Þjóðviljinn - 01.12.1953, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 01.12.1953, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 1. desemebr 1953 þlÓOVflUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýSu — Sósíalistaflokkurlnn, Rltstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigfusson, Magnús Torfl Ólaísson. Augiýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig. 19. — Síml 7500 ( 3 línur). Áakriftarverð kr. 20 á mánuði i Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 k? eintakið Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. _______________:_______________________________________________________/ Líf okkar og frelsi Sú var tíðin að aleiga íslendinga var öndin í brjósti þeirra — lífið sjálft og eitt, nakið og réttlaust. 'Jörðin sem þeir gengu á var nýlenda fjarlægs þjóðhöfðingja, Stóridómur var réttlæti þeirra,' einokunin var frelsi þeirra, örbirgðin var lilutskipti þeirra, hungrið örlög þeirra. Um langan aldur var ekki annað sýnna en þeir mundu einnig glata þessu eina sem þeir áttu eftir: lífinu; þjóðin mundi deyja út. En í þeim heimslrluta sem við byggjum hefur sjálfur máttur lífsins óvíða sannazt jafnáþreifan- lega og í sögu Islendinga: við lifðum þetta allt saman af. Svo sterk er frelsisþrá og sjálfstæðisvitund mannsins að ekki var baráttunni um Jíf okkar fyrr lokið, með sigri, en við hófumst handa um endurheimt þess frelsis og sjálfstæðis er við höfðum verið ræntir fyrir meira en fimmhundruð árum. Síðan Baldvin Einarsson, Fjölnismenn og Jón Sigurðsson hófu baráttu sína, -og innleiddu aftur mannlega reisn á íslandi, hefur frelsið ekki einungis komið næst á eftir lifinu í vitund okkar, heldur hefir það verið sjálft inntak þess: lífið og frelsið eitt hugtak í skynj- un þjóðarsálarinnar. Þessi ikostur er raunar eina völ lítillar þjóðar (ír berst fyrir rétti sínum. Aðeins fyrir þessa skynjun lífs í frelsi, frelsis í lífi, uuðnaðist ofckur að vinna bug á ofureflinu, sigrast á hverjum vanda — unz við stóðum á Þingvelli við Öx- ará 17. júní 1944, fullvalda þjóð, ungir menn á morgni nýrrar sögu, ekki aðeins fullvaldir í landi okkar heldur einnig og eigi síður í hjarta okkar og draumi. En þótt himininn væri svona heiður í hugum Islendinga, eft- ir torsóttah fullnaðarsigur, þá var loftið lævi blandið. Hinn blái litur íslenzks fagnaðar á Þingvelli 1944 var ekki litur heimsins. Við fengum að kenna á því smám saman að við lifð- um á tímurn heimsvaldastefnunnar, þeirrar stefnu sem telur fullveldi smáþjóðar öfugmæli, þeirrar stefnu er af sjálfu eðli sínu leitar færis á frelsi þess er minna má sín. Og þá kom það á daginn, sem við máttum raunar vita fyrir, að ísland var ekki íöðurland allra er landinu voru fæddir, heldur peningurinn og valdið — í einu orði: auðvaldið. Islenzka auðstéttin tók sér samstöðu með amerísku auðstéttinni og öðrum þeim öflum er' berjast gegn fólkinu, hvar sem er í heiminum; gegn frelsis- hugsjónum og sjálfstæðisbaráttu smáþjóða, gegn verkalýðs- hreyfingu og sósíalisma. En sú alþýða er fagnaði einhuga á Þingvelli 1944, sú alþýða er sá draum sinn rættan á völlunum við Öxará, hún gætti þess miður í þeirri hversdagslegu bar- áttu er í hönd fór að standa saman um sigur sinn. Auðstéttin kom fram vilja sínum í höfuðatriðum. Þess vegaa sitjum við uppi með her í landi í dag, með brotna stjórnarskrá, búum við • efnahagslegt ósjálfstæði, horfum upp á minnkandi vinnuafl við íslenzka. atvinnuvegi, vitum hernaðarmannvirki reist af íslenzk- um höndum rísa á æ fleiri stöðum í landinu. Gieði okkar er brost- in í svip, draumur-okkar á flóttáförum eftir tæplega tíu ár. I dag eru liðin 35 ár síðan við náðum næstsíðasta áfanganum í sjálfstæðisbaráttu okkar. Og við notum tækifærið til að rifja upp með sjálfum okkur nöfn og verk þeirra manna er „fremst á frárri skeið faldana drifnu skáru“ í sókn okkar til