Þjóðviljinn - 11.06.1953, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 11.06.1953, Qupperneq 4
4) — ÞJÖÐVILJINN — Fimmtudagur 11. júní 1953 I—♦—e—♦—♦—♦—♦—«—»—«—•—♦—♦—♦—♦—♦—♦—*—*—♦—*—*—♦ Þjóðareining gegn her í landi StofiffilH Pverœiitgaféillg MlBl «§SIt f §fglll€Í NÚ EKU liðnir rúmlega tveir mánuðir frá þvi að Ávarp um þjóðareiningu gegn her í landi var sent til þjóðarinnar. Það var undirirtað 15 manns úr ýmsum stéttum og stöðum, körlum og konum, sem vildu reyna að vekja þjóðina . til hugsunar um hið alvarlega á- stand sökum hersetunnar í landinu, og jafnframt gera til- raun til þess að sameina til virkrar þátttöku alla andstæð- inga hers í landi. Þetta tókst mjög giftusamlega svo sem þjóðarráðstefnan 5.-7. maí sl. ber ljósast vitni. Þar mættu á þriðja hundrað fulltrúar frá 54 félögum, og til viðbótar voru þar áheyrnarfulltrúar, samherj- ar okkar, enn fleiri. Öllum, sem þar voru, ber saman um að þar hafi eflzt miklar vonir um sigursæla sókn gegn helstefnu hernaðar- ins og hinum rangsnúnu öfl- um, sem nú stjórna þessu landi, innlendum og erlendum. Andspymuhreyfingin gegn her i landi var hafin, og við hétum þvi öll sem eitt að ganga fram í anda Einars Þveræings, neita afsali lands og erlendra yfir- ráða, en stefna að vinsamleg- um samskiptum við allar þjóð- ir. Við hétum þvi að standa við málstað Islands og endur- heimta sjálfstæði landsins, sem vissulega er stórlega skert. Það fór varmi um hvers manns hug og sá varmi hefur borizt út um landsbyggðina og hlúð að hinni þjóðernislegu kennd allra góðra fslendinga. Framkvæmdanefnd and- spyrnuhreyfingarinnar hefur fundið greinilega að fólk ósk- ar að fylkja sér undir merki okkar, en hefur ekki fengið tækifæri tii starfa. Fjöldi manna viðsvegar nm land hef- ur skrifað okkur, pantað silf- urmerkið Þveræing, og tjáð sig í öllu reiðubúið til starfa. í rauninni hefur staðið á okkur að láta hina áhuga- sömu samherja hafa verkefni. Þetta hefur dafnað svo ört og á svo skömmum tima, að ekki hefur verið hægt að koma til framkvæmda nema fáu af því, sem við þurfum að efla S framtíðinni. Nú er þó óðum að færast í það horf, að við getum eflt okkur til samein- aðra átaka. Fyrirlesarar frá andspyrnuhreyfingunni munu ferðast um eftir því sem tök eru á, við höldum samkomur og fundi til þess að kalla fólk til samstarfs, við séndum merk- ið okkar Þveræing til allra, sem þess óska. Viljum einnig biðja sem flesta samherja að gefa sig fram sem umboðs- menn og selja merkið. En jafn- framt þessu er hin mesta þörf að efla hin félagslegu tengsl milli fólks víðsvegar um land- ið og framkvæmdanefndar and- spyrnuhreyfingarinnar hér í Reykjavík. Nú þarf að stofna Þveræingafélög um land allt Þau er hægt að stofna ein- faldlega á þann hátt, að fólk, sem er andstætt her í landi og stofnun innlends hers, og vill leggja orð og hönd að verki í hinni nýju frelsisbar- áttu, kemur sér saman um að skrásetja sig til þátttöku í andspyrnuhreyfingunni, - segj- um 5 eða 8 manns eða þaðan af fleira. Engin skilyrði um skoðanir fólks í öðrum málum eru sett, aðeins einbeitni gegn hernaðarandanum og helstefnu hans. Þegar Þveræingafélag er stofnað, þarf að senda okkur hér syðra tilkynningu um það. Við sendum um hæl starfs- grundvöll, vcrkefni, merki osfrv. Heiðruðu samherjar. Takið til starfa og myndið Þveræ- ingafélög sem allra fyrst. Það styrkir okkur sameiginlega i hinni miklu sókn. Kallið góða félaga ykkar til fundar um málefnið, myndið félög á vinnu- stöðvum, á heimilum, á skip- um á hafi úti, tveir eða þrír bæir saman um félag í sveit- unum, alls staðar þar sem grundvöllur er. Þannig stækk- ar fylkingin, sem gengur fremst í frelsisstríði Islands gegn erlendum yfirráðum. — Hleypið Þveræingafélögum af istoikkunum (næsSu daga tog næstu vikur um allt Island og tilkynnið okkur samstundis bréflega eða símleið. Hvert fé- lag snýst í fyrstu sóknarlotu