Þjóðviljinn - 21.11.1952, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJIN'N — Föstudagur 21. nóvember 1952
Föstudagur 21. nóvember 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (5
þlÓOVlLJINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
• Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfi Ólafsson,
' Guðmundur Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Hitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 18 á mánuði i Reykjavik og nágrenni; kr. 16
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. éintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Ólafur Björnsson og Morgunblaðið
Ólafur Bjömsson prófessor við Háskóla Íslands er eflaust
undarlegasta fyrirbæri sem nokkur háskóli nókkurstaðar í
heimi hefur innan sinna vébanda, og raunar er vafasamt að
annar eins undrafugl sé til annarsstaðar á byggðu bóli. Er hægt
að rekja ,f honum langa sögu; hann hefur aldrei samið út-
reikning sem staðizt hefur reynslu; hann hefur aldrei getað
dregið rökrétta ályktun af neinni forsendu, en hér skal aðeins
á það bent að prófessor þessi er í þokkabót andleg gleðikona og
er falur hverjum sem hafa vill. Skiptir hann þá engu þótt
skoðanir hans stangist gersamlega dag frá degi. Það er ekki
langt síðan að hann stjómaði þingi opinberra starfsmanna og
tók þar mjög virkan þátt í að bera fram kröfur þeirrar stétt-
ar: veralegar kauphækkanir, endurskoðun á grundvelli visi-
tölunnar og síðan fulla uppbót samkvæmt henni. Um leið og
þinginu lauk varð hann svo aftur falur ríkisstjóra þeirri, sem
kröfunum var beint til, og hefur á vegum hennaf skrifað eina
greinina af annarri í Morgunblaðið þess efnig að kauphækk-
anir væru taumlaus vitleysa og uppbætur samkvæmt visitölu
ennþá fráleitari! Hefur hann jafnframt búið til snilliyrði þess
efnis, að það væri jafngott að allir launþegar færu fram á
100% launahækkun og fengju greidda fulla vísitöluuppbót viku-
lega. Ólafur Bjömsson starfsmaður ríkisstjórnarinnar lýsir sem
sé yfir því að Ólafur Bjömsson forseti B.S.R.B. sé vitleysing-
ur, fáfræðíngur og auli, og er það raunar ekki svo fráleitt út
af fyrir sig.
Morgunblaðið hefur svo auðvitað gert röksemdir þessa sér-
kennilega fræðimanns að sínum — það er að segja þær rök-
Gemdir sem hann flytur á vegum ríkisstjómarinnar en ekki
hinar sem hann ber fram sem forseti B.S.R.B. Segir blaðið
að kröfur verkalýðsfélaganna þýði ,,óða verðbólgu“ og afleið-
ing þeirra yrði sú ,,að verðlag mundi tvöfaldast á þriggja
mánaða fresti og vísitalan að ári liðnu sennilega orðin 1000
stig.“ Og enn talar blaðið um að afleiðingin af kröfum launa-
manna verði ný gengislækkun.
Það er ekki hægt að rökræða við undrafugl eins og Ólaf
Björnsson eða málgagn hans. Hitt þurfa allir að gera sér ljóst
að „röksemdir“ Ólafs og Morgunblaðsins eru yfirlýsing um það,
að það sé ekki hægt að tryggja almenningi skárri kjör en nú,
það sé ekki einu sinni hægt að tryggja óbreytt kjör; þau
hljóti að versna jafnt og þétt. Það er vissulega táknræn yfir-
lýsing um framtíðaráform þeirra manna sem landinu stjóraa.
En yfirlýsingar þessar birta meira en pólitískar hugsjónir
valdaklíkunnar; þær eru blygðunarlausar hótanir ríkisstjórn-
arinnar. Morgunblaðið segir við launþega: Ef þið knýið fram
einhverjar káuphækkanir skal þeim stolið margfaldlega frá
ykkur aftur með skipulagðri verðbólgu; ef þið fáið einhverjum
öðrum kjarabótum framgengt skuluð þið missa langtum meira
með nýrri gengislækkun. Þetta eru svör stærstu flokka lands-
ins við nauðvörn alþýðusamtakanna.