hins fyrir- heitna frelsis. „Aldrei hefur nokkurt land sokkið jafndjúpt" og ■ Ísland á öldum niðurlægingar sinnar og áþjánar. Og það skulu þeir vita, sem nú þykjast standa gleiðir yfir höfuðsvörðum okk- ar, að kúgmiarsaga íslendinga brennur enn í brjósti íslenzkrar alþýðu, að arfur þeirra er gáfu okkur frelsið á ný er lifaeidi staðreynd í hjarta fólksins á Islandi í dag — þrátt fyrir allt. Á þessum myrku skammdegisdögum finnum við hvernig þjóðin ei hægt og hægt að þoka sér aftur saman um málstað sinn, um frelsi sitt og hamingju. islenzkt fólk er stundum tómlátt á yfirborði, en því verður þeim mun lieitara um hjartarætur þeg- ar andstæðingar þess hafa ögrað því til viðoáms. Gleði þessa dags er fólgin í þeirn vissu. Aldrei var það ljósara en nú að líf og frelsi Islendinga er eitt hugtak. Sá skilningur fylkir okkur saman til allra þeirra átaka ■sem nauðsynleg eru til að vernda hvortveggja — unz draum- urinn gengur á ný í björtu ijósi tm vellina við Öxará. Fyrir 10 árum: Þrír stærstu flokkar þmgsins samein— ast um að bera fram frumvarp að stjórn-| arskrá íýðveldisins íslands Fyrir réttuvi 10 árum, 1. deseviber 1943, birtist í blöðunum söguleg yfir- lýsing frá þremur stœrstu flokkum Alþingis. Var hún svohljóöandi: „Þingflokkar Framsóknarflokks, Sameiningarflokks alþýðu — Sósí- alistaílokksins og Sjálfstæðisflokkseru sammála um að stofna lýðveldi á íslandi eigi síðar en 17. júní 1944og hafa ákveðið að bera fram á Al- þingi stjórnarskrárfrumvarp milliþinganefndarinnar í byrjun næsta þings, enda verði Alþingi kallaðsaman til reglulegs fundar eigi síð- ar en 10. janúar 1944 til þess að afgreiða málið. Alþingi, 30. nóvember 1943" Alþýðuflokkurinn skarst hins vegar úr leik og hafði samþykkt á miðstjórn- arfundi skömmu áður að áður en þetta skref yrði stigið yrði að rœöa við Dana- konung. Meö þessari ákvöröun var stigiömjög mikilvœgt spor til að tryggja lýð- .veldisstofnunina 1944, og það er holltaö minnast þess nú og bera þróttinn sem þá gagntók þjóðina saman við niðurlægingu hernámsflokkanna 10 árum síðar. í. \ ■ i iiK wnnmo * Samkvæmt samningi vorum við Vinnuveitendasamband íslands, at- vinnurekendur í Haínarfirði, Árnessýslu, Akranesi, Keflavík og í Rang- árvallasýslu, verður leigugjald fyrir vörubifreiðir frá og með deginum í dag og þar til öðruvísi verður ákveðið, sem hér segir: f Dag\r. Eftirv. Nætur- & helgid.v. Fyrir 21/? tonns bifreiðir 47.98 55.75 63.51 — 2V2 til 3 tonna hlassþunga 53.57 61.64 69.10 — 3—31/2— _ 59.13 66.90 74.66 — 31/2.' — 4 —. — 64.71 72.48 80.24 1 1 1 70.27 78.04 85.80 Allir a$rir taxtar eru óbreyttir. Reykjavík, 1. desember 1953. VömMlastöðm Þróttur, Vöruhíiastöð Haístazfjarðar, Reykja'sák. Hafnarfirði. Vörubílstjérafélagið Mjölnlr Bilreiðasföð Akransss, Arnessýslu. Akranesi. Vömbílastöð Kollavíkur, Bilstjórafélag Bangæinga, Koflavík V Hellu Góð kanp Amerískt prjónasilki kr. 57.00 í kjólinn. Gluggatjaida- efri frá kr. 13.95 ineterinn. Þurrkudregill kr. 6.95 meter- inn. Nokkrar góðar og ódýrar manchettskyrtur d. m. fl. ódýrt. Verzlunin Bjólfur, Laugaveg 68, sírni 82835. I ð; a, Lækjargötu 10 B Vönduð, ódýr þýzk raímagnstcsid Iðja, Jhækjargötu 10 B SK^AÚTGCRÐ RIKISINS Esja Ödýrir telpukjólar Telpukjólar úr Everglaze og f'.eiri fallegum efnum. Verð kr. 50.00—30.00 ó aldur 1—5 ára. Seljast í dag og næstu daga á Egllsgötu 22. íðja, Lækjargötu 10 B Ódýrir rafmagnsofnar: 1500 w þriskiptir kr. 177,00 1000 w þrískiptir kr. 157,00 750 w kr. 119.00 Iðja. Lækjargötu 10 B vestur um land í hringíerð hinn 5. þ. m. Tekið á móti flutningi t:l áætlunarhafna vestan Ak- ureyrar í dag og á morgun. Far- seðlar seldir á fimmtudag. Skaflíellinffur Munið haapdrætti Þjóðviljans til Vestmannaeyja á morgun. Vörumóttaka dagiega. Iðja. JÁekjargötu 10 B Lampa? og ijósakrómis Ið j a9 Lækjargötu 10 B

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.