Þjóðviljinn - 22.05.1953, Page 10

Þjóðviljinn - 22.05.1953, Page 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 22. maí 1953 elmflisþáítur Vorkjólar frá Prag Reudur eru mjög í tízku, á (því er enginn vafi, en hver og ieitm er sjálfráður um, hvernig thann lætur rendurnar snúa. — Þverröndum og langröndum er gert jafnhátt undir höfði og í mörgum kjólum eru notaðar hæði þverrendur og skárendur. Tveir tékknesku kjólanna á myndinni eru röndóttir. Fyrst ■er sýndur léttur sumarkjóll til að nota bæði úti og inni. Hanin er þverröndóttur að framan nema í hnappalistanum eru Iangrendur. Takið eftir því að rendumar snúa á ská í hliðar- stykkjunum og það er mjög grennandi. Hið eina sem við höfum að þessum kjól áð finna er að hann er beltislaus, en það er hægur vandi að kippa því í lag. Efnið í næsta kjól er einkum athyglisvert. Það er í sterkum lit með ljósd mynstri sem myndar rendur. Svona mynst- ur eru mjög vinsæl í sumar- kjólaefni og þau eru bæði fal- leg og hentug. Ungar mæður ættu að fagna þessum efnum, því áð þau þola vel þótt Pési litli gripi í kjólinn klínugum fingrum. Þriðji kjóllinn er ekki eins látlaus og hinir og auk þess er hann viðkvæmastur. Hann er fremur ætlaður sem sjaldhafn- arkjóll. Hann er fallegur úr ljósbláu, einlitu efni með legg- ingum 4 öxlunum. Takið eftir því, að leggingarnar eru hæfi- lega breiðar í belti og athugið líka að ermaraar eru rykktar við legginguna á öxlinni. Þáð er ágætt handa þisim konum sem vilja gjarnan sýnast breið- ari um axlirnar en þær eru. Því miður er ekki hægt að fara inn í næstu búð og kaupa sér svona leggingar, sem eru með gömlum þjóðlegum mynstrum, en þó er sjálfsagt hægt að finna eitthvað fallegt í búðun- um hér. Agórkyr Gúrkusalat með olíu: 1 gúrka, 1 tesk. sykur % te- sk. salt, 3 msk. salatoiía, 2 msk. edik, 2 msk. vatn, steici- selja, ef til er. Stráið sykri og salti yfir gúrkusneiðamar- í skál. Hristið saman í hveiti- hristara eða krukku með loki oiíu, edik og vatn. Hellið yfir gúrkuna. Gúrkusalöt eru borðuð með £isk og kjötréttum og á brauð smurt með nýju kjöti. Fylltar gúrloir: Kljúfið gúrkur í tvennt eftir endilöngu. Skafið fræin og tiokkuð af aldinkjötinu úr með matskeið. Notið það saman við í salöt. Fyllið raufina með græn metissalötum, ávaxtasalötum, ifisksalötum (t. d. fiskbúðingi og rækjum), kjötsalötum, o. £1. Reisið gúrkusneiðar og sí- Rafmagnstakmörkun Kl. 10.45-12.80 í'östudagur 22. mai Hlíðarnar, Norðurmýri, Rauðarár- holtið, Túnin, Teigarnir. íbúðar- bverfi við Laugarnesv. og Kiepps- Vegi og svæðið þar norðaustur af. trónu eða appelsínusneiðar yfir eftir því sem við á. Notið á kalt borð, á kvöldborðið og sem forrétt eða millirétt til miðdegisverðar. Fylltar gúrkur, bakaðar: 1 gúrka, 2 msk. smjörlíki, 1 msk rifinn laukur, 1 msk klippt karsi, steinselja eða kapar, Vz bolli (2-3£neiðar) tættir brauð- molar, 1 dl. tómatkjöt eða tóm- atkraftur eftir bragði, salt, pip- ar. Kljúfið gúrkuna og skafið fræin og nokkuð af aldinkjöt- inu burtu. Bræðið smjörl. Hitið laukinn þar í, þangað til hann byrjar að brúnast. Blandið brauði og kryddi út í ásamt gúrkualdinkjötinu. Fyllið gúrku helmingana með jafningnum. Látið í eldtraust fat og bakið þangað til brauðið byrjar að brúnast í um 15 m:n. við 200°. Framreiðið sem millirétt eða á kvöldborð. Brauð og smjör borið með. Nýjar gúrkur eru góðar í flest hriá