Þjóðviljinn - 05.06.1953, Síða 6
8) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 5. júní 1953
jMÓOVmiNN
Útgofandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson táb.), Slgurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Óiafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg.
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áakriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annara staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljane h.f.
K&sninpraar í Reykjavík
í alþingiskosningunum 1949 var Rannveig Þorsteinsdóttir
kosin áttundi þingmaður Reykvíkinga með 2996 atkvæðum.
Samkvæmt útreikningi kosningalaganna hafði þriðji maður
á lista Sósíalistaflokksns þá 2711 atkvæð.
MM
■I rftl.
s±A_
Fimmti m'aður á lista Sjálfstæðisflokksins hafði 2598 atkv.
Annar maður á lista Alþýðuflokksins 2210 atkvæði.
Það var þannig 285 atkvæða munur sem fleytti Rannveigu
Þorsípinsd. á þing í stað Sigfúsar heitins Sigurhjartarsonar.
Rannveig var kosin á þing með óheiðarlegustu kosningabar-
áttu og siðlausasta áróðri sem um getur hér á landi. En nú
hafa kjósendur af henni fjögurra ára reynslu, og sú reynsla
er þannig, að enginn kýs Rannveigu nema þeir fylgismenn
Framsóknarflokksins sem ]áta bjóða sér hvað sem er. Það er
öruggasti kosningaspádómur á íslandi að hún falli. En hver
hreppir þá sætið?
.ó , < Bata- og
iTfftl fðjnver ■/ Landshöfn r?í3 Raforkuverk (aJ3j ákipasmíða-
stoff.
Sósíalisfaflokkurinn stefnir að:
Nýsköpun atvinnylífsíns í
öElym landshlutum
EiiiS og sjá má af tölunum hér fyrir ofan stóðu sósialistar
langnæst því í síðustu kosningum, en undir það renna nú
margfalt fleiri stoðir.
Sjálfstæðisflokkurinn gengur nú klofinn til kosninga, og
fullvist er að Lýðveldisflokkurinn hirðir tilfinnanlegan hluta
af atkvæðum hans, — ef til vill 1 þingmann.
Alþýðuflokkurinn er í algerri upplausn, og öllum er Ijóst að
hann heldur áfram að tapa hér í Reykjavík eins og hann er
vanur.
Sósialistaflokkurinn hefur hins vegar verið í sókn allt síð-
asta kjörtímabil. Örugga vísbendingu um það má fá af kosning-
um þíim sem fram hafa farið í verklýðfélögunum milli sósíal-
ista nnnarsvegar og hernámsflokkanna þriggja hins vegar. Sós-
íalistar hafa árlega sótt á í þeim kosningum og unnu s. 1. haust
öruggan meirihluta í Fulltrúaráði verklýðsfélaganna í Reykja-
vík, öruggan meirihluta meðal reykvísks verkalýðs fram yfir
hernámsflokkana þrjá sameiginlega. Þau úrslit sýna glöggt
hvert stefnir.
Þuð er einnig fullljóst að hin einbeitta og trausta forusta
sósíai.sta í kjarabaráttu allrar alþýðu hefur eflt fylgi flokks-
ins, og æ fleiri gera sér Ijóst að lífskjörin á næstu árum verða
í beinu sambandi við fylgi flokksins. Einnig sjá nú stöðugt fleiri
að Sósíalistaflokkurinn er ei'ai flokkurinn sem bendir á íslenzk
úrræði í atvinnumálum, eini fiokkurinn sem sýnir fram á mögu-
leika islenzkra auðlinda, — meðan hernámsflokkarnir þrír eru
að færa framleiðsluna yfir á nýlendustigið aftur og fórna
vinnuafli íslendinga í æ ríkari mæli til hemámsframkvæmda.
