Þjóðviljinn - 14.03.1953, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 14.03.1953, Qupperneq 4
£) _ ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 14. .marz 1953 Einn helztur bókmenntavi’ð- burður liðins hausts var út- gáfa ísafoldarprentsmiðju á Lausu máli Einars Bene’dikts- sonar. Þeirri útgáfu fylgdi Æviágrip Einars Benedikts- sonar er umsjónarmaður verks ins, Steingrímur J. Þorsteins- son prófessor, hafði samið. • Skal nú þessu verki lýst í ýt- arlegri frétt en áður, og hefði þó mátt vera fyrr. Þótt drjúg sala reyndist í þessum bókum munu hinir þó fleiri sem ekki hafa iitið þær eigin augum, og væri þeim þessi frásögn kannski betri en engin. Laust mál greinist í fimm höfuðkafla er svo heita: Sög- ur og svipmyndir, Skáld og þjóðmenntir, Saga og þjóðar- frami, Þjóðmál og fram- kvæmdir, Hugleiðingar og heimspeki. í öllum þessum efnisflokkum er um úrval að ræða. 1 Sögum og svipm.ynd- um er þó minnst undan dreg- ið. Þar kemur í fyrsta sinn fyrir aimenningssjónir sögu- brotið langa Undan krossin- ■um, hið eina efni í þessu verki er ekki hefur áður birzt á prenti, að frátöldum bréfa- brotum í Æviágripi. Það yrði of langt mál að rekja efni þessa kafla framar en fyrir- sögn hans greinir, en meiri- hluti hans heyrir undir svip- myndirnar. Em ma.rgar þeirra frá Dagskrár-dögum höfund- ar, ýmsar ritaðar af svipuð- um hvötum og blaðamenn nú- tímans fara á togveiðar eða fljúga til Hollands: heyja blaði og riti nýtt efni — auk þess sem þær vitna um áhuga mál höfundar. Sumar þessar svipmyndir eru frá seinni dögum. Þeir sem til þykjast þekkja hafa það fyrir satt áð skáldið leiki þar sumstaðnr tveimur skjöldum, og jafnvel fleiri; þar séu á ferð dulbún- ar og eftir því heiftarlegar árásir á ýmsa stórlaxa stjórn mála og menningarlifs á þess- um tíma, í líkum anda og kvæcið Fróðárhirð sem allir þekkja. 1 næsta flokki, Skáld og þjóðmenntir, birtist „meginiö af öllu því, sem Einar skrif- aði um skáld og rithöfunda, „Laust má!“ Einars Benediktssonar íslenzka menningu og þjóðieg- ar iistir“. Meirihluti þeirra greina er einnig saminn á yngri rithöfundarárum Ein- ars. Birtast hér meðal ann- ars ritdómar um Ljóðmæli Grírns Thomser.s 1895 og Þyrna 1897, ritgerðii' og grein ar um Sigurð Breiðfjörð, Matthías, Gest Pálsson, Gísla Brynjúlfsson, og enn fleiri höfunda. Allmörgum hörðum ádeilugreinum er sleppt úr flokknum, enda hefur tíminn heldur snúizt á sveif meö þeim sem Einari vítti ákaf- legast. Um þriðja flokkinn segir útgefandi meðal annars svo í Formála: „Saga og þjóðar- frami er hér heiti 'á nokkrum ritgerðum Einars um forsögu leg og sagnfræðileg efni og þá sögu, sem harin vildi skapa Islandi í ríkisréttarlégu og menningarlegu tilliti. Tiltölu- lega fá sýnishorn. eru valin þessarar tegundar ....... af hér um bil 40 greinum hans um Grænlandsmálið er aðeins tekin ein“. ' Þjóðmál og framkvæmdir nefnist f jórði flokkurinn. Tek- ur hann yfir röskar 100 blað- síður, en ,‘,samt er þar lang- samlega minnst tekið að til- tölu við efnismagn ...... En greinum, og segir Steingrím- ur J. Þorsteinsson m. a. um þann kafla: ......... að inn- taki er þetta allt náskylt: um heimstilfinninguna, htims- séu nokkru fróðari um efni verksins og niðurskipan þess. Þá er komið að Æ\iágripi Einars Benediktssonar. Fyllir það síðari hluta seinna bindis, hér eru myndir af blaðamann- inum, stjórnmálamanninum, ádeilumanninum, bardaga- manninum, umbótamanninum, jafnaðarmanninum, auð- hyggj-umanninum, fram- kvæmdamanninum.