Þjóðviljinn - 09.04.1954, Blaðsíða 8
£) — I>JÓÐVILJINN — Föstudagur 9. apríl 1954
Réfrtindabarátta kvenna
Fraraliald af 6. síðu.
kvenna í borgunum, brást ekki,
að á eftir kom þessi setning: —
„Þó eiga sveitakonurnar við
enn verri kjör að búa.-----
í Indlandi, íran, Tyrklandi,
Egyptalandi og fleiri löridum
býr meirihluti kvenna landsins
í sveitunum. Víða er högum
bænda þannig háttað, að ekki
er hægt að líkja við neitt ann-
að en þrældóm. Þar vinnur öll
fjölskyldan á ekrum stóreigna-
mannsins til þess að hafa fyrir
sköttum og afborgunum og ef
það hrekkur ekki til, sem oft
vill verða, þá eru börnin og
konan tekin upp í skuldina.
Fyrirkomulagið á launa-
greiðslum í þessum löndum
þar sem vinna konunnar og
barnanna reiknast aðeins sem
uppbót á vinnu húsbóndans,
verður þess valdandi að fólkið,
konur jafnt sem karlar, komast
aldrei undan þrældómsokinu
og börnin fæðast og alast upp
lil þess að taka við því.
★
Misskipting mannréttinda eft
ir kynjum og litarfari hefur að
sjólfsögðu fleiri hliðar en
Jaunahliðina eina saman, en ég
tel engum blöðum um það að
fletta, að sú hliðin er lang
veigamest og hefur víðtækust
áhrif, því fjórhagsgrundvöllur-
inn er undirstaða undir allt
sjólfstæði og sá, sem ekki á
völ á öðru en lélega launaðri
aívinnu, við slæm vinnuskilyrði
og takmarkaða möguleika á
hækkun í stöðu eða launum,
hann á í svo erfiðri lifsbaráttu
að allt viðhorf hans til Lifsins
hlýtur að mótast af því.
Eitt gleggsta dæmið er af-
staða kvenna til menntunar, í
þeim löndum, þar sem hluti
þjóðarinnar er ennþá ólæs og
■óskrifandi, þar fylla konur
mikinn meirihluta þess hóps,
svo langt gengur það, að í
sumum þessara landa er talið
að 80 til 90% allra kvenna
Jandsins séu ólæsar og óskrif-
andi. — í sumum héruðum
Ítalíu er talið að helmingur
ahra giftra kvenna hafi skrifað
undir giftingarvottorðið sitt
með einhverju merki í stað
nafns síns. — Og hvernig er
svo, ef vér htum nær okkur.
1 Sviss eru stúlkur aðeins 13%
allra háskólastúdenta. í Noregi
«g Belgíu eru þær 16% og víða
rnun ástandið ekki vera betra.
★
Hver er munurinn á því að
greiða svörtum manni helmingi
minna kaup en hvitum manni
<og því að greiða tveim mönnum
"með sama hörundslit mismun-
andi kaup — vegna þess að
annar þeirra er kvenmaður.
Og hver er munurinn á þeirri
staðreynd að konur skipa mik-
inn meirihluta þess hóps, sem
«r ólæs og óskrifandi, í þeim
löndum, er slíkt fyrirfinnst —
•og á því að konur eru að-
«ins lítill hluti þess hóps, er
sækir framhaldsskóla í þeim
Jöndum, sem þær hafa fullkom-
ið lagalegt jafnrétti til slíks
náms ?-------
Hér er aðeins um stigmun
að ræða — meinið er eitt og
hið sama, sjúkdómurinn er að-
eins á misháu stigi.
★
Þegar tækifæri gefst til þess
að fá heildaryfirlit þessara
mála um allan heim, þá fer
bilið á milli hinna svokölluðu
frumstæðari þjóða og þeirra,
er þykjast lengra á veg komn-
ar, að minnka. — Þegar konur
Mongolíu hafa fengið fullt
vinnujafnrétti í framkvæmd en
konur í Sviss hafa- ekki ennþó
kosningarétt — þegar vinnu-
löggjöf Kúbu inniheldur ákvæði
um mæðralaun og sængurlegu
leyfi á meðan ekki örlar á slíku
í hinni fullkomnu tryggingalög-
gjöf íslendinga — er þá ekki
kominn tími til þess fyrir okk-
ur að nema staðar örlitla stund
og athuga hvar við erum stödd?
— Gæti ef til vill svo farið
að við, fyrr en varir stæðum
að baki þeim þjóðum, er við
hingað til svo kurteislega höf-
um kallað „skemmra á veg
komnar"?