gegn hernámsflokkunum í kosningunum í þessum mánuði. Það er fyrsta verkefnið. Hátið okkar Jónsmessuhátíð á þessu vori vera sóknarhátið í anda Þveræings. — Með vin- samlegri kveðju til allra Þveræ- inga. G. M. M. Pósthólf 1063 Reykjavík. Stjérn spítaianea eim ekki fengizt til að hef ja HvaS ávelwr lélagsstjóri! Vöruskipta- SBf eg Meira en þrjár vikur eru nú liðnar síðan stjórn spítalanna barst uppkast að kjarasamn- ingi frá samninganefnd Starfs- stúlknafélagsins Sókn og brátt liálfur mánuður síðan gamli kjarasamningurinn rann út. Ekkert hefur þó verið gert af hálfu félagsstjórnar og Alþýðu- sambands til að greiða fyrir málinu á eðlilegan hátt. Þessi staðreynd er þeim mun kynlegri sem vitað er að upp sögn samningsins gamla var á- kveðin og drifin í gegn af fé- lagsstjórninni að áeggjan fuli trúa Alþýðusambands og Full- trúaráðs verkalýðsfélaganna. 35 ffiillj. króisa gieiddar í tjónabætur á 10 ánim Aðalfundur Almennra Trygg- inga h.f. var haldinn þ. 5. þ. m. í skrifstofu félagsins, Aust- urstræti 10. Fundinn setti for- maður félagsins, Carl Olsen, konsúll, en hann hefur verið formaður þess frá stofnun, 11. maí 1943. í yfirlitsskýrslu formanns um starfsemi félagsins síðast- liðin 10 ár gat hann þess, að félagið hefur greitt alls 35 mill- jónir króna í tjónabætur. Iðgjöld félagsins á síðast- li&iu ári námu 12% milljón kr. í öllum deildum og höfðu aukizt um tæplega 1 milljón króna frá árinu áður. Félagið tekur nú að sér flestar tegundir trygginga, þar á meðal líftryggingar, en Ná þeim byrjaði félagið í júlí síð- astliðið ár. Stjórn félagsins skipa nú þeir Carl Olsen, konsúll, for- maður, Gunnar Einarsson, prentsmiðjustjóri, varaformað- ur, Jónas Hvannberg, kaupm., Kristján Siggeirsson, kaupm. og Gunnar Hall, kaupmaður. Forstjóri félagsins er Baldvin Einarsson, og hefur hann ver- ið það frá stofnun þess. Hinn 6. júní s. I. var undir- ritáður í Rio de Janeiro við- skiptasamningur milli íslands og Brazilíu, er gildir fyrir tíma- bilið frá l. júlí 1953 til 1. júlí 1954. Samkvæmt samningnum mun Brazilía leyfa innflutning á saltfiski frá íslandi fyrir allt að 36,5 milljónir króna og er gert ráð fyrir, að Islendingar kaupi aðallega kaffi og nokkr- ar aðrar vörur fyrir sömu upp- hæð frá Brazilíu. Samningagerðina annaðist fyrir Islands hönd Thór Thórs sendiherra og undirritaði hann samninginn ásamt untanríkis- ráðherra Brazilíu. rónlistarskóla Hafnar- fjarðas: slitlð nýlega Tónlistarskóla Hafnarfjarðar var nýlega slitið að loknum prófum. Skólanum var skipt í tvær deildir: barnadeild, og deild fyrir reglulega nemendur í hljóðfæraleik, og voru í báðum alls 31 nemandi. Auk þess var eins og undanfarna vetur, starf rækt listdansdeild á vegum skólans. Þar var kennari uog- frú Guðný Pétursdóttir. Við skólaslit léku nokkrir nemendur einleik á píanó. Skólastjóri og kennari var Páll Kr. Pálsson. Hundur og hrafn ar ónáðreudurnar I Vatnsmýrinni skammt frá Reykjavíkurflugvelli hafa að undanförnu fjölmargar endur gert sér hreiður og verpt. Eh þessi staður ihefur ekki reynzt næðisamur, því að hrafnar hafa sézt ræna hreiðrin hvað eftir annað. Einoig hafa menn oft séð hund einn æða snuðrandi um mýrina og flæma endurnar af hreiðrum sínum. Er hér að jafnaði um sama hundinn að ræða, stóran, gráleitan loðhund, sem mun vera í eigu Banda- ríkjamanna til heimilis á Lauf- ásvegi 49. Enn er hægt að gerast áskriíandi að úrvali úr greinum og ræðum Sigíúsar Sigurhjartarsonar. Nú or skammt þar til úrvalið úr ræðum og greinum Sigfúsar Sigur- hjartarsonar Itemur út. Margir áskrifendalistar eru þegar komnir til út- gáfunnar, en enn er hægt að verða áskrifandi og fá bókina á lægra verðinu. Áskrifendalistar Iiggja frammi í Bókaverzlun Máls og menningar, Bóka- verzlun KBON, skrifstofu Sósíalistaflokksins Þórs- götu 1 og á skrifstofum Þjóðviljans, Skólavörðu- stíg 19. Það er óvenjulegur á- hugí manna