Og þetta eru svör sem almenningur þekkir. Þau hafa glum-
ið í eyrum allt frá því að „fyrsta stjórn Alþýðuflokksins var
mynduð snemma árs 1947. Og það hefur ekki verið látið sitja
við hótanirnar einar, þær hafa verið framkvæmdar skilvíslega
og ekkert úr dregið. 1 hvert skipti sem launþegar hafa fengið
framgengt einhverri réttarbót með styrk samtaka sinna hefur
stjómarklíkan rænt henni aftur smátt og smátt og síðan drjúg-
um betur.
Það þarf mikið blygðunarleysi til að lýsa yfir hótunum þeim
sem Morgunblaðið hampar og játa þannig hug sinn til vinn-
andi alþýðu. En Morgunblaðsmenn hugsa sem svo: Ef við
getum sannfært almcnning um það hversu vonlaus kjarabar-
áttan sé, jafnvel þótt stórsigur vinnist, er markinu náð, þá
kemur geigur og trúleysi í staðinn fyrir baráttuhug.
En röksemdafærsla Morgunblaðsins mun verða almenningi
sönnun um annað. Kjarabarátta stéttarfélaganna er ekki ein-
lilít, jafnhliða lienni verður að heyja pólitíska baráttu. Það er
rökvilla af versta tagi ef launamenn sameinast annan daginn
til að knýja fram kauphækkanir og kjarabætur en láta hinn
daginn hafa sig til að kjósa þá flokka sem hafa það að yfirlýstu
stefnuskráratriði að ræna sigrtun alþýðusamtakanna margföld-
um. Verkalýðsfélögin eiga af gefnu tilefni að íýsa yfir að
verði nokkru rænt af árangri þeim sem vinnst um næstu mán-
aðamót verði kjarabaráttunni haldið áfram í Alþingiskosning-
unum næsta sumar.
„Ég íæddist klukkan 12.10 —"
ég einvörðungu
GAMALL ofnotandi skrifar:
Kæri Bæjarpóstur. — Fyrir
nokkru birtist í Morgunblað-
inu viðtal við Jón Þórarins-
son tónskáld um útvarpsmál,
og getur hann þess þar að
ofnotkun útvarps sé mjög
hættuleg. Þar sem hér er
vissulega hreyft við stóm
vandamáli, langar mig til að
segja yður lauslega af minni
eigin sorglegu reynslu. Ég
fæddist kl. 12.10 og byrjaði
mjög ungur að nota útvarp,
eða þegar ég var á tíunda
ári. Á heimili foreldra minna
var að vísu ekki viðtæki, en
einsetumaður nokkur sem bjó
þarna í nágrenninu átti gaml-
an Phillips og þangað lagði
ég ieið mína öllum stundum
til að hlusta. Svo var það eitt
kvöld að ég fékk að skrúfa
takkana sjálfur, og má segja
að á þeirri stundu hafi ég
stigið fyrsta skrefið á braut-
inni til ofnotkimar þvi það
var ekki nema örfáum dögum
síðar að ég varð gripinn ó-
mótstæðilegri löngun í ork-
estermúsikk. — Einsetumaður
inn vinur minn gerði sér þeg-
ar i stað ljósa hættuha sem
yfir mér vofði, og reyndi með
öllum hugsanlegum brögðum
að hafa áhrif á hlustun mína,
gekk jafnvel svo langt að
böiva sinfóníum og ar.dlegri
tóulist, en allt kom fyrir ekki,
og næstu þrjú árin hlustaði
á orkester-
músikk. En þá fór líka að
bera á fleiri einkennum og
síst hættuminni. Ég tók eftir
því að ég var farinn að
hlusta á fréttir og erindi af
talsverðum áhuga, og varð
brátt mjög sólginn í framhalds
sögur. Síðan bættist við hvað
af hverju, tungumálakennslan,
tilkynningar, mánudagssöngv-
arar,i(m daginn og veginn, vett
vangur kvenna, búnaðarþátt-
urinn, vinningaskýrsla háskól-
ans og jarðarfarir. — Þegar
hér var komið, var föður
mínum nóg boðið og tók að
vanda um fyrir mér. Lofaði
ég stöðugt bót og betrun,
en minna varð um efndirnar,
þvi ég fór bara að hlusta á
laun. Um skeið tókst mér að
blekkja foreldra mína, þóttist
þá gjarnan vera á lesstofum
eða ? skiðaferðum, en var
reyndar að hlusta út um
hvippinn o g hvappinn, og
varð brátt hin mesta plága á
héimilum félaga minna. Og
mörg voru þau kvöldin sem
ég hímdi við glugga fólks að
húsabaki og hleraði eftir út-
varpi, oft blautur og kaldur.
