Þjóðviljinn - 08.09.1953, Qupperneq 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 8. september 1953
I dag er ]>ri5judagurirui 8.
september. 251. d&giir ársins.
©ENGISSKKÁNING (Sölugengl):
1 bandarískur dollar kr. 16,32
1 kanadískur dollar kr. 16.53
X enskt pund kr. 45,70
100 tékkneskar krónur kr. 226,67
100 danskar kr. kr. 236,30
100 norskar kr. kr. 228,50
100 sænskar kr. kr. 315,50
100 finsk mörk kr. 7,00
100 belgískir frankar kr. 32,67
1000 franskir frankar kr. 46,63
100 svissn. frankar kr. 373,70
100 þýzk mörk kr. 388,60
100 gyllini kr. 429,90
1000 lírur kr. 26,12
rg SíðastUðinn laugr-
arda.g' opinberuðu
trúlofun sína ung:-
frú Erla Kristjáns-
dóttir, Hávalla-
götu 1, 0£? Gunnar
Dúi, málari frá
Akureyri.
TTjamargoIfið
rr opið alla virka daga klukkan
S-10 e.h., helgidaga kl. 2-10 e.h
Bókmenntagetraun
Erindið sem við birtum á sunnu-
flaginn var úr kvæði Einars Bene-
diktssonar Bláskógavegur. Eftir
lavern er þetta erindi?
Hesturinn minn brúni,
stígðu hægt og létt
yfir þessa gleymdu
og grýttu troðninga.
’ Nú geng ég einn í hug mínum
grasi vaxinn slóða. —
Hesturinn minn brúni,
stígðu hsogt vegna þess.
Jón Ósmann, hið kunna hraust-
menni, var einu sinni að
ferja fólk yfir Héraðsvatnaós
á dragferju.
Ókvprð var á ósnum, og var
frú ein, fín í klæðaburði og
feitlagin mjög, hrædd við að
fara upp í ferjuna.
Ósmann þrífur þá til hennar,
snarar henni upp í og segir:
Maður hefur nú fyrr tekið í
þykkildi. — (Isl. fyndni).
Neytendasamtök Beykjavíkur.
Áskriftarlistar og meðlimakort
'iiggja frammi í flestum bóka-
verzlunum bæjarins. Árgjfeld er
Eðéins 15 kr. Neytendablaðið inni-
faíið. Þá geta menn einnig til-
kynnt áskrift í síma 82742, 3223,
2550, 82383, 5443.
Félagar! Komið i sbrifstofB
Sósíalistafélagsins og greið*
ið gjötd ykkar. Skrifstofan
er opin daglega frá kl. 10-12
f Ji. og 1-7 e.h.
• tÍTBBEIÐIÐ
• ÞJÓÐVILJANN
1
Lsr-knava rðsfofan Austurbæjarskól-
Bnum. Simi 5030.
Næturvarzla
er1 í Reykjavíkurapóteki. Sími 1760
,,Og meS þinum jbembingi"
Frá ýmsu, sexn átíi sér stað á
mínum skci aárum, verð ég hér
að segja. Enn var sá siðurinn.
að litlu eftir að skóli var settur
á haustin, og um það leyti ssm
„agenda“ byrjuðu (þ. e. Þegar
lestrartímar byrjuðu) voru neðri
bekkingar allir kallaðir eitt
kvöld upp í efra bekk. Novi
voru allir settir sér á einn
bekk. Við ofnrn stóð borð og
brunnu þar tvö kertaijós. Um
tök, þagtnælsku og ótal aðrar
dyggð'r; ræðunni va.r snúið til
okkar nýsveinanna. Að ræðulok-
um var þar tíl kvöddum mönn-
um boðið að taka okkur og
framkvæma á okkur „Cerimon-
iur“ forfeðranna. í*ar næst
gengu fram hinir útvöldu menn,
tóku tveir af þeim hvern einn
af okkur „busunum“, le-ddu
okkur út og suðnr að tjörn, óðu
út i hara en hé’du okliur á lofti.
Böiusetning gegn barnávéiki
Pöntunum veitt móttaka þriðju-
dftginri 8. september kl. 10-12,
sími 2781.
Ungbaritávemd I.íknar
Templarasundi 3 er öpin á þriðju-
dögum kl. 3.15—4, fimmtudögum
kl. 1.30—2.30 og á föstudögum ki.
