Þjóðviljinn - 11.06.1953, Qupperneq 11
Fimmtudagur 11. júní 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (lí'
Straumurinn til vinstri
Framhald af d. síðu.
■is. Með Rússagrýlu, Marshall-
áætlun og svipuðum blekking-
um tókst að stöðva strauminn
til vinstri um stund en nú
bresta stíflurnar í hverju land-
inu á fætur öðru. Á ítalíu hefur
verkalýðsflokkunum tekizt að
hindra tilraun bandarísku flokk
anna til að hrifsa einræðisvald
með löghelguðu kosningasvindli
og stóraukið kjörfylgi sitt.
Táknrænt um viðhorfið á ítal-
íu er það, að þegar frú Luce, ný-
skipaður sendiherra Bandaríkj-
anna í Róm, blandaði sér í
kosningabaráttuna með því að
lýsa yfir að úti væri um alla
dollaraaðstoð til Ítalíu ef
stjómarflokkarnir biðu ósigur,
slepptu öll stjórnarblöðin þess-
■ari hótun úr frásögnum sínum
af ræðu frúarinnar. Þriggja
milljarða dollara bandarísk :að-
stoð til Italíu á síðustu árum
hefur gert hina ríku ríkari en
þá fátæku fátækari. Stjórnar-
blöðin vissu að íhlutun frú
Luce yrði flokkum þeirra til
tjóns en ekkj gagns í kosninga-
baráttunni.
TTiðar en á Ítalíu hefur það
" komið í ljós að þótt hægt
sé :að kaupa valdamenn Vest-
ur-Evrópuríkja með dollara-
mútum eru þjóðirnar ekki til
sölu. Eftir bæja- og sveita-
stjórnakosningarnar i Frakk-
land ‘um mánaðarryátin apríl-
maí í vor sagði fréttaritari New
York Times í París: ,.Það að
kommúnistar skyldu vinna á
leiðir í ljós að fimm ár.a banda-
risk efnahagsaðstoð til Frakk-
lands og öll upplýsingastarf-
semi Vesturveldanna í Evrópu
er unnin fyrir gýg“. í þessum
kosningum urðu kommúnistar
í fyrsta skipti stærsti flokkur-
inn í sjálfri miðborg Parísar
og í útborgunum fengu þeir
hvorki meira ,né minna en
helming héraðsráðsmanna eða
30 af 60, bættu við sig fjórum.
Víða um landið gengu sósíal-
demókratar til samstarfs við
kommúnista í síðari kosninga-
umferðinni þvert ofan í fyrir-
mæli flokksforingja sinna og
hvarvetna þar sem flokkarnir
stóðu saman urðu þeir sigur-
sælir.
T haust fara fram þingkosn-
dngar í Vestur-Þýzkalandi.
Fréttariturum ber saman um
,að allar líkur bendi til :að hinn
kaþólski flokkur Adenauers
forsætisráðherra bíði þar ósig-
ur fyrir sósíaldemókrötum og
kosningar í einstökum fylkjum
benda eindregið í þá átt. Sós-
íaldemókratar Vestur-Þýzka-
lands hafa aukið fylgi sitt með
því að snúast gegn kröfum
Bandaríkjastjórnar um stofnun
vesturþýzks hers undir banda-
rískri yfirstjórn og með því að
krefjast tafarlausra stórvelda-
viðræðna um sameiningu
Þýzkalands og brottför her-
námsliðanna. Bæjarstjórnar-
Heimilisþáfifiunim
Framhald af 10. síðu.
skaltu hella örfáum vatnsdrop-
um á pönnuna. Ef það er lengi
að gufa upp, er pannan ekki
- nógu heit, en ef það þýtur burt
~ með snarkhljóði, þá er þannan
mátuleg.
kosningar í Bretlandi í vor
sýndu að Verkamannaflokkn-
um hefur stóraukizt fylgi síð-
an hann komst í stjórnarand-
stöðu og tók upp einarðarí and-
stöðu gegn háskalegustu fyrir-
ætlunum stríðssinna í Banda-
ríkjunum.
Tlinnland er eins og kunnugt er
nágrannariki Sovétríkjanna
og hefur átt í tveim styrjöld-
um við þau á síðasta áratugn-
um. Ef Rússagrýlan ætti sér
stoð í veruleikanum mundi
sósialistískur flokkur eiga sér
erfiðara uppdráttar í Finn-
landi en nokkurs staðar ann
,ars staðar. En það er öðru
nær. í síðustu kosningum þar
vann lýðræðisbandalag komm.
