Þjóðviljinn - 10.10.1953, Side 8
8) —ÞJÓÐVILJINN' — Laugardagur 10. október 1953
Alfur utangaeðs
8. DAGUR
Bóndiim í Bráðaeerði
Og hún flýtti sér svo mikið inn, að hún gleymdi sokkaplöggun-
um á kálgarðshominu.
IV. kafli.
f þessitm kafla segir frá því er Jón bóndi hóf ferð sína á vit
þess opinbera.
Daginn eftir kom' oddvitinn að Bráðagerði og afhenti Jóni
•bónda skjal hvar á stóðu skráð þau erindi, er honum var falið að
reka fyrir sveit sína. Eftirað hafa kynnt sér efni þess rækilega
og af mikilli alvöru, stakk hann því í brjóstvasann á bestu
treyjunni sinni og lokaði vasanum með gríðarmikilli öryggis-
nælu. Kona hans var búin að gera honum ferðaskóna og um
kvöldið lauk hún við að gánga frá nestisbitanum. Leyfði ekki laf
plássi í gömlu hhákkt'öskunni, þegar allt var þar komið, og
var það þó helsta áhyggjuefni húsfreyju að heimanfaung
myndu hrökkva skammt á svo lángri ferð. Helstu fæðutegundirn
ar voru tíu glóðarbakaðar flatkökur, vænn smjörkleggi í út-
skomum öskjum, þrír sviðakjammar soðnir, þverhandarþykkur
tmagáll, reyktur, einnig reykt síða af algeldri tvævetlu, sinn
ikeppurinn af hvoru blóðmör og lifrapylsu. Til þæginda var tösk
unni stúngið n:ðurí hvítan léreftspoka og voru þar einnig skór
og sokkar til vara, vettlíngar og trefill og ar.nar nauðsynlegur
útbúnaður til lángrar fjarvistar.
Morguninn eftir árla, lagði svo Jón bóndi af stað. Jónsi fylgdi
honum á hestum fyrsta áfangann suðuryfir hálsana, en í næstu
sveit fyrir sunnan var hægt að komast í véireið, sem ók alla
leið til höfuðborgarinnar. Þennan spöl notaði Jón bóndi til
þess að minna son sinn á þær skyldur, sem fylgja því að vera
trúað fyrir bæ og búi um ófyrirsjáanlegan tíma.
Eg vona, að þú gleymir því ekki Jónsi m:nn, að ég legg mikinn
vanda á þínar úngu herðar, en þú hefir þá lítið lært af mér, ef
þú spjarar þig ekki.
Ég spjara mig áreiðanlega-, pabbi, ansaði Jónsi. Hann var far-
inn að hlakka til þess að mega liaga verkum sínum einsog
honum líkaði best þennan tíma, sem faðir hans yrði fjarverandi.
Eg veit þú spjarar þig, þótt þú hafir ekki lánga reynslu að
baki enn sem komið er. Þú ert náttúraður fyrir búskap, það
máttu eiga, og það leiðir af sjálfu sér, að þú takir við Bráða
gerði með öllu t'lheyrandi eftir minn dag. Nú, og uppá vissan
máta er það einmitt þín vegna, sem ég gaf koet á mér í þessa ferð.
Mín vegna! spurði sonurinn hissa.
Einmitt! ansaði faðir hans. Ég sá það í hendi minni, að ég
gat notað þessa ferð til þess að litast um eftir kvennmannsnefnu,
• sem einhver framtíð væri í, því ekki trúi ég því, að það sé guðs
ráðstöfun, að þú verðir síðasti Jóninn í Bráðagerði. En það er
ekki uppá margar að hlaupa hér í sveitinni til þeirra hluta. Upp
til hópa komnar úr barneign. Þótt ég hafi ekki formerkt, að þú
værir farinn að hugsa þér fyrir konuefni, þá geri ég ráð fyrir,
að þú hafir allar eðlilegar tilneigíngar í þá átt. Þér væri þá illa
úr ætt skotið ef svo væri ekki.
Mi — mig er einmitt farið að iánga til þess að gifta mig,
pabbi! játaði Jónsi. Og satt að segja leist mér dálítið vel á hana
Gunnu hans Dána hérna á árunum. Ég varð alltaf eitthvað svo
ekrýtinn þegar ég var nálægt henni. En svo fór hún og síðan
veit ég hreint ekki hver það ætti að vera.