Eins og nærri má geta var
ég löngu farinn að slá slöku
við skólanámið og orðinn
langneðstur í bekknum. Þeg-
ar ég svo kolféll á stúdents-
prófi var öllum orðið ljóst,
einnig mér sjálfum, að um
hamfarir höfuðskeppnanna og
hreina ofnotkun var að ræða.
Það var hin óumflýjanlega og
hryllilega staðreynd, og þar
sem nú var ekki lengur ncinu
áð leyna, sökkti ég mér nið-
ur í hlustun og gaf mig al-
gjörlega á vald útvarpinu.
ÉG hlustaði blygðunariaust frá
morgni til kvölds án þess
að fyrirverða mig hið allra
minnsta, og vaknaði oft á
nóttunni og sperti eyrun
með stýrurnar í augimum.
Kunni ég brátt utan að allar
helztu dagskrár heims, og
einn vetur gat ég ekki verið
án japanska útvarpsins, vakti
þá allar nætur, en svaf í smá-
dúrum á daginn, æfinlega með
tækið í gangi og hrökk upp
við minnstu truflanir. Um
það leyti stal ég fyrsta loft-
netinu. En það dugði skammt,
og nú varð ég að eyða dýr-
mætum næturhlustunartíma í
ránsferðir á húsaþökum ná-
grennisins, og loftnetsþjófnað
ur á bröttum þökum í myrkri
og rigningu er enginn baraa-
leikur, fjarri fer því, enda
e'r tæplega heil brú í líkama
mínum, allur brotinn og
bramlaður. Á sama hátt bætti
ég stöðugt í viðtækjasafnið
mitt, og um tvítugt losuðu
þau dúsínið. Þá var ég orð-
inn líkastur könguló í vef sín-
um þar sem ég sat í þéttrið-
inni loftnetjaflækjunni, ör-
kumlamaður og hlustaði á tíu
tæki í einu með þrjú til rara,
öll skrúfuð upp í topp svo
að af varð samfelldur gnýr,
sem minnti á æðisgengna
Framhald á 6. síðu.
* Um BÆKUR og annaS
Nýja kvikmynd ChapLins vekur fádæma hrifningu
— Graham Green semur leikrit — Enn um Adler
Fi
KÉTTIB hafa borizt um
það, að nýja mynd Chaplins,
Svlðljós (Limelight), hafi fengið
kuldalegar móttökur hjá banda-
rískum gagnrýnendum. Annað er
upp á teningnum í Evrópu, þar
sem .sýningar eru hafnar á mynd-
inni. Einn frémstí kvikmyrtda-
gagnrýnandi Frakka, Georges
Sadoul, á varla orð til að lýsa
hrifningu sinni. Hann byrjar dóm
sinn með þessum orðum: Ég
grét. Við grétum öll. Ég þekki
engan, sem ekki felldi tár á
frumsýningu Sviðljósa.
þessari mynd kemur
Chaplin fram í sínu gamla gervi.
Hann leikur aldraðan trúðleikara,
sem eitt sinn var
frægur, en nú hef
úr glatað hæfi-
leika sínum til að
vekja hlátur. —
Hann bjargar
ungri stúlku frá
sjálfsmorði. Hún
er dansmær, sem
gcfizt hefur upp.
