Þjóðviljinn - 10.06.1953, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 10.06.1953, Blaðsíða 12
Á Keflavíkurflugvelli er veriB aS byggja: AÓÐVIUVN Miðvikudagur 10. júní 1953 :— 18. árgangur — 127. tölublað armonriym Stjórnarblöðin, Tíminn og Morgunblaðið, gerðu bæði játningar í gær varðandi smán sína á Kefla- víkurflugvelli. Játuðu bæði blöðin að nokkru og staðfestu það sem Þióðviljinn hefur upplýst á undaníörnum mán- uðum. Þannig játar Morgunblaðið að 2700 íslend- ingar hafi verið reknir í útlegð suður á Miðnes- heiði til vinnu við erlendar herstöðvar, — en eins og vænta rnátti gat Morgunblaðið ekki sagt sann- leikann allan; þeir eru mun fleiri. Pfbsgimbl. sagSi mfög kurteislega frá að byggja ætfi uekkuE stórfeýsi á veilÍEum, mun Megglnn feaía átí viS þa@„ að á sama tíma ©g Isiendingar búa í al!sli@nar skúrum og hfölium svo feuuúmðum skiptir í leykjavík einni samau. eg útSmsðas es kraiizt á izmfæddum Eeykvíkingum, haía feundEuð bygg- ingariðnaðarmanna verið ferakin suður á leflavíkur flugvöll til að byggjfí á þessu sumri 28 þriggja feæða blókkir — sem fever um sig er um 768 Ser- metras að grunnfleti, — eða byggmgar sem sam- svara samtals rúmum 800 smáíbáðum, eða húsnæði yfir 4—5 þús. manns. Hernámssmánin á Keflavíkur- flugvelli hefur verið bannheil- agt feimnismál landssöluflokk- anna, allt frá upphafi. Allt sem þeir hafa um framkvæmdir við bandarísku herstöðvarnar sagt, er einungis að játa réttar þær upplýsingar er Þjóíviljinn hef- ur áður flutt. Fær að vera með. Það þótti ekki praktiskt að lofa blaði þriðja landssölu- flokksins, Alþýðuflokksins, að gera einnig játningar um her- stöðvabyggingarnar. En Mogg- inn var svo elskulegur að vita um að AB-flokkurinn fær einn- ig að vera með um skipulagn- ingu á herleiðimgu íslenzks vinnuafls, verkamanna, iðnað- armanna og sjómanna suður í sódóma bandariska hersins. Mörgum mun þykja ekki ó- fróðlegt að lesa þessa játningu Hans G. Andersen, starfsbróð- ur GuSmundar Guðmundssonar hernámsstjóra, að gerðar hafi verið ,,sundurliðaðar áætlanir til nokkurra mánaða í senn í samráði við Félagsmálaráðu- neytið, Alþýðusamband Islands og Vinnuveitendasamband ís- lands um væntanlegan fjölda íslenzkra starfsmanna." Hér eftir ættu félagsmenn í Alþýðusambandinu ekki að vera í vafa um að þeir Helgi, verk- fallsbrjóturinn ísfirzki, Jóei klofningur og Sigurjón járn- smiður eiga sæti í útlegðardóm- stólnum er ákvarðar hverjir skulu hráktir frá fiskveiðum, landbúnaði og byggingu íbúðar- húsa' yfir íslendinga og dæmd- ir til að vinna við herstöðvar. Eklti til Islendinga. Allt frá dögum nýsköpunar- stjórnarinnar hafa íslendingar getað fagnað nýjum flutninga- skipum árlega, íslenzkum skip- um er áttu að „færa varninginn heim.“ Einnig þessi skip eru nú komin í þjónustu hins banda ríska hers. Eitt af SÍS-fellun- um flutti í vor sement til Framhald á 11. síðu. Þing S.-Kóreu krefsf stórsókn- ar fzl Jalúfljóts þegar í staó Itrekar andstöSu viS vopnahléssamninga Þing Suður-Kóreu koni saman í gær á fund í Púsan og samíþykkti að skora á ríkisstjórnina að láta þegar í stað hefja undirbúning að stórsókn á vígstöðvunum í því skyni að taka alla Norður-Kóreu herskyldi. Jafnframt lýsti þingið yfir að tekið yrði imeð vopnavaldi á mióti þeim sem kæmu til Kóreu til að annast fangaskiptin samkvæmt samningi deiluaðilja. Það kom einnig til tals á þingfundinum, ,að gerður yrði hernaðar&amningur við stjórn Sjang Kajséks á Formósu og samið um, að her hans hæfi innrás á meginland Kína, jafn- framt því sem her Suður-Kóreu hæfi sóknaraðgerðir sínar. En ályktun þess efnis var þó ekki afgreidd. Félagsfundur sósíalisfa á Akranesi Sósíalistafélag Akraness heldur félagsfund annað lívöid, fimmtudag kl. 9 í Stúkuheimilinu. Einar Olgeirsson mætir á fundinum og ræðir um stjórn málaviðhorfið. — Stuðnings- mönnum Haraldar Jóhanns- sonar er heimill aðgangur að fundinum á meðan húsrúm leyfir. Þingið skoraði á stjórnina að gera allar nauðsynlegar xáðstaf arnir til að treysta öryggi her- sveita Suður-Kóreu, bæði á víg- slöðvunum og að baki þeirra, og verður þetta varla skoðað öðru- vísi en sem ögrun við Banda- ríkjamenn. Þingið 'skoraði einnig á stjórn- ina, að láta alla þá kóreska fanga, sem sagðir eru ófúsir