Þjóðviljinn - 25.11.1953, Síða 6
6) —- ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 25. nóvember 1953 -
þlÓÐVIUINN
Útgefandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurlnn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Asmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benediktsson, Gu!t-
mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson,
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig.
18. — Sími 7500 (3 línur).
Askriftarverð kr. 20 á mánuði i Reykjavík og nágrennl; kr. 17
mnnars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
< j
Kjör bátasjómanna
Sjómannafélögin víða um land hafa nú sagt upp báta-
samningum sínum og renna þeir úr gildi um næstu ára-
mót. Mun öllum landsmönnum fuilljóst að þessi upp-
sögn er ekki gerð að ástæðulausu. Kjör bátasjómanna
hafa um langt skeið verið langt fyrir neðan það sem
sæmilegt má teljast. Bátaútvegurinn er mikilvægasti þátt-
urinn í atvinnulífi íslendinga, frá honum koma mestar
gjaldeyristekjur og hann veitir mesta átvinnu. Gengi hans
er því að verulegu leyti undirstaþ?i,„ðnnarra athafna í
landinu. En nú er svo komið að æ erfiðara er að fá sjó-
menn til starfa á flotanum, og er-það eðlileg afleiðing lé-
legra kjara og öryggisleysis. Hafa meira að segja komið
fram tillögur um það að bátaflotinn væri að verulegu
leyti mannaður erlendum sjómönnum, og er vart hægt að
■hugsa sér naprara háð um stjórnarfarið í landinu.
Um síðustu helgi héldu fulltrúar sjómannafélaganna
ráðstefnu hér í Reykjavík og komust að sameiginlegum
niðurstöðum um baráttu sína fyrir bættum kjörum og
kröfur þær sem fram voru bornar. Var samþykkt þeirra
birt í heild i blaðinu í gær, en meginhluti hennar er það
að sjómenn krefjast þess nú aö fiskverð þaö sem þeim
verður greitt nemi kr. 1.30 á kíló af slægðum þorski með
haus. Er þetta algert nýmæli í samningum sjómanna,
til þessa hafa þeir ekki haft neinn íhlutunarrétt um
fi'skverðið. Hefur verið mikil óánægja með þessa skipan
mála, og stjórn Alþýðusambandsins hafði verið falið fyrir
tveimur árum að gæta réttar sjómanna en ekkert í því
gert, og er það eftir öðrum störfum hennar.
En hvað merkir þessi. krafa um kr. 1.30 fyrir kílóið
af þorski? Greiðslan til sjómanna er nú miðuð við kr. 1.05
og.þarna er því utn að ræða 25 aura hækkun á kíló. En
málið er ekki svo einfalt. Síöan bátagjaldeyrisfyrirkomu-
lagið var tekið upp hafa sjómenn verið sviknir um samn-
ingsbundinn rétt sinn. Þeir eiga réttilega sinn hlut af end-
anlegu fiskverði en hafa ekki fengtð hann, kúfurinn sem
orðið hefur af bátagjaldeyrisokrinu hefur runnið til út-
vegsmanna, fiskiðjuvera og heildsala. Telja þeir sem
kunnugastir eru að endanlegt verð á þorski, að meðtöldu
bátagjaldeyrisfénu, hafi raunverulega orðið um kr. 1.30 á
þessu ári. Krafa sjómanna er þannig ekki um hækkun
á fiskverðí því sem nú gildir, heldur aðeíns um hitt að
þeir fái þaö verð sem þeim ber réttilega, að þeir fái sinn
hlut óskertan og refjalaust. Er vart hægt að bera fram
áanngjarnari kröfu.
í þessu sambandi er vert að minna á það að norskir
sjómenn hafa nú árum saman fengið mun hærra verð
fyrir fiskinn en íslenzkir stéttarbræður þeirra, og verður
sá munur ekki skyrður meö neinum skynsamlegum rök-
um.
Það má segja að deilan um kjör íslenzkra bátasjómanna
sé jafnframt barátta um sjálfstæði íslenzkra atvinnuvega.
