Þjóðviljinn - 11.12.1953, Page 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 11. desember 1953
Alfuk utangarðs
61. DAGUR
Bóndinn í Bráðagerði
Endaþótt tíminn virtist nánast standa kyrr innan þessara
veggja leið þó dagur til enda. Fángavörðurinn færði honum að
éta fyrir nóttina, en framkoma lians og orð við þá athöfa ein-
kenndust af þeirri tortryggni og varúð, er menn viðhafa ein-
úngis í skiptum við þá tegund mannlegrar forherðítigar, sem
alls má vænta af annars en góðs.
Jón svaf þolanlega um nóttina þrátt fyrir tóbaksleysið, og
þcgar hann vaknaoi morguninn eftir, gat hann hugleitt horf-
mrnar í Ijósi þeirrar bjartsýni, er honum var eiginleg. Ef það er
memíngin að halda mér hér innilokuðum einsog hrút í stíu, þá
er að taka því eins'og öðru, sem að höndum ber með karl-
mennsku, hugsaði hann með sér. Og ef til vill er hægt að venj-
ast tóbaksleysinu þegar framí sækir.
En svo var það alltíeinu árdegis, að fángavörðurinn heimsótti
hann, og flutti honum þá frétt að samkvæmt skipunum frá
hærri stöðum, væri bóndinn leystur úr prísundinni og frjáls að
því að fara ferða sinna hvert á land er honum þóknaðist, þó
með því skilyrði, að hann yfirgæfi höfuðborgina áðuren sólar-
ihringur væri liðinn.
Mér er ekkert að vanbúnaði, góðurinn, sagði Jón og lifnaði
i öllum æðum. -Var honum brátt að kveðja kóng og prest ef
svo kynni að fara, að réttvísin sæi sig um hönd. Að skilnaði
fékk hann í sínar hendur ýmsa smámuni, er samkvæmt laga-
legu ritúali höfðu verið teknir úr vösum hans við komuna.
Endurheimti hann þar vasahnif sinn, rauðdropótta tóbaks-
klútinn, snærisspotta og það sem mest var um vert, íkyllirinn
góða.
Helvískir ræningjarnir, sagði Jón, þegar hami sá muni sína.
Það er eftir öðru, að fara í vasa manns og láta greipar sópa
°g þykjast svo ekkert nema sakleysið sjálft, á meðan maður
er að drepast úr tóbaksleysi. Þetta þætti léleg gestrisni í Veg-
leysusveit.
Fyrsta verk Jóns eftirað hafa endurheimt frelsi sitt, var að
halda rakleitt til herbúða hjálpræðisins til þess að gánga úr
skugga um að hafurtask hans væri þar ennþá víst. Hægðist
honum, er hann komst að raun mn að svo var. Auðheyrt
var, að húsráðendur voru ekki með öllu ókunnugir ástæðunum
fyrir fjarveru hans og drógu einga dul á að þeir tortryggðu
hann um byltíngarkennd áform gegn stofnuninni. Kostaði það
Jón marga og dýra svardaga áðuren húsráðendur sannfærð-
ust um, að hamn hefði ekkert slíkt í hyggju og mundi yfirgefa
hjálpræðið að morgni.
AQ)ví Jón hafði feingið sig fullsaddan á inniveru síðustu
<’aga var jafngott að drepa tímann með því að rölta um
stræti. Dólaði hann við að líta í búðarglugga og virða fyrir
sér þann munað, sem þar var til sýnis. Flaug honum í hug,
að gaman væri að kaupa einhvem smáhlut til þess að rétta
Guddu þegar heim kæmi, þótt skotsilfur hans væri orðið í
naumara lagi. Lagði hann liug á kaffikönnu, er hann sá i einum
glugganum. Vár kanna sú forláta gripur, hvítglerjuð utan með
/
rós á miðju. Vildi líka svo vel til að með því að kaupa nefndan
grip, Sló hann tvær flugur í einu höggi, þarsem gamla kaffi-
kahnan í Bráðagerði var í þann veginn að sýngja sitt síðasta
vers og þarafleiðandi óhjákvæmilegt að kaupa nýja könnu hvort
eo var. Hafnaði því kjörgripur þessi í eigu bóndans, og hélt
hann á henni í annarri hepdi umbúðalaust, enda eingin á-
stæða til þess að dylja fegurð hennar og vænleik. Var ekki
Jaust við, að vegfarendur litu hann dáh'tið skjálgu augnaráði,
en Jón var laungu ónæmur fyrir augnagotum og víngsaði
könnunni á gaungunni.
