Þjóðviljinn - 15.01.1954, Side 6

Þjóðviljinn - 15.01.1954, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 15. janúar 1954 Útgefandi: Samelningarflokkur alþýðu — Sósíallstaflokkurinn. ■ Rítstjórar: Magnús Kjartansson (á.b.), SigurSur Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benedikt8Son, Guð- mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Kitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig ; 19. — Sími 7500 (3 línur). Askríftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 1T annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans hi. ________________________I___I______________:__________✓ p Yfirlýsing Bárðar Efsti maður á lista Þjóðvarnarflokksins, Bárður Daní- elsson, sem er einn af starfsmönnum Stefáns Jóhanns í Brunabótafélaginu, lætur ljós sitt skína um húsnæðis- r/iál Reykjavíkur í Frjálsri þjóð í gær. Hefur hann að vonum fátt nýtt til þeirra mála að leggja og byggir skrif sín að mestu eða öllu leyti á því sem sósíalistar hafa sagt og skrifað um þetta mikla vandamál almennings á und- snfömum árum. Starfsmaður Stefáns Jóhanns- getur þó ekki sparað sér að varpa hnjóðsyrðum aö sósíalistum og þeirri harð- vítugu baráttu sem þeir hafa háð innan bæjarstjórnar Reykjavíkur fyrir úrbótum á húsnæðisástandinu. Leggst bárður svo lágt að japla á þeim margtuggna íhaldsáróðri &ð rökstuddar tillögur sósíalista um að bærinn byggi mannsæmandi íbúðir yfir herskálabúana séu aöeins „á- íerðarfallegar sýndartillögur". En þetta hafa frá fyrstu tíð verið einu „rök“ íhaldsins þegar það hefur verið að drepa tillögur sósíalista um raunhæft átak af bæjarins hálfu í byggingamálunum. Eftir þessi skrif efsta manns Þjóðvarnarlistans liggur það alveg ljóst fyrir hver afstaða hans hefði orðið í raun í þeim átökum sem fram hafa farið um húsnæðismálin innan bæjarstjórnar Reykjavíkur á síðasta kjörtímabili. Bárður Daníelsson hefði staðið með íhaldinu og veitt því aðstoð til að hunza kröfur húsnæðisleysingjanna og alls þess fólks sem býr í herskálum og öðrum heilsuspillandi húsnæði. Því varla veröur manninum ætlað sú afstaða aö iylgja tillögum sem hann lýsir eins og að fra'man greinir. Erindi Bárðar í bæjarstjórn er því augljóst. Hann yrði þar liðsmaður sinna gömlu kennara úr stjórnmálaskóla Heimdalíar, Gunnars Thoroddsen og Jóhanns Hafsteins. Hefur Bárður með grein sinni upplýst almenning um aö hann hefur ekkert lært og engu gleymt síðan hann sat við fótskör þessara meistara í stjómmálafræðum íhalds- ins. Engin lieil brú Um áramótin síðustu skrifaði Hannibal Valdimarsson grein í AlþýÖublaðið sem bar yfirskriftina: Allir andstæð- ingar íhaldsins snúi bökum saman. Nú fyrir skömmu er það upplýst að Hannibal hefur gengið á fund flokksforustu íhaldsins í Holstein og faiið þess á leit að fá liðsinni þess til klofningsframboðs gegn, einingarstjórn verkamanna í Dagsbrún. Uröu forsprakk- ar íhaldsins vel við liðsbón Hannibals og leggur þessi fríða fylking fram sameiginlegan lista við stjórnarkjör í félaginu. Það virðast þannig álög á Hannibal að engin heil brú íinnist í skrifum hans og athöfnum. Stefnulaust og mark- laust glamur þar sem eitt rekur sig á annars horn í orð- um og athöfnum er einkennið á formannsferli hans í Al- þýðuflokknum. Þessi ógæfulega framkoma formannsins er þess valdandi að heiðarlegt og alvarlega hugsandi al-. þýðufólk yfirgefur nú Alþýðuflokkinn í stríðum straum- um og neitar að fylgja flokksforustunni á feigðarbraut i h aldsþ j ónustunnar. „Tákti Harspllhjálparisinar* Morgunblaðið er að vonum meinilla við að vakin sé at- hygli á þeirri tegund fjármálavizku sem lýsir sér í kaup- unum á Hæringi. En 1 þetta íyrirtæki Jóhanns Hafsteins liefuh verið varið 18 millj króna og sjá nú allir hver endir þess verður. Bær og ríki hljóta skellinn og verða að standa undir kostnaðinum aí' þessu furðulega ævintýri. Kaupin á hinum