Á að halda áfram að búa þannig að þessari atvinnugrein
að sjómenn neyðist til að flýja hana og hverfa til nei-
kvæðra framkvæmda í þágu erlends stórveídis? Á enn að
halda áfram þeirri þróun aö gera efnahag íslands klafa-
bundinn annarlegum athöfnum erlendra manna? Um
þetta snýst sjómannadeilan, og því verður hún stórmál
þjóðarinnar allrar, mikilvægur þáttur 1 sjálfstæöisbar-
áttu íslendinga. Ekki verður annað skiliö en að útvegs-
ménn hljóti að hafa fyllsta skilning á kröfum sjómanna;
áð Öðrum kosti eru þeir að kasta rekunum á atvinnu-
rekstur sinn. Og því ætti sjómannaídeilan að veröa auð-
íeyst •— ef stjórnarvöldin eru þá ekki staðráðin í því að
ganga af íslenzkum atvinnuvegum dauðum.
Baráttueining verkalýðsins
er trygging friðarins
s
Ávarp frá þriðja þingi Alþjóðasambands verkalýðs-
iélaganna WFTU, til verkalýðs og verkalýðssam-
taka í löndum Evrópu
Þriðja þing Alþjóðasam-
bandsins ávarpar ykkur í naini
88 milljóna og 600 þúsund
verkamanna er hér eiga full-
trúa.
í þriðja sinni á þessari öld
dragast óveðursskýin saman
yfir Evrópu.
Hið alþjóðlega afturhald,
með stjórn Adenauers að verk-
færi, reynir nú að endurreisa
veldi fasistanna og hernaðar-
sinnanna í Vestur-Þýzkalandi,
og gera það að framsveitinni
í árásarfyrirætlunum sínum.
Bonnstjómin hraðar nú, sem
verða má, stofnun hersveita,
byggir herskip og hernaðarflug-
vélar og eykur framleiðslu alls
konar hernaðarnauðsynja.
Framleiðslugeta Vestur-Þýzka-
lands er tekin í þjónustu her-
væðingarinnar og hershöfðingj-
ar Hitlers, dæmdir stríðsglæpa-
menn, eru látnir lausir.
Adenauer, studdur af ame-
rísku imerpíalistunum, og í
samráði við stjómir Vestur-
veidanna, lætur ófriðlega og
dregur engar dulur á hefndar-
fyrirætlanir sinár. Stefna hans
er stoðug ógnun við baráttu-
einingu verkalýðsins og samtölc
hans. Striðsæsingamennirnir
sem óttast vöxt friðarhreyfing-
arinnar, grípa nú til skemmd-
arverka og ævintýramennsku.
BRÆÐUR!
ógnir og hörmungar síðustu
styrjaldar eru ykkur enn í
fersku minni, — píslarfangels-
in í Buchenwald og Ausch-
witz, rústir Stalingrad og Cov-
entry, eyðing Lidice og Ora-
dour, þær milljónir manna,
■kvenna og bama er böðlar
Hitlers myrtu og kvöldu. Við
höfum daglega fyrir augum
fórnariömb styrjaldarinnar, ör-
kumlamenn, ekkjur og munað-
arleysingja og menn er tapað
hafa öllum tengslum við fjöl-
skyldur sínar í æðisgangi
styrjaldaráranna.
Ný styrjöld, ef til hennar
kemur, yrði hið örlagaríkasta
áfall er fyrir mannkynið gæti
ko.miá. Gjöreyðingartækin,
atom- og vptnissprengjumar,
myndu gjöreyða heilum ríkj-
um.
Styrjöld, er færir verka'ýðn-
um böl og þjáningar, færir ó-
hemju gróða í hendur auð-
manrianna. Þetta er ein af á-
stæðunum fyrir því að fram-
leiðslugetu auðvaldsríkjanna
er einbeitt að styrjaldarundir-
búningi og þjóðunum haldið í
stöðugum ótta við nýtt og enn
ægilegra blóðbað.
Fuligilding Parísar-Bonn sátt-
málans mundi auðvelda og
hraða mjög endurhervæðingu
Þýzkalands.