Á götuhomi einu nam hánn staðar og beið þess að komast
yfir þann farveg, sem ökutæki höfðu forréttindi framyfir gáng-
andi menn. Rólaði þá maður einn á snið við hann, og var það
eitt útaf fyrir sig ekki í frásögur færandi, en maðurinn kom
Jóni einhvernveginn kunnuglega fyrir sjónir, en það var ekki
fyrren hann var kominn framhjá að það rann upp fyrir Jóni
hvar og með hverjum hætti hann hefði séð hann fyrr. Að
honum heilum og lifandi var þessi einginn annar en náúngi
sá, er hafði étið á hans kostaað hinn fyrsta dag hans í borg-
inni. Eftilvill var hann loðnari um vánga, húfuderið niðurlútara,
buxnaskálmarnar slyttíngslegri og skórnir jaskaðri helduren
þegar fundum þeirra bar saman, en þessi afbrigði í útliti
mannsins blekktu þó ekki bóndann.
Bíddu kunníngi! kallaði Jón og tók viðbragð, en annaðhvort
heyrði hinn ekki eða sá einga ástæðu til þess að taka þetta
ávarp til sín. Jón beið ekki boðanna en hljóp á eftir manninum,
Scom að honum aftanfrá, lagði höndina á öxl hans og bað
Jiann að heyra sig um hálft orð.
Sundmeistaramó! Reykjavíkur
.. RÓTTIR
RITSTJÓRl. FRlMANN HELGASON
Helga Haraldsdóttlr setur
met í 100 m skriðsundi
Á þriðjudagskvöld íór Sund-
meistaramót Reykjavíkur fram.
Var keppt í fjórum karlasundum
og tveim kvennasundum og
mátti það naumast færri sund-
greinar vera á sjálfu meistara-
móti höfuðborgarinnar.
Árangur í ýmsum greinum var
nokkuð góður og yfirleitt betri
en á meistaramótinu í fyrra og
vaknar Þá sú spurnincr hvort
þegar sé farinn , að koma fram
árangur af hinum breytta æf-
ingatíma sundfélaganna en hann
er nú á ákjósanlegum tíma eða
frá kl. 7-—8.30 e. h. alla daga
nema laugardaga og sunnudaga.
í þessum tveim kvennasundum
var aðeins einn fulltrúi reyk-
vískra kvenna og gat Það ekki
minna verið! Hins vegar lét
þessi eina, sem var Helga Har-
aldsdóttir úr KR ekki sitt eftir
liggja, þar sem hún bætti met
Kolbrúnar Ólafsdóttur í 100 m
frjálsri aðíerð um 1.3 sek. Sem
gestur í þessu sundi keppti hin
vinsæla Suðurnesjastúika, Inga
Árnadóttir; og náði líka. ágætum
tima. -----------
I 200 m br’ngusundinu voru
tvær Suðurnesjastúlkur og sigr-
aði önnur þeirra á ágætum tima
og góðu sundi. Var það Vilborg
Guðleifsdóttir, en báðar voru
stúlkurnar úr KFK (Knatt-
spyrnufélagi Keflavikur).
I 100 m skriðsundi, kar!a voru
skráðir 10 keppendur en aðeins
5 komu til leiks. Pétur Krist-
jánsson synti á góðum tíma og
virtist ekki taka mikið á. Gvlfi
Guðm., sem varð nr. 2, er efni-
legur sundmaður.
1 400 m skriðsundi var Helgi
Sigurðsson í sérflokki' af þeim
3 Ægismönnum, sem kepptu, og
synti á ágætum tíma keppnis-
laust.
í 200 m bringusundi kepptu
3 ungir menn sem allir náðu
góðum tíma og var Torfi Tóm-
asson Æ. þeirra beztur.
Annars var þátttakan lítil, a3-
eins 15 keppendur í svo itóru
móti sem meistaramót Reykja-
víkur í karla og kvennaílokkum
á að vera.
Allar tilkynningar fóru fram
gegnum hátalarakerfi Sundhall-
arinnar og er gleðilegt til þess
að vita að búið er áð ganga
frá þessum útbónaði, og ætti
það að auka aðsókn að sund-
mótum. Hljómlist skemmti á-
horfendurh bæði á undan keppni
og eins er hlé varð í sambandi
við sundknattleikinn.
XJrslit í einstökum greinum,
(fyr'sti Reykvíkingurinn jafn-
framt Reykjavíkurmeistari 1953);
100 m frjáls aðfcrð kvenna:
1. Helga Haraldsdóttir KR
1.14.0 (met),
2. Inga Árnadóttir KFK 1.16.3
200 m bringusund kvenna:
1. Vilborg Guðleifsdóttir KFK
3.19.1.
' 2. Helga Haraldsd. KR 3.24.0.