3 15—4.
Þeir kaupendur Þjóðviljans, sem
vilja greiðá blaðið með 10 kr.
hærra á mánuði en áskrifenda-
gjaldið er, gjöri svo vel að til-
kynna það í sima 7500.
o íulampa var ekkj að tala fyrr
en löngu síðar. Yfir öllu var há-
tíðlegur svipur og dauðaþögn.
Því naest kom inn maður (einn
af efribekkingum) í kápu með
gleraugu á nefi. og roðaugu
utan um gleraugun; hann gekk
með mestu tign og verðung að
borðinu og nam þar staðar, öll-
um varð starsýnt á þennan
furðulega mann. Hann Ieit yf-
ir allan söfnuðinn, þvi næst hóf
bann röddina og tónaði: „Óðinn
sé með yður!“ Honura svöruðu
bar t'l kjömir menn: „Og með
þínum þembingi!“ Þvi n'æst
ffutti hann ræðu háfleyga og
andríka um félagsskap og sam-
Síðan liöfðu þeir á okkur enda-
skipti og dýfðu höfðinu ofan
í sjóinn og upp að öxlum og það
svo rækilega, að mér hélt við
köfnun. Eftir það var haldið
he'm í prócessíu, Iiá dinn yfir
okkur ræðustúfur og við sagðir
velkomnir í félagið. Þá fyrst
vorum við reglulegir skólapiltar
í þeirra augum; þá fyrst urðum
við hluttakandi í öllum e!nka-
má’um skólapilta, sem aðrir
máttu eigi vita, og ég fyrir mitt
leyfc; efndi það trúlegá, að segja
ekki frá neinu, sem alii* niáttu
eigi vita. Þetta var skímin.
(Páll Melsteð í Sjálfsævisögu
sinni).
Minningarspjöld Dandgræðslusjóðs
fást afgreidd f Bókaibúð Lárusar
Blöndals,, SkólavörCustig 2, og ó
skrlfstofu sjóðsins Grettisgotu 8.
I ^ Hjónaófnúnum Jó-
V hönnu Magnús-
T*- dóttur og Guð-
\* mundi Þ. Bjarna-
syni, Bræðraborg-
arstíg 2lC, fæddist
14 marka sonur iaugardaginn 5.
september.
200 rnanns al
störfum hjá Bæj-
arútgerðinni
Ingólfur Arnarson landaði 2.
þ.m., sem hér segir: saltfiskur
180,6 tonn, ísfiskur 23 tonn og
fiskur í mjölvinnsíu 21 tonn.
Skipið hafðj einnig 19,6 tonn af
lýsi, það fór á karfaveiðar 4. þ.
m.
Húsmæðrafélag Beykjavíkur
fer i berjaferð miðvikudaginn 9.
september frá Borgartúni 7 kl.
8 f.h. Upplýsingar í símum 4442
og 5236.
Búnaðarblaðið
Freyr, 18.-19. hefti
árganasins, hefur
borizt, og er nú
skammt stórra
högga á milli.. -—
Þar ér á forsiðu mynd frá Sáms-
stöðum og ökrunum þar. Þór Guð-
jónsson ritar um Umbætur á ám
og vötnum, með mörgum mynd-
um. Gísii Þorkeisson: Nokkrar
efn«.greiningar á fosfór og kalsí-
um í islemzku heyi. Þórarinn Auð-
unsson segir frá Básadýnum. G
ritar um landbúnaðarsýningu i
Danmörku. Birt er grein um
Ódýr fjós, ásamt grunnmynd
af einu slíku. Þá er grein um
Ivartöflumat — Kartöflugeymslu
— og margt fleira er í heftinu.
Fáum vér eigí skilið annað en
bændum sé mikið gagn að þessu
tímariti sinu.
Skúli Magnússon fór á ísfisk-
veiðar við Grænland 21. ágúst.
Hallveig Fróðádóttir er í
Reykjavík.
Jón Þorláksson fór á ísfisk-
veiðar hér við land 5. þ.rri.
Þorsteínn Ingólfsson fór á ís-
fiskveiðar til Grænlands 18.
ágúst.
Pétur Halldórsson kemur til
Framhald á 11. síðu.