Hann blæs henni
kjarki í brjóst,
hún öðlazt frægð,
Chaplio. en gleymir hon-
Þau hittast aftur, fyrir
hennar tilstilli er haldin leiksýn-
ing honum til styrktar og heið-
Þar kemur hann sjálfur
fram í síðasta sinn. Hann deyr
á leiksviðinu.
Chaplin, segir Sadoul, liæsta tindi
harmleiksins, en allt er það bor-
ið uppi af hinni einlægu og djúpu
trú Chaplins á manninn, á lífið.
JAMA daginn og þessi
kvikmynd Chaplins var frumsýnd
í Paris, var frumsýnt í Stokk-
hó'.rni fyrsta leikrit Graham
Grenes, katólska reyfarahöfund-
arins viðkunna. Leikritið hafði
hvergi verið sýnt áður og var
höfundurinn sjálfur viðstaddur
sýninguna. Það heitir The Living
Koom (Setustofan) á enskunni.
Stokkhólmsblöðin voru allósam-
mála um sýninguna, en flestum
ofbauð prédikunartónn höfundar-
ins. Hins vegar þótti leikritið
vel samið og sagði Dagens Ny-
heter, að engan gæti grunað að
höfundurinn væri byrjandi í fag-
inu. Hann er það nú ekki að öllu
leyti. Á seinni árum hefur hann
mjög stundað samningu kvik-
myndaleikrita, og að vissu leyti
tekizt vel.
H
ÉR var í sumar sagt
frá mun'nhörpusnillingnum Larry
Adler og tónleikum þeim sem
hann hafði haldið með undirleik
sinfóníuhljómsveitar Lundúna
undir stjórn sir Malcolm Sargent.
Hann heldur áfram á þeirri braut
að leika tónverk meistaranna á
þetta fyrirlitna hljóðfæri með
þeim árangri, að tónlistargagn-
rýnendur allir sem einn kikna í
hnjánum af undrun og hrifningu.
Hann virðist helzt leika Bach.
T ónlistargagnrýnandi Manchester
Guardian hrósar honum einkum
fyrir meðferð hans á gavotta og
prelúdii úr 6. fiðlusónötu Bachs.
Hann segir Adler tvímælalaust í
hópi mestu tónleikara, sem nú
eru uppi.
SKÁLKURINN FRA BUKHARA
Þann 1. þ. m. sögðu blöð
frá þvi, að þá fyrir nakkru
hefðu tvær nauðgunartilraunir
verið gerðar, önnur á Kefla-
víkurflugvelli, hin í Keflavík-
urkaupstað. 1 þessu sambandi
opinberaðist ýmislegt það, sem
til nýunga má teljast.
Er þar fyrst að nefna, að
nauðgun eða tilraun til nauðg-
unar er ekki daglegur viðburð-
ur á Islandi. Það em liðin
meir en fjögur ár síðan hér
var seinast dæmt fyrir nauðg-
un, eftir því sem mér hefur
verið tjáð af skrifstofu saka-
dómarans í Reykjavík. Nú em
gerðar tvær tilraunir til nauðg
unar í einni og sömu viku.
