Þjóðviljinn - 11.06.1953, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 11.06.1953, Qupperneq 7
 Fimmtudagur 11. júní 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Með nokkrum beyg o-g kvíða er stigið upp í flugvélina á Reykjavíkurflugvelli. Það er hópur ungra stuikna á aldrin- um 17—18 ára, nokkrar roskn- ar konur fast að sextugu, þriðji hópurinn svo þar á milli, það má því segja: ,,fólk á öllum ,aldri“, því þar eru einn- ig nokkrir karlmenn með í ferðinni, eins og við, bæði ung- ir o.g gamlir. Flugþeman spennir á okkur beltin og flugvélin hefur sig til flugs. Ég hef valið mér sæti við glugga. Mér er ekki fyllilega rótt, en þeigar komið er upp fyrir Hafnarfiall og flogið yfir sumax’grænar sveit- ir og dali Boi’garf jarðar, er mér allur uggur og kviði horf- inn. Það er glaða sólskin um miðaftan í byi’jun júlí. Litir og fegurð landsins sem flogið er yfir taka hug minn allan. Og þetta er mitt eigið ættar- land: grænt, hvítt, blátt undir gullroðnum skýjum. Það er flogið út Húnaflóa og eítir það utan við strendur lands. Það sést inn á hvern við okkur til hvíldar stundnr- kom. Við erum sex sarnan í litlu herbergi og höfum til um- ráða hver fyrir sig efrj eða r.eðri rekkju með hálmd.ýríu og sameiginlegt borð ,_r stendur undir glugganum, sem snýr ut að höfninni í suðurátt. í her- berginu eru ekki önnur þæg- Svona vinnum við nú í síldinni * Úr lífi alþýðunnar einasta fjörð. Við teljum á fingrunum og fylgjum þeim eftir unz komið er norður á Kópasker við Axarfiörð, þar setzt flugvélin eftir tveggja stunda flug. Aldrei hef ég far- ið jafn dásamlega ferð. Á Kópaskeri fáum við okkur kaffi og brauð á veitingahús- inu. Þar er allt hreinlegt, gott og ódýrt og kom það sér vel, því margar voru með létta pyngju eftir atvinnuleysi og dýrt.'ð vetrarmánaðanna. Frá Kópaskeri er svo haldið í bifreiðum til Raufarhafnar, fram hjá Leirhöfn, þar sem loðhúfui’.nar eru gerðar, út undir Rif um Blikalón og Harðbak. Víða liggur vegui’- inn yfir maiarrif, þakin brim- -sorfnum rekaviði .milli lón- anna. Og um lágnættisbil er num- ið staðar við stórt hálfbyggt timburhús á Raufarhöfn, reist niðri í fjörusandi áf.ast við síldai’planið og brygjuna hans Óskai’s Halldórssonar. Við flýtum okkur inn með handtöskur, rúmfatapoka og kassa með búsáhöldum og nesti, veljum oltkur lierbergi í skálanum til íbúðar yfir síld- artímann. Frammi í eldhúsinu er kveikt á prímusunum, við fáum okkur kaffisopa í flýti, síðan tökum víð vinnufatnað okkar upp og höfúm ailt ti’. reiðu, því okkur er sagt að von ‘ sé á síld einhvem tímn nætur. Að þvrí íoknu léggjum. indi, en það er hreint og splunkunýtt, þiljað :nna».i með ómáluðum panel. Frammi í eldhúsinu hefur hver sinn smáskáp til uniráða, prímus og fi’ía oliu. Varla höfum við hvílt okkur meira en eina klukkustund þegar verkstjórinn kemur i dyragættina og segir okkur að það sé að koma síld og biður okkur að vei’a tilbúnar að stundarfjórðungi liðnum. Við sprettum allar upp í skyndi, klæðum okkur í sam- festing, lopapeysu, vaðstígvél, með skýluklút vafinn um höf- uðið, oKuborið pils, gúmmx- hanzka og vmnuvettlinga utan- yfir, það er nauðsynlegt að vern.da hendurnar vel meðan rauðátan er í síldinni. Þannig útibúnar skálmum ,‘við niður þryggjuna með hníf í annarri hendi og disk í hinni til að ausa mc-ð saltið. Það er um óttuskeið, kl. er 3, þegar við stillum okkur við saltkassana niðri á