Þjóðviljinn - 30.05.1953, Blaðsíða 12
Syngman Rhee fer frá Seúf
Stjórn hans þyk'ist œtla cð táka afstöÓu til
sfriSsmálanna án samráSs viS husbœndurna!
Syngman Rhee, hinn svonefndi forseti Suður-
Kóreu, fór í gær frá höfuðborginni Seúl til að undir
strika ,,samvinnuslit'' við húsbændur sína, banda-
rísku herstjórnina í Kóreu.
Hélt Rhee til borgar einnar á suðurströnd lands-
ins, skammt frá Fúsan, og hefur stefnt þangað ráð-
herrum úr leppstjórn sinni. Eiga þeir að koma þar
á stjórnarfund og .„ákv'eða afstöðu" sína til frarn-
haldandi stríðs í Kóreu og vopnahléssamninganna.
Áður hafði stjórn Syngmans Rhee tilkynnt her-
stjórn innrásarhers sameinuðu þjóðanna að hún vildi
enga hlutdeild eiga að vopnahléssamningunum,
nema síðustu tillögur sunnanmanna yrðu teknar
aftur eða þeim breytt verulega.
er þar voru til varnar, hrundið
árásunum eftir sex klukku-
stunda bardaga. Flugvélar sam
einuðu þjóðanna hafi flogið
yfir orustusvæðið og varpað nið
ur blysum svo herirnir sæju til
að berjast.
Austar á vígstöðvunum hafi
tyrkneskt og bandarískt lið
verið fyrir til varnar og hafi
það orðið að láta undan síga
árásum alþýðuherjanna. Á
þeim hluta vígstöðvanna sé
haldið áfram að berjast.
í fréttastofufregnum var þess
til getið í.gær, að Eisenhower
Baadaríkjaforseti hafi í hyggju
að senda vini sínum Syngman
Rhee harðorða orðsendingu
vegna ,,óþægðár“ hans. Hitt
virðist augljóst af undirtektum
háttsettra flokksmanna Eisen-
howers að Rhee sé ekki með
öllu stuðningslaus í þeirri við-
leitni að gera að engu vopna-
hlésviðræðurnar með hótun um
framhaldandi stríð1 í Kóreu,
hvað svo sem verði samið í
Panmunjom.
Bardagar blossa upp?
I fregnum frá bækistöðvum
innrásarherja „sameinuðu þjóð-
anna“ er síðustu daga gert
mikið úr því, áð heiftarlegar
orustur séu háðar á Kóreuvíg-
stöívunum.
í hernaðartilkynningu al-
þýðuherjanna í gær segir ein
ungis að barizt hafi verið
á einstökum stöðum vígstöðv
anna, og ekki getið neinna
stórbardaga.
Fregnir sunnanmanna skýra
frá stórorustum á svæðunum
Syngman Rhee.
norður af Seúl og , á miðvíg-
stöðvunum. Hafi 13 þúsund
manna kínverskt lið gert árás
í fyrrinótt á hernaðarlega mikil
vægar hæðir nálægt veginum til
Seúl. Hafi brezkar hersveitir,
herra í Moshvti
Heilbrigðismálaráðherra
Indlands er kominn til Moskvu
og liyggst kynna sér rækilega
skipan heilbrigðismála í Sovét-
ríkjunum, einkum allt er varðar
heilsugæzlu.
Malan:
A!!i í lagi í Snður-
Afriku!
Malan, forsætisráðehrra Suð-
ur-Afríku, kom í gær til Lond-
on til að vera við krýninguna.
Lét hann svo ummælt við
komuna að allt væri í stakasta
lagi í Suður-Afríku. Þar væri
sterk stjórn, og andspyrnuhreyf
ingin gegn henni væri að leys-
ast upp.
Plehry vonhefri um vopnahlé
HammarskjöW til
London
Hammarskjöld, aðalritari sam-
einuðu þjóðanna, kom til Parísar
í gær frá Genf. Er hann á leið
til London til krýningarhátíðar-
innar.
Blaðamenn spurðu hann um
álit sitt á „deilu“ Syngmans Rhee
og sameinuðu þjóðanna, en
Hammarskjöld neitaði að láta
hafa nokkuð eftir sér um það
mál.
Nehru, forsæt'sráðherra Ind-
lands, lét svo um mælt við blaða-
menn í London í gær, a j hann
væri nú orðinn vonbetri en áður
um að vopnahlé tækist í Kóreu.
Nehru kom til London til að
vera við krýningu Elisabetar
drottningar og sitja fund for-
sætisráðherra samveldislandanna.
Á leið sinni kom Nehru við í
Egyptalandi og ræddi við Na-
guib forsætisráðherra. Kvaðst
Nehru ekki geta ahnað séð, en
hægt ætti að vera að finna frið-
samlega lausn á deilumálum
Breta og Egypta.
Malik afhend-
ir embœttis-
skUriki sin
Jakob Malik, hinn nýskipaði
sendiherra Sovétríkjanna í Eng-
landi, afhenti í gær Elísabetu
drottningu embættisskilríki sín.
Ræddi Malik við drottnkigu
eftir að afhendingin hafði farið
fram, og var Churchill forsæt-
isráðherra viðstaddur og tók
þátt í umræðunum.
Norðurlandcrför Ferða-
skrifsfofu ríkisins
Þar sem öll nauðsynleg leyfi liafa fengizt er ákveðið að m.s.
Hekla leggi af stað í Norðurlandaferðina þ. 6. júní n.k.
