Þjóðviljinn - 01.04.1954, Blaðsíða 1
VILJINN
Fimmtiidagur 1. april 1S)54 — 19. árgangur — ~6. tölublað
Samþykkt breytingatillagita sósíaiista við skatta-
frumvarpið tryfgði alþýðufólki miklar hagsbætur
Lágtekjumenn skattfr'iálsir - Hœkkun perrsónufrádráttar
- Veruleg skattfriÓindi sjómanna - Sérsköttun giftra
kvenna - NiÓurfelling 20% eftirgjafarinnar til auSfélaga
MeÖ breytingartillögum þingmanna sósíalista viö
skattafrumvarp ríkisstjórnariimar væri bætt úr því rang-
læti að halda sköttum óbreyttum á einstaklingum meö
lágar tekjur en gefa um leið öllum auöfélögum landsins
20 % lækkun á tekjuskatti, tekjuskattsviðaulca og stríös-
gróðaskatti.
Leggja sósíalistar til, aö séu skattskyldar tekjur ein-
staklinga eða hjóna lægri en 20 þús. kr. greiöist enginn
skattur. í breytingatillögunum eru mikilvæg ákvæöi um
skattfríöindi sjómanna, hækkun persónufrádráttar og
íleiri atriði til hagsbóta fyrir alþyóu. Lagt er til aö felld
sé niöur 20% eftirgjöfin til auöfélaga landsins.
Lágtekjumenn skattfrjálsir.
Lúðvík Jósefsson, Gunnar Jó-
hansson og Karl Guðjónsson
flytja þær breytingartillögur við
greinarnar um skattstigana að
„ef skattskyldar tekjur eru undir
20 þús. kr. gxeiðist enginn skatt-
ur“. Er tillagan bæði um breyt-
ingu á skattgjaldi einstaklinga
og skattgjaldi hjóna.
llækkun persónufrádráttar
Sömu þingmenn ieggja til að
persónufrádrátturinn Juekki
þannig, að hann verði 7500 kr.
fyrir einstakling, 15 þús. kr. fyr-
ir hjón (7500 kr. fyrir hvort), og
5000 kr. fyrir hvert barn.
Þeir Lúðvík, Gunnar og Karl
flytja ennfremur þá breyting-
artillögu að frá skattskyldum
tekjum megi draga „fæðiskostn-
að verkafólks, sem vinmir utan
heimiiissveitar“, og einnig að
heimild giftrar konu, eða ein-
stæðrar móður sem vinnur utan-
heimilis, til að draga hluta af
tekjum sinum frá skattskyldum
tekjum, sé ekki bundin því skil-
yrði að greidd sé heimilisaðstoð.
Þá flytja Karl, Sigurður
Guðnason og Gunnar þá tillögu
að draga megi frá skattskyldum
tekjum kaup verkafólks fyrir eft-
ir-, nætur- og helgidagavinnu
nema eins og greitt hefði verið
fyrir dagvinnu.
Verðlækkun
í Sovétrikjunum
Benzín lækkar nær
um helminq
Skýrt var frá því í útvarpi
frá Moskva í gærkvöldi að
í dag komi til framkvæmda
verðlækkun á matvælum og
öðrum neyzluvarningi í Sovét-
ríkjunum.
Mest er verðlækkunin á
benzíni, 44,5%. Brauð lækkar
um 5% og önnur matvæli,
vefnaðarvara, fatnaður og
búsáhöld um 5 til 20%.
Verð á neyzluvarningi hef-
ur verið lækkað í Sovétríkj-
unum á hverju vori siðan
1947.
Skattfríðindi sjómanna
Lúðvík, Karl og Gunnar flytja
þessa breytingartillögu um skatt-
fríðindi sjómanna.
„Við ákvörðun á skatt-
skylduni tekjum íslenzkra sjó-
manna á fiskiskipum skal
telja Vu hluta þess kaups,
sem þeir hafa aflað sem sjó
menn á islenzku fiskiskipi,
sem skattfrjálsan kauphluta.
Atviimurekendur skulu við
uppgjöf á atvinnutekjum tii
skattayfirvalda tilgreina,
hvort nokkur hluti tekna telst
sjómannstekjur samkv. 1.
málsgr.“
Sérsköttun giftra kvcnna
Karl Guðjónsson flytur þessa
breytingartillögu:
Nær 6000 kr. nmnur á tillögu |
Lúðvíks og stjórnariimar
Samkvæmt frumvarpi rlkisstjórnarinnar
mundi einhleypur sjómaður sem liefur 50
þús. kr. tekjur greiða ............ kr. 2220,00
Samkvæmt útsvarsreglum i Reykjavík s.l.
ár mundi þessi mað'ur greiða....... kr. 5930,00
Stórorusta
um Dien-
bienphu <
Franska herstjórnin í Indö
Kína skýrði frá því i gær að í
fyrrakvöld hefði lið sjálfstæðis-
hreyfingarimiar Viet Minh lagt
til atlögu gegn franska setulið-
inu í virkisborginni Dienbienphu.
Barizt var í alla fyrrinótt og
allan gærdag og veitti ýmsum
betur. Frakkar bjuggust við að
orustan myndi ná hámarki í nótt.
Fyrsll signr
Smisloffs
í gær lauk í Moskva sjöundu
skákinni í keppni Botvinniks og
Smisloffs um heimsmeistaratign-
ina. Smisloff vann skákina og er
það fyrsti sigur hans í keppn-
inni. Hann liefur nú 2*4 vinn-
ing en Botvimiik 4*4.
