Þjóðviljinn - 09.04.1954, Side 12
Dulles ætlar sjálfur að re^na
að sannfæra Breta og Frakka
%. . ■ '.?)' gjci Olf/»vv ’i
Gersr sér ferS fíl London og Parísar, jbor
sem strlSshótunum hans er illa tekiS
Tilmæli Bandaríkjastjórnar til Bretlands og Frakk-
lands um að hóta Kína styrjöld hafa fengið svo slæmar
viðtökur í þessum löndum, að Dulles hefur ákveðið að tak-
ast ferð á hendur til að reyna að tala um fyrir banda-
mönnum sínum. Jafnframt hóta áhrifamenn á Banda-
ríkjaþingi þeim öllu illu, ef þeir vísi tilmælunum á bug.
í orðsendingu bandaríska ut-
anríkisráðuneytisins, þar sem
þessi tilmæli voru sett fram,
var lagt til að Bandaríkin,
móÐVILJ
Á fimdi MÍR
í kvöld
Skauiakeppni milli Norð-
manna 09 Rússa, sendi-
nefndir vorið 1953,
landslagsmynd
MlR sýnir á fundi sínum í
(kvöld í Þingholtsstræti 27 þrjár
stuttar myndir, fréttamyndir
frá keppni milli norskra og
sovézkra skautamanna ■ í
Moskvu í vetur, þá mynd af
nokkrum erlendum sendi-
nefndum í Sovétríkjim-
um s.l. vor (það er önnur
mynd en hér hefur verið sýnd
áður) og loks landslagsmynd
frá bökkum stórfljótsins Kömu,
sem er þriðja stærsta fljót Ev-
rópu (Volga og Duná stærri).
Bretland, Frakkland, Ástralía,
Nýja Sjáland, Síam og Filipps-
eyjar gæfu kinversku alþýðu-
stjóminni aðvörun um,að ef hún
héldi áfram að hlutast til um
stríðið í Indó Kína, mætti hún
vera við öllu búin. Þessum til-
mælum hefur verið frámuna-
lega illa tekið, ekki sízt í
Bretlandi og Frakklandi.
Ráðstefna um siofnun Iðnsveina-
sambands á morgun og sunnudaginn
Iðnsveinafélögin innan Alþýðusambands íslands halda
ráðstefnu á morgun og sunnudaginn til að ræða um
stofnun sérstaks Iðnsveinasambands og önnur 'hags-
munamál iðnaöarmanna.
Iðnsveinaráð Alþýðusambands-
ins gengst fyrir ráðstefnunni.
Hefur stjóm þess snúið sér
bréflega til allra iðnsveinafélaga
innan sambandsins með tilmæl-
um um að ræða hugmyndina um
stofnun iðnsveinasambands og
hvernig því yrði bezt fyrir kom-
ið skipulagslega. Hafa þessi mál
verið rædd í flestum eða öllum
félögunum að undanfömu. Mun
almennur áhugi fyrir stofnun
sambandsins en nokkuð skiptar
skoðanir um hvernig skipulagi
þess og afstöðu til Alþýðusam-
bandsins skuli háttað.
Ráðstefnan sem sótt verður af
2 fulltrúum hvers iðnsveinafé-
lags mun auk sambandsstofnun-
arinnar ræða hina nýju Iðnað-
armálastofnun ríkisins svo og
um iðnfræðsluna í landinu.
Ráðstefnan verður haldin í
Styrkur til liá-
skólanáms í Kiel
íslenzkur stúdent getur fengið
styrk til náms við- háskólann í
Kiel í Þýzkalandi í 8 mánuði, frá
1. maí til 31. ágúst þ. á. og frá
1. nóv. til 28. febr. 1955 (2
misseri). Styrkurinn er 200 DM
á mánuði og er hann ekki bund-
inn við sérstaka námsgrein, en
hagfræðistúdent mun að öðru
jöfnu ganga fyrir. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofu háskólans,
er tekur við umsóknum til 20.
apríl á hádegi. XFrá H. í.)
Grófin 1 og verður sett kl. 3 á
mórgun.
