Þjóðviljinn - 07.06.1953, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 07.06.1953, Blaðsíða 3
Summdagur 7. júní 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (3 Aðbúnaður smóbátaútvegs- mcmna í Reykjavík óviðunaxidi í Reykjavik er nú vaxandi hugur. í mönnum iað stunda smábátaútgerð, þ. e. róa á trillum. Ef vel fiskast geta menn haft talsvert í aðra hönd, jafnvel fast að því eins mikið og af útgerðinni á Kefla- víkurflugvelli. Við þetta bætist, að þetta er einnig mikið hags- munamál allra bæjarbúa, því að bátar þessir sjá þeim fyrir nýjum og góðum fiski. En hér •er einn galli á gjöf Njarðar: Aðbúnaður þeirra, sern útgerð þessa stunda er vægast sagt hraklegur og 'ekkert gert af hálfu toæjar- eða hafnaryfir- valda til að bæta hann. Bryggju pláss er mjög lítið og óhentugt. Aðalathafnasvæðið er við báta- bryggjurnar við iGrandagarð, en þar verða smábátamir að liggja innan tim stæ.rri bátana, sem nú liggja þar mjög marg- ir, og undir hælinn lagt, ,að nokkurt pláss fáist nema rétt hryggjuhausinn. Auk þess eru hryggjur þessar óhentugar smá- bátum eins og þær eru. Þetta eru staurabryggjur og opið á milli staura, þannig, að smábát- ar geta lent undir bryggjunni og jafnvel sokklð. Stigar eru þarna auk þess engir til ,að nota, þegar lágsjávað er. Flest- ir róa með handfæri, en all- margir róa þó með línu. En þá bætist við nýtt vandamál: Ekkert húsnæði er fáanlegt til að beita í, og verða menn því að beita úti í hvaða veðri sem er. Verbúðirnar á Grandagarði eru notaðar sem geymslur fyrir stærrf bátana og eru þó til þess mjög óhentugar, þar sem þær eru óupphitaðar cg loftræsting ill. í þeim er því mikill slagi, svo að veiðarfæri fúna. Hafnar- stjóri þvertekur fyrir, að nokk- uð verði gert af hálfu hafnar- innar á næstunni til að bæta úr þessum verbúðarskorti. Þó mun smábátaeigendafélagið „Björg“, sem nú hefur verið endurvakið, haf.a fengið vilyrði fyrir svæði undir beitningar- skúra á Grandagarði, en ekk- ert bólar á framkvæmdum. En einmitt þetta þarf að gera og hægt er að gera það straxef vilji er fyrir hendi! Þeir, sem veiðar stunda á smábátum, þurfa að fá til eigin afnota minnst eina bryggju og væri þá vafalaust hentugust bryggj- an næst fiskiðjuverinu, en þá er dráttarbraut Daníels Þor- steinssonar í fullmiklu nábýli, enda væri hún v.afalaust betur komin annars staðar, t. d. inn við Elliðaárvog. Stærri bátum, þeim sem þarna liggja, væri vafalaust hægt að finna stað annars staðar, að minnsta kosti þeim sem eru í ósjófæru ásig- komulagi og hafa legið þama svo árum skiptir. Bry.ggjuna þyrfti síðan að klæða að neðan utan á staurana og koma fyrir stigum, svo.að menn geti kom- izt um borð .hindrunarlítið og án verulegrar lífshættu. Reisa þarf beitningarskúra til afnota fyrir þá, sem veiða á línu, og væri vart til of mikils mælzt, að hafnarstjóm hefði um það forgöngu í samráði við smá- 'bátaeigendafélagið ,,Björg“. V.andamál þetta þarf að leysa sem fyrst, því að það fer vax- andi, enda er hér og um sam- eiginlegt hagsmunamál allra bæjarbúa að ræða. Brynjólfur Einarsson Framhald af 6.- síðu. kunna obbann af því sem ort hefur verið á íslenzku frá Agli og fram til Jóhannesar og Da- víðs. Sjálfur er hann skáld- mæltur vel -— hefur ort frá því hann var smástrákur og hættir því varla, meðan hann má mæla. Eru margar af stökum hans löngu landfleygar og hafa víða vakið kátínu. Mætti hann að skaðlausu sýna þessum börnum meiri rækt en raun er á. Brynjólfur er giftur Hrefnu Hálfdánardóttur frá Akureyri, mætri konu og góðri húsfreyju. Þau hjónin hafa eignazt tvo syni, Hálfdán Brjiujar, sem fórst í blóma lífsins með vél- skipinu Helga fyrir rúmum þremur árum, og Gísla Hjálm- ar. sem er málari í Vestmanna. eyjum. Þótt Brynjólfur flytti til Eyja fuhtíða maður, er liann löngu orðinn rótgróinn eyja- skeggi, og myndi Vestmaima- eyingum áreiðanlega þykja nokkurs vant, ef Binni í slippn- úm væri þaðan burtu farinn og stökur hans hættar að svífa með hafrænunsii yfir Heimaey. K. K. Skagaströnd á föstudag. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Sósíalistaflokkurinn hélt al- mennan stjórnmálafund hér í fyrrakvöld. Ræðumenn fundar- ins voru Einar Olgeirsson, Sig- urður Guðgeirsson og Eðvarð Sigurðsson. Fundurinn var ágætlega sótt- ur, þrátt fyrir mikið annríki manna á þessum tíma og var mjög góður rómur gerður að máli ræJumanna. Frá kosningaskrifstofu Sósíalistaf lokksins: 22 dagar eru til kjördags Kosningaskrifstofa Sósíal- flokksins vilí minna á eftir- farandi: SJÁLFBOÐALIÐAR: Þeir stuðningsmemi flokksins sem geta liðsjnnt Itonum við uiulirbúning kosninganna eru beðnir að gefa sig frarn við kosningaskrifsíofuua. Vinnuni öl5 að glæsilegum sigri Sósíalistaflokksins við ' Alþingiskosningarnar 28. júní. Utankjözsta^aatkvæðagreiðsla ei Ztafin: Kjósendur, sem farið tir bænum eða Þorsteinsson. dveljið í bænum fjarvistum A.-Húnavatnssýsla: Sigurð- frá lögheiinilum ykkar, at- ur Guðgeirsson. hugið að utankjörstaðarat- SiglnfjörCur: Gunnar Jó- kvæðagreiðsian er hafin og hansson. fer daglega fram í skrifstofu Akureyri: Steingrímur Að- borgarfógeta í Arnarhvoli alsteinsson. (nýja húsinu kjallara) við S.-Þingeyjarsýsla: Jónas Lindargötu frá klukkan 10- Árnason. 12 f. h., 2-6 e. li. og N.-Þingeyjarsýsla: Sigurð- 8-10 e.h. — Kjósið í tíma. ur Róbertsson. Listi Sósíalistaflokksins í Sej’ðisfjörður: Steinn Sef- Reyjavík og tvímennings- ánsson. kjördæmunum er C listi. A.-Skaftafellssýsla: Ás- Frambjóðendur íiokksins í mundur Sigúrðsson. einmenningskjördæmunum V.-Skaftafellssýsla: Run- eru: ólfur Björnsson. Gullbringu og Kjósarsj'sla: Vestmannaej jar: Karl Guð- Finnbogi Rntur Valdimars- jónsson. son. Að öðru lej’tl geta kjós- Hafnarfjörður: Magnús endur sem dvelja fjarri lög- Kjartansson. heimilum sínum kosið hjá Borgarfjarðarsýsla: Ilar- næsta hreppsstjóra, sýslu- aldur Jóliannsson. manni, bæjarfógeta, ef þeir Mýrasýsla: Guðmundur dvelja úti á íandi, en aðal- Hjartafson, ræðismanni, ræðismanni eða Snæfelisnes- og íínappa- vararæðismanni, ef þeir dalssýsla: Guðmundur J. dvelja utan lands. Guðmuntlsson. Allar nánari upplýsingar Dalasýsla: Ragnar Þor- um utankjörstaðaatkvæða- steinsson. greiðshiRa eða annað er Barðastrandarsýsla: Ingi- varðar Alþingiskosníngarnar mar JÚKusson. eru gefnar í kosningaskrif- V. Isafjarðarsýsla: Sigur- stofu Sósíalistaflokksiius jón Einarsson. Þórsgötu 1 sími 7510 (þrjár N.-ísafjarðarsýsla: Jó- iínur) opin daglega frá kl. hann Kúkl. 10 f.li. til 10 e.h. ísafjörður Haukur Helga- Kjósið C Issta í Reykjavík son. og tvímeniiingskjördæmun- r ! m r Strandasj'sla: Gunnar um og frambjóðéndur Sós- Benediktsson. íalistaflokksins í einmenn- V.-Hi&navatnssýsla: Björn ingskjördæmnnum. Skofæfing á Vafns- leysusfrönd Enn ar gréðss Um það bil sem vorblómin byrjuðu að springa út í helð- inni i'yrir ofan Vatnsleysu- ströndina var hún hernuinin og dögum sauian dundi þar erlend skothríð og eldar brunnu. Nú hafa bændurnlr á Vatns- lej'suströndiani rekið banda- ríska lierinn af höndum §ér og skógræklarsvæði Suðurnesja- manna undir Háabjalla aftiíir vérið leyst. úr herkví. Suðurnesjamenn, bæði héðan úr bænum og úr heimabyggð- um Suðurnesja hófu þar aítur í gær -að gróðursetja skóg. Prestskossiiiig í /Ssu- staðaprestakalli Hinn 25. f. m. fór fram prests- kosning i Æsustaðaprestakalli í Húnavatnsprófastsdæmi. Birgir Snæhjörnsson var löglega kjörinn með 187 atkvæðum, en tveir seðlar voru auðir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.