★
Konur um allan heim hafa
þegar gert sér ljóst að þær eiga
hlutverki að gegna við bygg-
ingu heilbrigðs þjóðfélags og
þær halda því fram, að framlag
þeirra myndi aukast að verð-
mæti ef þær nytu fullkomins
jafnréttis, þær krefjast póli-
tískra, fjárhagslegra og þjóð-
félagslegra réttinda og þær eru
ákveðnar i því að berjast fyrir
þessum sjálfsögðu mannréttind.
um. Og það er þessvegna, að
við minnumst 8. marz í dag, í
öruggri vissu um það, að kon-
urnar, sem í sumar yfirstigu
alla erfiðleika til þess að geta
rekið erindi þeirra er sendu
þær, þær munu halda barátt-
unni áfram ásamt milljónunum,
sem að baki þeim stóðu — Ég
sendi þér kort á jólunum, ef
ég verð ekki í fangelsi — —
sagði ein þeirra við vinkonu
sína hinu megin af hnettinum —
og jólakortið kom, — en jafn-
vel þótt hún verði sett í fang-
elsi og aðrar falli frá, þá munu
ætíð verða nýjar til að taka
upp merkið, þar sem frá var
horfið unz takmarkinu er náð
----— heimi, þar sem jöfn skipti
mannréttirida tryggja frið og
öryggi.
4" ÍÞRÓTT
RlTSTJÓRl. FRtMANN HELGASON
Arne Mnel sigraSi í stöhhi á
Moimenhollenmótinu
Það gekk ekki vel að koma
þessu fræga atökkmóti í kring.
Tvisvar á&ur hafði stökkið
verið auglýst og fjöldi manns
lcom til keppninnar báða dag-
ana en í bæði skiptin varð að
aflýsa keppninni vegna óhag-
stæðs veðurs. En Holmenkollen
stökkmót varð að fara fram.
1 þri&ja sinn er auglýst stökk
á Holmenkollen. Fólkið var nú
oiðið vantrúað, og það hafði
ekki lengur trú á veðurstof-
! unni sem sagói að þaá mundi
1 birti til um hádegi, og það
• merkilega skeði, sögðu norsk
blöð, að spádómur veöurstof-
unnar rættist! Þá var það of
seint fyrir fólk að fara. Þeir
sem komu uríu ekki fyrir von-
brigðum. Þeir sáu skemmti-
lega keppni. Veðrið var þó ekki
sem bezt, sterkir vindsveipir
trufluðu stökkvarana ef þeir
le.ntu í sveipunum. Þannig
nokkur tilviljun hvernig hverj-
um og einum gekk.
Dulles
Framhald af 12. síðu.
Þær telji báðar að sameiginleg
yfirlýsing eins og sú sem
Bandaríkin vilja að sé gefin
feii í sér alvarlega hættu á að
stríðið í Indó Kína breiðist út,
en auk þess mundi fyrirfram
spillt fyrir því, að nokkur ár-
angur náist á Genfarfundinum.
Brezka stjórnin sat á óvenju
löngum fundi í gær og Eden ut-
auríkisráðherra átti langan
fund með sendimönnum Ástr-
alíu og Nýja Sjálands í London.
Blöðin sammála.
Stríðshótun Bandaríkjanna
gegn Kína var enn aðalumræðu-
efni heimsblaðanna í gær.
Brezku og frönsku blöðin eru
sammála vun að fordæma hana.
Aðalmálgagn brezka Verka-
mannaflokksins spyr þannig,
hvaða vit sé í því að ganga
að samningsborðinu með hót-
anir á vörum.
Eiiuiig annars staðar.
Utanríkismálanefnd neðri
deildar Filippseyjaþings beindi
í gær þeim tilmælum til stjórn-
arinnar, að hún skoðaði hug
sinn vel, áður en hún svaraði
orðsendingu Bandaríkjanna og
gerði sér ljóst þá hættu, sem
hún fæli i sér.
Evatt, leiðtogi ástralska
Verkamannaflokksins, hefur
þegar lýst yfir andstöðu sinni
við bandarísku tillöguna, og í
gær tók Nash, leiðtogi Verka-
mannaflokks Nýja Sjálands, í
sama streng í þingræðu.
Þátt tóku í stökkinu tveir
Finnar, fjórir Svíar og tveir
Þjóðverjar. Voru Norðmennirnir
alls ráðandi. Arne Hoel vann
stökkið, átti 2 lengstu stökk-
in 67,5 og 70 m. og í stíl
hafði hann 17 5—18. Arne
Hoel hefur ekki látið mikið að
Ávarp til íþróttamanna
Þegar íslenzkar getraimir
hófu starfsemi sína, voru
miklar vonir tengdar við þær
um fjáröflun til íþróttahreyf-
ingarinnar í landinu.
Þessar vónir hafa, því miður,
brugðist vegna tómlætis . í-
þróttamanna og íþróttaimn-
enda, sem virðast ekki hafa
skilið hvílík lyftistöng getrami-
imar geta verið til eflingar
líkamsmennt og aimennri í-
þróttastarfsemi.
