Þjóðviljinn - 25.11.1953, Qupperneq 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 25. nóvember 1953
ILFUR UTANOARÐS
47. DAGT.'R
Bóndinn í Bráðagerði
að þíngkonan var að búast til brottfarar. Hnykkti honum ílli-
iega við og flýtti oér til hennar.
Á ég að trúa því, að þú sért að fara áðuren ballið er búið?
spurði hann. Og meira að segja án þess að kveðja mig?
Þíngkonan sagðist því miður ekki hafa tíma til þess að dvelja
leingur, en hún gaf ekki upp neina ástæðu fyrir þeirri gleymsku
sinni, að kveðja ekki og þakka fyrir skemmtunina.
Þá er að taka því, sagði Jón án þess að æðrast. Og fyrst
þú ert að fara, þá er mér ekkart að vanbnnaði leingur, svo það
er jafngott, að ég gángi með þér dálítinn spöl. Það þekktist ekki
í Vegleysusveit að sleppa kvenmanpi fylgdarlausum frá bæ undir
nótt.
Og til þess að ekki færi neitt á milli mála með tilgáng hans,
fiýtti Jón sér að gánga eftir hatti sínum og fylgdi þíngkon-
uvmi fast eftir útúr húsinu. Fékkst hann ekki um, þótt hún
hreyfði mótmælum, því reynsla hans var sú, að ekki bæri að taka
rnará á kvenlegri hlédrægni um skör fram.
Þíngkonan hvotaði sporið, en híngað til hafði einginn kvenmað-
ur geingið Jón af sér, svo honum veittist létt að halda í við
hana og tók undir handlegg hennar eins og sæmdi riddaralegum
fylgdarmanni. Hann hafði heldur einganveginn þreifað sig saddan
á síðum þessarar fagurbyggðu konu, því snertíngar, sem heim-
ilast á dansgólfi, veroa ætíð ópersónulegri helduren samskonar
snertíngar undir öðrum kringumstæðum.
Þú fyrrtist varla, gæskan, þótt ég styðji við þig, sagði hann
léttur í máli. Það væii ailtof endasleppt að láta svo víena mey
og þú ert, eigra eina og yfirgefna heimí ból einsog náttúrulausa
piparkerlíngu Svo datt mér sísona í hug, eh he, að bjóða þér
uppá, að /ið gömnuðum okkur obbólítið saman, svona undir
fjögur augu. Nóg er nóttin, heillin! Og joað er varla hætta á
því, að okkur leiðist hvort hjá öðru.
Það kom nokkurt fát á þíngkonuna, og gerði hún lauslega
tilraun til þess að lósa liandlegginn, sem Jón hafði tekið í sínar
vörslur, en það reyndist ekki anðgert. Sagði fljótmælt að svo
ósæmileg tilmæli væri ekki svaraverð.
Það eru- heldur ekki orðin ein, sem skipta máli þegar svona
stendur á ansaði Jón. Hér eru það verkin, sem eiga að tala,
manneskja!
Þíngkonan sagði, að síika framkomu hefði einginn kallmaður
Teyft sér að hafa í frammi við persónu hennar allttil þessa.
Þú meinar þó ekki, að þú hafir aldrei gamaað þér með kall-
manni, einsog hverjum réttsköpuðum kvenmanni er eiginlegt?
spurði Jón hissa.
Þíngkonan lagði eið útá, að hún hefði aldrei á ævi sinni á-
stundað þessháttar lífemi.
Nú dámar mér ekki, sagði Jón. Ea segirðu satt, þá er meiren
kominn tími til þess fyrir þig að kynnast þessháttar lystisemdum
lífsins.
Þíngkonan losáði handlegg sinn með rykk, sem Jón var ekki
viðbúinn. Sagði með nokkrum þjósti, að framkoma' hans hæfði
ekki siðuðum manni og í alla staði óviðeigandi, þótt ekki væri
nema sökum aldurs.