Söfnin eru opin:
Þjóðmlnjasafnlð: kl. 13-16 á sunnu
dögum, kl. 13-15 á þriðjudögum
flmmtudögum og laugardögum.
Landsbókasafnið: kl. 10-12, 13-19
20-22 alla virka daga nema laugar
daga kl. 10-12 og 13-19.
Lisfasafn Einars Jónssonár: opið
frá kl. 13.30 til 15.30 á sunnu-
dögum.
Náttúrugripasafnið: kl. 13.30-15 é
sunnudögum, kl. 14-15 á þriðjudög-
um og fimmtudögum.
Þrítugasta fyrra
mánaðar voru gef-
in saman í hjónæ
band á Akureyri
ungfrú Sigurlína
Jónsdóttir og Þór-
arinn Heiðar Þor-
valdsson bifreiðarstjóri. Heimiii
þeirra verður að Grundargötu 7
Akureyri.
Nýlega voru gefin saman i hjóna-
band á Akureyri ungfrú Gyða Vil-
hjá’msdóttir og Ingvar Hóseas
Sigmarsson sjómaður. Heimili
þeirra er að Fjólugötu 16 Akur-
eyri.
Biessaðir, munið fundinn í kvöld
í MIR-salnum. Það er meiningin
að við höldum hópinn sem drengi-
legast. 1 kvöld er tækifærið að
sýna einhuginn,
Þegar hugsjónin er
farartæki
En aðrir eru þeir, sem eiga hug-
sjónimar. Margur leitar hugsjóna
til að fá verkéfnl og hrinda í
burtu tómleika. Sumir ganga í
hugsjónafélög til að leita valda
og upphefðar. Þeir elska hug-
sjónina sem farartæki að settu
markl í eigln hagsmunl. Sumlr
elska hugsjónir á sania hátt og
lausingi í ástamálum elskar fagra
ltonu. Þeir daðra v(5 þær. Þær
eru þeim nautnameðal í tóm-
stundum. Ást þeirra getur varað
meðan allt gengur að óskum.
En þeir eiga enga þrá og finna
enga skyldu á sér hvíla tll að
líða með hugsjón sinni og fórna.
Geri hugsjón þeirra þá kröfu tll
þsirra, að þeir leggi mikið í söl-
urnar: vinsældir og álit, stöðu
og mannvirðingar, þá snúa þeir
við henni bakinu. Gerl hún þá
kröfu tll þeirra, að þeir neiti sér
um þau lífsþægindi, sem þelr
hafa vanið sig við, þá uppgötva
þeir það, að hún er óalandi. Þetta
eru sjaldnast vísvitandi falsarar.
Það er skllningsleysi á eðii hug-
sjóua, sem er þess valdandi, að
þeir taka að tilbiðja þær og telja
sig hugsjónamenn, eða það er
skortur á mamtdómi þeirra, sem
veldur, að þelr kikna, þegar fóm-
anna er krafizt. — (Gunnar Bene-
diktsson í greininni Júdas ls-
karíot).
Eimskip. .
Brúarfoss kom til Rvikur í fyrra-
dag frá Antyerpen. Dettifoss er
á Breiðafirði; fer þaðan til Vest-
mannaeyja og Keflavíkur. Goða-
foss kom til Hamborgar í fyrra-
dag; fer þaðan í dag til Hull og
Reykjavúkur. Gulifoss fór frá
Leith í gær til Reykjavíkur. Lag-
arfoss fer væntanlega frá New
York á fimmtudaginn til Reykja-
víkur. Reykjafoss fór frá Siglu-
firði 3. þm. til Lysekil og Gauta-
borgar Seifoss kom til Hull í
fyrpadag; fer þaðan í dag til
Reykjavíkur. Tröllafoss fór frá
Reykjavík 1. þm. til New York.
Hanne Sven er í Reykjavík.
Skipaútgerð ríklsins.
Hekla fór frá Álaborg síðdegis
í gær á leið til Þórshafnar og
Rvíkur. Esja fer frá Reykjavík
á moi'gun austur um land í
bringferð. Herðubreið fór frá
Rvik í gærkvöld austur um land
tii Bakkafjarðar. Skjaldbreið er
í Reykjajvík. Þyrill er á leið frá
Akureyri til Hvalfjarðar. SkaftJ
fellingur fór frá Reykjavík í gær
til Vestmannaeyja.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell losar sement á Akur-
eyri. Arnarfell lestar timbur í
Hamina. Jökulfell fór frá KaUp-
mannahöfn 6. þm. á leið til Len-
ángrad. Dísarfell lestar tómtunn-
ur í Haugasundi. Bláfell lestar
timbur í Kotka.
