Þjóðviljinn - 05.06.1953, Blaðsíða 3
Föstudagur 5. júní. 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Skoplegt yfirklór rikhstfórnarinnar:
&M§É fflð
værm fmr í §Mdi
wf
Bíkisstjórn landsöiuflokkanna og „varnarmáíanefnd“ Bjarna
Ben. er nú orðin lafhrædd við sanmingsbrot Bandaríkjamanna
á Reflavíkurflugvelli.
Heitir „varnarmálanefnd“ því að mi „í dag“ muni verða leið-
xéttar þær misfellur sem vitað er um!!
Launagreiðslur og flest fram-
koma (Bandaríkjamanna við ís-
lenzka verkamenn á Keflavík-
oirflugvelli hefur ætíð verið til
skammar. Það er ekki aðeins
að Islendingarnir hafi verið
látnir vinna fyrir helmingi
lægra kaup en Bandaríkja-
mennimir, heldur hafa þeir ver-
ið sviknir um það kaup sem
jþeir áttu ao fá samkvæmt
samningum íslenzkra verka-
lýðsfélaga, svo fáir munu þeir
útborgunardagar hafa verið að
fleiri eða færri Islendingar hafi
ekki verið sviknir um eitthvað.
Þjóðviljinn hefur margoft
skýrt frá þessum málum, en
landsölublöðin þagað sem fast-
ast — þar til nú að óttinn við
reiði verkamannanna liefur rek-
ið ríkisstjórnina til að kippa
öllu í lag. — Verkamenn liafa
langa reynzlu af því að fram
að þessu hafa öil slík loforð
verið svikin.
Það hlægilegasta í plaggi þ.ví
er „varnarmálanefnd" sendi frá
sér í gær er það, að staðið
hafi á reglum um kaupgreiðslur
á Keflavíkurflugvelli!! Allir Is-
lendingar þar vita að þeim
hefur verið sagt — af stjórn-
arvöldumum sjálfum —■ að á
Keflavíkurflugvelli giltu samn-
ingar íslenzkra stéttarfélaga.
Svo hefur staðið á reglum, sem
nú eiga loks að vera til!!
Islenzkum verkamönnum hjá
Hamilton og bandaríska hern-
um til skemmtunar og fróö
leiks fer hér á eftir plagg
„varnarmálanefndar" orðrétt:
„Varnarmálanefnd hefur
lengi unnið að því að koma
launagreiðslum hjá Metcalfe-
Hamilton-byggingafélaginu á
Keflavíkurflugvelli í rétt horf.
Mikifl séSuiarbigsr sfyinsnisitiania
Ulanhjözstaðaatkvæðagieiðsia er haíin:
Kjósendur,
sem farið úr bænum eða
dveljið í bænum fjarvistum
frá lögheimilum ykkar, at-
hugið að utanlijörstaðarat-
kvæðagreiðslan er liafin og
fer daglega fram í skrifstofu
borgarfógeta í Arnarhvoli
(nýja húsinu kjallara) við
Líndargötu frá klulikan 10-
12 f. h„ 2-6 e. h. og
8-10 e.h. — Kjcsið í tíma.
Listi Sósíalistaflokksins í
Reyjavík og tvímennings-
kjördæmunum er C listi.
Frambjóðendur flökksins í
einmenningskjördæmunum
eru:
Gullbringu og Kjósarsýsla:
Finnbogi Riitur Valdimars-
son.
Hafnarf jörður: ðlagnús
Kjartansson.
Borgarf jarðarsýsla: Har-
áldur Jóhannsson.
Mýrasýsla: Guðmundur
Hjartárson.
Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýsla: Guðmundur J.
Guðnmndsson.
Dalasýsla: Ragnar Þor-
steinsson.
Barðastrandarsýsla: Ingi-
mar Júihisson.
V. ísafjarðarsýsla: Sigur-
jór. Einarsson.
N .-Isaf jarðarsýsla: Jó-
hann Kúid.
ísafjörður Haukur Helga-
son.
Strandasýsla:
Benediktsson.
V.-Húnayatnssýsla
Gunnar
Björn
Þorsteinsson.
A.-Húnavatnssýsla: Sigurð-
ur Guðgeirsson.
Sigluf jörður: Gunnar Jó-
hansson.
Akureyri: Steingrímur Að-
alsíeinsson.
S.-Þingeyjarsýsla: Jónas
Árnason.
N.-Þingeyjarsýsla: Sigurð-
ur Róbertsson.
Seyðisfjörður: Síeinn Sef-
ánsson.
A.-Skaf tafellssýsla: Ás-
nuindur Sigiirðsson.
V.-Skaftafellssýsla: Run-
ólfur Björnsson.
Vestmaimaeyjar: Kari Guð-
jónsson.