Ég er í fullu fjöri ennþá, ansaði Jón og þótti sér misboðið.
Það er ekkerf uppá mig að klaga í þeim efnmn ennþá, það get-
ur Gudda mín best borið um.
Þíngkonan sagði ekki hlusta leingur á sVo ósæmilegt tal.
Ætlaði að stínga af, en fylgdarmaður hennar var alltaf í vegi
fyrir henni livert sem hún sneri sér. Eftilvill munaði Jón ekki
svo milkið í meydóm þíngkonunnar þegar öllu var á botninn
hvolft, en það var kominn í hann gáski, blandinn hálfkæringi,
svo hann gat ekki neitað sér um þá skemmtun að rjála ofurlítið
við kvenmanninn einsog kettlíngur, sem leikur sér að mús.
‘Ef þú vilt endilega fara með meydóminn með þér í gröfina,
má ekki minna vera en að ég fái að þakka þér fyrir skemmtun-
ina með kossi, hneggjaði Jón. Þér er óhætt að trúa því, gæskan,
f-.ð híngaðtil hefur kvenþjóðin ekki fælst flipana á Jóni í Bráða-
gerði.
En þegar ílantí 'gerði sig líklegan til þess að láta verkin tala,
brást þíngkonan við einsog valkyrju sæmdi. Rétti hún bóndan-
um þvílíkt hnefahögg beint á hægra auga, að hann saup hvelj-
ur af sársauka. Varð honum fyrst að bregða báðum höndum
fyrir andlitið og barst lítt af. En á meðan sá þíngkonan sér
leik á borði og hvarf honum útí myrkrið.
Bölvuð tæfun tautaði Jórr sárreiður. Það er ekki um neitt að
villast, að hun er jóir.frú! Og svo þíngkona ofaná allt saman.
Þegar svo er, þá er ekki við betra að búast.
Og það var rislágur maður, sem lötraði heimi herbúðir hjálp-
ræðisins.í skjóli næturinnar, með hönd fyrir auga.
'%C ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI. FRtMANN HELGASON
Þing KSÍ:
Hugsanlegt að Norðmenn eða Danir
keppi hér næsia sumar
Þing Knattspyrnusambands
íslands var haldið hér í Reykja
vík um helgina. Var þing þetta
fjölmennara en nokkru sinni
áður. Komu fulltrúar frá þess-
um aðilum: ísafirði, Siglufirði,
UlA, Vestmannaeyjum, Akur-
eyri, Reykjavík, Hafnarfirði,
Suðurnesjum og Akranesi, sam-
tals 25 fulltrúar með 32 at-
kvæði. Auk þess voru á þing-
inu íþróttafulltrúi ríkisins, Þor-
steinn Einarsson; framkvæmda-
stjóri ISÍ, Hermann Guðmunds-
son; gjaldkeri ÍSl, Gísli Ól-
afsson; form. dómarafélagsins,
Guðbjörn Jónsson, og ýmsir úr
föstum nefndum sambandsins.
Er gott til þess að vita að
knattspyrnumenn skuli fjöl-
menna svo til þings KSÍ, því að
þar á að leiða til lykta sam-
eiginleg mál knattspymu-
manna.
Eftir að þingið hafði verið
sett kvaddi Hermann Guð-
mundsson sér hljóðs og flutti
þinginu kveðju ISÍ. Þá fhitti
form. KSl, Sigurjóp Jónsson,
skýrslu sambandskis, en Björg-
vin Schram las reikninga þess.
I KSÍ eru nú '10 héraðssam-
bond og ráð með samtals 36
félög.
Stjórnin hélt 29 lokaða fundi
og segir orðrétt í skýrslunni:
,,....og hefur þetta verið eitt
mesta starfsár í sögu sam-
bandsins eins og skýrsla þessi
ber með sér“. Urðu miklar
umræður um skýrsluna. Var
gagnrýndur sá undirbúningur
er hafður var við móttöku
þjálfárans Köhlers og hve illa
hann notaðist. Ennfremur voru
störf landsliðsnefndar gagn-
rýnd en nefndin starfar á á-
byrgð stjórnar KSl. Þá var og
gagnrýnd stjórn utanferðar
landsliðskis á sl. sumri.