bryggj- unni og bíðum eftir skipun um ■að byrja. Það er verið að ,.landa“ úr vélskipi, sem liggur við bryggj- una. Sióménn í olíustökkum aka síldarvögnunum upp eftir þryggjunni og losa úr þeim í kassana. Og fyrr en allir kass- ar eru fullir af síld má enginn byrjá. En þá er líka éins og stýfla sé tekin úr farvegi, allar hendur á lofti, með ■ þvílíkum hraða1 að vart fæj- auga á fest. Þó eru nokki’ar sem ekkj haf- ■ast að, og er ég’ ein af þeim. Við bíðum eftir að matsmaður- inn kom; og segi okkur til, en hann hefur mörgum að sinna, og mér leiðist að bíða. Ég fer því að lita í kringum mig og horfa á handbrögð þeirra sem nSestar mér ^standa. Hægra megin við mig er dökkhærð, lítil snarleg stúlka. Hún er auðsjáanlega vön. Ég veiti því eftirtekt hyernig hún grípur síldin.a úr bingnum í kassan- um, leggur hana á kassabrún- ina, sem er um þverhandar breið, sneiðir hausinn af í einu handtaki, dregur slógið út í öði’u, kastar henni aftur fyrir sig í stampinn og grípur þá næstu með svo ótrúlegum hraða að ég fæ ekki áttað mig á neinu og lít til þeirrar sem er vinstra megin við mig, en hún er þá nýliði eins pg ég og hefst ekki að. Ég reyni samt að hausskera nokkrar síldar, en þá kemur matsmaðurinn. Og auðvitað var allt öfugt: Ég hef skorið hausinn of þvert af, ekki dregið slógið nógu vel út, og hann sýnir mér hvernig bezt megi koma viðbi-agði á hnakkann og skera hausinn hæfilegá skáhallt af rétt neð- an við tálknin og í einu hand- bragði að ná slóginu út með hálfflötum hnifnum, kasta henni síðan af-tur fyrir sig í stampinn sem er vinstra meg- in. Svo þegar hann er fullur, sé síldinni >ausið yfir í bjóðið, seni er hægra megin og salti ausið yfir og henni velt upp úr því, svo hún verði hæfilega stöm, þegar henni er raðað of- an í tunnuna. Þá skal strá salti á tunnubotninn, taka síð- ■an síld með vinstri hendj úr bióðinu og yfir í þá hægri og r.aða þannig í tunnuna að á víxl snúi haus og sporður, að mátulega margar séu í hverju la-gi, og að mátulega miklu salti sé stráð mill'i laganna, því það er skammtað mátulega mikið í hverja tunnu. Svo þarf að gæta þess vel að taka ekki nem-a góða síld, hún má ekki vera of mögur. ekki rifin eða ki’amin, þá er henni fleygt í vinnslu og vei’ksmiðjan lekur við hcnni. Matsmaðurinn hef- ur nú sýnt mér öll vinnubrögð- i.n og lagt fyrir mlg í tunnu- botninn, svo fer hann til þeii’r- ar næstu og nú er um að gera að vanda sig og muna allar reglui’nar. Ég er rétt búin að leggja neðstu lögin í mína tunnu þeg- ar sú svarthærða hægra meg- in við mig h'rópar „tunna“. Hurí er þá ekki einungls bú- in að fylla tunnuná heldur hef- ur hún einnig skorðað hérumbil 30—10 cm háan hring ofan á tunnuna og raðað i hann svo kúfurinn stendur upp af. „Hring, — hring“, er kallað ■skammt frá. Þá er hún líka búin .að fylla tunnu, en ég i’étt að 'byrja. Þær eru fljótar, þær vönu. Eg má spjara mig ef ég á að verða hálfdrættingur við þær. „Tunna — salt — síld“ er hrópað og ungir sjómenn hvolfa úr síldarvögnunum og fylla kassana fyrir framan okkur. Það er gljáandi stinn síld alveg nýveidd. Nokkrir sjómenn labba niður bryggj- una og til þeiri’a er kallað: „Viltu brýna hnífinn minn?“ Jú, alveg siálfsagt, og þeir brýna jafnt fyrir ungar sem Nú BREGÐOM vlð okkur til Raufarhafnar með r.túlku, sem kallar. sig Sylgja, og vinnum þar á plani nokkra stund. Og af þvi tilefni má niinna á að stulkur á öllum aldri ættu að vera duglegri að senda greinar ur lífi alþýðunnar, það veitir ekki af að kynna starfsheim konunnar og k jör. Seiidið grein- ar til rítstjórnar Þjóð- j viijans, Skólavörðustíg > lí), Reykjavik. 