Þjóðviljinn - 15.04.1954, Page 8
g) — Þ-JÓÐVTLJINN — Fimmtudagur 15. apríl 1954 -
Sinfóníutónleikar
RÍTSTJÓRl. FRlMANN HELGASON
fmaaníélagsmét M.A.:
Villi|álniur Einarsson setti nýtt Is-
* áii atrennu
Tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar í Þjóðleikhúsinu
þriðjudaginn 6. apríi hófust á
hinum kunna forleik „Miðs-
vetrargleði í Róm“ eftir
franska tónskáldið Hector
Berlioz. Þetta æskuteita og lit-
brigðaríka, en lítt djúpúðga
verk flutti hljómsveitin frjáls-
lega og af allt að því suðrænu
fjöri.
Næst á efnisskránni var
Knéfiðlukonsert í a-moli eftir
annað franskt tónskáld, Saint-
Saéns. Einn af knéfiðluleikur-
um hljómsveitarinnar sjálfrar,
Einar Vigfússon, fór með ein-
leikshlutverkið. Ekki er þetta
heldur djúpúðugt tónverk, en
það er afbúrðavel samið og
gefur einleikshljóðfærinu mörg
ágæt tækifæri til að sýna,
hvers því má auðið verða. Ein-
ar Vigfússon skilaði hlutverki
sínu af smekkvísi og öruggri
kunnáttu.. .
Síðasta verkið og hið veiga-
mesta var 5. sinfónía Péturs
Tsjaikovskí, og tókst stjórn-
anda og hljómsveit forkunnar-
vel að túlka þunglyndislega
viðkvæmni og eldlegan ástríðu-
þunga þessarar hljómkviðu.
B. F.
Innanhússmót Menntaskólans
á Akureyri fór fram í íþróttahús-
inu föstudaginn 9. apríl. Keppt
var í tveimur aldursílokkum.
Helztu úrslit í eldri flokki:
Þrístökk án atreunu:
Vilhjálmur Einarsson 6.b. 9.61
Friðleifur Stefánsson 6.b. 9.21
Hörður Lárusson 4.b. 8.97
Haukur Frímannsson 5.b. 8.25.
Hástökk með atrennu
Vilhjálmur Einarsson 6.b. 1.64
Haukiir Böðvarsson 6.b. 1.58
Jónatan Sveinsson 3.b. 1.58
Helgi Valdemarsson 4.b. 1.52.
í yngri flokki urðu úrslit þessi:
Langstökk án atrenn u:
Vífill Oddsson 3.b. 2.54
Ari Jósefsson 2.b. 2.32
Þeir sem með
Framhald af 4. síðu.
Pétur. Hann hefur ekki ennþá
lært þá list að kafa til botns
eftir nokkúrri sannleiksperiu.
Hann gengur t. d. með þá
firru, að til sé eitthvert ham-
ingjufræ fólgið vestur í Banda-
ríkjunum eða suður á Spáni,
og að öll þrá mannanna í leit
sinni eigí fyrst og fremst að
beinast að þessu eina fræi. En
hér, eins óg í svo mörgum
greinum öðrum, fer Pétur
Magnússon villur vegar. Mér
er nær að halda, að jafnvel
stuðningsmenn hans hafi nú
fengið nóg af því að heyra
hringla í gullkálfinum í prédik-
unarstólnum — að með ein-
hverjum hætti þyrfti aftur að
vígja dómkirkjuna sem Guðs
hús.
Pétur Magnússon ef það, sem
kallað er mesti meinleysis mað-
ur. En meinleysi hans marar í
hálfu kafi, eins og allt annað.
Það er á þá lund, að hann
grefur undan friði og öryggi
milljóna — hundruð milljóna
kvenna og barna, vinnur að því
að tortíma öllu mannkjmi á
jörðu hér. Allt hans meinleysi
er af þeirri sömu rótinni runn-
ið, að hann skortir allan sann-
an félagsanda. Þess vegna er
það heilög skylda mín að berj-
ast á móti Pétri Magnússyni
með þeim andans vopnum, sem
mér eru gefin. Afskorin frá
hinum sanna félagsanda og þá
um leið frá hinum sanna kríst-
indómi, væri ég ekki neitt, að-
eins visið laufbiað, sem hrekst
til og frá eftir því, sem vind-
urinn blæs.
Það veit sá, sem allt veit, að
allt frá fyrsta pennadrætti í
garð Péturs Magnússonar, hef
ég þráð að frelsa hann út úr
moldvörpuholu sinni og fá
hann til þess að starfa á lífs-
ins vegi. Hann er einn af þeim
mönnum, sem ekki vita, hvað
þeír gera með því að kynda und-
ir sundrungunni, í stað þess að
glæða skílning og samúð
manna á milli, eins og sérhverj-
um kristnum manni ber að
gera.
Áður en ég sendi frá mér hið
opna bréf til Péturs Magnús-
sonar, hafði ‘ég sent honum
iokað bréf heim í Vailanes.
Svar hans við því, sem ég loks
með eftirgangsmunum fékk,
bar vott um svo takmarkalaust
skilningsleysi, að ég varð ai-
gerlega vonlaus um að hafa
nokkur áhrif á hann eftir þeim
leiðum. Eg reyndi því þá leið-
ina að heyja við hann einvígi ,
í orði á opinberum vettvangi,
en þeirri leið var þ svipstundu
lokað fyrir mér. Sveitungar
mínir, sóknarnefndarmennirn-
ir, héldu vörð um hann, og
ritstjóri Tímans sló eina vopn-
ið úr hendi þeirrar konu, sem
stóð ein móti þeim sjö öndum,
er skipuðu sér utan um Pétur
Magnússon. Jafnvel á Sturl-
ungaöld mynd það ekki hafa
þótt drengilega gert. Þeir, sem
með slíkum vopnum vega munu
einnig fyrir þeim falla.