Fundið var og að því fyrir-
komulagi um þjálfun landsliðs-
ins sem viðhaft var síðasta
keppnistímabil.
Keppa Norðmenn liér í sumar?
I skýrslunni er þess getið
að Akranes hafi fengið leyfi
til að bjóða heim knattspyrnu-
flokki um mánaðamótin maí-
júní (og mun sá flokkur vera
þýzkur). Þá hefur Valur sótt
um leyfi til að fá hingaö
þýzk lið úr öðrum aldursflokki
er komi í júní. — Þá er frá því
sagt að Noregi hafi verið boð-
ið til landskeppni í knattspyrnu
um mánaðamótin júní-júlí en
endanlegt svar hefur ecin ekki
borizt frá Noregi. I umræðum
upplýsti formaður KSÍ að ekki
væri ólíklegt að Danir kærhu
ef Norðmenn gætu það ekki.
Víkingur og Fram hafa líka
,sótt um leyfi til að taka á móti
liði eins og venjulega en beiðn-
in ekki formlega komin til
KSl. '
Stjórnarkjör.
Síðari ,dag þingsins fór fram
stjórnarkjör og fór það þa.nn-
ig að Sigurjón Jónsson var
endurkjörinn formaður sam-
bandsins. Eanfremur voru end-
urlcjörnir í stjórnina þeir Guð-
mundur Sveinbjörnsson og
Björgvin Schram, en fyrir í
stjórn eru Ragnar Lárusson og
Jón Magnússon.
Svar Alþýðnflokksins
Framhald af 1. síðu
ur sannazt. Þessi andstæðu
sjónarmið birtast einkar skýrt
í bréfinu.
Náið samstarf
Kefur átt sér stað
Síðari hluti samþykktar
flokksstjórnar Alþýðuflokksins
„að um samstarf milli þessara
stjórnmálaflokka geti ekki ver-
ið að ræða“ er vægast sagt
bamalegur.
Þetta samstarf, sem flokks-
stjórn Alþýðuflokksins segir að
geti ekki átt sér stað, hefur
átt sér stað. Alþýðuflokkurinn
og Sós'alistaflokkurinn hafa
starfað saman í ríkisstjóm ís-
Iands í tvö ár, 1944-1946. Sam-
starf flokka í ríkisstjórn er eitt
nánasta samstarf sem orðið
getur milli stjórnmálaflokka.
Slíkt stjórnarsamstarf sam-
þykkti stjóm Alþýðuflokksins
haustið 1944. Það þýðir því
ekki að vitna í neinar, sízt
afvegafærðar, umræður um til-
raunir til sameiningar þeirra
verklýðsflokka, sem störfuðu í
landinu fyrir 15 ámm, til þess
að reyna áð spilla samstarfs-
möguleikum Sósíalistaflokksins
og Alþýðuflokksins nú. Reynsl-
an hefur sýnt að samstarf þess-
ara flokka getur átt sér stað
og hefur átt sér stað, bæði um
rikisstjórn og um stjórn Al-
þýðusambandsins á sama tíma.
Það geta verið ýmsir gallar á
því samstarfi sem þá var, frá
beggja sjónarmiði, en það
breytir ekki þeirri staðreynd,
að samstarf hefur getað átt sér
stað.
Alþýðan mun
tryggja samstarf
Hins vegar er þörf á miklu
betra og nánara samstarfi .nú
og það samstarf mun verka-
lýður Islands kný.ja fram að
lokum, hvort sem flokksstjórn
Alþýðuflokksins vill eða ekki.
Sjf'ilft höfnuinarbréf Alþýðu-
flokksinins er sönnun þess að
flokksstjórn Alþýðuflokksins er
ljóst hversu veik afstaða henn-
ar er og hversu hrædd hún er
við óbreytta fylgismeun sína.
