Þjóðviljinn - 25.11.1953, Síða 5
Miðvikudagur 25. nóvember 1953 — ÞJÓÐVILJINN ____ (5
Kreppan á næsta ári í
verður í Itkingu við krepp
Spádómar brezks hagfrœSings i Manchest-
er Guardian vekja feiknaathygli
unum
Tvær greinar, sem birtust í síðustu viku í brezka borg-
arablaöinu Manchester Guardian .hafa vakiö feikna at-
hygli. í gremunum eru leidd rök að því, aó' efnahagskrepp-
unni, sem nú fer í hönd í Bandaríkjunum, muni að’ mörgu
ieyti svipa til stórkreppunnar 1929.
Greinarnar eru ritaðar af
liagfræðingnum Colin Clark,
sem er löngu kunnur fyrir
greinar sínar um hagfræðileg
efni. Það er til dæmis um það,
hve mikla athygli greinar
Clarks og niðurstöður þeirra
hafa vakið í Bretlandi, að
þátturinn Talking Points in the
News í brezka útvarpinu, þar
sem kunnir blaðamenn ræða
helztu atburði síðustu viku,
var á fimmtudaginn var alger-
lega helgaður þeim.
Svipuð þróun og 1929
Það er e.ngum dulið lengur,
að miklir erfiðleikar eru fyrir
höndum í bandarísku efnahags-
lífi, en fáir hafa tekið jafn
djúpt í árinni og Clark. Hann
rekur í greinum sínum höfuð-
einkenni efnahagsþróunarinnar,
sem leiddi til kreppunnar 1929
og sýnir fram á, að margt sé
svo líkt með þróuniani nú og
þá, að afleiðingarnar hljóti að
verða svipaðar.
6-7 milljónir atvinnu-
leysingja
Aðrir hagfræðingar hafa
reynt að róa taugar almenn-
ings og kaupsýslumanna í
Baadaríkiunum með því áð
halda því fram, að allar líkur
séu á, að erfiðleikarnir verði
ekki meiri en svo, að þeir
verði fljótlega sigraðir. Sölu-
tregöa.n. sem þegar hefur gert
vart við sig í Bandaríkjunum.
mun ná til sífellt fleiri greina
bandarískg atvinnulífs, segir
Clark. og hann reiknar með
að afleiðiagin verði atvinnp-
leysi 6-7 milljón manna, en
það er töluvert hærri tala en
bandarískir hagfræðmgar hafa
hingað til reiknað með.
Stöðugt atvinnuleysi
á 39 svæðum
Nýlegar bandarískar hag-
skýrslur tala sama máli og
Clark. Þriðja á"sfjórðung þessa
árs dró verulega úr fram-
leiðslunai, en einkum þó úr
sölu afurða, miðað við sama
tíma í fyrra. Rannsóknir banda-
ríska verkamálaráðuneytisins
sýna, að á 39 svæðum er nú
stöðugt atvin.nulejTsi.
Bílaframleiðslan stór-
minnkar
Þetta eru fyrst og fremst
svæði. þar sem vefaaður og
kolavinnsla eru höfuðatvinnu-
greinar. En krnpnan gerir víðar
vart við sig. I höfuðborg bíla-
iðnaðarins, Detroit, eru nú 76
þúsund marns atvinnulausir.
Framleiðs’a bila hefur minnk-
að úr 600.000 í júlí í 513.000 í
ágúst, 473.000 í september og
undir 400,000 í október. Búizt
er við, að f"amleifslan verði
enn minni í nóvember.
Atvinnuleysið í útvarpsiðnað-
inum hefur einnig vaxið. Sjón-
varpsverksmiðjurnar AVCO,
sem eru stærstu í sinni grein
í Bandaríkjunum, hafa sagt
upp fimmtungi verkafólksins og
í öðrum verksmiðjum ná upp-
sagnirnar til 15-18% af starfs-
fólkinu.
Sala sjónvarpstækja fyrstu
átta mánuði þessa árs var 250
þúsund tækjum minni e.n á
sama tíma í fyrra og salan
fjóra síðustu mánuðina var
helmingi miani en fjóra þá
fyrstu. Svipaða sögif*' er að
segja um sölu útvarpstækja.
Hin aukna hergag.nafram-
leiðsla og vígbúnaður sem fór
í kjölfar Kóreustyrjaldarinnar
varð þess valdandi að í flest-
um iðngreinum Bandaríkjanna
var unnin eftirvinna, vinnu-
dagurinn varð 10-12 stundir.