grænmetis- salöt og með ýmsum ávöxtum, s.s. eplum, perum, ananas, út- bleyttum sveskjum, grape-á- vexti o. fl. — Rifhar gúrkur eru góðar út í skyr og hræxing. A. J. CHONIN : Á aimRrlegri striSnti skutust yfir fjalimar. Öðru hverju leit hann út undan sér á hálsinn á Mary, sem var hvítur og mjög mjúkur umdir óstýrilátu hári. Hún liafði verið ónotaleg við hann, já, það hafði hún verið. Loks jafnaði hann sig. Hann fór að brosa. Hann gekk nær henni og færði stól sinn að henni. Hann bjó sig undir innilegar samræður, en hún kom í veg fyrir þær með því að segja ihugsi: ,,Mig er farið að langa til að fara um borð.“ ' Hann flýtti sér að koma með áköf mótmæli. Það var alltof snemmt. Aureola færi ekki af stað fyrr en klukkan átt, þau gætu farið í skemmtisiglingu á snekkjunni hans — og um- fram allt J’rði hún að drekka te í klúbbnum. Haan var aftur búinn að jafna sig og beitti nú öllum töfrum sínum við hana og tilveruna. En Mary reis á fætur og aúgu hennar voru köld og framandi. Hitt fólkið mátti gjaman vera kyrrt, en hún ætlaði að fara. Hitt fólkið kærði sig ekki um að vera kyrrt. Reikningurinn var greiddur og þau gengu eft- ir þröngum stígnum niður að bryggjunni, þar sem snekkjan hans beið. En nú var engin skemmtisigling framundan. Honum var sýni- lega misboðið þegar hann hjálpaði henni niður stigann; hitt fólkið kom á eftir og vélin fór í gang. Á leiðinni varð honum þó hughægra. Hann sat næstur henni og gegnum þunnan Ikjólinn fann hann hlýjuna frá líkama hennar. Hann hreyfði ihnéð í tilraunaskyni. En hún horfði beint fram fyrir sig. En þó var hann ekki alls kostar óánægður. Kvenfólk var svo umdarlegt. Það var stundum erfitt að reikna það út. Eftir fimm mínútur voru þau komin að skip- inu. Hann reis riddaralega á fætur til að hjálpa henni upp stigann — hann var snilling- ur í að gera sér mat úr slíku — en um leið og hann rétti út höndina, var honum ýtt hrana- lega til hliðar. ,,Ég geri þetta,“ sagði Harvey lágt og ofsa- lega. „Heyrið þér það?“ „Hvað þá,“ stamaði Carr orðlaus af undrun. ,,Hvað eruð þér að gera?“ „Burt með ykkur,“ ihvæsti hinn, „annars fleygi ég yður útbyrðis." Andartak stóð Carr grafkyrr og agndofa af undrun — en eitthvað í brennandi augum Harveys neyddi hann til að láta undan. Allt fólkið var komið upp úr bátnum áður en hann áttaði sig. Fari hann bölvaður, hugsaði hann. Fari hann bölvaður, hvers vegna barði ég hann eltki? Brosið hafði stirðnað á vörum hans og honum tókst með erfiðismunum að ihalda því föstu. Hann tók ofan hattinn, sveiflaði honum tígu- lega og hiópaði: „Munið það. Við hittymst aftur í næstu viku.“ Um leið og hann hlammaði sér ragnandi nið- ur í sessuna, (sór hann þess dýran eið að láta verða af þeim fundi. XI. Klukkan sex um kvöldið, þegar rósfingruð kvöidsólin var að sleppa tökum á tindunum í Santa Ana, 'komu Súsanna og Róbert Tranter aftur um borð — þau voru síðust allra, því að Corcoran var kominn fyrir löngu. Skórnir þeirra vom rykugir — í sparnaðarskyni höfðu þau gengið frá Plaza. Súsanna var örlátið lotin í herðum, Róbert var með alvörusvip eins og á- nægjaei hefði orðið að víkja fyrir skyldunum um daginn. Þau gengu hægt upp landgöngubrúna, þög- ul og virtust niðursokkin í hugsanir sínar. En um lejð og Súsanþa kom upp á þilfarið kom hún auga á Hafvey Leith,. sem stikaði fram og aftur um efra þilfarið. Um leið urðu augu hennar glaðleg, hún rétti úr sér eins og þreyta og ótti hefðu horfið á einu augabragði. í hjarta hennar ómaði: „Honum er óhætt, hon- um er óhætt.