Og hún mun fá að sanna það
að samstarfstilboði Sósíalista-
flokksins verður tekið af alþýð-
unni, þótt flokksstjórn Alþýðu-
flokksins sé ekki starfhæf fyr-
ir sjúkleika sakir.
Varamenn voru endurkosnir,
þeir Ingvar Pálsson, Geir Jóns-
son og Haraldur Guðmundsson.
Endurskoðendur: Hannes Sig-
urðson og Haukur Eyjólfsson.
Margar tillögur komu fram og
samþykktir og verður þeirra
getið síðar.
Enska
deildakeppnin
Úrslit í I. deild sl. laugardag:
Bolton 2 — Chelsea 2
Burnley 3 — Aston Villa 2
Charlton 0 — Wolves 2
Liverpool 1 — Arsenal 2
Manch. Utd. 4 —• Blackpool 1
Middlesbro 0 — Manch. City 1
Newcastle 1 — Portsmouth 1
Preston 2 — Sheffield Utd 1
Sheff. Wedn. 2 — Sunderland 2
Tottenham 1 — Huddersfield 0
W.B.A. 6 — Cardiff 1
1. deild
W.B.A. 19 14 2 3 53-23 30
Wolves 19 12 5 2 47-26 29
Huddersf. 19 11 3 5 35-20 25
Burnley 19 12 0 7 42-24 24
Bolton 18 8 6 4 47-36 22
Blackpool 18 9 3 6 35-30 21
Charltca 19 10 1 8 42-37 21
Manch. U. 19 6 8 5 31-26 20
Arsenal 19 8 4 7 39-36 20
Cardiff 19 7 5 7 22-34 19
Preston 19 9 1 9 46-29 19
Tottenham 19 9 1 9 30-30 19
Sheff. W. 20 8 3. 9 35-43 19
Aston V. 19 8 1 9 31-32 17
Newcastle 19 5 6 8 30-36 16
Manch. C. 19 5 5 9 22-36 15
Chelsea 19 5 4 10 31-45 14
Sunderl. 18 5 3 10 39-49 13
Sheff. U. 18 5 3 10 25-36 13
Liverpool 19 4 5 10 35-49 13
Portsm. 19 4 5 10 37-50 lo
Middlesbro 19 4 4 11 28-46 12
II. deilil
1 Leicester 19 10 7 2 46-23 27
■2 Doncaster 19 12 2 5 33 2 0 26
8 Luton 19 7 7 5 31-28 21
14 Bristol Rov 19 5 8 6 38-32 18
15 Fulham 19 6 5 8 41-41 17
19 NottsCounty 19 5 4 10 22-42 14
Getrannaspá
37. leikvika. Leikir 28. nóv. 19c3.
Arsenal Newcastle .... 1
Aston Villa-Charlton. .. . (x) 2
Biackpool-Bolton . ...... (1) x
Chelsea7Preston .....
Huddersfield-Burnley .. 1
Manch. City-WBA .....
Portsmouth-Manch.Utd . (1) 2
Sheff.Utd-Tottenham ... 1
Sunderland M'ddleshro . 1
Bristol-Leicester . .. d>
Doncaster-Luton ...... 1
Notts Co-Fulham ......
Kerfi 16 raðir.
Vamfofseti og fram-
kvæmdasijóri tSf fara lil
Stokkhélms í dag
1 dag fara þeir Guðjón Ein-
arsson varaforseti ISl og Her-
mann Guðmundsson framkv,-
stjóri sambandsins til Stokk-
hólms. Ætla þeir að sitja af-
mælisfagnað sænska íþrótta-
sambandsins sem varð 50 ára
á þessu ári, en afmælishátiðin
er um mánaðamótin. Áður
hafði forseti sambandsins Ben.
G. Waage farið sömu erinda.
Má því segja að sendi- og full-
trúasveit íþróttamanna sá ekki
hunnskmnð í betta sinn.