Samtals kr. 8150,00
Ef þessi sjómaður, hefði notið skattlilunn-
inda samkvæmt frumvarpi Lúðvíks Jóseps-
sonar og útsvars að sa.ma hliuta, þá hefði
hann greitt í skatt ....................... kr, 780,00
og í útsvar................................ kr. 1530,00
eða samtals kr. 2310,00
Lækkun alls kr. 5.840,00 eða sem jafngtldir 11,6%
launahækkun.
„Nú óskar gift kona, sem hef-
ur sjálfstæðar atvinnutekjur, að
telja fram sem sérstakor skatt-
þegn, og skal það þá leyft og
skattur hjónanna reiknaður sem
tveggja einstaklinga. Persónu-
frádráttur skylduómaga slíkra
hjóna skiptist að jöfnu.“
Tillagan um að 20% skatta-
eftirgjöfin til félaga sé felld nið-
ur úr frumvarpinu er flutt af
þeim Lúðvík, Gunnari og Karli.
Verður fróðlegt að sjá afstöðu
þingmanna til þessara gagn-
merku tillagna þingmanna
Sósíalistaflokksins.
Atkvæðagreiðsla *um breyting-
artillögurnar fer fram í dag.
LANIEL
JUIN
Juin býður
Laniel byrginn
Hené Cpty, forseti Frakk-
lands, kallaði rikisstjómina
saman á skyndifund klukkan
hálf tólf í nótt. Fundarefnið
er yfirlýsing Juin raarskálks,
foringja laudhers A-banda-
lagsins í Mið-Evrópu, að hann
sé andvígur fyrirhugnðum
Vestur-Evrópuher.
Laniel forseti hafði boðað
Juin á fund sinn i gær til að
standa íyrir máli sínu en.
marskálkurinn mætti ekki.
Bandaríkin aðili að Evrópubandalagi
eða Sovétríkin að A-bandalaginu
Sorétstjórnin tehur Vesinrreidin á orðinu
Fjaörafok mikió varö í liöfuöborgum Vesturveldanna
í gærkvöld þegar fregnaöist um efni orösendingar, sem
Molotoff, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, haföi afhent
sendiherrum Vesturveldanna í Moskva fyrr um daginn.
Orösendingin veröur ekki birt í heild fyrr en í dag en
lausafréttir herma að hún kollvarpi mótbárum stjórna
Vesturveldanna gegn tillögunni um öryggisbandalag allra
Evrópuríkja.
Molotoff bar þessa tillögm
fram á Berlinarfundi fjón-eld-
anna í janúar og febrúar.
Ekkert til fyrirstöðu.
Að sög'ii talsrnanns franska
uta nríkisráðune j-tisins segir
sovétstjómin i orðsendingunni
að það luifi komið í ljós í um-
ræðimum á Berlmarfundinum
að ekJært ætii að vera því til
fyrirstöðu að Bamlarjkin verði
iullgildur aðili að öryggis-
bamlalagi allra Evrópuríkja.
Á Berlínarfundinum lagöi
Molotoff til að Bandaríkin
seridu ásamt Kína áheyrnar-
fulltrúa á fundi Evrópubanda-
lagsins, ef stöfnáð yrði. Utan-
ríkisráðherrar Vesturveldanna
sögðu að þetta sýndi að til-
gangur Molotoffs með tillög-
mini væri að bola Baudaríkjun-
um burt úr Evrópu svo að
Sovétrikin gætu drottnað yfir
aliri álfunni.
Til að trygg.ja varnareðii
bandalagsins.
Flnnfremur var skvrt frá
því í París að í orðsendingunni
sé lýst yfir að sovétstjórnin sé
fús tii að ræða við hluíaðfeíg-
andi ríkisst.jórnir inngöugu Sov
élTÍlcjanna í Atlanzhafsþanda-
lagið. Þar með væri ti*yggt
það varnarieðli bandalagsins
sem Vesturveldin hafi alltaf
haldið fram.
Skilyrði fyrir þvi að sovét-
stjórin ræði aðild að A-banda-
lagi.nu er að sögn að hætt
verði vi'ð að hervæða Vestur-
Þýzkaland innan fyrirhugaðs
Vestur-Evrópuhers.
Velnissprengjan og
stríðsliætta.
Franska utanríkisráðuneytið
segir að oi'ðsending sovét-
stjórnarinnar sé löng og komi
víða við. Þar sé meðal annars
rætt um vetnissprengjuna og
almenna afvopnun. Rætt er um
þær skelfingar sem fylgja
mj-ndu styrjöld ei.ns og nú er
komið vopnabúnaði og áherzla
lögð á. að stórveldin verði að
vinna saman að því að tryggja
frið.
Allt koinst á tjá og tundur.
Fréttaritarar í höfuðborgvmt
Vesturveldanna segja að i utan
ríkisráðuneytunum þar hafi
allt komizt á tjá og tundur
þegar or'ðsending sovétstjóm-
arinnar barst. Menn hafi verið
því algerlega óviðbúnir að sov-
étstjórnin gengi svo langt til
móts við sjónarmið Vestur-
veldanna;
Verðiækkunum
fagnað með dansi
Dansað var á götunum i Praha
í fyrrakvöld vegna þess að áð-
ur um daginn hafði rikisstjóm
Tékkóslóvakiu tilkynnt verð-
lækkun á ýmsum neyzluvarningi.
Siroky forsætisráðherra sagði í
útvarpsræðu að verðlækkunin
væri framkvæmanleg vegna þess
hve framleiðslan hefði aukizt.
Kennarar og nemendur
við æðri skóla í París gerðu
vcrkfall í gær. Nemendumir
fóru x kröfugöngu þúsundum
saman til að krefjast hærri
námsstyrkja og bættra starfs-
skilyrða.