Annað, sem til nýjunga má
teljast í þessu sambanai, er sú
staðreynd, að viðkomandi lög-
regluyfirvöld gáfu blöðipn
ekki skýrslu um fyrri nauðgun
artilraunina fyrr en viku
eftip að hún var framin. Jafn-
aðarlega er þó blöðum tilkynnt
um afbrot, hvort sem eru af
þessu tagi eða t.d. þjófnaðir
eða ofbeldisárásir annarar teg-
undar, mjög stuttu, og yfir-
leitt í hæsta lagi sólarhring
eftir að þau em framin. En nú
dróst þetta sem sé í viku, til-
kynning lögreglunnar um
atburðinn var sjö daga á leið-
inni frá Keflavíkurflugvelli á
skrifstofur blaðanna í Reykja-
vík. Er þetta undarlega sein-
læti helzt sambærilegt við af-
greiðslu þýðingarmestu opin-
berra tilkynninga, sem þurx'a
að ganga milli margra hátt-
settra embættismanna og ráðu*
neyta, til samþykktar, áður en
talið er óhætt að birta þær. —
Og þó virðist jafnvel ekki víst,
að blöðunum hefði nokkum-
tíma verið skýrt frá málinu, ef
eitt þeirra hefði ekki verið bú-
ið að tilkynna viðkomandi lög-
regluýfirvöldum, að það heíði
fengið nákvæmar upplýsingai
um atburðinn frá öðrum aðilj-
um, og mundi birta þær, ef
ekki kæmi opinber skýrsla.
Það þriðja, sem til nýunga
má telja í þessu sambandi, er
sú staðreynd, að útbreiddasta
og stærsta blað landsins, sem
venjulega gerir mikið úr af-
brotum á fróttasíðum sínum,
krefst ströngustu refsingar >-f-
ir frakkaþjófum og ungling-
um sem slást uppá fólk, og
er oft með ábyrgðar-þrungnar
hugleiðingar um nauðsyn þess,
að nöfn slíkra afbrotamaima
séu birt skýrum stöfum öðrum
til viðvörunar, þetta blað virt-
ist allt í einu hafa misst úr
sér áhugann á að berjast gegn
afbrotum á þennan hátt. Það
sagði frá fyrri nauðgunartil-
rauninni í stuttri tveggja dálka
grein, þar sem lítið bar á henni
á innsíðu, frá seinni tilrauninni
sagði það í örstuttri eins
dálks klausu á öftustu síðu. 1
fréttinni af fyrri tilrauninni
ÞETTA ER ALÞINGI ISLENDINGA
Kaflar úr rœSu Jónasar Árnasonar um
hernámsmálin á þingi i fyrradag
lagði blaðið auk þess sérstaka
áherzlu á það í fyrirsögn, að
kvenmaður sá, sem fyrir árás-
inni varð, hafi verið drukkinn,
og gæti maður haldið að það
hafi með þessu viljað gefa í
skyn, að þetta væri í rauninni
ekkert mjög óeðlilegur atburð-
ur, miðað við kringumstæður.
Ekki komst blaðið þó hjá að
segja frá því, sem kom fram
í tilkynningu lögreglunnar, að
eftir árásina var stúlkan „með
glóðarauga, og allmikið bólgin
í kringum munninn og á
vinstri kinn“, þegar að henni
var komið um morguninn, þar
sem hún hafði legið í rúminu
bjargarlaus heila nótt.
Og enn má nefna atriði, sem
til nýunga hlýtur að teljast, í
sambandi við þetta mál. I til-
kynningu lögreglunnar ixm
fyrri nauðgunartilraunina seg-
ir að fjórir menn hafi heyrt
neyðaróp stúlkunnar, en eng-
inn þeirra hreyfði legg né lið
til að hjálpa henni Einn þeirra,
ístenzlxur maður, var meira að
segja staddur í bragganum,
þar sem atburðurinn gerðist.
Það hefur nú sem sé átt sér
stað á Islandi, að karlmenn
láta það afskiptalaust, að
kvenmanni sé misþyrmt á hinn
viðurstyggilegasta hátt, svo að
segja fyrir augunum á þeim;
karlmennska þeirra er ekki
meiri en svo, að þeir leggjast
aftur útaf og sofna, þegar
neyðaróp stúlkunnar hafa vak-
ið þá. Af mörgum nýungum,
sem opinberazt hafa í sam-
bandi við málið, er þessi held
ég athyglisverðust.
.★
En hvað kemur til, að nú
ber svo margt nýrra við?