heimferðar, en flytja kínverska félaga þeirra til Formósu, þvert ofan í það samkomulag sem nú hefur verið gert. Radford flotaforingi, yfirmað- ur herafla Bandaríkjanna á og við Kyrrahaf og nýskipaður for- maður bandaríska foringjaráðs- ins, og Taylor hershöfðingi, yfir- maður 8. bandaríska hersins í Kóreu gengu báðir á fund Syng- mans Rhee í gær í Seúl. Samninganefndirnar komu saman á fund í Panmunjom i gær og stóð hann aðeins í 12 mínútur. Búizt er við, að nokkra fundi verði að halda áður en fyllilega er gengið' frá vopna- hléssamningunum. Sambands- foringjar vinna að því að endur- skoða markalínuna milli herja deiluaðilja. Blöðum um allan heim var tíðrætt um samningsgerðina í Panmunjom í gær og kom sam- hljóða álit þeirra fram í þeim orðum franska borgarablaðsins Le Monde, að „í kóreska harm- leiknum væri Syngman Rhee þorparinn". Dagblað fólksins í Peking sagði, að tilboð Eisen- howers um hernaðarbandalag I'-amhald á 3. síðu. Stalíngrad sýning I gærkvöld var opnuð í Keflavík myndasýning um end- urreisn Stalíngradborgar, við prýðilega aðsókn. Flutti Oddbergur Eiríksson erindi um för sína til Stalíngrad, og síðan var sýndur fyrri hluti kvikmyndarinnar Orustan um Stalíngrad. í dag verður sýningin opnuð kl. 6. Sverrir Kristjánsson sagn- fræðingur flytur erindi, og hefst það kl. 8,30. Að því loknu verð- ur sýndur síðari hluti kvikmynd arinnar. Undanfarið hefur Þjóðviljinn birt hinar athyglisverð- ustu frásagnir um ýmsa helztu þætti landsmálanna, og hver hafa orðið viðbrögð hernámsblaðanna ? S.l. sunnudag sannaði Þjóðviljinn stór- íelld vísvitandi ósannindi upp á ríkisstjórn- ina og jaínframt milljónarán það sem menn og úívegsmenn verða fyrir. Þjóðviljinn lagði fram óvéfengjanlegar sannanir fyrir því að norskir sjómenn fá miklu hærra verð fyrir fiskinn en hér er greitt og að munur- inn er birtur af milliliðaokrurum. Hvað segja hernámsblöðin um þessar stórathyglis- verðu staðreyndir? Þau þegja. Fyrir skömmu birti Þjóðviljinn frásögn um opinbera skýrslu norsku stjórnarinnar, þar sem sannað var að verðbólgan á íslandi hefði. vaxið um það bil ferfalt hraðar hér síð- an 1949 en í helztu viðskiptalöndum okkar. Sá geysilegi munur getur ekki stafað af öðru en óstjórn og ránsskap. Hver verða viðbrögð hernámsblaðanna þegar stjórnar- farið á íslandi er þannig metið af sjálfri norsku ríkis- stjórninni? Þau þegja. Fyrir nokkru skýrði Þjóðviljinn frá því að Norðmenn hefðu falazt eftir því að kaupa hér á landi 10-12 þúsund tonn af óverkuðum saltfiski og ætluðu síðan sjálfir að fullverka hann til þess að fullnægja hinni geysilegu eftirspurn á heimsmarkaðinum. Þjóðviljinn skýrði enn fremur frá því að ríkisstjórnin myndi hafa í hyggju að verða við þessu, -— því hún bannar sem kunnugt er fullverkun á fiski á sama tíma og Norðmenn keppast við og hafa ekki undan. Hvað sögðu hernámsblöðin um þessa afhjúpun sem birtir í skýru ljósi allt afurðasöluhneykslið ? Þau þögðu. Fyrir skömmu skýrði Þjóðviljinn frá því að hin illræmdu Esbjergviðskipti hefðu verið í senn féfletting og eyðilegging á mörkuðum; Thorsararnir og Vilhjálmur Þór hefðu í bróð- erni hirt á aðra milljón króna í milliliðaokur en fiskurinn hefði verið þannig á sig kominn þegar hann kom til ítalíu að hann hefði stór- eyðilagt mannorð íslendinga. Þessi viðskipti hefðu þannig verið aðferð til að losna við lögboðið fiskmat og hirða skjóttekinn gróða á kostnað varanlegra hagsmuna íslendinga. Þetta er ófögur saga og vakti mikla athygli. En hernámsblöðin þögðu. Fyrir nokkru skýrði Þjóðviljinn-frá því að Samband íslenzkra samvinnufélaga hefði stofnað sérstaka deild til þess að greiða fyrir hernámi landsins og hirða stórfelldan gróða af niðurlægingu íslands. Og enn þegja hernámsblöðin. Þessi þögn er að vísu skýrari en nokkur orð. Hún sannar að þessi blöð standa uppi algerlega berskjölduð, þau eiga enga vörn, enga réttlætingu; þau geta ekki einu sinni gripið til ósanninda og blekkinga sér til af- sökunar. En er ekki kominn tími til að leysa þá menn frá völdum sem þannig hegða sér og kjósa eina flokkinn sem ber hreinan skjöld og aldrei hefur hvikað í nauðsynja- málum þjóðarinnar. C-listinn er listi Sósíalistaflokksins

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.