Þjóðviljinn - 17.01.1953, Síða 8

Þjóðviljinn - 17.01.1953, Síða 8
Átök í stórborgum landsirts Um þrjár milljónir verk'smiðj uverkamanna og opinberra starfsmanna á Ítalíu lögðu niður vinnu í tvo klukku- tíma í gær til aö mótmæla frumvarpi ríkisstj órnarinnar til nýrra kosningalaga. Frumvarpið mælir svo fyrir, að flokkur eða flokkasamsteypa sem fær helming greiddra at- kvæða eða þar yfir, skuli fá tvo þriðju allra þingsæta. Ætl- un De Gasperi forsætisráðherra ítölaiu afturhaldsstjórnar- innar er að tryggja sér með þessu aukinn meirihluta á þingi enda þótt bæjarstjórnarkosn- ingar á síðasta ári leiddu í ljós að flokkur hans, kaþólskir, og samstarfsflokkar hans hafi stórtapað fylgi sí'ðan í síðustu þingkosningum. Álþýðusamband Italíu hvatti meðlimi sína :á Norður- og Mið- Itálíu, sem eru um þrjár millj- ónir talsins, til að gera tveggja klukkutíma verkfall í gær til að mótmæla frumvarpinu. Und- anfarna daga hafa verið haldn- ir mótmælafundir gegn þessari löghelgun kosningasvika viðs- vegar um Italiu. — Lögregla reyndi í fyrradag að dreifa mótmæiagöngum í borgunum Róm, Neapel og Flórens. Tug ir manna særðust og hundruð voru handtekin. Þóf á þingi Umræður um kosningalaga- frumvarpið hafa staðið í neðri deild ítalska þingsins næstum hvern dag síðan 7. desember. Stjórnarandstæðingar hafa taf- ið þær með öllu móti til að reyna að hindra að frumvarþið geti fengið fullnaðarafgreiðslu fyrir þingslit í vor. Breyting- artillögur hafa' verið bornar fram þúsundum saman, einn af þingmönnum talaði í átta klst. gegn frumvarpinu, barizt var með hnefum og húsbúnaði á næturfundi einum, stjórnarand- stöðuþingmenn ganga löturhægt að atkvæðakassanum þegar at- kvæði eru greidd osfrv. Ekki er enn útséð um, hvort stjórn- in fær frumvarpið afgreitt í tæka tíð. Gera Mossadegk nýtt tilbo Brezka stjórnin hefur sent Mossadegh, forsætisráðherra Irans, nýja tillögu um lausn olíudeilu landanna, að því er fréttaritari Reuters í Washing- ton segir. Stjórnmálasambandi milli Irans og Bretlands hefur verið slitið og var tilboði Breta því komið áleiðis fyrir milþ- göngu sendiherra Bandaríkj- anna í Teheran. Fréttaritarinn segir að embættismenn í Wash- ington búist við að Mossadegh sendi svar í dag og séu von- góðir um að það verði jákvætt. Hvenær ætlar stjórn S. R. að Kefja afhendingu verkfallssfyrks til sjó- manna er nú eiga í verk- falli? 16. dagar eru nú Iiðnir síð- an verkfall hófst á bátaflot- anum og eru nokkrir tugir fé- laga í S. R. er þannig hafa verið frá vinnu. Svo sem að líkindum lætur eru margir hverjir þessara manna aðfram- komnir og þarfnast styrks nú þegar. Þrátt fyrir vitneskju stjórnar S. R. um þetta hefur liún ekki hafið úthlutun úr verkfallssjóði til bátasjómanna ennþá. Væri ekki nauðsynlegt að hafizt sværi handa um slika úthlutun nú þegar? Eða er verkfallssjóðurinn kannske ekki fyrir sjómenn almennt? Sjómaður Ferðaskrifstofa rðdsins lækkar í skíðaferðum tun 23 % Ferðaskrifstofa ríkisins og bifreiðaeigendur þeir sem bifreiðir eiga í afgreiðslu hjá Ferðaskrifstofunni hafa ákveðið að iækka öll fargjöhl í skíðaferðum stórlega. Fargjöld fram og til baka upp á Hellisheiði, sem voru kr. 30.00 áður Iækka nú