“ Væntir Þjóðviljinn þess að geta vik- ið nánar að sumum 'þessara ,,manna“ innan skamms, enda býöur þessi flokkur upp á hugtæk kynningarefni. Hugleiðingar og heimspeki samanstanda af einum fimm EINAR BEI skynjanina, heimsgátuna. 1 ó- bundnu máli lætur Einar hvergi uppi sem hér tilfinn- ingu sína fyiúr skyldleika alls hins skapaða og skoðun sína á lífi, tilveru og æffsta tak- marki mannanna -— og eru fyrri þættirnir tveir frá upp- hafi, en hinir þrír síðari frá lokum skáldferils hans.“, Vona ég þá að þeir sem ekki, hafa komizt yfir Laust mál alls rúmlega 200 blaðsíður. En .bæði biridiri samánlögð eru 762 síður, með Ritgerðatali höfundar er birtist í bókarlok. Um ritgerð sína segir Stein- grímur J- Þorsteinsson í for- spjallsorðum: ,,Þessari rit- gerð er fyrst og fremst ætl- að það hlutverk að birta nokk urt staðreyndatal um Einar Benediktsson, bregffa upp ein- staka myndum úr 1-ífi hans og rekja æviatvik hans hin helztu, en ekki að fjalla um skáldskap haris aðallega“. Verða menn mjög aö hafa þetta í huga við lestur rit- gerðarinnar; enda sýnist ekki óeðlilegt að lýst sé ævi höf- undar. og reynt að leysa úr ýmsum ráögátum um lífsferil lians, áffur en ráðizt er í sjálfa skáldskaparlýsinguna og listgreininguna. Hið síðara lilýtur mjög að styðjast hinu fyrra. Svo virðist sem ritun Æviágrips hafi vel tekizt, inn- an þess ramma sem höfundur. setur því í upphafi. Undirrit- aður las það af gagnrýnis- lausum og fagnaðarfullum hraða strax og það kom út, og hefur raunar ekki leitað eftir veilum í því síðan. Hitt getur hann fullyrt að eftir lestur þess er maffur stórum margvísari um líf og verk Einars Benediktssonar. Með tilliti til staðreynda og hlutlægrar upplýsingar er rit- gerðin áreiðanlega gott dæmi þess hve margt kemur jafnan upp úr. kafinu þegar vísinda- lega er eftir leitað. Það verð- ur heldur ekki séð að höfund- ur geri tilraunir til að draga fjöður yfir neina þætti í fari skáldsins, berja i bresti hans — endá þó honum takist prýðilega að hreinsa hann af ýmsu ámæli. Sannleiksleitin ein hefur yakað fyrir höfundi. En auðvitað koma hér ekki öll kurl til grafar, varðandi ævi Einars Benediktssonar. Er víða erfitt um vik, þar sem hann dvaldist langdvöl- um erlendis, og lagði að auki leið1 sína mjög um leyni- götur fjármála og viðskipta. Til dæmis verður mánni eklri með öllu ljóst hvernig sterk auðfélög, sem Einar reisti upp erlendis, sættu sig við að leysa sjáíf sig upp án þess að bera nokkurntíma neitt úr býtum móti margvíslegum kostnaði er leiddi af stofnun þeirra og tilvist. Skáldlund Einars Benediktssonar leiddi hann stundum út á yztu þröm réttrar stáðréyndar um framkvæmdamöguleika hér heima. Er ekki ólíklegt að érlendir félagar hafi láti'ð Framhald á 11. síðu. Ö, Snoddas! — Ráðhúsbyggingin í Bankastræti eða á Arnarhól? hæðir og kjallari, sem til léttum stíl. — Ólaíur Guð- margs yrði hentugur, þótt ekki torandsson". yrði fyrir opinberar skrifstof- e. M. lanigar til .að bæta nokkr- GREIN hefur borizt frá „Raj“ með fyrirsögninni „Tilmæli til forráðamanna Tónlistarfélags- ins“ og er á þessá leið: „í sambandi við hingaðkomu sænska dægurlagasöngvarans „Snoddias“ kom mér í hug, hvort hér væri ekki verkefni fyrir Tónlistarfélaigið að vinna. Frá upphafi hefur stefnuSkrá Tónlistarfélagsins verið að bjóða meðlimum sínum aðeins það beztá, sem völ væri á. Snoddas þykir nú beztur allra dúllsöngvara, sem