Eftirvinnutekjur bættu banda-
rískum verkalýð að nokkru upp
þá rýrnun í kaupgetu hans, sem
leiddi af síhækkandi verð'.agi.
Kaupið lækkar
En nú er vinnudagurinn
styttur aftur í nær öllum iðn-
greinum. Kaupgetan minnkar
að sjálfsögðu við það og það
verður ekki til að draga úr
sölutregðunni. Meðallaun verka-
man.na í bílaiðnaoinum í De-
troit, en þar eru launin hærri
en annars staðar í Bandarík.j-
unum, hafa þannig lækkað úr
102 dollurum á viku í 78 doll-
ara. Meíallaun vélvirkja hafa
lækkað úr 123 .dollurum í fyrra
í 94 dollara nú.
Erfitt að greiða áfborganir
Hinar tiltölulega háu tekj-
ur, sem stöfuðu af mikiiíi eftir-
vineiu, urðu þess valdandi, að
mikill hluti verkalýðsins lagði
út í að kaupa sjónvarpstæki,
kæliskápa og annað þess háttar
með afborgunarskilmálum. —
Þeim reynist nú æ erfiðara að
greiða afborganirnar og marg-
ir hafa orðið að láta hina
keyptu hluti af hendi.
fIrðalfjölskyWan skuldar
4-8 r’ánaða laun
Afborgurarkaupin nema nú
ramteta 27 milljörðum dollara
(432,000,060,000 kr.) Banda-
risku tryggingarfélögin hafa
re'knað v.t. að meðalfjölskylda
í Bandaríkjunum skuldi nú af-
borganir, sem nema frá 4-8
máaaða kaupi. Clark' og fleiri
hafa bent á, að einmitt árin
íyrir kreppuna miklu 1929
námu afborgunarkaupin jafn-
risaháum upphæðum.
Fyrir nokkru var höggmynd,
sem sett hat'ði verið upp I Ár-
( ósum í Danmörku til minning- 1
ar um þá, sem létu lífið í bar-
, áttunni við nazismann á her-
i námsárunum, gereyðilögð af
I spellvirkjum. Enginn vafi er
I á, að þaraa liafa verið að verki
i danskir nazistar, sem láta nú
I æ meir á sér bæra að sama
) skapi og hinir fyrri yfirboðar-
1 ar þeirra eru aftur hafnir til
1 végs og virðingar af Banda-
ríkjamönnum í Vestur-Þýzka-
landi. — Eistamaðurinn, Knud
Nellemose, komst þannig að
' orði, að það væri þeinf likt að
f brjóta likneski, sem sýnir hei-
, særðan mann. — Spelivirkjarn-
! ir hafa enn ekki fundizt, en
l ákveðið mun hafa verið að
i listamaðurinn höggvi myndina ,
i að nýju.
Verksmiðjan
sprakk í foft upp
Fjórir menn munu hafa beðið
bana og um 300 særzt í gær þeg-
ar skotfæraverksmiðja sprakk í
loft upp í Portúgal. Verksmiðjan
stóð rétt fyrir utan höfuðborgin.a
Lissabon.
Fljúgandi belgis
Aðstoðar flugmálaráðherra
Bretl^nds skýrði frá þvi. í gær
að loftsjónir tvær, sem sumir
höfðu kallað „fliúgandi diska“
hefðu reynzt vera veðurathug-
unarbelgir.
Abhadís drap nunnur f!l fjár
með föstum og meinlœtum
Sjötug grísk abbadís hefur verið dæmd í fjögurra ára
fangeisi fyrir fjárdrátt og að misþyrma nunnum í klaustr
inu sem hún var sett yfir.
Þetta er annar dómurinn sem
móðir Mariam Soulakiotis fær
fyrir sömu sakir, í febrúar slð-
astliðnum fékk hún tíu ára
dóm.
Hefur 177 mannslíf á
samvizkunni.
Tvær nunnur voru ákærðar
ásamt abbadísinni. Læknar
báru það fyrir réttijium að í
klaustrinu hefðu 177 manns
látizt af þrældómi, föstum og
meinlætum.
Atferli abbadisarinnar komst
upp þegar ung stúlka frá
Bandaríkjunum af grískum ætt-
um hvarf. Ferill hemiar var rak
inn til klaustursins. Hún famist
eklci en í einum klefanum fann
lögreglan gamla konu sem var
að dauða komin og naut engr-
ar aðhlynningar.
Skartgripir og jarðeignir.