Þessari spurningu . er fljót-
svarað. Ástæðan til þess er
einfaldlega sú, að erlendur her
hefur setzt upp í landinu. Það
voru bandarískir hermenn sem
frömdu báðar umræddar nauðg
unartilraunir. Og það liggur
beinast við að álykta, að ein-
mitt af þeirri ástæðu hafi orð-
ið hinn undarlegi dráttur á að
viðkomandi yfirvöld veittu
blöðxmum skýrslu í málinu.
Hvað snertir afstöðu íslenzkra
stjórnarvalda til hinna svo-
nefndu verndara virðist nefni-
lega gilda sú regla, að í
lengstu lög skuli reynt að kom-
ast hjá að láta verða uppvíst
um það sem miður fer í fram-
komu þeirra, hversu mikil af-
brot sem þar kann annars að
vera um að ræða, því að slíkt
muni vekja hjá almenningi
grunsemdir um að verndin sé
nokkuð dýru verði keypt, já
sé jafnvel ekki nein vernd,
heldur þvert á móti eyðilegg-
ing á öllu því sem þjóðinni
var sagt hún ætti að tryggja:
sjálfstæði, frelsi og menningu.
Öll gagnrýni á framferði her-
námsliðsins sé sem sagt stuðn-
ingur við þá sem hafa barizt
gegn því að það hefðist við í
landinu — eða einsog vitrir
stjóramálamenn og vel gefnir
blaðamenn kalla það: vatn á
myllu kommúnista. Kjaminn í
þessum siðaboðskap er í raun-
inni sá, að þjóðin skuli öryggis
síns vegna koma fram við hið
erlenda herlið af auðmýkt og
undirgefni, og er þess þá ef-
tilvill ekki langt að bíða, að
það verði álitið bera vott um
þjóðhollustu að láta svonefnda
verndara sina sparka í sig,
berja sig í andlitið, jafnvel
hrækja á sig möglunarlaust.
★
Já, það voru bandarísikir
hermenn sem nauðgunartilraun
imar gerðu, og enn af þeirri
ástæðu var svo lítið gert úr
málinu, sem raun bar vitni, í
stærsta blaði landsins. Maður
getur verið ábyrgðarfullur og
harðúr í horn að taka þegar
við er að eiga umkomulausa
unglinga sem stela frökkum úr
forstofum betri borgara, en
það verður, að sýna fyllstu
varkárni, fyllstu aðgæzlu i á-
lyktunum, þegar fulltrúar
mesta herveldis heims, vernd-
arar vorir, vilja nauðga kon-
um. Kurteisi kostar ekki pen-
inga, stendur þar.
Og enn af þessari sömu á-
stæðu hefur það nú gerzt, að
íslenzkur karlmaður getur leg-
ið hinn rólegasti í rúmi sínu,
þó hann viti að í næsta her-
bergi er verið að berja unga
konu til óbóta. Þama brenna
í einum punkti afleiðingar þess
hugsunarháttar sem virðist
ráðandi í afstöðu íslenzkra
stjórnarvalda til hins erlenda
herliðs. Islendinguriim, sem lá
hinn rólegasti í rúmi sínu,
meðan bandaríski hermaður
inn reyndi að nauðga íslenzkri
stúlku í næsta herbergi, er
persónugerfingur þeirrar vesal-
mennsku sem reynt er að leiða
íslenzku þjóðina í.
★
Islendingum ríður nú ekki
á neinu meir en því að stöðva
þetta undanhald og snúa því
upp í sókn. Og það er ekki
hvað sízt af þeirri ástæðu sem
flutt er tillaga sú sem hér
liggur fyrir á þingskj. 83.
Þau mál, sem þessi tillaga
snertir, hafa sem kunnugt er
verið mikið rædd að undan-
förnu, bæði hér á hv. Alþingi
og utan þings.
Fyrir 4 vikum var hér til
umræðu tillaga sem tveir hv.
þingmenn, Rannveig Þorsteins-
dóttir og Gísli Guðmundsson,
flytja um takmarkanir á ferð-
um hermanna. I ræðu, sem Magn
ús Kjartansson flutti þá, sýndi
hann fram á galla þá sem eru
á þeirri tillögu og komst rétti-
lega að þeirri niðurstöðu að
hún væri mjög gagnslítil og
ekki líkleg til að bæta raun-
veralega úr þvi ófremdará-
standivsem hér er um að ræða.
