Þjóðviljinn - 11.12.1953, Síða 11

Þjóðviljinn - 11.12.1953, Síða 11
Föstudagur 11. desember 1953 — ÞJÖÐVILJINN — (11 Amerískur heiinsfriður Framhald af 7. síðu. gróði amerísku auðhringanna æ nýju hámarki, litaður blóði og tárum kóreskrar alþýðu -— þegar á fyrsta stríðsárinu liækkaði ágóði tvö hundruð amerískra fyrirtækja um 50.000.000.000.00 kr. Qg allt var þetta gert með gildri hlut- deild íslendinga til þess að varðveita heimsfriðinm! EINN hrærigrautur mótsagna — þannig er amerískur áróð- ur. Stundum er atómsprengj- an lofsungin sem trygging friðarins. Stundum eru gerð- ar áætlanir um kjarnorku- árásir á rússneskar borgir. Stundum er sagt að Rússarnir komi á morgun. Stundum er fullyrt að ekkert bendi til þess að þeir óski stríðs. Og þannig endalaust. —i Þeíta er gert til þess að rugla fólk í ríminu, unz það hættir að taka mark á nokkr- um sköpuðum hlut og gefst upp við að hugsa. En jafnan er séð svo um að sá skamint- urinn sem skelfingu vekur sé fyrirferðarmestur og hávær- astur. Þannig er því haldið ringluðu og liræddu til þess að það verði fasismanum því auðveldari bráð. Síðan er þessi hrærigraut- ur blekkinganna kallaður frelsi: hugsanafrelsi, ■ mál- frelsi, ritfrelsi, andlegt aðals- merki hinna frjálsu þjóða og ég veit ekki hvað og hvað. Og allt er þetta frelsi ástund- að vegna mannréttindanna: það eru vissulega ængin smá- vegis réttindi fyrir eitt ein- ' asta mannlegt fyrirtæki að mega sópa að sér yfir tvö hundruð og fimmtíu milljóna króna aukagróða á einu ári vegna ,,hæfilegra“ manndrápa ■ austur í Kóreu. Það er ekki að furða þótt íslenzkum dóms- málaráðherra og méðspilurum hans elni trúin á slíkt frelsi og slílc mannréttindi á vegum „okkar voldugu nágranna“ og vilji tengjast þeim sem fast- ast. En illa þekki ég íslenzkt al- þýðufólk ef það er ginkeypt fyrir „heimsfriði" sem grund- vallast á þvílíkum forsendimi. Of lengi liefur það barizt við Hörmangara og Bessastaða- vald, of lengi leitað þess er „sannara reynist" til þess að ljá falskenningum eyra. — „Heyra má ég boðskap erki- biskups, en ráðinn er ég í að hafa hann að engu“. Jóhannes úr Kötlum. <?2 Leiðbeiningar um jólatré Vilji menn láta jólatré halda barri sínu sem lengst má fylgja eftirfarandi- ráðum: Strax og trén eru tekin heim ■skal stofninn settur í vatnsker, föfu eða stamp, og skal tréð lát- ið standa í vatni allan tímann til jóla. Ef tíð er frostlaus eða frost litil skulu trén gevmd úti á mjög skýldum stað. Næðingar fara mjög illa með barrið. Komi frost- hörkur skulu þau tekin inn og höfð á köldum stað. Meðan þau standa inni ættj að ýra þau tvisvar á dag, þannig að barrið haldist sem allra rakast. Strax og dregur úr frosti skulu trén flutt út áftur. Trén á ekki að taka inn fyrr en síðari hluta aðfangadags. Til eru jólatrésfætur með skál, þar sem unnt er að láta stofn- inn standa í vatni. Slíkir íætur eru mesta þarfaþing, og sé þess gætt að vatnið gúfi aldrei upp, halda trén barrinu langtum leng- ur en ella. Ennfremur verða trén siður eldfim, og er það • kostur, ef kerti eru notuð. L^yjKmYnDiR Austurbæ jarbíó: HÆGLÁTI MAÐURINN (Amerísk) Heldur er sjaldgæft, að ,ame- riskar gamanmyndir séu skemmti legar að marki, en þó eru til undantekningar sem sanna þó aðeins regluna: Gamanmyndir John Ford. Um daginn sýndi Nýja bíó mynd eftir hann all- sæmilega. Þessi kvikmynd er nærri því jafn betri og snýst mest um það, að menn skuli lifa í friði og er nýtt að heyra þann boðskap að westan. Það kom líka flatt upp á mig að sjá John Wayne (kúrekakappa og striðsmann) leika friðsaman mánn og óáleitinn að fyrra bragði og er illt að hann skuli ekki hafa lagt þau hlutverk meira fyrir sig til.