Og siðast en ekki sízt sækir Sósíalistaflokkurinn vaxandi fylgi
sitt til þeirrar staðreyndar að hann er eini flokkurinn sem
staðið hefur vörð um sjálfstæði landsins, háð harðvítuga bar-
áttu gegn hverju afsali landsréttinda og hvetur nú þjóðina
til eir.íngar til þess að endurheimta fullveldi sitt. I þeirri bar-
áttu hefur Sósíalistaflokkurmn náð sambaadi við stóran hóp
bandsma'nna sem gatiga nú með honum til baráttunnar.
Það er í samræmi við þessa þróun að baráttusætið á lista
Sósíalistaflokksins í Reykjavík er nú.skipað Gunnari M. Magn-
úss, forustumanni hinnar nýju og glæsilegu andspyrnuhreyf-
ingar gegn her í landi. en barátta hennar setur nú sívaxandi
svip á þjóðlífið allt.
Gegn þessari sókn hafa hernámsflokkarnir aðeins eitt úr-
ræði: Þeir hafa eflt fámennan hóp manna til þess að reyna
að sundra andstöðunni gegn hemáminu, svonefndan Þjóðvarn-
arflokk. Tilgangur hans hér í Reykjavík er sá að reyna að
hindra að Gunnar M. Magnúss komist á þing, á sama hátt
og hunn reynir að fella Finnboga Rút Valdimarsson frá þing-
setu í GullbrLngu- og Kjósarsýslu. En tilgangurinn er of auð-
sær td þess að heiðai'legt fólk láti blekkja sig..
Allt eru þetta staðreyndir um kosningahorfurnar í Reykja-
vík i sumar. Þær sýna að aldrei hefur verið eins auðvelt og
ánægjulegt að vinna að stórsigri sósíalista og einmitt nú.
Þess vegna nær Gunnar M. Magnúss kosningu með mildum
yfirburðum.
Eina leiSin til framhalds nýsköpunar er
kosningasigur SösiaHstaflokksins
Meðan hernámsflokkamir
hafa haldið mörg hundruð
hjartnæmar ræður um „flótt-
ann úr sveitunum“ hefur Sós-
ialistaflokkurinn barizt af alefll
fyrir því, að gerðar væru ráð-
stafanir til lífvænlegra kjara
fyrir fólkið um byggðir lands-
ins. Þannig hefur forganga Sós-
íalistaflokksins ráðið miklu um
það bezta í landbúnaðarlöggjöf
síðasta áratugs. Nýsköpunar-
stefna sósíalista hefur þó mark-
að enn stærri spor í sjávarút-
veginum, togarar og bátar ný-
sköpunarinnar, frystihús og
önnur mannvirki hafa víða ger-
breytt lífsskilyrðum fólksins í
þorpum og bæjum. Sigur sós-
íalista yfir sameinuðu aftur-
haldi hernámsflokkanna í
stjórn Landsbankans um ódýr
stofnlán gerðu íátækum bæjar-
félögum í öllum landsfjórðung-
um kleift að eignast togara.
Gegn þeirri ráðstöfun barðist
hatramlegast einmitt sá flokk-
ur sem aldrei þreytist á að tala
um Reykjavikurvaldið, Skugga-
sundsflokkurinn, öðru nafni
Framsókn. Enda er sá flokkur
að verða einn ótútlegasti þátt-
Ur þess einokunarvalds, sem
heldur atvinnuvegum þjóðar-
innar í viðjum.
Á Alþingi hafa þingmenn
sósíalista flutt gagnmerkar til-
lögur um atvinnumál, byggðar-
laga og einstakra staða, en
jafnan átt að mæta andstöðu
hernámsflokkanna. í beinu
framhaldi af fyrra starfi flokks
ins að þeim málum, er í hinni
nýju nýsköpunaráætlun Sósíal-
istaflokksins lögð megináherzla
á nýbygging atvinnulífs í hin-
um ýmsu landshlutum. Þar
eru aðaldrættirnir þannig:
Suður- og Vesturland
Rájizt verðj í stórvirkjun í
Þjórsá og stóriðju f sambandi
idð hana (aluminiumfram-
leiðslu, áburðarframleiðslu o.
fl.). Jarðhitinn hagnýttur til
hitaveitna og iðniaðar. liafizt
verði lianda um undirbúning
þessara framkvæmda nú þegar.