hálfrar aldar gamla ryðdalli er einlc- ar táknræn' fyrir vinnubrögð fulltrúa braskarastéttar- ínnar. Hitt verður svo Morgunblaðið að sakast um við aðra en andstæðinga íhaldsins að þetta óskabarn þess og ,.tákn Marsjallhjálparinnar“ varð til þess að minna á af- glöpin með nokkuð óvenjulegum hætti þegar skammt var til þess uppgjörs við íhaldsóstjórnina sem fram fer í komandi bæjarstjómarkosningum. Þorvaldur Þórarinsson: Leggjum íhaidið að velli Avarp flutt á sameig- inlegum fundi sósíal- istafélaganna í Reykja- vík, miðvikudaginn 13. jan. 1954 Góðir félagsmenn og ’gestir: Við göngom til bæjarstjórn- askosninga í lok þessa mánað- ar. Nú j fyrsta sinn um langan aldur er íhaldið í svo vonlaus- um minnihluta í borgvnni að sýnast mætti leikur elnn að fella hað. Á flokki okkar, sem hefur barizt við Það í návigi í hálfan annan áratug, hvílir sú siðferði'ega og sögulega skylda að leggja það að velli. En í- haldið mun revna að klóra í bakkann, það gefst ekki app baráttulaust,* nú á þuð að verja sitt sterkasta vígi, virki s\-æsn- asta auðvaldsins, ósvífnasta at-- vinnurekendavnldsins Það mun einskis svífast til að bslda völdum. Það mun ekki sízt reyna að nota á ýmsan hátt og eftir getu það aðstoðaríhald sem það hefur komið sér upp í öðrum f'okkum, sem kenna sig við alþýðuna. Þess vegna mun það kosta flokk okkar mik.ið og samstillt átak að koma því á kné. íhaldið mun ekki spara fé og blaðakost til að reyna að villa fólki sýn og ginna það til fylgis við sig, jafnve’*. andstæðinga siua, ým- ist með í'agurgala, rógi eða falsrökum. Gegn fjármagni þess og falsi teflum við hug- sjón okkar og málstað, þreki okkar, tíma og heilindum. Og einmitt í þessu eru fólgnir yfir- burðir okkar sem flokks. Flokkur okkar er ekk, sam- safn þreyttra og vondaufra e:g- inhagsmunamanna eða ráð- þrota borgara, heldur frjáls_ samtök fólks sem er vígt hinni jákvæðu stefnu sósía’isma og sameignar, þeirri hugsjón að gera að veruleika fjárhagslegt og þjóðfélagslegt frelsi verka- lýðsstéttarinnar og annars vinn- andi fólks. Bezta vopn okkar, og sá torandur sem jafnan bítur, þótt önnur dugi allvel til varnar, er hin sósíalistiska stéttabar- átta verka'ýðsins — sú barátta sem hefur að markmiði sjálfa valdatöku alþýðunnar. Sam- einingarílokkur alþýðu var stofnaður til að sameina hið vinnandi fólk, gefa því þrótt einingarinnar, fá því í hendur hið hárbeitta vopn stéttabarátt- unnar Baráttan við auðvaldið, hollustan við málstað alþýð- unnar, hefur gert flokk okkar að stórveldi í þjóðlífinu. Jafn- vel andstæðingar okkar játa íúslega í einkaviðtöium að ekkj væri ’líft j landinu ef sósíalista hefði ekki notið við, dug'nað- ar þeirra, þreks og bjartsýni, en allir viðurkenna að verka- lýðsstéttin undir forustu okk- ar hafi á margan hátt staðið strauminn af öðrum stéttum. ekki sízt opinberum starfs- mönnum og öðrum sem er tor- velt eða ókleift að heyja sjá'f- stæða kaupgjaldsbaráttu. Það væri ótímabær hlé- drægni að benda ekki jafnan á þetta, þegar pólitískir upp- skafningar -ætla að fara að sundra verka’-ýðnum með Því að eigna sér árangurinn af starfi okkar. Fleira Þarf að hafa í huga, en þó fyrst og fremst þetta: Sigur C-listans er eins og all- Ur annar árangur í starfi okk- ar kominn undir vinnu okkar sem erum óbreyttir liðsmenn í hinu daglega starfi. Viðmegum ekki í því eíni treysta um of á fu’ltrúaefni okkar. Þeim er ætlað annað verkefni. Okkar hlutverk núna er að veita þeim brautargengi og tryggja þeim kosningu. Og hér er rétt að benda á þann djúptæka mun sem er á fulltrúaefnum okkar og íhaldsins. Frambjóðendur okkar eru allir úr hópi alþýðu og vinnandi stétta þjóðfélags- ins. Þeir eru ekki í kjöri til að efla persónulegt gengi, fjár- hag sinn eða frama. Á þá verður ’agt mikið og erfitt starf. Því fylgja engin önnur Þorvaldur Þórarinsson. fríðindi cða forréttindi en Þau að mega vinna af