Skíðavika á Isa-
firði um páskana
Nú um páskana verður haldin
skíðavika á‘ ísafirði, eins og
undanfarna páska. Nægur snjór
er í nágrenni bæjarins og mjög
gott skíðaland. „Hekla‘‘ mun
fara vestur á miðvikudagskvöld
fyrir páska og koma aftur að-
faranótt þriðjudags. Flugfélag
fslands mun sjá um daglegar
ferðir vestur frá n. k. laugar-
degi. fsfirðingar hafa gert ráð-
stafanir, til þess að taka á móti
skíðafólki að sunnan og munu
útvega legupláss og fæði þeim,
er þess óska. Bílferðir verða frá
ísafirði að skíðabrekkunum
tvisvar á dag. Stutt ferðalög
verða farin í nágrenni bæjarins
og það markverðasta skoðað
undir leiðsögn fróðra leiðsögu-
manna.
Margskonar skemmtanir verða
í sambandi við skíðavikuna, svo
sem skíðaképpni, tvær kvöld-
vökur í skíðaskálunum og loka-
dansleikur á páskadagskvöld.
Sérstök merki hafa verið útbú-
in og eru þau seld gegn vægu
gjaldi. Merki þessi veita aðgang
að öllum skemmtunum skíðavik-
unnar.
Nánari upplýsingar í sam-
bandi við skíðavikuna veitir
Ferðaskrifstofa ríkisins.
Það var tilkynnt opinberlega
í Washington í gær, að Dulles
hefði í hyggju að halda til
Parísar og London í næstu
viku og eiga viðræður við
ráðamenn þar um bandarísku
orðsendinguna. Talið var að
hann myndi leggja af stað á
sunnudag og dveljast tvo daga
í London og jafnlengi í París.
Knowland hótar
Dulles mim reyna að sann-
færa ráðamenn Bretlands og
Frakklands um að þeim sé fyr-
ir beztu að hlíta forystu
Bandaríkjanna í þessu máli sem
öðrum. Hann mun t.d. geta
bent þeim á yfirlýsingu, sem
leiðtogi Répúblikana á Banda'
ríkjaþingi, Knowland, gaf í
gær. Knowland sagði, að hugs-
anlegt v*ri, að þingið frest-
aði endanlegri afgreiðslu
frumvarpsins um hernaðar-
aðstoð við útlönd, þar til
séð væri hvaða afstöðu
hlutaðeigandi ríki tækju til
tilmæla Bandarikjanna um
sameiginlega stríðshótim á
hendur Kína.
Vísa á bug.
Fréttaritarar hafa þær frétt-
ir að segja frá höfuðborgum
Bretlands og Frakklands, að
stjómir þessara landa séu al-
gerlega sammála um að vísa
tilmælum Bandaríkjanna á bug.
Framhald á 8. síðu
Kjarasamningar í
Danmörku
f gær tókust samningar milli
dönsku verkalýðsfélaganna og
vinnuveitendasambandsins um
nýja kjarasamninga. Málamiðl-
unartillaga sáttasemjara var
samþykkt af báðum aðiljum
með allmiklum meirihluta. Samn-
ingarnir gilda næstu tvö árin og
eru taldir þýða að kaupgreiðsl-
ur muni aukast um 150 millj. d.
kr. á ári.
Skíðaskóli
Fylkingarinnar
Undanfarið hefur staðið yfir
mikil viðgerð á'Skíðaskála Æsku-
lýðsfylkingarinnar í Bláfjöllum.
Sett hefur verið upp ný ljósvél,
og komið fyrir kvikmyndasýn-
ingatjaldi, og margt fleira hefur
þessu húsi verið gert til góða.
Er nú ætlunin að fara þangað
Föstudagur 9. apríl 1954 — 19. árgangur — 83. tölublað
Sýning Jóhannesar Jóhannessonar í Listvinasalnum á
málverkum og smelltum skálum hefur vakið mikla at-
hygli aðsókn hefur verið góð og allmörg listaverk hafa
sélzt. Sýningin er opin daglega kl. 2—10.