Krabbameinsfélag Beykjavikur.
SkriSetofa félagsins er í Lækj-
argötu 10B, opin dagJega kl.1 2-5.
Sími skrifstofunnar er 6947.
Lárétt: 1 skrifar 4 eldsneyti 5
borðaði 7 gera vitskertan 9 reið
10 nægileg 11 forföður 13 sérhljóð-
ar 15 nútíð 16 gælunafn
Lóðrétt: 1 hvíld 2 skír 3 slá 4
frekara 6 tosar 7 gubba 8 æða
12 fauti 14 gat 15 ekki
Lausn á nr. 169
Lárétt: 1 kjósa 4 ar 5 fá 7 ota
9 kyr 10 rot 11 gýg 13 .ræ 15
in 16 frami
Lóðrétt: 1 KR 2 ótt 3 af 4 askur
6 ástin 7 org 8 arg 12 ýsa 14
æf 15 ii
Einn morgun snemma stóð hann í dyrun-
um og vó kol, er Satína kom og sýndi
honum stóran fugl er' sveif yfir cjúfna-
búrinu. Klér brá við og tók fram bogann.
Það var árla morguns og ekki orðið fu’J-
bjart, þánnig að Klér greíndi fuglinn ein-
ungis sem svart strrk í loftinu. Hann mið-
aði á hann, Iét örina fljúgá og sá þvínæst
stork falla niðru- 5 garðinn.
Klér varð mjög leiður yfir þessu, en Sat-
ina varð þó enn hryggari, þvi störkurinn
er helgur fugl — og hún sagði við mann
sinn: Hamingjulausi maður, þú hefur drep-
ið fugl' Guðs.
Þvínæst tók hún storkinn í fang sér, ra.nn-
saikaði hann og sá að hann hafði væng-
brothað Hun náði í flýti í sáraáburð og
hatt siðan mjúklega um sár fuglsins.
Þriðjudagur 8. scpt:mber 1953 — ÞJÓÐVILJINN —, (3!(
Hin sönjgga íorusfa! i virkjunarmálunum
vegoa þegja íhaldsblöðin um
flokksbræðra simia á Alþingi?
Þjóðviljinn hefur marg-
sinnis spurt íhalds'blöðin a'ð
Jjrví undanfarna daga hvers-
vegna íhaldið h'ndraði það á
síðasta Alþingi að samþykkt
væri lieimild fyrir ríkisstjórn
ima til útvegunar á lánsfé t:l
fullnaðarvirkjunar Sogsins.
Viðbrögð Morgunblaðsins
og Vísis hafa verið hin at-
hyglisverðustu. Þau hafa
skot'ð sér undan því að gera
nokkra grein fyrir þessari
skjalföstu og ótvíræðu af-
stöðu íhaldsins til þessa
mikla liagsmunamáls Reykja
víkur og Suðurlandsundir-
lendisins.
í þess stað hafa íhalds-
blöðin lát’ð móðan mása um
það sem þau kalla ,.fram-
sýni og ötulieik“ og „ör-
ugga forustu“ íhaldsins í
virkjunarmálunum án þess
að tilgreina nánar við hvað
er átt. Ihaldsb’öðin liafa með
öðrum orðum ekki treyst sér
til að gefa vicunandi skýr-
ingu á þeirri furðulegu frarn
komu flokksmacina sinna áð
hindra og tefja útvegun
fjármagns sem nauðsynlegt
er til að ráðast í virkjun
Efri fossanna í Sogi.
Þetta sýnir að samv:zka
íhaldsi.ns er sek, svo notað
sé orðalag Morgunblaðsins
:Vl* á suntiudaginn. Jafnvel í-
haldsblöðin sem hafa það
hlutverk áð verja aðgerðir
1 eða aðgerðaleysi íhaldsins í
hverju máli sjá sér ekki
■ fært að svara því liversvegna
íhald:ð á Alþingi stóð gegn
lántökulieimildinni.