alhug að hagsmuna- og réttindamálum alþýðunnar. Fulltrúaefni í- halds:ns eru valin af peninga- klíkum og auðfyrirtækjum. Þeirra sjónarmið er Það eitt .að reyna að spoma við kröfum almennings. Hjá öðrum flokk- um og flókksbrotum gsetir hé- góm'egs metnaðar, klíkusk^par og valdastreitu Það er skvlda flokks okkar og alþýðunnar allrar að setja markið nógu hátt í þessum kosningiun, og vinna síðan að því af alhng. Andstæðingar okkar og hinir efablöndnu mega gjarnan kalla stéfnumál okkar skýjaborgir eða heila- spuna. Svarið við s.líku níði og svartsýni liggur sjálfkráfa á vörum hvers einasta vinnandi manns. Það hafa alltaf verið kallaðar óframkvæfnanlegar skýjaborgir að ætla sér að N. vinna að bættum kjörum a'- þýðunnar. Þá er alltaf við- kvæðið að fé skorti. Svar ílokky* okkar hefur alltaf ver- ið á’eina lund: réttur og hag- sæld alþýðunnar er eina boð- orð olckar og hið æðsta raun- sæj. Hinn 12. des. s.l. 'birti stjórn Sósíalistafélags Reykjavikur á- varp til Reykvíkinga. Þar var m. a. 'ýst yfir þvj að við vær- um fúsir til samstarfs við aðra andstöðuflokka ílialdsins um lausu helztu vandamála bæjar- félagsins. Svar hefur ekki bor- izt frá neinum þeirra, en þeir hafa allir fyrír löngu birt sér- staka framboðslista. Um sam- v’.nnu fvrir kosningar. verður því ekki að ræða En þá spyrja menn með réttu, hvað tekur við eftir kosningar? Þessu þurfúm við að isvara þeim sem spyrja. Þessir flokkar virð- ast meta meira í bi’i ímynduð metorð foringja sinna en dug- andi sameiginlegar aðgerðir gegn íhaldinu. Og sumir sem aldrei hafa hreyft hönd eða fót í neinni baráttu láta ber- um orðum í það skína að þeir séu upp yfir það hafnir að hafa samvinnu við okkur sem höfum leyft okkur að efast um almætti íhaldsins og barizt gegn þv’í. Ekki skal eytt 'dýr- mætum tíma í að rseða þvílíka ósvinnu. Almenning í bænum vantar ekki pólitískar grát- konuc^ á borð við þesskonar „foringja“ sem setja smávægi- ’eg aukaatriði, eins og nafn borgarstjórans, ofar máléfna- legri baráttu, en hafa ekki djörfung til að ganga í ber- högg v ð íhaldið. Fyrst l>arf að snúa sér að því að felía fhaldið. Sú skylda er lögð okkur sosíalistum á herð- ar og öórum stéttvísum verka- lýð og mil’istéttum. Og þegar íhaldið er falíið verður að stjóma bænum með hagsmuni almennings fyrir augum, Þá skiptir stefnan ináli, en ekki hvað þeir menn heita sem framkvæma hana. En það Þarf ekki að verða neinn „glund- roði“. í þjónustu bæjarfélags- ins og ýmissa stofnana þess er nú mikið af ágætisfólki sem hefUr mestan hug á að bærinn fái heilbrigða og rétt'.áta stjórn- arfprustu. ■ Aðrir starfsmenn ‘bæjar.ins, sem hafa ’agt í vana sinn að sleikja skó áfturhaids- ins, munu án efa kjósa sér næði til að gera skrá yfir e.ig- ur sinar, þegar í.haldið er fall- ið. Það er sennilega engin eft- irsjón í þeim. Hér ganga að flestum verkum á sjó og landi menn af öllum flokkum sam- anl það ve’.dur engum glund- roða. Erlendis þekkist hvorki „Sjálfstæðisfiokkur" né Gunn- ar Thóroddsen. Ekki ber á að þar ríki neinn glundroði vegna þess; þaðan af síður sorg. Okkur sósíalistum er hvert tækifæri kærkomiQ t;l þess að leggja til' atlögu við íhaldið. Að vísu er það í vonlausuni minnjh.'.ufa í bænum, ’en þvi hefur enn heppnazt að ’.afa við völd' í bæjarstjórn. Og meðan það héfur slíka aðstöðu gerir Það bæiarfélagið og Stofnanir þess, sem eru ein- hver stærsti atvinnurekandi alls landsins, að handbendi at- vS.h.nurékend’áválds’ins; Thórs- arak'úkan, sem vill ekki stunda sjávarútgerð, fær að notá hina mörgu tog.ara bæ.iarútger'ðar- innar eins og barefli á sjómenn og ráðstafa afla þeirra að vi'.d sinni. Á meðan slík samsæris- klíka er einráð i atvinnulífi toæjarins mun enn haldast það ranglæti, að stúlkan sem vinn- ur daglangt sama verk við sama borð og gæðingur for- Framhald á 11, síðu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.