Hún hefir víst hald:ð að það væri eitthvað betra eða fínna að
eiga króana sína með þeim þarna fyrir sunnan, helduren Jóni
ýngra í Bráðagerði, sagði Jón eldri. Já, það er stundum erfitt
að skilja kvenfólkið, Jón litli! En það er ‘ékki svo að skilja, að
það hafi neitt uppá sig hvað kvenmaðurnn heitir, heldur hitt,
að hún hafi allar eðlilegar tilhneigíngar til þess, sem hún er
eköpuð til.
Hafðu það einsog þér sýnist, pabbi! sagði scnurinn. Þú hefir
betra vit á þessu helduren ég.
Við sjáum t;l, Jónsi litli! En þú þarft ekki að halda, að ég
reiði hvaða glænæpu sem er heim í Bráðagerði. Ekki aldeilis.
Feðgarnir létu hestana skokka þegar uppá hálsinn kom. Það
ihafði verið frostglæra um r.óttina og það sindraði á frostperlur
við læki og dýjaveitur. Það lá þunn héluslæða á sölnuðu mýr-
gresinu, og lýngið í holtunum var ósköp fölt í framan eftir nótt-
ina. Fáeinar kindur voru á vegi þeirra og litu þá trortryggum
sugum.
Það hefir stundum verið kvikara hér í hálsunum á þessum
tíma ársins, sagði Jón eldri. Það er liörmulegt til þess að vita
livemig sauðfjáreignin hefir geingið saman hér í Vegleysusveit á
eiðustu árum. Ég efast þó um, að það finnist annarstaðar jafn-
gott sauðland og í þessari blessuðu sveit. Þú ættir að stugga við
þessum fáu skjátum, þegar iþú ferð til baka. Það er vissara að
4 ÍÞRÓTT
m
RITSTJÓRl. FRtMANN HELGASON
Keppa Bandarikpmeiin og Evrópybiiar
í frjálsum íþróttum á næsta sumrí?
Dan Ferris, ritari bandaríslia íþróttasambandsins, liefur ný-
lega viðurkennt, að viöræður hafi farið fram um keppni í frjáls-
mn íþróttum milli Evrópumanna og Bandaríkjamanna á næsta
suniri. Hann hefur jafnframt skýrt frá því, að rætt hafi verið
um fjórar borgir í sambandi við væntanlegan keppnisstað, en
borgirnar eru Berlín, Glasgow, Helsingfors og Róm. Gert er ráð
fyrir að t\eir keppendur verði í hverri íþróttagrein úr hvoru liði
og stig reiknuð eins og í venjulegum landskeppnum.
Ef keppni sem þessi hefði
farið fram fyrir nokkrum ár-
um má telja víst að Banda-
ríkjamenn hefðu sigrað með
allmiklum yfirburðum. En nú
hafa möguleikar Evrópumanna
til sigurs aukizt verulega eink-
um vegna hinna miklu fram-
fara í frjálsum íþróttum í Sov-
étríkjunum síðustu árin.
Sænska íþróttablaðið telur
a'ð Bandaríkjamenn muni þó
vinna öruggan sigur einnig á
næsta ári, en dagblaðið Ny dag
bendir þá á frjálsíþróttakeppni
Bandaríkjanna og Norðurlanda
1949, en hún var mjög jöfn
og tvísýn og lauk með naum-
um sigri Bandaríkjamanna,
Bandaríkjamenn vinna
hlaupin.
I spretthlaupunum hafa
Bandaríkjamenn enn sem fyrr
nokkra yfirburði. Þó eru nú
komnir fram í Evrópu nokkrir
efnilegir spretthlauparar, sér-
stakl. á 100 metrum. Má þar
til nefna Þjóðverjana Fiitter-
er og Schröder, sem báðirhafa
hlaupið 100 m á 10,4 sek. á
þessu ári.
í 400 m hlaupinu er einnig
•búizt við sigri Bandaríkja-
manna, en þó verða Þjóðverj-
in Haas og Rússinm Ignatéff
skæðir keppinautar. I 800 m
Zatopek
hlaupi er AVhitfield, sigurveg-
arinn frá Olympíuleikunum í
London og Helsingfors, enn
helzta tromp Bandaríkjamanna.
Spurning er aðeins hvort hann
verður i fullkominni þjálfun á
næsta ári, og ekki mega memi
vanmeta getu evrópskra garpa .
eins og Nor'ðmannsins Boysen
og Þjóðverjans Jungwirth.
I 1500 metrum eru Banda-
ríkjamenn með Santee, sem er
ágætur hlaupari, en af Evrópu-
mönnum nægir að geta Bretans
Bannister og Finnans Denis
Johansson.