Að öðru leyti geta kjós-
endur sem dvelja fjarri lög-
héimilum sínum kosið hjá
næsta hreppsstjóra, sýslu-
manni, bæjarfógeta, ef þeir
dvelja úti á landi, en aðal-
ræðismanni, ræðismanni eða
vararæðismanni, ef þeir
dvelja utan lands.
Alíar nánari upplýsingar
um utanbjörstaðaatkvæða-
greiðsluna eða annað er
varðar Alþingiskosnlngarnar
eru gefnar í kosningaskrif-
stofu Sósíalistaflokksins
Þórsgötu 1 sími 7510 (þrjár
líuUr) opin daglega frá kl.
10 f.h. fcil 10 e.h.
Kjósið C Usta í Reykjavík
og tvímenningslijördæmun-
um og fránibjóðendnr Sós-
íalistaflokksins í einmenn-
ingskjördæmunum.
Olli það í fyrstu miklum erfið-
leikum að þeim starfsmönnum
félagsins, sem um launagreiðsl-
ur sáu, voru ekki nægilega
kunnugir íslenzkum kaup- og
kjarasamningum. Leitaði nefnd-
in aðstoðar Félagsmálaráðu-
neytisins, Alþýðusambandsins
og Vinnuveitendasambandsins í
því skyni a'ð sett yrðu nákvæm
fyrirmæli um kaup og kjör í
öllum starfsgreinum íá flug-
vellinum. Verulegur dráttur
varð á því að þessi fyrirmæli
um launakjörin væru tilbúin.
Eftir að fyrirmælin voru sett
um miðjasi febrúar sl. lagaðist
ástandið áð miklum mun, en
engu að síður áttu sér enn
stað mikil mistök. Gerði varn-
aimálanefnd í samráði við ut-
anríkis- og dómsmálaráðherra
ýmsar ráðstafanir til að bæta
úr því, m.a. meö því að tveir
lögfræðingar, þeir Baldur Möll-
er fulltrúi og Gunnar Helga-
son, voru settir til þess að
taka á móti umkvörtunum
starfsmanna, og koma fram
leiðréttingum. Ennfremur snéri
varnarmálanefnd sér til Al-
þýðusambandsins og Vinnu-
veitendasambandsins með ósk
um að þessir aðilar útveguðu
MetcalfeJHamilton fél. hæfa
íslenzka starfsmenn er vanir
væru launaútreikningum.
Ái-angur þessarar viðleitni er
sá, að við launaútborgun í dag
munu verða leiðréttar þær mis-
fellur, sem vitað er um, en
haldið verður áfram rannsókn
og leiðréttingu þeirra misfella,
sem fr'am kunna að koma, og
vill varnarmiálanefnd beina því
til þeirra sem telja að sér hafi
ekki verið rétt greitt, að snúa
sér til fyrrgreindra manna á
Keflavíkurflugvelli. — Varnar-
málanefnd, Reykjavik, 5. júni
1953“.
Glæsilegsiz Ismdus í Kópavegi um síSustu hélgi
Mikill sóknarhugur er í stuðningsmönnum Finnboga
ítúts Valdimarssonar. Hófu þeir sókn sína með mjög íjöl-
mennum og glæsilegum fundi í barnaskólanum í Kópa-
vogi s.l. laugardag. Hvarvetna úr kjördæmi hans berast
fregnir um að stuðúingsmenn Fimiboga ætli ekki að
liggja á liði sínu.
Á Kópavogsfundinum fluttu
Finnbogi Rútur V.aldimarsson og
Ásgeir lBöndal Magnússon ræð-
ur og var mjög góður rómur
gerður að máli þeirra.
Halldór Kiljan Laxness las
lokakaflann úr Gerplu og var
þakkað með innilegu lófataki.
Gestur Þorgrímsson skemmti
með söng og að lokum söng
Söngfélag verkalýðssamtakanna
heimtuðu tilheyrendur fleiri og
fleiri lög. Sérstaka hrifningu
vakti hið nýja lag söngstjórans,
Sigursveins D. Kristinssonar, við
Fylgd eftir Guðmund Böðvarsson,
en það lag hefur höfundurinn
tileinkað andspyrnuhreyfingunni.
Söngfélag verkalýðssamtakanna
er nánast tengt lífs- og frelsis-
baráttu þjóðarinnar nú og er því,
auk þess að hafa ágætum rödd-
um á að sldpa og vera prýðilega
stjórnað, að því leyti efnilegasti
söngkór landsins.
Kvikmyndasýningaz MÍE
I ríki hafíssins
ný litmynd um dýralíf á halísnum
Síðasta kvikmyndin á fund'um MlR í Þingholtssíræti 27 á
þessu vori verður sýnd í kvöld ld. 9. Ný og glæsileg litmynd
um lifnaðarhæíti dýra og fugla í Norður-íshafinu, ofan sjávar
og neðan.