100 kr. J verðíatm veitt fyrir 5 beztu greinina hverja viku. gamlar, enda ei’um við allar álíka fallegar í sildarstökkun- um. Eftir tæpar tvær stundir er búið að salta alla þá síld, sem tekin verður úr þessu skipi og það er fárið með afganginn, sem ekki .hefur staðizt matið yfir í' verksmiðju til bi’æðslu. Sól er nú hátt á lofti. ÞaS er miður moi’gunn. Litlir hvít- ir vélbátar „stíma“ út á höfn- ina og hverfa bak við eyjuna þar sem skarfakálið vex í friði og næði fyrir ágengni bú- penings, en áður fyrr varp æð- arfuglinn þar, en síðan síldar- verksmiðjan tók til stai’fa og hinn mikli vélskipafloti bnmar með hávaða og skellum út og inn á höfnina hefur fuglinn styggzt og er með öllu horfinn. Við höldum nú heim í-skál- ann, skilum verkstjóranum. túnnumerkjum okkar fyrir innleggskvi'ttun, er við fáum í staðinn, þvoum olíupilsin og stigvélin úr sjó og nú megum við hvíla okkur stundarkorn og fá okkur bita, áður en næsta skoi’pa byrjar, en okkur er tjáð að þess muni ekki langt að bíða. Og það fer svo, efti.r tveggja stunda hvíld er annað skip komið inn sökkhlaðið. Þetta ætlar að byrja vel. Laust fyrir nónbil er fyi-sta dags.verk- inu lokið. Sjórinn er enn speg- ilsléttur, en örlítið kul leggui’ utan ,af sléttunni og grár skýja- bakk; yf.ir hæðabrúninni vest- an við höfnina rennur saman við svarta reykjarmóðuna frá síldarverksmiðjunni. Við sjóðum okkur nýj;a síld til kvöldverðai’. Og eftir stund- arhvíld kallar sumarkvöldið okkur og við förum nokkrar saman út í 'góða veðrið og göngum upp á hæðai’brúnina. Máskj siáum við vestur á Mel- rakkasléttuna, en útsýnin nær skámtnt, hærri þolt 'skyggja á, e.n næst liggia grösugir dalir, enigir bæir sjást þar og mætti því halda að hér sæist inn á engjalönd eyðijarða. Og vissu- lega hafa einhver býli þama á hásléttunni verið lögð í eyði. Við ei’um notalega þreytlar eftir dagsverkið og kvöldgöng- una. Loftið er hreinna og tær- ara hér en fyrir sunnan og engum dettur svefn í hug. Skapið er létt, þetta hefur ver- ið góður dagui’. Við hvílurri okkur jstundai'koiii á viðar- bunka undir skálanum og horf- um út á spegilslétta höfnina. Ekkert skip liggur inni, þau ei'u öll farin út á veiðar. Út um opinn glugga berst söngur ungu stúlknanna, það eru dæg- urlög og óstarsöngvar og leik- ið undir á gitar. Það er Helga litla, sem leikur á gitarinn. Hún er yngst allr-a og segist setla í tónlistai'skóla í h.aust og vera dugleg ;að vinna sér inn pen- inga í sumar. Og hver veit hvað úr henni kann að verða. Og hver veit hvað býr í ungu síldarstúlkunum, sem dansa, syngja og h'æja. þegar við hinar eldri viljum sofa. En ef einhverjum skyldí detta í hug svefnværð þess.a nótt, þó hefur hann aldrei áð- ur vei'ið í síld á Raufarhöfn. Sól er gen-gin til viðar og næturkulið leggst í bakið á okkur síldai’konunum, sern sitjum úti undir timburskálan- um sem nú skelfur undir dansi unga fólksins, því drengimir, sem vinna á „planinu“ eru lika komnir inn í stóra eldhúsið og þar eý nú dansinn stiginn. „Það verður víst ekki svefn- samt í nótt“, segir einhver, er við göngum upp háar tröppur inn í svefnskálann. Og hverjum dettur slíkt i hug í síld. Sylgja.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.