Tvöfaldur sigur Zatopeks & Co.
I 5 km og 10 km. hlaupun-
um vinna Evrópumenn a'ð lik-
indum tvöfalda sigra með
mönnum eins og Zatopek,
Pirie, Kovacs og Kúts.
Styttra grindahlaupið vinna
Bandaríkjamenn og fá jafnvei
tvo fyrstu menn, en 400 m
grindahlaupið vinnur Rússinn
Lituéff og mögulegt að félagi
hans Julin komist í annað sæti.
I hindrunarhlaupi er rétt að
reikna með heimsmethafanum
Rintenpaá frá Finnlandi sem
sigurvegara. Aðrir Evrópu-
menn sém til greina koma eru;
m.a. Kasantseff (Sovét) og
Júgóslavinn Segedin. Ef Banda
ríkjamenn tefla fram sigurveg-
aranum frá Olympíuleikunum
síðustu, Ashenfelter, verða úr-
slitin þó tvísýn.
Stökk og köst.
Bandaríkjamenn vinna senni-
lega tvöfaldan sigur í hástökki
Framhald á 11. síðu
350 þúsund kr.
halliáOL
Erik von Frenkel, formaður
finnsku olympíunefndarinnar,
hefur skýrt frá.því að halli við
framkvæmd Olympiuleikanna í
Helsingfors í fyrra hafi orðið
um 350 þús. ísl. króna, en bú-
izt hafði verið við að hallinn
yrði nokkúð meiri.
Frenkel heldur því fram að
reikningamir sý.ni að lítið
land geti tekið að sér að sjá
um OL. Hann álítur að raun-
verulega hafi orðið mikill hagn-
a'ður af leikjunum. Gat hauu
þess í því sambandi að spor-
vagnar hefðu haft mikinn hagn-
að meðan á leikjunum stóð.
Auk þess risu upp mörg r.ý
mannvirki og margt annað
hefði veríð greitt með tekjum í
samhandi við leikina. „Helsing-
fors lifði ekki aðeins leikina af,
heldur framkvæmdi þá sóma-
samlega. Framkvæmd þeirra
hefur verið mjög góð auglýs-
ing fyrir Finnland og sýnt
heiminum að það er frjálst
lýðræðisríki í fullum vexti,“
eins og forsetinn orðaði það.
Olympiumeistari verSur sennilega
al siinga gaddaskónum imdir siól
Josy Saithel írá Luxembourg þjáisi
af illkynjuöu íóiarmeini
Allar líkur benda nú til að olympíumeistarinn í 1500 metra
hlaupi, Josy Barthel frá Luxembourg, verði að hætta iðkun.
íþrótta fyrir fullt og allt. Hann fór fyrir nokkni til Bandaríkj-
anna, en áður en hann 'lagði af stað skýrði hann blaðamönnum
frá ástæðum þess að hann hefur keppt mjög lítið í sumar.
Það er almennt vitað, að
Bartel þjáir fótarmein, en ýms-
ar sögur ganga um hvemig.
það er tilkomið. Sumir telja
að hinn þýzki þjálfari Barth-
els, Woldemar Gerschler, hafi
lagt of mikið að honum á æf-
ingum, en aðrir að meiðslin
séu að mestu uppgerð og í-
mytidun. Barthel segir sjálfur
svo frá:
— Já, það eru til menn sem
halda ■ því fram að þetta sé
tóm ímyndun, en hvernig sem.
því er nú varið get ég ómögu-
lega losnað við hana.
Þetta byrjaði 1. maí í vor,
á fyrsta degi keppnistímabils-
ins, en þá tók ég þátt í tveim
léttiun hlaupum. Um kvöldið
fékk ég mikla sársaukaverki í
hásinina, en þar sem ég taldi
ekki að neitt alvarlegt væri á
ferð, tók ég þátt í hlaupi í
Belgiu nokkrum dögum seinna
óg þá versnaði mér. Enn hljóp
ég nokkrum sinnum, þó að
læknir hafí bannað mér að taka
þátt í keppni, og ekki batnaði
mér við það.
Eg hef ekkert keppt síðan
31. maí í vor, en fengið nudd
og Ijósalækningar án þess a'ð
það hafi borið neinn sýnileg-
an árangur. Eg hef gadda-
skóna með mér til Bandaríkj-
anna, og það kemur síðar. í
ljós hvort nokkur þörf verður
fyrir þá þar.
J-