Hvað sem blekkingatil-
raunum íhaldsblaðanna líð-
ur eru þessar staðreyndir
því hverjum manni ljósar:
Reykjavík og orkuveitu-
svæ'ði Sogsvirkjunarinnar yf-
irleitt mun búa við tilfinn-
anlegan rafmagnsskort þeg-
ar að 3 árum liðnum, verði
eklci ráðist nú þegar í að
fullvirkja Sog:ð.
Á þessa staðrevnd benti
Einar Olgeirsson þegar á
síðasta Alþingi og flutti til-
lögu um heimild fyr'r rík-
isstjómina til að taka nauð-
synlegt lán til framkvæmd-
anna.
Þótt öllum sé vitan’egt
að það getur tekið nokkurn
tíma að afla lánsfjár til
framkvæmda eins og þess-
a.ra b'rtist „framsýtii" í-
haldsins á Alþingi á þa.nn
einkennilega, hátt aS það
kom í \eg fyrir að tillag-
an yrði samþykkt.
Nú þegar Irafossvirkjun-
inni er að Ijúka tóku sósí-
alistar málið upp í bæjar-
- stjórn einu sintii enn og
Guðmundur Vigfússon flutti
tiilögu um að 'bæjarstjórnin
legði áherzlu á að ráðist
vrði þegar í fullnaðarvirkj-
un Sogsins, til þegs að koma
í veg fyrir fyrirsjáanlegan
rafmagnsskort að fáum lár-
um liðnum og spara um lei'ð
Sogsvirkjuninni stórar upp-
hæðir, þar sem vitanlegt er
og viðurkennt af öllum að
langtum ódýrara er að
virkja strax Efri fossana,'
meðan vélar og vanur mann-
skapur er á staðnum, heldur
e.n ráðast síðar í verkið þeg-
ar búi'ð er að sundra vinnu-
hópunum og ráðstafa h:n-
um stórvirku vélum til ann-
arra þarfa.
Samkvæmt tillögu Guð-
mundar Vigfússonar heim-
ilaði bæjarstjórn nauðsyn-
lega lántöku fyrir sitt leyti
og skoraði á ríkisstjórnina
að hefjast þegar handa um
útvegun lánsfjár til virkj-
unarinnar.
Settur borgarstjóri. Tóm-
as Jónsson borgarritari, tók
tillögunni vel og viðurkenndi
að rök fiutn'.ngsmanns yrðu
ekki véfengd. Samkvæmt
nppástungu,: borgarritara
voru tvær umræður ákve'ðn-
ar um tillöguna. Við síðari
umræðu hafði bæjarstjórn-
aríha'dið fengið „Tínuna".
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri lét lið sitt í bæjar-
stjórninni vísa tillögunni
frá — til stjóniar Sogs-
virkjurarinnar! — Þannig
reynd:st hin „örugga for-
usta” íhaldsins þegar til
átti að taka. Það hafði
hindrað framgang málsins.
Þefcta eru staðreyndirnar
Vart hefur oi’ðið kartöflu-
hnúðorms á rótum kartöflu-
■grasa ií Reykjavík.
Kartöfluhnúðormurinn (Hete-
rodera rostochiensis) er örsmár
hringormur. Hinar aflöngu lirf-
ur eru tæplega V2 mm á lengd,
en fullvaxið karldýr allt að 1.3
mm. Kvendýrin eru nærri
hnöttótt 'Og um V2 mm í þver-
mál. Hnúðormarnir sníkja á
kartöflujurtinni; valda veiklun
Hartöflurót með kven-
hnúðormum. Stækkuð.
í henni og jafnvel uppskeru-
bresti. Ormarnir geta valdið
miklum óþæ'giudum lí sambandi
við útsæðisrækt o. fl. (sjá síð-
ar). Þeir geta einnig lifað á
tómatajurtum o. fl. tegundum
af kartöfluætt. Kartöfluhnúð-
ormarnir eru náskyldir og svip-
um afstöðu íhaldsins til
virkjunar Efri fossanna í
Sogi. Það heíur komið í
veg fyrir samþykkt Iántöku-
heimildar á Alþingi, og það
Iiefur ennfremur hindrað að
bæjarstjórnin samþyklíti á-
kveðna viljayfirlýsingu um
vii’kjunarframkvæmdir nú
þegar, þótt a'íir séu sam-
mála imi nauðsyn þess og
að með því væri hægt að
sþara stórar fjárhæðir.