Skýrt var frá því við réttar-
höldin að móðir Mariam taldi
rosknar, efnaðar lconur á að
ganga í klaustrið. Hét hún
þeim eilífri sáluhjálp ef þær
gæfu klaustrinu allar eigur sín-
ar. Siðan sá hún um að þær
urðu ekki langlífar með því að
ieggja á þær óþolaudi föstur
og meinlæti.
Opinberi ákærandinn skýrði
frá því að abbadísin hefði á
þennan hátt komizt yfir að
minnsta kosti 300 húseignir og
bújarðir víðsvegar um Grikk-
land og skartgripi af gulli og
eðalsteinum sem eru metnir á
hundruð þúsunda króna.
Sfesngerðir fiskar
Tveir norskir vísindamenn,
prófessoramir Leif Störmer og
Anatol Heinz og einn bandarísk-
ur, dr. Robert Denisen frá nátt-
úrugripasafninu í Chlcago, hafs
fundið heila torfu steingerðr.f
fornfiska, sem taldir eru 30f
milljón ára gamlir. Fiskarnir
sem eru milli 30 og 40 að tölii
fundust í vík einni í Hringaríki.
Þetta eru fyrstu fiskar þessarar
tegundar sem finnast.
TígrisáýriS drap
aranum
Ljónynjan. sem á mánu-
daginn í síðustu viku biarg-
áði tem.iara sínum frá árás
tígrisdýrs í fjölleikahúsi í
A qni á. Italíu. var drepin áf
tígrisdýrinu í búri þeirra sl-
rootuctagskvöld.
Á mánudaginn hafði tem.i-
arinn, Casarelli, hrasað í
villidýrabúrinu, þar sém-
hann var að æfa þrjú Ijóri
og briú tígrisdýr. Tveggja
ára gamalt tígrisdýr stökk
bá niður af kolli sínum og
gerði sig líklegt til að
stökkva á hann, en ljónynj-
an Sultana geklc í milli, .og
þegar tígrisdýrið virtist hika
við stökkið. réðst húa á það
og sló það' til iarðar. Temj-
arinn - komst á fætur, fékk
aftur vald yfir tígrisdýrinu,
en Sultana settist aftur á
koll siitn.
Aðfaranótt laugardagsíns
vaknaði starfsfólk fiölleika-
hússins við ógurleg öskur
er komu frá rándýrabúrinu.
Það brá við skiótt. ea þeg-
ar komið var að búrinu. lá
Sultana í andarslitruUum
^ eftir árás tígrisdýrsins. v
LanisS talið hætt
¥?ð falli
Framhald af 1. síðu.
forystumanna Vesturveldanna„
sem á að hefjast á Bermúda-
eyjum eftir viku.
Indó Kína þungamiðjan
1 lokaræðu utanríkismálaum-
ræðnanna sagði Laniel forsæt-
isráðherra, að stjórnin hefði £
hyggju að leggja Vestur-Evr-
ópuherssamninga.na fyrir þing-
ið í janúar en þó því aðeins að
áður hefðu verið uppfyllt ýmis
skilyrði og er það helzt að Vest-
ur-Þýzkaland sleppi öllu tilkalli
til Saarhéraðs.
Mesta athygli vöktu þá um-
mæli Laniels um stríðið í Indó
Kína. Kvað hann stjórn sína
síður en svo áfjáða i að berj-
ast til þrautár við sjálfstæðis-
hreyfingu landsbúa. Hún krefð-
ist ekki skilyrðislausrar upp-
giafar og myndi þegar í stað
taka til yfirvegunar sérhverjar
canngjarnar tillögur um vopna-
hlé, -sem stjórn sjúlfstæðis-
hreyfingarinnar bæri fram. —
Sagðist Laniel myndi leggia á
það áherz’u á Bermúdafundi.n-
um, að Frakkar álitu brýna
aauðsvn að kcma á tryggum
friði í Asíu.
Fréttaritarar í París segja a'ð
þessi ummæli séu skilin þannig
að flqjekarnir sem standa að
stjórn Laniels hallist að þeirri
skoðun að þungamiðja.n í stjcrn.
arstefnurni verði að vera að
binda endi á hina kostnaðar-
sömu styrjö’d í Indó Kína.
Veílaimað starf
Danska fréttastofan Ritzau
Bureau skýrir fi'á. því, að ótil-
greindur danskur maður sem
geendi ráðherraembætti í þr;ú ár
skömmu eftir síðustu aldamót
hafi í 40 ár þegið eftirlaun .úr
ríkissjóðnum. Alls nema eftir-
laun hans 252.00 dönskum krón*
um, eða um 600.000 íslenzkum.