Tel ég óþarft að tefja störf
þingsins með því nú sé aftur
farið nákvæmlega út í þetta
atriði.
Gylfi Þ. Gíslason tók einnig
til máls í umræðunum fyrir 4
vikum og hneig ræða hans
einnig í þá átt að ákvæði um-
ræddrar tillögu væru eklti nógu
ströng, og hefur hann látið á
sér skilja, að hann mundi
fylgjandi því, að hernámsliðið
yrði algjörlega einangrað, dvöl
þess takmörkuð við þá staði
að minnsta kosti í frítímum
sem það hefur sérstaklega
fengið til umráða með gerð-
xun samningi við ísl. stjórn-
arvöld. Ekki lýsti hann þó, að
svo stöddu, yfir stuðningi sín
um við tillögu þá frá okkur
Magnúsi Kjartanssyni sem hér
er nú til umræðu, en ætla má,
að í henni felist einmitt það
sem hann vill að gert sé í
málinu.
Og það þori ég að fullyrða,
að I þessari till. okkar felst
algjöra einangrun herliðsins
verður æ háværari, enda væri
þá Islendingum illa brugðið, ef
þeim leyndist það enn, eftir
allt sem á undao er gengið,
hvilíkur voði hernámið er orð-
ið fyrir siðferði æskunnar og
menningu þjóðarinnar.
★
Já, mál þessi hafa verið
mikið rædd að undanförnu, og
margur orðið til að lýsa þeirri
spillingu sem viðgengizt hefur
hér í Reykjavík og nágrenni
af völdum hernámsins. Þar á
meðal dró Rannveig Þorsteins-
dóttir upp mynd af ástandinu
í ræðu sinni hér fyrir fjórum
vikum. Einnig eru málinu gerð
allnáin skil í greinargerð fyr-
ir tillögu okkar sem hér er
nú til umræðu. Má þannig
ætla, að alþingismenn hafi
þegar gert sér fullljósa grein
fyrir alvöru málsins, og tel ég
því ástæðulanst að tefja tíma
þingsins með því að rekja hina
ljótu spillingasögu henaárosins
að þessu sinni.
En ég vil endurtaka það, og
leggja sérstaka áherzlu á, að
almenningur mun ætlast til að
farin sé einmitt sú leið sem í
þessari tillögu felst — „Al-
þingi ályktar, að á meðan er-
lendur her dvelst í landinu,
skuli hermönnum óheimil öll
ferðalög og vist í frítíma sín-
um utan yfirlýstra samnings-
svæða.“ Með þessu er tekið
undir kröfu almennings um
einangrun herstöðvanna, yfir-
lýst samningssvæði eru Kefla-
víkurflugvöllur og bækistöðvar
hersins í Hvalfirði. Því miður
verður þaraa að miða ein-
göngu við frítíma hermann-
anna, enda gæti Alþingi ógjam
an bannað þeim allar ferðir út
fyrir herbúðirnar til skyldu-
starfa, meðan enn er í gildi sá
samningur sem það hefur illu
heilli gert um dvöl þeirra í
landinu.
Tillagan felur í sér skýlausa
viljayfirlýsingu Alþingis, enda
hlýtur almenningur að líta svo
á, að Alþingi sé eini rétti að
ilinn til að taka af skarið t
þessum efnum, — eða hver
ætti annars að gera það þegar
það, sem almenningur vill að um er að ræða svo örlagaríkt
gert sé í málinu. Krafan um| Framhald á 7. síðu
Hljómlist þriggja meistara
Eftir skáltísögu Leoniíis Solovjoifs ★ Teikningar eftir Helge Kuim-Nielseiv
260. dagur.
rETTA er þráður raynd-
arinnar, hann virðist ekki flók-
í eða gefa tilefni til miki s.