Fimdur I Samtökum herskálabúa:
Krefst wbóta i heilbrigðis- og
bnmavaniaináluni braggahveríamra
Fundur var haldinn í Samtökum herskálabúa þriðj.u-
daginn 6. apríl s.l. í Breiðfirðingabúð. Á fundinum voru
rædd hagsmunamál braggabúa og samþykktar eftirfar-
andi ályktanir:
Heilbrigðismál
„Fundur haldinn í Samtökum
herskálabúa þriðjudaginn 6.
apríl 1954 telur heilbrigðiseftir-
liti og hreinlæti utanhúss mjög
ábótavant í braggahverfunum.
Fundurinn skorar því á borgar-
lækninn í Reykjavík að sjá svo
um, 1) að útisalerni séu lögð
niður í braggahverfunum, 2) að
sorpílát með föstum lokum séu
höfð í braggahverfunum og
hreinsun framkvæmd oftar en
nú er gert, 3) að gatnahreinsun
sé framkvæmd í braggahverfun-
um jafnt og annarsstaðar í
bænum“.
Brunavarnir
„Fundur haldinn í Samtökum
herskálabúa þriðjud. 6. apríl
1954 beinir því til slökkviliðs-
stjórans í Reykjavík að láta
setja upp brunaboða í öllum
stærri braggahverfunum. Fund-
urinn æskir þess ennfremur að
upp eftir páskaför, og geta þeir
sem áhuga hafa fyrir ferðinni
fengið upplýsingar um hana í
skrifstofu Æskulýðsfylkingar-
innar.
Stiórnarírumvarp:
Heimild fil 20 milljón kr. lón-
föku vegna smáíbúðarhúsa
Lagt var fram á Alþingi í gær stjórnarfrumvarp um
að heimila ríkisstjórninni að taka að láni allt aö 20 millj-
c.ium króna innanlands og endurlána fé þetta lánadeild
r-máíbúðurhúsa með sömu kjörum og lánið er tekið.
í grein-'rgerð lofar rikisstjórn- Jónsson að ríkisstjómin væri að
• hví að fyrir næsta þing verði vinna að því að útvega þetta
undirbúið frumvarp um lausn lánsfé og teldi öruggt að það
lánsfjármála varðandi íbúðar- takist.
húsabyggingar. Málið fór umræðulaust til 2.
í framsögu sagði Eysteinn umræðu og nefndar.
slökkviliðsstjóri gangist fyrir
því að slökkvitæki séu fyrir
hendi í bröggunum".
„Fundur haldinn í Samtökum
herskálabúa þriðjud. 6. apríl
1954 beinir því til rafmagnsstjór-
ans í Reykjavík að ganga ríkt
eftir því að raflagnir í íbúðar-
bröggum séu í því ásigkomulagi
að ekki sé eldhætta af vegna
raka og lélegs frágangs. Fundur-
inn vill í þessu sambandi benda
á, að bæjarsjóði ber viðhalds-
skylda á raflögnunum í brögg-
um“.
Gæzla leikvalla
„Fundur haldinn í samtökum
herskálabúa þriðjud. 6. apríl
1954 skorar á fræðslufulltrúa í
Reykjavík að sjá svo um að
gæzla sé tekin upp á bamaleik-
vellinum í Kamp Knox-hverf-
inu. Ennfremur skorar fundur-
inn á bæjarstjórn að láta gera
leikvelli í Laugarneskamp og
Herskólakamp“.
Mikil eining ríkti á fundinum
og áhugi fyrir áframhaldandi
starfi félagsins. Fundarmenn
skemrntu sér við kaffidrykkju og
upplestur hins ágæta rithöfund-
ar Kristjáns Bender.
ÞjóðviljasöfnuBÍn
Við vorum heldur undir meðal-
lagi í gær og má það helzt ekki
koma fyrir framar. Engin deild
bættist við á blað og engin náði
takmarki sínu til viðbótar þeim
tveim sem hafa náð því. En ekki
vantar mikið á að sumar nái því
og vonandi verða þær fleiri um
næstu helgi, en þá birtum við
samkeppnina í blaðinu. Herðum
söfnunina. Tekið er á móti nýj-
um áskrifendum í afgreiðslu
Þjóðviljans Skólavörðustíg 19,
sími 7500 og í skrifstofu Sósíal-
istaflokksins Þórsg. 1, sími 7510.