Þjóðviljinn - 11.12.1953, Side 6

Þjóðviljinn - 11.12.1953, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 11. desember 1953 þlÓOVIUINN útgefandl: Sameintngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður GuSmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, GuS- mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig. 1». — Sími 7500 <3 linur). Áskrlftarverð kr. 20 á mánuði I Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Sameinandi afl Eftir því sem nær dregur bæjarstjórnarkosningunum kemur það betur í ljós að sú krafa sem öll stéttvís og þroskuð alþýða Reykjavíkur gerir nú til andstöðuflokka Ihaldsins er að þeir snúi bökum saman í komandi kosningabaráttu og leggi sameig- inlega höfuðáherzluna á áð leggja núverandi bæjarstjórnar- meirihluta að velli. Hvar sem reykvískt alþýðufólk hefur staðið í flokki fram til þessa er því nú ljóst hve brýn nauðsyn er á því að tekið verði fyrir rætur þeirrar óstjórnar sem setur svip sinn á alla stjóm sþæjarmálefna Reykjavíkur. Það er alræði reykvískrar auðstéttar í málefnum bæjarins sem veldur- þeirri, hóflausu eyðslustefnu sem leggur öllum almenningi í bænum sífellt þyngri byrðar á herðar. Það er alræði og sérhagsmunastefna auðstéttarinnar sem veldur því skipulagsleysi sem ríkjandi er i byggingamálum bæjarins, stendur að hóflausri útþenslu hans með tilheyrandi milljónaútgjöldum á sama tíma og ekki cr hreyft við uppbyggingu gamla bæjarins. Það er alræði auð- stéttarinnar og algjört sinnuleysi hennar um liag hins- fátæka Tjölda sem er orsök þess að bæjarfélagið heídur að sér hönd- um í byggingamálum meðan húsnæðisneyðin herjar alþýðuna og íbúum bragga og annars heilsuspillar.di húsnæðis fer stór- lega fjölgandi. Það er alræði auðstéttarinnar og algjört áhuga- leysi hennar fyrir uppbyggingu heilbrigðs atvinnulífs í bænum sem veldur því að atvinnutækjunum fækkar án þess að bæjar- yfirvöldin hreyfi hönd til varnar og að stór hópur vinnandi Reykvíkinga er hrakinn úr bænum til hernaðarvinnu suður á Miðnesheiði. Svona mætti endalaust halda áfram. Stórsyndir íhaldsmeiri- hlutans blasa allsstaðar við. Og enginei heilskyggn alþýðumað- ur eða alþýðukona í Reykjavík efast um að sama stefna gegnd- arlausrar fjáreyðslu annars vegar og algjörs athafnaleysis í hrýnustu hagsmunamálum reykvísks almennings hins vegar verður mörkuð áfram á næsta kjörtímabili haldi íha'dið nú- verandi valdaaðstöðu. Og þessa helstefnu íhaldsins vill fólkið í bænum ekki kalla yfir sig að nýju, þessvegna rísa nú hærra cn nokkru sinni fyrr kröfur almennings um að vinstri öflin þjappi sér fast saman og nýti þannig alla þá krafta sem fyrir hendi eru til þess að svipta íhaldið því alræðisvaldi sem það hefur í stjórn Reykjavíkur og málefna hennar. Þessúm óskum fólksins mæta forystumenn Alþýðuflokksins með aígjörri neitun á viðræðum við Sósíalistaflokkinn um samstarf. Og Þjóðvarnarflokkurinn þorir í hvorugan fótinn að stíga en veitir afturhaldsöflunum mikilsverðan stuðning i raun með hjásetu og fáheyrðum heigulshætti. Framsóknarflokkurinn unir sér vel i flatsænginni með höfuðflokki yfirstéttarinnar og er í harori samkeppni við hann um forustuna fj’rir afturhalds- öflunum. ^Þannig bregðast þeir þrir flokkar við óskum alþýðu um 'Samstarf og samfylkingu gegn Ihaldinu, sem þó reyna í sifeíu að skreyta sig með vinstri fjöðrum og ihaldsandstöðu þegár þöi'r eru að blekkja 'heiðarlegt alþýðufólk til fylgis við kosningar. Eini stjórnmálaflokkurinn sem hagar starfi sínu og stefnu í samræmi við óskir og þarfir hins vinnandi fjölda, er því Sósi- alistaflokkurinn. Han.n einn miðar stefnu sína og baráttu við hagsmuni alþýðunnar og samstarfsviija hennar að sameigin- legum áhugamálum. Sósíalistaflokkurinn er hið sameinandi afl sem beitir sér fyrir og skipu’eggur þá samfylkingu fjöldans sem einn getur velt úr valdastóli þvi steinrunna yfirstéttarvaldi sem er að stefna málefnum höfuðstáðarins og íbúa hans í full- komið öngþveiti. Þær þúsundir Reykvíkinga sem eru Sósíalista- fiokknum sammála um nauðsyn samfylkingar gegn Ihaldinu geta miklu ráðið um þróun þessara mála með því einu að kjósa með Sósialistaflokknum að þessu sinni. Þannig og aðeins þannig verður krafan um samstarf vinstri aflanna uadirstrikuð svo skýrt að flokksbroddarnir skilji til hvers alþýðan ætlast af þeim flokkum sem hún hefur stutt ög veitt brautargengi. Ekkert annað væri jafn vel til þess fallið að kenna forkólfun- um að virða vilja og óskir fjöldans um samstarf gegn því spillta yfirstéttarvaldi Ihaldsins sem stjómað hefur Reykjavík og væntir þess að halda enn völdum vegna sundrungar vinstri aflanna. RÍM.EÖERFHA ISLAND BILLEDER FR-A ISLAND ISLANDIA VISÍAS -DE IStANDlA WJÁLMAR R. BAPÖARSON,arps.: JólAAÍöfin 1953 FÆST HJÁ ÖLLUM BÓKSÖLUM ! Raunhæfasta aðferðin 1 til að minnka dýrtíðina, er lækkun framleiöslukostnaöar. Árangurinn er kom- inn í ljós: Þúsundir karlmanna og unglinga kaupa vönduð föt á aöeins kr. 890.00, , dýrustu tegundirnar, og hafa sannfærzt u m gæöin. Kynnizt hvers íslenzkur iðnaSur er megimgur KlæðaverzlHB Andrésar Andréssonar h.f. v-------------------------------------------------- Vöruk' á verksmsðjuverSi JÓLAGJAFIR - BRÚÐARGJAFIR Ljósakrójnsiir Verð írá kr. 260.00 Vegglampar Verð írá kr. 57.00, 60 gerðir. Borðlampar Verð írá kr. 85.00 Kertastjakar Verð írá kr. 18.00 Veggkertastjakar sem nú eru mikið í tízku Alabasterborð- og náttlampar Mimmm ll Bankastrœti 7. Sími 7777.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.