norðurálfan þekkir. Það væri því ekki nema éðlílegt, að Tónlistarfélagið gæfi meðlimum sínum kost á •að heyra hinn víðkunna söngv- ■ara. Sé einhver í vafa um, að Snoddás upþfylli þau skilyrði, sem hinir vandlátu krefjast, þá ■ er það hinn mesti misskilnirig- ur. Söngur margnefnds Snoddas er ekki verri en margt .af því, sem okkur var boðið að hlýða, þegar ameríska herlúðrasveit- in lék hér á dögunum. Svo kom harmónikuspilið og dúlllagið Auf Wiedersehen, svo eitt- hvað sé nefnt. — Auðvitað kæmi þetta fram í Þíóðleik- húsinu, og á undan fly-tti Ragn- ar í iSmára hjartnæma ræðu, og á eftir yrði hrópað húrra. Ég vona, að tillaga mín hljóti ,'góðar og skjótar undirtektir og verði þakksamlega þegin. Því eins og áður er sagt, þá er stefnuskráin aðeins það bezta (samanber, að La Traviata er lakari músík en Tosca). Og nú bíð ég óþreyjufullur eftir því, að mér berist boðsbréfið. — Raj.“ ★ „HVAR Á RÁÐHÚSIÐ að standa?" heitir pistill, sem Ól- afur Guðbrandsson hefur sent Bæjarpóstinum og hljóðar þárinig: „Frá því var nýlega sagt í dag- blöðunum, að bæjarstjórn Reykjavíkur hefði ekið um göt- ur bæjarins í leit að stað fyrir ráðhús. Ekki var minnzt á ár- •arigur fararinnar, eða hvort fundizt hefði nokkur tiltækileg- ur stáður, enda mjög ólíklegt, að 'svo hafi verið, því mönn- ium sést oftast yfir það, sem næst þeim er. í Reykjavík sé ég ekki nema einn stað, sem hæfði slíkri byggingu, er verð- .ur að bera langt af öllum öðr- um .að fegurð og mikilleik, en sá staður er Bankastræti. — Skal annar endi hússins vera frá igafli Stjórnarráðshússins og að igötunni, en hinn endinn skal vera þar sem nú er gamla bakaríið. Skulu báðir endar vera jafnlangir út frá götunni. .Endar hússins skulu vera tvær ur. En því tel ég nauðsyn að hafa kjallara, að nóg hæð fá- ist fyrir undirganginn. Því of- an á þessar álmur til hægri og vinstri við Bankastræti kemur næsta hæð, sem um leið mýridar undirgöngin á vegin- um. Þessi rundirgangur yrði með bogahvelfingu, bæði til feguröar og styrkleika. Hvelf- ingin gæti ennfremur sýnt sól- og mánaskin og stjörnubjart- an þimin, hverju sem annars viðraði. — Á brúnum gang- stéttanna skulu vera súlur til fegurðar og öryggis fy.rir bygg- inguna, cg milli þeirra handrið til öfyggis gángandi vegfarénd- um. Um hæð hússins geri ég ekki ákvéðna tillögu. Þó hygg ég, að þrjár hæðir ofan undirgangs myndu sóma sér allvel. Og um nánará útlit hússins ræði ég ékki, því ég ér ekki til þess fær, en ég trúi snillingum vor- um í þessari list til iað háfa það í fögrum, svipmiklum og um orðum við þessa grein Ól- iafs: „í tilefni af umræðum um stað fyrir ráðhús Reykja- vík'UE, vil ég 'geta þess, að all- víða hef ég heyrt þá tillögu borna fram, að húsinu verði valinn staður á Arnarhóli ofan- verðum. Sennilegast er, að ein- hvern tíma verði hóllinn tek- inn undir byggingu, og myndi ekki ver'a illa til fundið að velja einmitt ráðhúsinu staðinn. Þar myndi það sóma’ sér vel, hafa nóg rými umhverfis, eink- um að vestanverðu, er að mið- bæ sneri. Framhlið þess myndi snúa í vestur eða suðvestur rneð breiðum troppum frá Lækjartorgi og Hverfisgötu. Þar rnyndi það verða staðsett í námunda við stjórnarráðs- byggingarnar, væntanleiga lög- reglustöð, safnahúsið og helztu samgöriguæðar. — Vonándi að ráðamenn bæjarins huigsi sig vel um, áður en þeir ganga framhjá svo ágætum stað — ef þeir þá gera það. — E. M.“.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.