3. Jón.a Margeirsd. KFK 3.41.4.
100 m frjáls aðferð karla:
1. Pétur Kristjánss. Á 1.02.8.
2. Gylfi Guðmundss. ÍR . 1.05.1.
3. Guðjón Sigurbj. Æ 1.07.5.
400 m skiðsund karla:
1. Helgi Sigurðsson Æ 5.09.5.
2. Magnús Guðm. Æ 6.36.5.
3. Guðjón Sigurbj. Æ 6.36.5.’
200 m baksund karla:
1. Rúnar Hjartars. Á 1.21.7.
2. Öiti Ingólfsson ÍR 1.21.8.
200 m bringusund karla:
1. Torfi Tómasson Æ 3.00.4.
2. ó’afur Guðm. Á 3.03.3.
3. Ottó Tynes KR 3.06.8.
Ármann varð Reykja-
víkurmeistari í sund-
knattleik
Úrslit Sundknattleiksmóts
Reykjavíkur fóru fram að aflok-
inni keppni í einstaklingsgrein-
um. Áttust þar við KR og Ár-
mann sem hvorugt hafði tapað
leik til þess tíma.
Fyrri hálfleikur var nokkuð
jafn en heldur tilþi'ifalítill og
náðu Ármenningar aldrei veru-
legu.m tökUm á leiknum. Þó er
það Ármann sem á fyrsta tæki-
færið en ólafur Diðriksson
„brennir af“ og sama kom fyrir
Leif Eiríksson úr KR. Það er
ekki fyrr en hinn gamli og
réyndi Sigurjón Guðjónsson
(Dalli) kemur til skjalanna, en
hann skorar óverjandi. Raunar
gleymdi vörn KR að hindra.
Leifur jafnar úr langri send-
ingu sem hann fleytir viðstöðu-
laust og óvænt í markið, 1:1.
Leifur á enn tækifæri en „brenn-
ir“ af. Nokkru fyrir leikslok
gerir Ólafur Diðriksson mark fyr
ir Ármann og standa leikar 2:1
í hálfleik.
I síðari hálfleik ná Ármenn-
ingar betri samleik og eru í
raúninni óþekkjanlegir frá fyrri
hálfleik. Því miður verður leik-
urinn harðari og dómarinn, Ari
Guðmundsson, er ekki að sama
skapi strangur, og skemmdi það
leikinn.
KR-ingar sýna nú ekki þann
röskleik £em fyrr og kemur
meir fram að þeir cru ekki eins
sundfærir og leíknr og Ar-
menningar. Clafur syndir upp
hægra megin, gefur knöttinn yf-
ir til Péturs sem skorar, 3:1.
Næst er það Magnús Thorvald-
son sem gerir mark fyrir KR afi
mjög löngu færi. Standa nú leik-
ar aðeins 3:2 en þar með hafði
KR sett öll sín mörk. Einar
Hjartar eykur töluna upp í 4
e'ftir góðan undirbúning frá Ol-
afi Diðrikssyni. Siöttá markið
gerði svo Sigurjón Guðjónsson
eftir hornkast. Pétur Kristjáns-
son syndir upp hægra megin.
gerir misheppnaða tilraun til að
skjóta i stað bess að senda
knöttinn til Einars Hjartarsonar
sem var frír v.instra megin,
Auknabliki síðar endurtekur
sama atvik si" og minnugur
fyrri mistaka sendir hann Einarf
knöttinn sem skorar sjöunda og
siðasta mark Ármanns.
Aðrir leikir mótsins fóru
þannig:
Árm.(A)-ÍR 5:0 — .Æ-Á (B) 2:0
KR-ÍR 6:3 — - Á-(A)-Á(-B) 8:0
KR-Æ 4:0 — KR-Á(B) 2:0
Æ-f.R 5:0 — ÍR-Á(B) 5:0
Ármann-Ægir 7:3.
Reykjavíkurmeistarar Ár-
manns eru: Stefán Jóhannsson,
Sigurjón Guðjónsson. Theodór
Diðriksson, Ólafur Diðriksson,
Rúnar Hjartarson, Pétur Krist-
jánsson og Einar Hjartarson.
Nílarsund á Þor-
láksmessudag
Um 30 sundmenn hafa til-
kynnt þátttöku í fyrsta ,,mara.
þonsundinu"' í Níl 23. des. n.
k. Verðlaunin í þessu 42 km-
sundi nema samtals tæpum.
100 þús. kr., þar af mun sigur-
vegarinn fá um 23 þús. auk
viðurkenningar frá Naguib for-
sætisráðherra Egypta- Blaðið
A1 Misri í Kairo stendur fyrir
þessu ,,maraþonsundi,“ en- ætl-
unin mun vera að keppa fram-
vegis í því árlega.
Myndin sýnlr keppnl í fjölbragðaglímu, en heimsnielstaramótið í þelrrj
íþrótt fer fram í Tokio í Japan dagana 24.—27. apríl n.k.