að segja varnarsamningi milli Islands og Banda-
ríkjanna upp með tilskildum fyrirvara og endu rskoðun sé aðeins formsatriði. Sex mánuðum
eftir þá tilkynningu til nefnds ráðs skal ríkisstjórnin tilkynna stjórn Bandarikja Norð'ur-
Ameríku uppsögn samningsins og sjá svo um, að tólf mánuðum eftir það hafi Bandaríkin flútt
allt sitt lið af landi brott.
★ Lög um lagagildi varnarsamnings milli Islands og Bandaríkjanna og um réttarstöðu liðs
Bandaríkjanna og eignir þess, nr. 110 19. des.1951, laíla úr gildi um leið og vamarsamningur-
inn fellur niður samkvæmt 1. gr.
Frumvarpinu fylgir ýtarleg greinargerð og verður hún birt í heild í blaðinu á morgun.
Brezkir kratar heimta á þlngl bann
við flskðöndun íslenzkra skipa
Eisenhower útnefnir Dull-
es utanríkisráðherra
Eisenhöwer, forsetaefni í Bandaríkjuntim, hefur valið
sér fyrir utanríkisráðherra alræmdan stríðsæsingamann
og fyrir landvarnarráðherra einn voldugasta stóriðnrek-
endá Bandaríkjanna.
Eisenhower skýrði frá því í
gær, að 20. janúar er hann
tekur við forsetaembættinu,
muni hann biðja öldungadeild-
ina að samþykkja skipun John
Foster Dulles í embætti utan-
rikisráðherra, Charles Erwin
Wilson í embætti landvarna-
ráðherra og Douglas McKay í
embætti innanrikisráðherra.
Krefst „frelsunar“
Dulles hefur lengi verið með
annan fótinn í bandaríska ut-
anríkisráðuneytinu. Hann fékk
£5 togumm hefur verið lagt í Grímsby — Talið
að komið geti einnig til stöðvunar í HuIL — Reynt
að fá fisksala í Grímsby til að neita að kaupa fisk
af íslenzkum skipum
Verkamannaflokksmenn kröfðust þess í brezka þing-
jnu í gær aö ríkisstjórnin leggi bann viö því að íslenzk
skip landi fiski í Bretlandi. Sir Thomas Dugdale fiski-
málaráðherra kvað stjórnina ekki hafa vaid til slíkra
aögerða. .
V erkamannf lokksþingmenn
reyndu tvisvar að fá horfið frá
dagskrármálum og umræður
hafnar um ástandið, sem skap-
azt hefur við stöðvun Grimsby-
togaranna eftir áð Jón forseti
hafði selt þar afla sinn. For-
seti deildarinnar kvaðst ekki
álíta stöðvunina svo bráða ógn-
un við matvælaöflun Breta að
þörf væri á umræðum þegar í
stað.
Stöðugt samband
Dugdale ráðherra lýsti yfir
að brezka ríkisstjómin stæði
í stöðugu sambandi við þá ís-
lenzku vegna ástandsins, sem
skapazt hefur. Viðræður þeirra
Framhald á 7. síðú.
$Iansky9 Oementfs og tólf
aórir ákæróir fyrir landráó
í gær hófust í Praha réttarhöld yfir tveim fyrrverandi
ráðherrum og tólf stjórnmálamönnum öðrum.
Flekksstjómarfundur Sósíalista-
flokksins var settur í gærkvöldi
Flokkstjórnarfundur Sósíalistaflokksins var settur í gærkvöld
að Þórsgötu 1 af formanni flokksins, Einari OlgeirsSyni. Minnt-
ist hann í upphafí Sigfúsar Sigurhjartarsonar en flokksstjórnar-
menn risu úr sætum.
Því næst tók Brynjólfur
Bjarnason við stjórn fundarins,
en Einar Olgeirsson hóf fram-
sögu um fyrsta dagskrármál
fundarins, pólitíska viðhorfið
og stefnu Sósíalistaflokksins.
Flutti hann mjög ýtarlega ræðu
um ástandið í landinu, baráttu
í
flokksins og þau viðfangsefni
sem framundan eru. Á eftir
ræðu Einars hófust umræður.
Flokksstjórnarfundurinn held-
ur áfram í kvöld kl. 8.30 og
hefjast þá umræður um Al-
þýðusambandið og verkalýðs-
hreyfinguna, en framsögumað-
ur er Eðvarð Sigurðsson.
Kunnastir af sakborningun-
um eru Slansky, fyrrverandi
varaforsætisráðherra og aðalrit-
arj Kommúnistaflokks Tékkó-
slóvakíu, Clementis fyrrverandi
utanríkisráðherra og Sling,
fyrrverandi ritari kommúnista-
flokksins á Mæri. Auk þess
eru ákærðir fyrrverandi mið-
stjórnarmenn í kommúnista-
flokknum og fyrrverandi rit-
stjóri aðalblaðs hans, Rude
Pravo.