Nú hafa íslenzkar getraunir
hleypt af stokkunum happ-
drætti í sambandi við starf-
semi sína, cg má segja að það
sé úrslitatilraun til þess að
fá úr því skorið, hve mikið í-
þróttamenn vilja á sig leggja
til að geta staðið fjárhagslega
á eigin fótum, en þurfa ekki
alltaf að leita til annarra um
fjáröflun til starfsemi sinnar.
Framkvæmastjóm ÍSÍ leyfir
sér hér með að hvetja alla í-
þróttamenn og íþróttaunnendur
til að styðja af alefli þessa ti1-
raun og bendir á að hér er
verið að vinna fyrir þá sjálfa
og að það veltur á miklu fyr-
ir framtíð íþróttahreyfingarinn-
ar að þessi tilraun beri árang-
ur.
íþróttamenn! Tökum hönd-
um saman og vinnum að því
að allir miðar í happdrætti Is-
Ford ICoimo setar heims-
meí á 400 m. skriðsundi
Ford Konno sem syndir fyrir
Ohio háskólann í Bandaríkjun-
um setti nýlega heimsmet í 400
m. skriðsundi á 4.26.7 mín.,
Var ha,nn þá að synda 440
yards en tími var tekinn sér-
staklega á 400 m. 440 yards
synti hann á 4.28.3 mín. eða
2/10 sek lakara en heimsmetið
er. Gamla metið á 400 m. átti
John Marshall, sett árið 1951
og var 4.26.9 mín.
lenzkra getrauna seljist. Takist
það, höfum við unnið mikinn
sigur á s\iði íþróttamálanna.
Reykjavík, 5. apríl 1954.
í framkvæmdastjórn ISÍ.
Beacdikt G. Waage, forseti,
Guðjón Einarsson, varaforseti,
Konráð Gíslason, ritari, Gísli
Ólafsson, gjaldlceri, Lúðvik
Þorgeh'sspn, féhirðir.
sér kveða þar til nú fyrir
skömmu í tveim stökkkeppnum
aö hann virtist vera að komast
í sína gömlu góðu þjálfun, en
hann hefur oft unnið í Holm-
enkollen. Sá sem vakti mesta
aðdáun fyrir fagurt stökk var
Halvor Næss sem stökk 66 og
65 m. og fékk 18 í stíl hjá öll-
um dómurunum. Finnarnir Ok-
sanen og Hekio eru ekki í hópi
beztu stökkvara Finna. Þó
sýndi Oksanen að hann hefur
fengið góðan skóla: hann stökk
64.5 og 65 5. Sæsisku stökkv-
ararnir voru ungir menn að
undanteknum Erlander.
Þjóðverjinn Toni Brutscher
varð 13. í röðinni. Hinn ungi
landi hans, Max Bokart sem
barna stökk er talinn líklegur
til að verða stókkvari á heims-
mælikvaraða, stökk 61,5 en það
siðara aftur á móti mjög gott
65.5 m. í góðum stil og varð
9. í keppmnni.
Urslit í keppninni urðu:
1. Arne Hoel Ljm 226,5
2. H. Næss Frysilgutten 221.0
3. C. Mörk Henning 218,0
4. G. T'hrane Asker 217,0
5. U. Oksanen Finnland 214,0
6. H. Pehrsson Bærum 211,5
7. Sverre Kornvold S. L. 211,0
Finninn P. Heino varð nr. 12
með 207 stig.
I drengjaflokki vann:
Kjell Kopstad, stökk 60 og
65 m. fékk 207,5 stig, annar
varð Arne Larsen stökk 64,5
og 63, fékk 204,5.
1 lok keppninnar léku bræð-
urnir Asbjörn og Birgir Ruud
það bragð að stökkva báðir
samtímis sem vakti fádæma
hrifningu.
S.V.t.E. ©g Lúðrasveit verkalýðsins
halda sameiginlega
kvöldvöku
í Skátaheimilinu við Snorrabraut laugardaginn
10. apríl kl. 8.30 e.h. stundvíslega.
Skemmtiatriði:
Lúðrablástur og kórsöng'ur.
Ræða: Jóhannes úr Kötlum.
Upplestur.
Leikþáttur.
Tvísöngur.
D a n s .
Félagi járniðnaðarmanna og Þvottakvennafé-
laginu Freyju er sérstaklega boðin pátttaka.
Utboð
Tilboö óskast 1 að byggja kjallara undir hið
nýja Menntaskólahús við Hamrahlíð.
Uppdrátta og útboðslýsinga má vitja á teikni-
stofu undirritaðs, Eskihlíð 11, milli þl. 5 og 7 í
dag og á morgun, gegn 200 kr. skilatryggingu.
Skarphéðinn Jóhannsson