Á leiðinni út mun verða kom-
ið við í Vestmannaeyjum og á
Austfjörðum. Fá þátttakendur
þá um leið tækifæri til þess aö
sjá austurströnd íslands og sjó-
ast áður en lagt er af stað til
Noregs. Fararstjórar verða
Ingólfur Guðbrandsson og Skúli
Skúlason ritstjóri, sem rnun
íslendinga kunnastur Noregi.
I Gautaborg mun, nuk áætl-
aðra ferðalaga, fólki gefinn
kostur á að sjá þao, sem það
óskar eftir í sambandi vio iðn-’
f •arnhald á 3. síðti.
Mendes
France
leynir stjómarmyíidim
Franski * stjórnmálamaðurinn
Mendés-France hefur tekið að
sér að reyna stjórnarmyndun, og
er gert ráð fyrir að hann muni
fara að dæmi Reynauds og æskja
samþykkis þingsins áður en
hann hefji fyrir alvöru viðræður
við stjórnmálaflokkana um stjórn
armyndun. Er gert ráð fyrir að
sú atkvæðagreiðsla fari fram á
þriðjudag eða miðvikudag.
Laugardagur 30. maí 1953 — 18. árgangur — 118. tölublað
V
Hér er ein af myndum Eggerts Guðmundssonar sem liann
sýnir á rnálverkasýni::gu sinni að Hátúni 11 í Reykjavík. Eggert
hefur sem kunnugt er dvalizt í Ástralíu um langt skeið undan-
farið, og er þetta fyrsta sýning hans eftir Iieimliomuna. Hefur
aðsókn verið ágæt og 14 myndir hafa þegar selzt. Seinasti dag-
ur sýningarinnar á morgun, og verður hún þá opin kl. 11-22.
Æ.F. heldur almenno stjórn-
mólafundi í Hveragerði oq á
Selfossi um helgina
TJm þessa helgi heldur Æskulýðsfylkingin, samband ungra
sósíalista tvo almenna stjórnmálafundi austan íjalls, hinn fyrri
í Hveragerði á morgun kl. 1.30 og þann síðari á Se'fossi á mánn-
dagskvöldið.
Fundurinn í Hveragerði verð-
ur í hótelinu og hefst kl. 1.30
e.h. á morgun. Ræðumenn
verða: Haraldur Jóhannsson,
hagfræðingur, Álfheiður Kjart-
ansdóttir, verzlunarmær, Sigur-
jón Einarsson, stud. theol. og
Bjarni Benediktsson, blaðamað-
ur. Ennfremur verða þau
skemmtiatriði að þeir leikar-
arnir Gísli Halldórsson og Karl
Guðmundsson lesa upp.
Selfossfundurinn.
Fundnrinn á Selfossi verður
1 Iðnáðarmannahúsinu og hefst
kl. 8.30 á mánudagskvöldið.
Þar verffa ræðumenn Haraldur
Jóhannss., hagfræðingur, Lára
Helgadóttir, skrifstofumær,
Bjarni Bénediktsson, b'aðamað-
ur og Rögnvaldur Guðjónsson,
þriðji maður á framboðslista
Sósialistaflökksins í Árnessýslu.
Leikararnir Karl Guðmundsson
og Gísli Halldórsson lesa upp.
Allt alþýðufólk er velkomið
á fundina og eru Árnesingar
hvattir til að fjölmenna og
kynna sér viðhorf og máiflutn-
ing ungra sósíalista á sviði
stjórnmálabaráttunnar.
MÍR-deiW á Húsa-
vík
1 fyrradag var stofnuð ný
MÍR-deild á Húsavik. Stofnend-
ur voru 37, en formaður var
kjörinn Geir Ásmundsson.
E.O.P.-métið í dag og á morgun
Einvígi Torfa og Lundborgs
Huseby er meðal keppendanna
E.Ó.P.-mótið sem haldiff er til heiðurs Erlendi Ó. Péturssyni og
nú í tilefni af 60 ára afmæíi hans hefst í dag.
1 tilefni af þessu merkisafmæli
Erlendar Ó. Péturssonar var
Evrópumeistaranum í stangar-
stökki, Ragnar Lundberg, boðið
hingað til keppninnar. Aðal-
keppinautur hans í stangarstökk-
inu verður Torfi Bryngeirsson.
Auk þess keppir Lundberg . við
Inga Þorsteinsson í 110 metra
grindahlaupi, en Lundberg' varð
annar í þeirri grein á Evrópu-
meistaramótinu. Ingi ÞorsteiUs-
son hefur náð allgóðum tíma i
þessari grein.
Huseby er meðal keppendanna
í kúluvarpinu og mun vafalaust
kasta kúlunni 16 metra.
Þátttaka í mótinu er góð, 8
keppendur eru í 1500 m hlaupi og
raunu þeir Kristján Jóhannsson,
Sigurður Guðnason og Svavar
Markússon berjast um sigurinn.
í 100 m hlaupinu er Ásmundur
Bjarnason meðal keppendanna.
Mótið hefst í dag kl. 2,30 á
íþróttavellinum.
| Kvenfélag !
I sósíalista \
{ heldur félagsfund þriðjudag-/
\ inn 2. júní kl. 8.30 e.h. /
\ (stundvíslega) í Þingholt-/
(stræti 27. (
\ Fundarefni: /
( 1. Félagsntál. /
/ 2. Kosningarnar, framsögu/
C hafa Petrína Jokobsson og/
\ Halldóra Guðmundsdóttir. /
/ 3. Kvikmynd. /
/ Félagskonur! Fjölmennið/
(og taldð með ykkur gesti. )
/ Stjórnin. )
C-listinn er Eisti Sósialistaflokksins