i kr. 23.00 eða um rúm 23% og á aðrar skíðaslóðir Iækka íargjöld að sama skapi. Skíðaferðir hefjast á morgun. Þorleifur Þórðarson, for- stjóri Férðaskrifstofu ríkisins, skýrði blaðamönnum frá þess- um tiðindum í gær sem mun almennt fagnað af unga fólk- inu sem hyggur á skíðaferðir. Auk afsláttsins á hinum á- kveðnu skíðaferðum mun Ferða- skrifstöfan geta útvegað næga bila í hópferðir t. d. skóla með góðum kjörum. Aukln dýrtíð og há fargjöld hafa dregið úr skíðaferðum. Síastliðið ár flutti Ferðaskrif- stofan um 2000 skíðamenn og var það færra fólk en árið þar áður. Reynsla undanfarinna ára Framhald á 7. síðu. ÆRSHÁTfÐ R.- DlðÐVILmiN Laugardagur 17. janúar 1953 — 18. árgangur -— 13. tölublað Jóhann Hafsfein gefur út loforðovíxla á nœstu þing! Kaíloðm svön um afstöðu Sjálfstæðisflohhsins til iýðsskrumsframvarps hans og Magsiúsar frá Mél Jóhann Hafstein og Magnús Jónsscn, tvær upprenn- andi íhaldsstjömur, flytja á þingi frumvarp mikið um lækkun skatts á lágtekjum, en hafa til þessa í innilegri einingu við aðra afturhaldsmenn á þingi fellt allar til- lögur er sósíalistar hafa fram borið urn þetta efni. Jónas Árnason flytur frásögu á árshátíð ÆFR Munið árshátið Æ.F.R. í veitingasölum Þjóðleikhúss- ins í kvöld. Hún hefst kl. 8.30 stundvíslega. Þar verður margt ti! skemmtunar. M. a. flytur Jónas Árnason a!þm. þar frásöguþátt. Háfið samband við skríf- stofu Æ.F.R. í dag og trygg- ið yklíur aðgang. I gær við 1. umr. málsins var Jóhann spurður hvort Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að samþykkja frumvarp þeirra Magnúsar. Vafðist þá kempunni tunga um tönn, og varð svarið kafloð- ið, loks lofaði hann því einu að frumvarpið yrði samþykkt einhverntíma í framtíðinni, hver sem yrðu örlög þess á þessu þingi '■ Nú er ekki alveg víst að Jó- hann Hafstein eða Magnús á Mel verði þingmenn framar og er því fullbillegt að lofa sam- þykkt frumvarps á næstu þing- um. Enda er flutningur málsins sýnilega til þess eins að fá blað til að veifa í kosningun- um í sumar. FuIIkomnari hagnýting Hitaveitunnar Skýrsla hitaveitustjóra ókomin enn Á fundi bæjarstjórnar Reykjavíkur i fyrradag beiudi Guð- mundur Vigfússon þeirri fyrirspurn til borgarstjóra hvort hita- veitustjóri hefði lokið þeim athugunum, varðandi hagnýtingu heita vatnsins og möguleika á frekari útfærslu hitaveitunnar til nýrra bæjarhverfa sem bæjarráð fól honum á fundi sínum 18. nóvember í haust. Auknar fiölskyldubætur knúnar fram af verkamönnum meS þriggja vikna verkfalli íhaldsforinginn Gísli lónsson kallar verk- fallsmenn „ábyrgðarlausa æsingaseggi" Ég vil taka það greinilega fram að þessi breyting á trygg- ingarlögunum liefði ekki verið gerð nema vegna verkfallsins, sagði Steíngrímur Steinþórsson forsætisráðherra er hann lagði fyrir efri deild í gær írumvarp um breytingar á tryggingunum tii samræmis við samningana er verkamenn knúðu fram. Ferðaskrifstcfan opnar imian skamms veiiinqasölu fyrir lerðafólk Ferðaskrifstofa ríkisins mun áð'ur en langt iíður opna veit- ingasölu fyrir ferðamenn I húsaltynnum sínum. Verð'Ur það til mikilla þæginda fyrir ferða- fólk. Þarna verður þó ekkj mat- saia, heldur verður þarna selt kaffi, öl, sælgæti o. fl. enn- íremur nestispakkar og e.t.v. skíðabindingar og ýmiskonar útbúnaður sem ferðafólk þarf á að halda. Forsætisráðherrann mann- aði sig þó upp í það að telja aúknar fjölskyldubætur breyt- ingu til bóta á löggjöfinni. Gísli Jónsson hafði allt á hotoum sér og deildi fast á ríkisstjórnina fyrir að draga ekki verkfallið þar til þing kom saman, og láta það fjalla um málið, og taldi ekki eftir það tjón er af þeim drætti hefði orðið. 