Smíði togara og aimarra járn
skipa verði hafin og nauðsyn-
legar framkvæmdir gerðav til
aðstöðuútbúna ðar.
Aðstaða íslenzks iðnaðar til
útflutnings verði stórbætt.
Byggð verði sementsverk-
smiðja og lokið við áburðar-
verksmiðjuna.
Sogið verði fullvirkjað. Raf-
magn leitt til Vestmannaeyja.
Landshafnir í Njarðvík og
Rifi fullgerðar og Sandgerðis-
höfn stórhætt sem bátahöfn.
Aðstaða í landi fullkomnuð.
Hitaveitur verði lagðar í bæ-
ina við sunnanverðan Faxaflóa
og þann liluta Reykjavíkur,
sem liún er ekki eim í.
Vestfirðir
Á Vestfjörðum verði fiskiðn-
aður stórefldur. Váldir verði
þar sérstakir staðir og þeir vel
útbúnir til fiskmóttöku í stór-
um stíl af togurum og fskibát-
um og til verkunar á aflanum.
Á þeim stöðum verði: Stór
frystihús. — ísframleiðsla. —
Fiskþur rk una rh ús. — Stórar
saltfiskstöðvar. — Harðfisk-
verkiut — Fiskreykin'g. —
Fiskniðursuða.
Hafnaraðstaða verði gerð svo
góð sem kostur er. Komið sé
upp oliugeymum. saltbirgða-
stöðvum og vörubirgðastöðvum
skipa.
Á öðrum stöðum á Vestfjörð-
um verði einnig endurbætt að-
staða tH fiskmóttöku og fisk-
verkunar.
Þessi aðstaða sé iniðuð við,
að niargir togarar og vélbátar
leggi upp afla sinn á Vest-
fjörðuni allt árið.
Jafnhliða þessuui fram-
kvæindum yrðu rafmagnsmál
Vestfjarða að leysast með all-
stórri vatnsvirkjun.
Norðurland
Ráðizt verði í stórvirkjun í
því vatnsfalli, sem hentugast
þykir. í krafti liinnar nýju
raforku verði síðan komið upp
á Norðurlandi mikilvirkum
iðnaði, cr jöfiiuin höndum yrði
ætlaður landsmönmim og til
útflutnings.
Aukin álierzla sé lögð á að
koma upp iðnaði til fullkom-
innar úrvinnslu úr sjávar- og
landbúnaðarafurðum og úr inn-
fluttu hráefni og útgerð efld
til þess að stórauka framleiðsl-
iuia og verðmæti hennar.
Skipulögð verði fullkominn
háta- og tréskipasmíði og
tryggt að nokkrir bátar og
stærri tréskip sép smíðuð á
ári hverju.
Austurland
Ráðizt verði þegar í stað í
mikla vatn'svirkjun fyrir Aust-
urland, sem leysi rafmagns-
málin þar og veiti möguleika
til stórframleiðslu.
Ráðstafanir verði gerðar til
þess að búa sem bczt út 2—3
hafnir á Austfjörðiun til mót-
töku á miklu magni af síld í
salt og til útgerðar á stórum
bátaflota, sem sildveiðar stundi
á hafinu austur af íslandi.
Byggðar verði nýjar verkun-
arstöðvar, bryggjur, rúmgóð
hafnarhús, birgðastöðvar fyrir
veiðLskip, verksmiðjur til nið-
urlagningar á síld og reykingar
á sild. LandsKöfn gerð í Ilöfn
í Homafrði.
Bátasmíðastöðvar verði end-
urbættar og reknar mcð nokkr-
um nýbyggingum árlega.
Hernámsílokkarnir
haía setið nær óslitið að
völdum undaníarandi
Framhald' á 11. siðu.