Síðan um nýár hefur verið
föst venja hjá MÍR að sýna
úrvalsmyndir frá Sovétríkjun-
um á fundum sínum í Þingholts-
stræti 27, en eins og kunnugt
er þeim, sem þar þekkia til,
er húsnæðið óhentugt til þeirra
hluta, þegar daginn fer að
lengj.a og bjart er á kvöldin. Þó
hefur verið ákveðið að sýna eina
úrvalsmyndina enn í kvöld, en
venjan hefur verið sú á þessum
íbuzðazverksmiðjan
Framli. af 12. síðu.
stjóri að gera þetta að tillögu
sinni, þótt hann gæti kannski
fatlizt á þetta.
Bæjaistjóm ábyrg fyrir
mamislífunuin
Ingi R. kvað það enn standa
óbreytt iað samkvæmt áliti sér-
fræðing-anna væri verksmiðju-
húsið staðsett á hættusvæði frá
sprengingu ábui-ðargeymslun-
um, ef fallizt væri á, síðustu
kröfu Vilhjálms Þórs. Það v.æri
því al'gerlega í ósamræmi við
fyrri samþykktir bæjarstjórnar-
innar ef fallast ætti á um-
beðna skipulagsbreytingu. Bæj
arstjórn gæti heldur ekki
skotið sér undan því, að hún
hæri siðferðilega ábyrgð á lífi
þe'rra sem í verksmiðjubygg-
ingnnni ynnu, með því að
leyfa að hún yrði á hættu-
svæði frá geymslunum.
Borgarstjó.ri: gUgnaði þá á því
að þóknast Vilhjálmi , og, lagði
til að málinu yrðj frestað, og
ýar það samþykkt einróma.
Fór að synda í
fyrrinótt
í fyrrinótt var lögreglan beðin
að fjarlægja mann sem hafði
g'erzt allheimakominn í íbúðar-
bragga einum hér í bænum. Er
lögreglan kom á -vettvang var
maðurinn farinn, en er farið var
að svipast um eftir honum sást
á kollinn á honum nokkur hundr-
uð metra úti á sjó. Kallaði lög-
reglan til hans og bað hann snúa
til lands, hvað hann og‘ gerði.
Var maðurinn klæddur einni
saman sundskýlu, en áður hefur
hann leikið svipaðan leik í öll-
um fötum. Mun maður þessi vera
etthvað truflaður á geðsmunum.
fundum með kvikmyndasýning-
um, að miklu færri hafa kom-
izt að en vildu, o.g stundum hef-
ur orðið að loka húsinu vegna
troðnings fyrir kl. 9, að sýning-
ar hafa hafizt. Nokkrar framúr-
skarandi fallegar myndir úr
þessaii kvikmynd hafa birzt í
sovézka tímaritinu Soviet Union.
Um aldaraðir hefur norður-
heimsskautssvæðið verið vís-
indamönnum torráðin 'gáta, og
fjöldi manns hefur fórnað lífi
sínu við rannsóknir á leyndar-
dómum þess. Sovétvísindamenn
létu sig meðal annars reka
á ísnum og söfnuðu þrátt fyrir
erfiðar aðstæður merkilegustu
upplýsingum um dýralíf og nátt-
úrufar á þessum slóðum.
Kvikmyndin „í ríki hafíssins"
sýnir íbúa norðurhafa, en mynda
takan sjálf á norðursvæðinu tók
tvö ár. Leiðangursmenn komu
m. a. til Novaja zemlja, Wrang-
elseyjar, Tshúkotkaskaga, Sjö-
eyja og á Múi-manskströnd. Þeir
ferðuðust á ísbrjótum og flug-
vélum, köfuðu niður á hafsbotn
og klifu þar fjöll, lágu stundum
saman á ísnum og biðu þolin-
rnóðir þess að tækifærið kæmi
til að taka myndir.
Húsið verður opnað kl. 8.30
og gestir eru velkomnir, meðan
húsrúm leyfir.
Frá kosningaskriistofu SósíalistaOokksins:
24 dagar eru fíl k]ördags
Kosningaskrifstofa Sósíal-
flokksins vill minna á eftir-
farandi:
KJÖRSKRÁ: Allir þurfa
að athnga livort þeir eru á
kjörskrá og einkum {>ó þeir
sem hafa flutt nýlega. Eftir
6. júní er það um seinan því
þá rennur kærufrestur út.
Iíosniugaskrifstofa Sósíal-
istatlokksins Þórsgötu 1
sími 7510, opin frá kl. 10
f.b. til 10 eJi. aðstoðar við
kærur inn á kjörskrá, og gef-
ur allar upplýsingar um
kjörskrá.
SJÁLFBOÐALIÐAR: Þeir
stuðningsmenn flokksins sem
geta liðsinnt homuu við
undirbúning kosninganna eru
beðmr að gefa sig fram við
kosningaskrifstofuná.
Vinnum ölt að glæsilegmn
sigri Sósíalistaflokksins við
Alþingiskosningarnar 28.
júní.