íhaldið hefur því ekki
brugðfð vana sínum. Það
stendur trúan vör'ð um þá
stefnu síná að hindra nauð-
sy.nlegar framkvæmdir og
draga þær á langinn, þótt
það valdi almenningi og
bacjarfélaginu miklu tjóni.
Þannig hefur íhald:ð hagað
sér í öllum framfaramálum
fyrr og síðar. Það er fyrst
þegar allt er komið í óefni,
og kröfur fólksins orðnar ó-
mótstæðilegar me'ð öllu, sem
afturhalds- og kyrrstöðuöfl-
in láta undan síga. Þannig
mun það einnig verða með
virkjun Efri fossanna í
Sogi. Fái íhaldið að ráða
verður ekki ráðist í virkj-
unina. fyrr en skortur á raf-
magni ver'ður búinn að
skaða" he;milin og iðnaðinn
um óútreiknanlegar fjár-
'hæðir.
aðir hnúðormum tómatanna og
hnúðormum í höfrum. Lífsferill
kartöfluhnúðormsins er í aðal-
atriðum þannig; Hinar örsmáu,
aflöngu Jirfur brjótiast inn í
ungar rætur fram við rótarodd
og íþróast þar. Síðan fara hin
þroskuðu, aflöngu karldýr aft-
ur út í moildina að leita kven-
dýranna, sem sitj.a föst á rótun-
um. Að lokinni æxlun þrútna
kvendýrin smám saman mjög.
Húð rótanna rifnar og eggja-
full kvendýrin koma á ljós. Þau
eru örsmá, gulhvít að lit, nærri
hnöttótt, fest lauslega við rót-
ina og sjást greinilega með ber-
um augum. Smám saman um-
myndast kvendýrin og verða að
seigu gulu, siíðar dökkbrúnu
'hýði (hulstri), sem einungis
egg og lirfur eru innan í. Þessi
brúnu býði sitj,a fyrst á rótum
og ikartöflum, en losna s'íðan af,
og geta eggin og lirfumár í
þeim lifað minnsta kosti 10 ár.
Ormarnir í rótunum valda veikl-
un; ihindra eðlilega starfsemi
rótanna og geta jafnvel drepið
iþær. Jurtimar þrífast þess
vegna iba, kartöflugrösin verða
ljósleit og lin’, blöðin verða oft
hrokkin eða kryppluð cg visna
snemma. Þessi sjúkdómsein-
kenni koma fyrst í ljós á neðri
'blöðunum, en geta smám sam-
an breiðzt út upp eftir öllu
grasinu. Und.ir slíkum gi’ösum
Framh. á 11. siðu
icsi’fölMlmúðoa'iitur
Leiðarvísir írá Atvinnudeild háskólans, Búnaðar-
deild. 3. sept. 1953
Ýms'r telja að nú dragi senn t:l stjórnarskipta hér á
landi. Greinaikorn þetta er ekki ritað til þess að harma
það þó að einhverjum ráðherrum gæfist í bili hvíld frá
landsstjórnarstörfum, heldur til hins að m.'nna forséta
vorn og ríkisstjórn á það að ekki virðist enn hafa unnizt
tími til að svara erindi því varðandi sakaruppgjöf sem
27 364 menn, auk lögmanna hinna dæmdu, sendu forseta
sjálfum og skrifstofu dómsmálaráðherra fyrir meira en
ári.
Þessir aðilar hafa nokkrum sinnum verið inntir eftir
svari, en fram að þessu liafa þeir látið beiðnj hins mikla
mannfjöida sem vind um eyrun þjóta. Eftir svona lang-
aa tíma veröur ekki borið við annríki, og tæplega lengur
að skort hafi nægan umhugsunarfrest.
Ábyrgðin á afgreiðslu málsins, hver sem hún verður
og hvenær sem hún kemur, hvílir hér eftir sem hingað
til eingöngu á forsetanum og ríkisstjórninni. Er illt til
þess að vita, áður en hið endurreista lýðveldi vort nær
tíu ára aldri, að íslenzkur forseti og innlend ríkisstjórn.
skuli reynast veiri til áheita og seinni til svara en út-
lenzkir einvaldskóngar.