1 umræðum um niðurfellingu aðflutningsgjalda af ikaffi og sykri taldi Gísli iþessi vioeigandi að tala um „verkfallið sem Géður ðfli Togarlnn Austfirðingur kom í fyrradag af veiðúm með 300 lestir eftir fremur stutta veiði- ferð. Landaði hann aflanum á Eskifirði og Fáskrúðsfirði til vinnslu í frystihúunum þar. nokkrir ábyrgðarlausir æsinga seggir komu af stað!“ Geta verkfallsmenn stungið þessum ummælum eins aðalforingja Sjálfstæðisflokksias hjá sér. 1 Drap Guðmundur í þessu sambandi á þann almenna á- huga fyrir málinu sem ríkjandi er meðal íbúa þeirra hverfa sem enn hafa ekki orðið hitaveit- unnar aðnjótandi. Auk þess sem hér væri um mikilsvert hagsmunamál að ræða fyrir bæjarbúa í heild og bæjarfé- lagið. Lægi ekkert enn fyrir frá hitaveitustjóra um þessar athuganir, sem unnt hefði þó átt að vera að Ijúka á skömm-. um tíma. Óskaði Guðmundur eftir því að borgarstjóri hlut- aðist til um að hitaveitustjóri hraðaði rannsókn sinni. •Eitgin skýrsla borizt. Borgarstjóri kvað enga kkýrslu enn hafa borizt frá Framhald á 7. síðu. Skíðafélögin hefja samstarf um flufmg skíðafólks Skíðadeildir íþróttafélaganna í Reykjavík og Skíðafélag Reykjavíkur hafa tekið upp samvinnu um flutning skíðafóliks og hefur ferðaskrifstofan Orlof tekið að sér að annast fereðirnar. Áður fyrr hafði hvert félag ferðir fyrir félaga sína, en fyrir 3-4 árum hófu nokkur þeirra samstarf sín á milli, og kom í ljós, að sá háttur var bæði ódýrari og hentugri fyrir skíða- fólkiö. Ferðir verða kl. 20 á föstu- dagskvöldum, 9, 14 og 18 á laugardögum og 10 og 13 á Vélbáturinn Kópur frá Siglufirði strandaði í fyrrakvöld á norðanverðu Siglunesi. Þrír menn voru á bátnum og björguðust þeir allir á Iand. Kópur var að koma frá Dal-’ vík þegar hann strandaði um kl. 10 í fyrrakvöld var þá éljaveður og ólin dimm. Menn björguðust allir ,en vafasamt var talið í gær að tak- ast myndi að bjarga bátnum. áheitasjóður Hólakirbju Áheita- og minningasjóður Hólakirkju hefur verið stofnað- ur. Stofnféð er 11 þús. kr. gjöf frá prestum í Hólabiskups- dæmi. sunaudögum. Auk þess kl. 20 á miðvikudögum fyrir þá, sem Framhald á 2. síðu. -------------------------\ írá skíðaíólögunum Að gefnu tilefni, eftir frétt frá Ferðaskrifstofu ríkisins um fargjöld í skiðalerðum, vilj- um vér taka þetta fram: Undanfarin ár hefur full samvinna verið við Ferðaskrif- stofu ríkisins urn fargjöldin. Af hessum ástæðum keinur oss frétt Ferðaskrifstofunnar mjög á óvart, en munum að sjálf- sögðu halda farþegum vorum, ha'ði meðlimum og öðrum, skaðlausum, hvaða gjald sem endanlega verður ákveðið síð- ar, eftir nánara samkomulagi við umferðamáiastjórnina. Skiðafélögln í Reykjavík og Hafnarfirði.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.