Þjóðviljinn - 07.06.1953, Side 7
Sunnudagur 7. júni 1953 — ÞJÖÐVILJINN — (7
landsmanna. Þar er þetta fyrir-
hugað:
V öruf lutningaskip
Keypt verði 10—15
vöruflutningaskip af
hentugum stærðum.
Skip þessi taki að sér
allan flutning á kolum
salti, timbri o. fl. vörum
til landsins og komi þar
með þessum flutning-
um í hendur lands-
manna sjálfra.
Með þessari aukningu
á kaupskipaflotanum
verði jafnframt stigið
fyrsta skrefið í þá átt,
að íslendingar gerist
siglingaþjóð, sem aflar
sér gjaldeyris með sigl-
ingum fyrir aðrar þjóð-
ir.
Olíuflutningaskip
Keypt verði a. m. k.
- tvö tarikskip 10—15 þiís.
ámálestir hv-ért'i Skip'
þessi annist alla olíu-
og benzín-flutninga til
Þjóðin á frá nýsköpunarárunum glæsileg fiskiðjuver. Hún þarf aðeins að fá að hagnýta þau til fulls. — Mynd af Fiskiðju- landsins.
veri ríkisins, sem reist var fyrir frumkvæði nýsköpunarstjórn - rinnar.
rsýir togarar
Öllum sem þekkja til sjávar-
útvegs á íslandi er kunnugt
um þá gerþreytingu, er varð
í þeim atvinnuvegi vegna þess,
að kosningasigur Sósíalista-
flokksins 1942 gerðu honum
kleift að ko.ma nýsköpunar-
stefnu sinni að nokkru ’til
framkvæmda.
Ef Sósíalistaflokkurinn vinn-
ur kosningasigur, ef fólkið
fylkir sér um hann í kosning-
um, getur það valdið enn ör-
lagaríkari straumhvörfum í
íslenzku þjóðlífi en urðu 1944,
er nýsköpunarstefna sósíalista
sýndi svo eftirminnilega afl og
þor alþýðunnar og möguleika
þjóðarinnar til velmegunar, þó
afturhald landsins, með Vil-
hjálm' Þór, Kókakólabjörn og
Eystein í fararbroddi, -sæju
ekkert annað en hrun fram-
undan.
Hvað sjávarútveginn snertir,
telur Sósíalistaflokkurinn brýn-
asta napðsyn að gera þessar
ráðstafanir:
1. Allur fiskiskipa-
stóll Iandsmanna sé rek
inn ósíitið.
2. Fast fiskverð sé
tryggt fyrir eitt ár í
senn.
3. Launakjör sjó-
manna og allur aðbún-
aður (verbúðir o. s.
frv.) séu stórum bætt.
Reglulegar launagreiðsl
ur tryggðar.
4. Nægileg reksturs-
lán séu tryggð.
5. Stofnlánadeild sjáv
arútvegsins fái sem fast
stofnfé þá fjárhæð, sem
henni var lagt til í byrj
un. Deildinni séu síðan
tryggðar árlegar tekjur
og fiskveiðasjóður efld-
ur til áframhaldandi
stofnlána í þágu sjávar-
útvegsins.
6. Gagngerðar ráð-
stafanir verði gerðar til
lækkunar á reksturs-
kostnaði útgerðár, m. a.:
vaxtalækkun, ríkisinn-
flutningur á olíu og efl-
ing olíusamlaga útvegs-
manna, innflutningur
allra útgerðarvara
skipulagður í höndum
útvegsmanna með að-
stoð ríkisins, vátrygg-
ingar lækkaðar, afnám
söluskatts og allra tolla
af útgerðarnauðsynjum.
Það er ekki fátt sem sjó-
menn og vandamenn þeirra fá
fækifæri til að þakka líernáms-
flokkunum á kosnir.gadaginn
28. júní. Og það skyldi munað,
að þó Alþ.blaðið sé látið
•gaspra um sjómannamál við
hátíðleg tækifæri, ber sá flokk-
ur fulla ábyrgð, ásamt Sjálf-
stæðisflokknum og Framsókn,
á því efnahagsástandi sem nú
fer verst með sjúvarútveginn
og kjör sjómanna. Engir hafa
verið heitari fylgjenduj' handa-
rískrar undirlægjustefnu í
efnahagsmálum en leiðtogar
Alþýðuflokksins, engir hafa
með innilegri v.elþóknun kallað
erlenda herinn í landið, hver
einasti þingmaður Alþýðu-
flokksins greiddi atkvæði með
hernámi landsins í maí 1951.
Stefna hernámsflokkanna
þriggja kemur fram í núver-
andj ástandi sjávarútvegsmál-
anna:
© Nýsköpunartogararnir
liggja, bátarnir fá ckki fé íil
síldveiða í hafir.u austur af
íslandi, mörg frystihús lítt
notuð.
© Fjárskortur látinn draga
úr framleiðslunni.
© Bátabyggingar eru stöðv-
aðar innanlands.
e Stofnlánadeildin mim.kar
ár frá ári.
9 Vaxtakjörin eru 7—8%.
® Olíuliringarnir stórgræða.
© Vinnuafl þjóðarinnar er
i sívaxandi mæli notað í Þjón-
ustu erlends ríkis á kostnað
sjávarútvegsins.
í hinni nýju nýsköpunaráætl-
un Sósíalistaflokksins er gert
ráð fyrir aukningu skipastóls
Nýir togarar
Bætt verði við tog-
araflota landsins 10—15
nýjum skipum. Kapp-
kostað verði að smíða
þessi skip innanlands.
Með þvi myndi skap-
ast hér mjög mikil at-
vinna iðnaðarmanna og
reyndar manna úr öll-
um starfsgreinum. Jafn
hliða yrðu hér gerðar
nauðsynlegar ráðstaf-
anir til járnskipasmíði,
sem landsmönnum er
mjög áríðandi.
Sjómannastéttin íslenzka skil
ur það, hvar hún hefði staðið,
ef sósíalistum hefði ekki tekizt
að knýja fram þá nýsköpun
sjávarútvegsins sem varð eftir
stríðið. Það nýja, stórkostlega
átak, sem hér er fyrirhugað,
'getur lík.a orðið að veruleika,
ef fólkið siálft skilur, að það á
ekki að kjó ;a óvini alþýðunnar
á þing, dáðlaust, hugsjóna-
snautt afturhaldshyski og auð-
safnara, heldur sanr.a fulltrúa
vinnandi stétta landsins.
Nýsköpiinartogararuir eru stolt allrar þjóðariimar