Er ákæran á þá leið, að þess-
ir menn hafi gert samsæri
um að slíta vináttubönd Tékkó-
slóvakíu og Sovétrikjanna,
koma aftur á auðvaldsskipu-
lagi í landinu og gera banda-
lag við Júgóslavíu Títós. Þá
eru þeir sakaðir um njósnir í
þágu Vesturveldanna.
Slansky er ákærður fyrir að
vera samsærisforinginn. Hann
hafi verið í þjónustu banda-
Framhald á 3. síðu.
Foster Duilea
lausn frá störf-
um þar til að
taka þátt í
kosningabar-
áttu republi-
kana og vakti
þá einkum á
sér athygli fyr-
ir að útlista
hvernig Banda-
ríkjastjórn ætti
að vinna að
„frelsun" land-
anna í Austur-Evrópu með því
að skipuleggja þar undirróður
og skemmdarverk. Hann krafð-
ist einnig ,,einarðari“ stefnu í
Austur-Asíu.
Forstjóri General Motors
Wilson er forstjóri bílasmiðj-
anna miklu, General Motors,
sem eru eign Du Poirt au'ð-
hringsins. (Framleiða Chevro-
let, Buick, Cadillac ofl. gerðir).
Honum má ekki rugla saman
við Charles Edward Wilson,
sem var hervæðingarstj. Tru-
mans. Hann var forstjóri Morg-
Framhald á 7. síðu.
Eden gengur í berhögg við
USA í fangaskiptamánnu
Eden, utanríkisráöherra Bretlands, lýsti í gær eftir
fullum stuöningi viö tillögu Indlands um lausn fanga-
skiptadeilunnar í Kóreu. Bandaríska nefndin á þingi SÞ
hefur lýst yfir andstööu við tillöguna.
Tveim klukkutímum eftir að
fulltrúi Indlands lagði tillög-
una fram lýsti talsmaður
batndarísku fulltrúanna á þingi
SÞ yfir að hún væri óhæf í alla
staði. Fréttaritari brezka út-
varpsins hjá SÞ .segir að siðan
hafi fulltrúar bandamanna-
ríkja Bandaríkjanna lagt fast
að þeim að breyta um afstöðu.
Einkum hafi Bretar og Kan-
Framhald á 3. síðu.
1
Eaffikvöld
Æskulýðsfylkingin gengst fyrir
kaffikvöldi í Þjóðieikhúskjall-
aranum laugardaginn 22. nóv.
1952 kl. 8:30 stundvíslega. Með-
al skemmtiatriða eru: Ifermt
eftir Kristjáni Kristjánssyni,
Maríu Markan og Stefanó
íslándi. Kynnt frumsamið söng-
Iag eftir Þorstein Valdimars-
son, sem hann hefur tileinkað
Æskulýðsfylkirtgunni. Upplest-
ur. — Verðlaunaafhending. —
Strengjakvartett leikur. Ný-
stárleg samkeppni. Gerð tilraun
sem aldrei hefur verið gerð
á Islandi áður. Rímnakveð-
skapur ofl. — Dánsað til kl. 2.
Félagar, hafið samband við
skrifstofuna og fjölmennið.
Nefndin.
Guðmundur Vigfússon leggur til:
Bærinn semji við verkalýSsfélögin |
svo ekki þurfi að koma ti! oþarfrar vinmistöðvunar
íhaldið vísaði tillögunni til bæjarráðs — AB-ménn cg Framsókn greiða ekki
atkvæði með samningum við verkalýðinn!
Á bæjarstjórnarfundi í gær flutti Guömundur Vig-
fússon eftirfarandi tillögu:
„Bæjarstjórnin ályktar að brýna nauðsyn beri til að
hindra að töl vinnustöðvunar ltomi hjá bænum og bæj-
arfyrirtækjum í vinnudeilum þeim sem framundan eru
og felur borgarstjóra að undrrita nú þegar samninga
við verkalýðsfélögin á grundvelli þeirra ltrafna um 15%
grunnkaupshæltkun og aðrar kjarabætur sem verka-
lýðsfélögin- hafa boriið fram“.
1 framsöguræðu sinni rakti, ár frá ári fyrir beinar aðgerð-
Guðmundur liokkuð hvernig ir stjórnarvaldanna, svo sem
dýrtíðin hefur vaxið gífurlegal bátagjaldeyrisokrið, hækkaðir
tollar og skattar og afnám
húsaleigulaganna, þannig að
verð á vísitöluvörum hefði
hækkað um 62% og jafnvel
allt upp í 533% á sama tima
og kaupgjald hefur aðeins
hækkað um 58.6%. Ofan á allt
þetta bættist atvinnuleysi og
gæti verkalýðurinn því e'kki
látið laun sín nægja fyrir brýn-
ustu lífsnauðsynjum.
Afstáða bæjarstjórnar
getur haft úrslltaþýðingu
Guðmundur kvað það skyldu
Framhald á 6. síðu.