þessa. Annars er samningamaðurinn Mike (Barry Fitzgerald) skemmti legastur. . Hann er orðheppinn með afbrigðum að vanda. Kvikmyndin er allgóð og eru margar fallegar landslagssenur í þessari kvikmynd, enda er ír land grænt land svo að annálað er. Mætti ég biðia um fleiri mvnd- ir eftir Ford. Örn. Regnkápur Margar stærðir — Margir litir ARKAÐURi Laugaveg 100 „ÍKfl —i IÐJA, Lækjargötu 10 S gerðir al vönduðum rvksugum. Bánvélar, strauvélas eg kæli- skápar með hagkvæmum * greiðsiuskilmáium. Lampar og Ijósakrónur 9 J A, Lækjargötu 10 Bæjarpósturinn Framhald af 4. siðu. á aldrinum 5—10 ára, og finnst þau eiga kröfu á föstum dag' skrárlið fyrir sig eingöngu, að minnsta kosti einu sinni í viku, Þe^sa þætti eiga' Þ.eir einir að anriast sem Jiekkja hugsana- gang barna á þessu aldurs- skeiði. kenparar éða aðrir (sem einhverja uppeldisþekkingu hafa — en svo ósklljanleg’a sjaldan eru látnir annast barnatíma útvarpsins. — M J. B.“ CG SVO ER hér nokkur orð um þakrennurnar. Það kemur ekki svo dropi úr lofti, að fólk sem leggur leið.sína um Laugaveg- Inn'"t. d. kvarti ekki sáran yf'r biluðum þakrennum, sem senda viðbjóðslegar vatnsgúsur yfir höfuð saklausra vegfar- enda. Bleytan .af sjálfri rign ingunni er hátíð hjá þessu steypibaði, og ef húseigendur - sjá ekki sóma sinn í að láta ger.a við Þessar biluðu þak rennur sínar, hlýtur að reka að því að lögreglustjóri lát málið til sín tako. °°uR is$- um Sigfús Sigurhjartarson. Minningarkortin eru til sölu í skrifstofu Sósíalistaflokks-■ ins, Þórsgötu 1; afgreiðslu Þjóðviljans; Bókabúð Kron Bókabúð Máls og menningar, ■ , Skólavörðustíg .21; og , Bókaverzlun Þorvaldar .Bjarnasonar í Hafnarfirði. Mikið úrval af allskonar. vorum, eins og t.d.: Fyrir telpur: Jólakjólar frá kr. 80.00 Telpuhattar — 96.00 Skíöabuxur — 155.00 Snjóbuxur — 60.00 Sportsokkar — 10.00 Náttsamféstingar — 44.50 Skjört m. blúndu— 22.00 Undirbuxur — 9.50 Undirbuxur, niisl.— 12.00 Nærföt i úrvali o. m. fl. T9LÉD0 Fischcrsundi. Sími 4891. Oi’ðgending til foreldra lóffihók c-kkar hasida bömism ©g imglingum er h(»nin Húnheitii: Falinn fjársjóður efiir ármaim Kr. Einarsson Foreldrar og aðrir vinir barnanna! Gefið börnunum þessa skemmtilegu og góöu bók í jólagjöf, hún fæst í öllum bókaverzlunum um land allt. Bókin er prýdd mörgum ágætum teikningum eftir Odd Björnsson. Og kost- ' ar hún aöeins kr. 30.00 í smekklegu og sterku bandi. Békaíorlag Odds Björnssonar ffiö ÍU Of> Wi fnö5tni| . 'i..A - ipiicK- og skemmtik' lieldur félagið n.k. sunnudag klukkan 8.30 í samkomusalnurn að Laugaveg 162 Fiutt-vorður stntt ávarp SpikS verður iélagsvist, kaaasta og briáge Karl Gaðmunáss©!!, leikari, Ses npp Óskað er eftir að menn hafi með sér spil. stofu féjagsins, Þórsgötu 1. sími 7511. Aðgöngumiðar afhentir í skrif- Skeirnntinelndin

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.