En úr þessu einfalda, útþvæ'da
yrkisefni tekst Chaplin að skapa
heilsteypt Jistaverk, áhrifamikinn
harmleik. Sadoul minnir á, að
Elie Faure, hinn mikli franski
listfræðingur, líkti Chaþlin við
Shakespeare þegar árið 1920. Og
hann bætir við, að aldrei hafi
þessi samlíking virzt sannari en
dag. Með þessu verki sínu nær
Hér er ægilega djúpt, kvartaði okrarinn.
Þú hefur líklega eklci gleymt þvi, Hússein
Húslía, að ég er ósyndur. — Ættingjarnir
hörfðú þögúlir á.
Hann fann að lokum stað þar sem vatnið
var aðgrunnt, settist á hækjur sínar, greip
um trjágrein og dýfði annarri löppinni í
vatnið. — Það er kalt, kvartaði hann.
Þú hikar alltuf lengi, svaraði Hodsja Nas-
redd'n. Hann leit ekki á olcrarann til þess
að fá ekki meðaumkvun með honum.
Svona, farðu nú út í!
Okrarinn potaði sér niður í vatnið, en
sneri þegar við og lagðist á magann á
bakkanni Að lokum herti hann þó upp hug-
ann og sleppti sér.
Sinfóníuhljómsveitin er þegar
orðinn ríkari þáttur í menning-
arlífi höfuðstaðarins en margur
hyggur. Hún hefur slitið barns-
skónum, og tekst á hendur hin
erfiðustu viðfangsefni án þess
að láta sér bregða. — I Aust-
urbæjarbíói á þriðjudag lék
hljómsveitin verk eftir meist-
arana miklu, Mozart, Wagner
og Beethoven.
Fyrsta viðfangsefnið var kon-
sert í D-dur (K.V. 218) eftir
Mozart. Þar lélc Ruth Hermans
fiðluleikinn og fór það vel úr
hendi, og fögnuðu áheyrendur
leik hennar. Þess ber að gæta,
að það er meira en lítill vandi
að koma fram sem einleikari
með sinfóníuhljómsveitinni
næst á eftir Erling Blöndal-
iBengtson.
Annað viðfangsefnið var úr
óperunni Tristan og Isold eftir
Richard Wagner, forleikurinn
að dauða ísoldar. Þar reyndi ti:
hlítar á hljómsveitina og ekk'
síður hljómsveitarstjórann. Scr
kennilegt og heillandi er upphaí
forleiksins og notkun sellóanna.
1 traustum höndum hljómsveit-
arstjórans léku hinir marg-
slungnu þræðir rómantískrar á-
stríðu og djúprar íhygli svo, að
hvergi bar út af.
Síðast en ekki sízt var 1.
sinfónía Beethovens, björt og
tær, æskuverk snillingsins, og
þó áratug í .smíðum.
Unun var að sjá og heyra,
hvemig hljómsveitarstjórinn,
Olav Kielland, leysti hlutverk
sitt af hendi, enda má fullyrða,
að hljómlistarmenn þeir, sem
sinfóníuhljómsveitina mynda,
eru engir viðvaningar; sér-
hvert hljóðfæri er í öruggum
höndum. Sinfóníuhljómsveitin
hefur hvað eftir aonað sannað,
að hún á fullan rétt. á sér, og
væri það milkill vansi fyrir íbúa
höfuðborgarinnar, ef hún neydd
ist til að leggja niður störf sín,
en stundum mun liafa stappað
nærri, að svo yrði.
el.
Kosningasigur
ííölsku veika-
iýðsilokkana
1 Alesandriahéraði á Italíu
fóru fram bæja- og sveita- 1
1 stjórnarkosningar í s'ðustu 1
1 viku. Sameiglnlegur listi
' Ivommúnista og sósíaklemó- ,
, krata jólx hvarvetna í'ylgi (
, sitt.
Listi þeirra hlaut meiri-1
1 hiuta atkvæða í 12 af 41 1
1 kjördæmi, áður hafði hann (
f meirihlnta í 7 kjördæmum.