únista og vinstrisósíaldemó-
krata stórsigur og bætti við
sig fimm þingsætum. Straums
kjósendanna til vinstri er einn-
ig farið að gæta í þeim lönd-
um, þar sem sósíalistiskum
flokkum tókst ekki að halda í
horfinu í Marshallgagnsókn-
inni miklu og voru hraktir á
undanhald. Það sýna þingkosn-
ingarnar í Danmörku í vor og
fylkisþingkosníngar í Sviss,
þótt breytlngar yrðu þar ekki
miklar. Eftir ítölsku kosning-
arnar getur enginn maður með
opin augu komizt hjá því að
sjá að fló.tti er broatinn í lið
bandarísku fiokkanna í Vest-
ur-Evrýpu og -að þjóðirnar
sækja fram til sósíalisma og
sjálfstæðis. M. T. Ö.
Flugvél Loftleiða
Framhald af 3. síðu.
völl, a. m. k.. ekki fullhlaðin.
Um þessar mundir er ein af
þrem áhöfíaum millilandavélar
Loftleiða á námskeiði. Er nám-
skeið þetta einkum fólgið í því,
að flugmennirnir rifja upp og
læra allt það er lýtur að neyð-
arástandi í flugvél o. þ. h. Þá
eru einnig haldnar æfingar í
flugi yfir New York, en þar
umferð í lofti gífurleg og nauð-
syn fyllsta öryggis og kunnáttu
flugmannanna.
Kórea
Framh. af 12. siðu.
til að þakka Norðmönnum að-
stoð þeirra við SuðurnKóreu í
stríðinu. Hann lýsti yfir Því við
blaðamenn, að þing landsins
stæði einhuga að baki Rhee og
mundi ekki breyta afstöðu sinni.
Formaður herforingjaráðs Suð-
ur-Kóreuhers, sem kvaddur var
heim í skyndingu frá Bandaríkj-
unum þar sem hann var í kynn-
isferð, kom til Seúl í gær og
gekk strax á fund Syngmans
Rhee. Þeir ræddust við í tvær
klukkustundir og eftir ^fundinn
sagði hershöfðinginn. að her
Suður-Kóreu mundi þegar í stað
láta lausa alLa þá striðsfanga,
kóreska sem kínverska, sem
hann hefði í haldi og væru ófús-
ir heimferðar. Það fréttist í gser
í Seúl, að bandariska herstjórnin
hefði hótað stjórn Suður-Kóreu
að hætta að birgja her hennar
upp af skotfærum og eldsneyti
þegar í stað, ef hún héldi áfram
óþægð sinni, en þetta var að
vísu borið til baka af talsmanni
herstjómarinnar.
Sendiherra Suður-Kóreu í
Washington lýsti yfir við blaða-
menn, að það væri álit manna í
Asíu eftir síðustu atburði í Kór-
eu, að Bandaríkin hefðu farið
halloka í styrjöldinni, en „komm
únistar" borið sigur af hólmi.
Samninganefndirnar komu
saman á stuttan fund í gær og
var fundum síðan frestað, þar
til sambandsforingjar þeirra
hafa gengið frá ýmsum fram-
levæmdaratriðum, og er þetta al-
mennt talið bera vitni um, að
nefndirnar hafi nú komið sér
saman um öll meginatriði, og
muni undirrita vopnahléssamn-
inginn, þegar þær koma aftur
saman á fund.
P«II Arasan fer tvœr hring-
ferðir nm landið í sumar |
Páll Arason, hinn landskunni öræfaferðabílstjóri, hefur nú
ákveðið að fara 3 langar ferðir í suraar: tvær liringferðir um
landið og eina ferð um Fjallabaksveg.
Fyrri hringferðin hefst 4. júlí
og stendur til 18. júlí. Verður
farið frá Reykjavík um Hvera-
velli, Skagafjörð, Akureyri, Mý-
vatn, Herðubreiðarlindir, Öskju,
Grímsstaði, Hallormsstað,
Djúpavog, Hornafjörð, Suður-
sveit og Öræfin. I Öræfunum
verður dvalið í 3 daga en síðan
flogið til Reykjavíkur. Hin ferð-
iti hefst 15. júlí. Verður flogið
til Öræfa og farið þaðan í bíl,
austur og norður um, sömu leið
og áður var lýst, til Grímsstaða,
en þaðan verður farið í Herðu-
breiðarlindir, og Öskju, suður
að Vatnajökli, vestur á Sprengi-
sand, norðan Hofsjökuls og um
Hveravelli og Kerlingarfjöll til
Reykjavikur.
Fjallabaksferðin liefst 8.