Ég býst við að fleirum eei mér þyki þessháttar vinnu-
brögð ill, að ekki sé talað um þá sem eiga hinn einstæða
dóm hangandi eins og sverð yfir höfði sér. Ég leyfi mér
að vona að Steingrímur Steinþórsson minni dómsmála-
ráðherra sinn og Ásgeir forseta Ásgeirsson á stjóm-
skipuiegar skyldur þeirra í þessu efni.
Reykjavík, 7. september 1953.
Þorvaldur Þórarinsson.
Landbúnaðarráðuneytið hefur gefið út svohljóðandi bráða-
birgðafyrirmæli um varnir gegn kartöflukvilla þeim sem gert
hefur vart við sig hér í Reykjavík.
BráðablrgðafjTÍrmæli
um varnir gegn kartöflu-
hr.ú’ðormi.
- Komið hefur í Ijós, að nokkr-
ir garðar í Vesturbænum í
Reykjavík eru smitaðir af kart-
öfluhnúðormi og haas hefur
einnig orðið vart í Aldamóta-
görðunum í Suðausturbænum.
Þess vegna er hérmeð skor-
að á garðeigendur að sýna
fyllstu varúð, svo að veikin
breiðist ekki út.
Öllum, sem ræ'kta kartöflur á
Seltjarnarnesi og í Reykjavík
NýtS 5i!að:
málgagn staiismamna á
Eefiavíkiirilugvelii
Félag starfsmanna á Kefla-
víkurflugvelli hefur hafið út-
gáfu nýs blaðs, sem ætlað er að
koma út sem næst vikulega að
iþví er segir í ávarpsorðum 1.
tbl. er kom út 2. sept. sl. Nefn-
ist blaðið Stapafell eftir fjalli
einu á Reykjanesi er nú hefur
verið fjarlægt og er horfið sjón-
um fyrir atbeina „varnarliðs-
ins“.
I hinu nýja blaði verða fyrst
og fremst rædd hagsmuna. og
áhugamál íslenzlu starfsmann-
anna á Keflavíkurflugvelli. Er
í fyrsta tölublaðinu m.a. rætt
um hið óviðunandi ástand hús-
næðismálanna á vellinum. Þá er
grein um nauðsjn íslenzks
mötuneytis, sambýlið við herinn
og ýmis hagsmunamál starfs-
fólksins.
Ritstjóri Stapafells er Krist-
ján Ingólfsson. Samastaður þess
er Hringbraut '108, Keflavík.
Prentsmiðjati Rún annast prent-
un.
vestan Lækjargötu, Fríkirkju-
vegar, Sóleyjargötu, Mikla-
torgs og Reykjanesvegar er hér
með bannað að flytja kartöflur
til geymslu, sölu eða neyzlu út
af fyrrgreindu svæði. En heim-
ilt er að nota kartöflurnar til
neyzlu og sölu í verzlanir á of-
angreindu svæði, enda hafi ekki
orðið vart kartöfluhnúðorms í
görðunum.
Þar sem vart verður kartöflu
hnúðorms í görðum, er óheimlt
að ráðstafa kartöflunum nema
til eigin neyzlu.
Ennfremur er bannað að
flytja mold, plöntur eða plöntu-
hluta, kartöflupoka, garðyrkju-
áhöld eða annað það, sem vald-
ið getur smitunarhættu, út fvr-
ir hið sýkta svæði.
Fyrst um sinn ,unz annað er
ákveðið, er Grænmet'.sverzlun
ríkisins, Jarðhúsunum við Ell-
iðaár, (eða öðrum almennum
geymslum) chei.mil t að veita
móttöku kartöflum, meðan
rannsókn stendur yfir um út-
breiðslu karLöfluhnúðormsins.
LandbúnaðarráðunejTið, 5.
september 1953.
Rannsókn á útbreiðslu þessa
plöntusjúkdóms er hraðað svo
sem mest má verða, og verða
gefin út ný fyrirmæli og leið-
beiningar til garðeigenda eins
fljótt og við verður komið.
Ákveðið hefur verið að verð
á síldarmjöli verði að þessu
sinni kr. 243,00 pr. 100 kg.,
frítt nm borð í verksmiðjuhöfn.
Er hér um að ræða 20 króna
verðliækkun frá því í fyrra og
staf'ar bún af hækkuðu verði á
síldarmjöli á erlendum markaði.