fyrir þessari bók, enda mun hún verða mörgum kærkomin. Efnið er fjölbreytt, og mikils virði hverjum þeim sem áhuga hefur á þjóðféíags- málum, í víðtækasta skiln ingi þess orðs. Hverjum sósíalista verður þetta ó- missandi rit, og þeir munu margir í hópi bind- indismanna úr öllum flokkum, sem finnast þeir ekki mega án bókarinnar vera. Þetta er stór bók, um 430 blaðsíður. Verðið tii áskrifenda er 58 kr. ó- bundin en 75 kr. í bandi. liggur ieiíin „AÐKOMUMAÐUR" skrifar: ; „Kæri Bæjarpóstur. Eg vil hér ; með biðja þig um að benda á | það ófæra ástand, að ekki skuli vera opið eitt eiaasta náðhús í allri höfuðborginni | fyrir þá sem eru á ferli að i hæturlagi eða eftir kl. 11 á kvöldin. Hverju sætir þessi ó- . hæfa? Er yfirleitt ætlazt til, að menn svívirði húsveggi ná- ; grannans eða miðja götuna, eins cg sjá má til drukkinna i manna, þótt um bjarta sumar- nótt sé? — Eg er ekki kunn- ugri þessum bæ ea svo, að séu slíkir staðir til, þá eru þeir það fjarri almannafæri að ég ; hef ekki rekizt á þá, nema ; þennan eina í Bankastræti, sem varla er opinn lengur en venjulegan bíótíma; síðan harðlæstur. Maður skyldi ætla að menning þessa bæjarfélags krefðist þess, að slík-u væri kippt í lag. Hvar eru nú heil- brigðisyfirvöldin, fegruaarfél- agið — eða Oddfellowar? -— Aðkomumaður“ Hér vaníar bæði ráðhús og náðhús — Eyðilegging skrautgarða — Afgreiðslutími flugfélaganna — Hvern er verið að jarða? NOKKRIR húseigendur hafa komið að máli við mig og kvartað undan því, að algengt sé, að krakkar (eða fullorðn- ir?) fremji spjöll á görðum við hús að nóttu til. Mun sumum garðeigendum hafa verið gert brogað lífið að undanförnu, þegar þeir hafa nýlega verið búnir að .kosta fé og tíma til að búa garða sína undir sum- arskrúðið. Trjágreinar eru brotnar, troðið á nýstungna bletti, aHskcaar rusli hent inn á gróðurreitina o. s. frv. — Þetta nær vitanlega engri átt, og beita verður öðrum brögð- um til að fá unglinga og full- orðið fólk til að bera virð- ingu fyrir umhveríi .sínu, en þeim að hóta lögreglunni. Eyði leggingarhneigðin er samt sterkari en svo hjá furðu stór- um hóp, að annað ráð dugi en hótanir. — Hvað geta svo 'garðeigendumir gert ? Eiga þeir að fara að hækka girð- ingarnar umhverfis garðana og strá glerbrotum í vegg- hleðsluna? Nei, fyrir alla. muni ekki. Það myndi gera illt verra. Bezt er að kenna ungum sem eldri að bera virð- ingu fyrir öllu því, sem grær, og að sjálfsögðu mega liinir fullorðnu ekki öfundast svo yfir „lóð nágrannans", að þeir leyfi börnum sínum eða sjálf- um sér að koma ósæmilega fram við saklaus blómin og trén — eða girðinguna um- hverfis. iSÖMULEIÐIS kom maður til mín, sem sagði, að slæmt fyr- irkomulag væri á afgreiðslu- tíma flugfélaganna. Hann átti von á sendingu með flugvél að norðan, en þegar flugvélin var komin og hann ætlaði að fara að taka á móti pakkan- um á afgreiðslunai, var allt lokað og læst. Hann fék,k ekki sendinguna fyrr en daginn eft- ir; en það kom sér af ein- hverjum ástæðum mjög illa fyrir hann að fá hana ekki strax og hún kom, svo hann gat ekki stillt sig um að kvarta undan þessu fyrirkomu lagi og vonast til, að bót verði á ráðin. LOKS vill gömul kona biðja Bæjarpóstinn um að skila því til Ríkisútvarpsins, að hún óski eftir því, að tekið sé fram í dagblöðunum, hverra jarðar- förum verði útvarpað, hvaða prestur jarðsyngi og klukkan hvað athöfnin hefjist, ná- kvæmlega. Sagði gamla konan að fólk á hennar aldri stytti sér oft stundir við að hlusta. á jarðarfarirnar í útvarpinu; og þótt þær væru ekkert skemmtiefni, þá hefðu þær á sér helgiblæ, sem kæmi sér og sínum líkum í notalega, rólega og jafnvel rómantíska stemningu. Hún komst að vísu ekki nákvæmlcga svona að orði, en þetta mátti þó skilja á henni, gömlu kon- unni. Beini ég þessu hér með til hlutaðeigandi yfirvalda, vinsamlegast.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.