ágúst og stendur til 16. Verður
farið frá Reykjavík í Land-
mannalaugar um Jökuldali og
Eldgjá til Kirkjubæjarklausturs
og þaðan heim til Reykjavíkur.
Næsta föstudagskvöld fer
Páll Arason austur í Land-
mannalaugar og verður komið
aftur á sunnudagskvöld. — All-
ar upplýsingar um ferðirnar.
fást hjá Ferðaskrifstofunni, svo(
og Páli sjálfum.
Framhald af 12. síðu.
ir: Róbert Arnfinnsson, Harald-
ur Björnsson, Erna Sigurleifs-
dóttir, Valur Gislason, Klemenz
Jónsson, Þorgrímur Einarsson
og Hildur Kalman.
Farið verður með leiktjöld,
sem gerð hafa verið sérstak-
lega fyrir þessa ferð og hægt
er að minnka og stækka eftir
þörfum, eftir því hvernig að-
stæður eru á hverjum stað.
Sýningar hefjast á Sauðár-
króki. Verða þar 2 sýningar á
föstudag. Þaðan verður haldið
til Siglufjarðar. Þar verða 3
sýningar. Á Akureyri verða 7
sýningar (2 17. júní), 3 á
Húsavík, 1 á Blönduósi. Þaðan
verður farið til Isafjarðar. Þar
verða 3 sýningar, 1 í Bolunga-
vík, 1 á Flateyri, 1 á Þingeyri,
1 á Bíldudal, 1 á Patreksfirði,
og 1 í Stykkishólmi. Viðar verð-
ur ekld farið að sinni. Ekki þarf
að éfa, að þessi leikför verður
vinsæl, enda er Topaz tvímæla-
laust bezta leikritið, sem sýnt
var á sviði Þjóðleikhússins í
vetur. Það sameinar það tvennt
að vera með áfbrigðum skemti-
legt og feia þó í sér hina römm-
ustu þjóðfélagsádeiVu.
Höíum fengið aftur
hinar margeftirspurðu
í V A R-H andbœkur
Autoelektroteknik.
Autoreparationer.
El-Handbogen.
Alt om Svejsning.
Den store regnebog.
Moderne værktöj.
Letmetaller.
Motorcyclen.
Teknisk Leksikon.
Handbog for Radio-
mekahikere.
Jern- og metalindustriens Handbog I.-II.
Pantanir óskast sóttar strax
því eftirspurnin,er mikiþ
Bókatóð NorSra
Hafnarstræti 4. — Sími 4281
Ihaldið ssndiff lögieglu
Framhald af 1. siðu.
því farið á fund húsnæðisfull-
trúa bæjarins — og fengið þvert
nei!
Undir hvaða gja'.dalið?!
Nú gerist það í fyrrakvöld að
konan, leigjandi Höfðaborgar 77,
hýsir fyrrnefnd hjón og börn
beirra. Og um kl. 11 um kvöldið
er kominn lögregluvörður við
dvrnar. Mun bæjarbúum ekki
þykja atvik þetta ófróðlegt, því
af því verður vart annað ráðið,
en eitt af hlutverkum njósnara
íhaldsins sé að grafast fyrir um
og ‘gefa upplýsingar um ef ein-
hver borgari bæjarins leyfir sér
að hýsa hiá sér gesti! Mun mörg-
um þykja gaman að fregna af
hvaða gjaldalið s'.ík upplýsinga-
þjónusta er greidd!
Á hann að vera á götunni?
Maðurinn. sem íhaidið sendi
lögregluna til að standa vörð
um að ekki flytti inn í Höfða-
•borg 77, er strætisvagnastjóri og
hefur unnið alllengí hjá bænum.
Þetta eru þakkirnar sem hann
fær.
Þeir sem frétt höfðu af þessu
■tiltæki íhaldsins veltu því fyrir
sér í gær hvort fyrir íhaldinu
vekti að hindra konuna i að geta
flutt inn í íbúð þá er hún hefur
keypt, eða hvort það ætlaðist
til þess að strætisvagnastjórinn
yrði á götunni með konu sína og
þrjú böm.
SkagfirSmgafélagið
í Reykjavík
sýnir Skagafjarðarkvikmynöina í Sjálfstæöishús-
inu sunndaginn 14. júní kl. 8.30. — Dansaö á eftir.
Skagfirðingar, myndin verður sýnd
aðeins þetta eina skipti, notið því
tækifæriið.
Aðgöngumiðar verða seldir í Söluturninum á
föstudag og laugardag og eftir kl. 5 á sunnudag
í Sjálfstæðishúsinu.
Stjórnin
:.c<l
I£07