Endurhervæðing Vestur-
Þýzkalands er alvarleg ógnun
við friðinn í Evrópu og þar
með heimsfriðinn. Framar
öðru er hún geigvænleg ógnun
við velferð þýzku þjóðarinnar.
Stríð það sem imperíalistarnir
undirbúa nú af svo miklu kappi
myndi óhjákvæmilega leiða
þýzku þjóðina í glötun.
Verkamenn í Vestur-Þýzka-
landi!
Við skorum á ykkur að vinna
af alhug' að sköpun baráttu-
einingar verkalýðsins, sköpun
samíylkingar allra lýðræðis-
afía sem vilja vinna að vernd-
un friðarins í Evrópu og þar
með í öllum heiminum.
Gleymið því ekki að á ykkar
herðum hvílir sú skylda að
hindra viðgang fasistanna og
hernaðarsinnanna í Þýzka-
landi.
Sósíalistar, kommúnistar,
kristilegir og flokkslausir
verkamenn, við heitum á ykk-
ur, takið höndum saman við
vei^camenn annarra Evrópu-
rikja. Einangrið ykkur ekki frá
hinni voldugu baráttu verka-
lýðsins sem getur hindrað all-
ar fyrirætlanir stríðsæsinga-
mannanna. '
Verkamenn og verkakonur í
Evrópu!
Öruggasta vörnin gegn styrj-
■aldarfyrirætlunum afturhalds-
ins er baráttueining verkalýðs-
ins. Styrkið eininguna í sam-
tökum ykkar, sýnið hugrekki
og festu í baráttunni gegn fas-
ismanum, gegn undirbúningi
nýrrar árásarstyrjaldar. Stand-
ið í bróðurlegri einingu með
verkalýð Vestur-Þýzkalands
sem berst gegn árásarfyrirætl-
unum Adenauers. Það getur
oltið á afstöðu ykkar hverja
leiðina Þýzkaland velur, leið
hervæðingar og styrjaldar eða
leið friðar og vináttu milli
þjóðanna.
Það er skylda okkar allra að
hjálpa friðaröflunum í Vestur-
Þýzkalandi í baráttu þeirra
gegn hervæðingarstefnunní og
jafnhliða að styrkja friðarvið-
leitni verkalýðsins í Þýzka al-
þýðulýðveldinu.
Sameinumst í baráttunni
gegn fullgildingu hernaðarsátt-
má’ ans sem Eisenhower og Ade-
nauer eru að heimta af þing-
um Frakklands, ítaliu, Belgíu
og Luxemburg. Hindrum hin-
ar glæpsamlegu fyrirætlanir
mannanna sem vilja feta í fót-
spor Hitlers.
Sameinuð erum við vald sem
getur hindrað allar tilraunir
árásarseggjanna.
Verndum friðinn og þjóðlegt
sjálfstæði.
Lifi ein'ng verkalýðsins um
víða veröld.
Vín, 21. okt. 1953.
Krefjast 50%
kauphœkk-
unar
Félag opinberra embættis-
mann.a í hæstu launaflokkum i
Brctiandi hefur krafizt 50%
kauphækkunar til handa fé’ags-
mönnum. Fulltrúi fjármálaráð-
herra bauð í gær 3% hækkun.
Bifrelðaelgendur
Tökum aö okkur réttingar og bílamálun.
Fljót og vónduð vinna.
SkodaverkstæðifS
(við Suðurlandsbraut fyrir ofan Shell).
Sími 82881.
Sjómannaféiag Beykjavíkur
Huglýsing
um stjórnarkjör í Sjómannafélagi
Reykjavíkur
Kosning stjórnar fyrir félagið hefst kl. 13 í dag,
miðvikudaginn 25. nóv., og stendur yfir til dagsins
fyrir aðaifund, er haldinn verður í janúar næst-
komandi.
Hægt veröur aö kjósa alla virka daga kl. 15.—18.
Veröi kosning iátin fara fram á öörum tíma, verö-
ur þaö auglýst sérstaklega.
Kjörskrá, ásamt skuldalista liggur frammi í
skrifstofunni þann tíma, sem hún er venjulega
opin.
Reykjavík, 23. nóv. 1953.
Kjörstjórnin.
\------------------------i------------