“ Þreklegur líkami hennar varð léttur í hreyfingum. Ljósgeisli féll á litlaust hár hennar og stafaði af því gullslit. Hún stóð andartak kyrr í sömu sporum, svo gekk hún á eftir bróður sínum. „Það er gott að vera kominn hingað aftur, Robbi,“ sagði hún glaðlega. „Þetta hefur verið þreytandi dagur." Hann svaraði henni engu. Hún l'eit aftur upp á við og sagði síðan án þess að breyta um svip: „Ég ætla að leggja mig dálitla stund. Ég er með höfuðverk. Þú sérð um þig sjálfur fram að ícvöldmat, elskan.“ Hann stóð teinréttur, en það var ólundar- legur ásökunarhreimur í rödd hans þegar hann svaraði yfir öxlina: ,.Ég er vánur að geta séð um mig sjálfur.“ Svo stikáði hann háleitur inn i klefann sinn og lokaði á eftir sór. En gat hann séð um sig sjálfur? Hann stóð fyrir framan spegilinn og horfði viðutan á andlit sitt, sem virtist fölt og framandi; svo lét hann fallást niður á stólinn og huldi andlit- ið í höndum sér. Heimsóknin til Arucas, sem skipti mikiu máli fyrir velgengni hans í trú- boðsstarfinu, hafði verið honum til ama og þreytu; hann hafið verið viðutan, áhugalaps um prentun trúarbæklinga á spönsku og hafði því nær gleymt að taka við meðmælabréfinu til herra Rogers í Laguna. Allan daginn hafði hugur hans snúizt um annað; Elissu! Nafnið eitt — þótt hann nefndi það ekki upphátt — hleypti roða í kinnar hans. En hvers vegna? Hann hafði enga ástæðu til að roðna. Vissu- lega ekki. Enginn annar en liann virtist skilja það; Súsanna, allir farþegarnir á skipinu, all- ir máttu misskilja hann og fordæma tilfinning- ar hans. Hann vissi að iþeim skjátlaðist öllum; tilfinningar hans voru göfugar, fagrar og góð- ar. Já fagrar — fagrar og ólgandi voru þær tilfinningar sem brutust um í honum og hann fann til nálægðar guðs. Elissa! — Hún var falleg! En var það no”kkuð syndsamlegt? Fegurðin var guðs gjöf, sköpuð af sama náðaranda og ódauðlegar sálir. Og þótt hún hefði syndgað, þá var það engin ástæða til þess að hann fordæmdi hana og forðaðist eins og farísearnir fyrr á öldum. Nei og aftur nei í drottins nafni. Hann hafði alltaf sagt, að hann langaði til að hjálpa henni; þessari yndislegu konu sem lifði í synd. I dag hafði hann verið henni fjarri ,látið ónotað þriggja klukkustunda tækifæri, og það hafði verið honum mikil hugarraun. Já, sannkölluð sálarraun. Hann þráði aftur ákaft að vera í návist liennar — frelsa 'hana. Hann sá Elissu fyrir sér, frelsaða, skírða — það var dásam- UUU OC CAMM Presturinn við stolta móður: Eg hef aldrei vitað neitt barn vera eins rólegt við skírn eins og þennan unga son yðar. Móðir: Ó, kæri prestur, það kemur nú víst af því að við pabbi hans höfum verið að æfa hann síðastliðna viku með því að dýfa hon- um i vatn öðru hvoru. Það er svo leiðinlegt þegar börn gráta við skirninaj. Perðamaður i fyrirlestri um Palestínu: Fjöll- in eru svo brött og vegiriiir þess vegna svo erfiðir að jafnvel asnarnir eiga fullt i fangi með að kömast eftir þeim. Eg get þvi ekki talað um þá af eigin reynslu. Biskup einn talaði af miklum fjálgleik gegn varalit stúlkna og komst meðal annars svo áð orði: þvi meiri reynslu sem ég öðlast af varalít kvenna þvi meira býður mér við honum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.