Þegar ég í gær hripaði nið-
ur grein þá, sem nú liggur hjá
ritstjórum hér í bænum, bjóst
ég ekki við að senda frá mér
fleíri orð í bili. En ég bað þar
um fullkomna hreinskilni frá
þeim mönnum, sem finnst þeir
eiga eitthvað vantalað við mig
á opinberum vettvangi, og vil
ég því sjálf gagnvart öðrum
vera sjálfri mér samkvæm.
Eg stend nú gagnvart yfir-
ráðamönnum kirkjunnar með
messuskrúðann eins og fjall-
konan, fóstra vor, með sín
tignu klæði frammi fyrir valda-
mönnum þjóðarinnar 30. marz
1952. í hug mínum og hjarta
er þessi helgiskrúði mín eign.
Eg er mér þess meðvitandi að
hafa brotið landslög og hef lýst
yfir því að vera reiðubúin að
mæta afleiðingum þess. Eg kýs
það hlutskipti miklu fremur
mér til handa að fara í tugthús-
ið, heldur en afhenda þennan
skrúða, svo lengi sem kirkjan
starfar ekki á grundvelli hins
sanna kristindóms, að friðar-
hugsjón Jesú Krists.
En ég mun standa eins varn-
arlaus með minn helgiskrúða
og fjallkonan forðum, enginn
vill vera mér meðábyrgur að
geyma hann, afhent hann get
ég' ekki og vil ekki. — En ég
er ekki ánægð með neinn stað
til að geyma hann. Ef til er
einhver maður í landi hér, sem
vill vera mér meðábyrgur um
varðveizlu þessa messuskrúða
á viðeigandi stað, þá bið ég
hann að gefa sig fram við mig.
Eg hef góða samvizku gagn-
vart þessu heilaga krossins
tákni, ef einhver hreinhjartað-
ur maður, karl eða kona, varð-
veitir það og þarf ekki að fara
með það í felur. Þó ekki sé
nema aðeins eitt slíkt tákn til
í landi hér, þá er það betra en
ekki neitt. Þá treður islenzka
þjóðin ekki á öllu þvi, sem
heilagt er.
Stödd í Reykjavík 13./4. 1954,
Guðrún Pálsdóttir.
Sveitaképpni í bridge.
3. umferð verður í dag kl.
í páskum á sama tíma. Mætið
vel og stundvíslega.
Langstökk án atrennu:
Viihjálnnir Einarsson 6.b. 3.22
Hörður Lárusson 4.b. 2.98
Friðleifur Stefánsson 6.b. 2.93
Jóhannes Árnas'on 4.b. 2.78.
Hástökk án atrennu
-Vilhjálmur Einarsson 6.b. 1.30
2.—3. Helgi Valdemarss. 4.b. 1.25
2.—3. Haukur Frímannss. 5.b 1.25
Hörður Lárusson 4.b. 1.20.
Hástökk án atrennu:
Vífill Oddsson 3.b. 1.10.
Þrístökk án atrennu:
Vífill Oddsson 3.b. 7.85
Loftur Guttormsson 3.b. 7.77
Páll Pétursson 3.b. 7.24.
f
Hástökk með atrennu:
Vífill Oddsson 3.b. 1.40
Valur Kristinsson 2.b. 1.30
Ari Jósefsson 2.b. 1.30.
íslandsmóf
í badminton
íslandsmót í badminton verð-
ur haldið dagana 17. og 19.
þ. m. í íþróttahúsi KR við
Kaplaskjólsveg og hefst kh 2
e. h. báða dagana.
Keppendur eru 29 að tölu, 15
frá Tennis- og badmintonfélagi
Reykjavíkur (10 karlar, 5 kon-
ur), 4 frá ÍR (allt karlar), 6
frá Stykkishólmi (4 karlar, 2
konur) og 4 frá Selfossi (2 karl-
ar, 2 konur). í einliðaleik karla
eru 11 keppendur, í einliðaleik
kvenna 3 keppendur, í tvíliða-
leik karla keppa 10 lið, í tvíliða-
leik kvenna 4 lið og í tvenndar-
keppni 9 lið.
Alls verða leiknir 27 leikir
fyrri dag mótsins, en síðari dag-
inn verða úrslitaleikirnir 5.
Happárætti
Islenzkra get-
rauna
Eins og kunnugt er lýkur
Happdrætti íslenzkra getrauna
að kvöldi 2. páskadags. Vinn-
ingar í happdrættinu eru alls
200, og er hæsti vinningurinn
50—88 þús. kr., en söluverð
miðanna er 10 kr. Verða miðar
seldir í Reykjavík og stærri
kaupstöðum, Hafnarfirði; Akra
nesi, Isafirði, Siglufirði, Akur-
eyri og Vestmannaeyjum all-
an laugardagiim og til kl. 6 á
2. í páskum.
í Reykjavík verða miðar
seldir þann dag á þessum stöð-
um:
Austurbær: í Félagsheimili
Vals, Sundhöílinni og Sport-
vöruverzluninni Hellas, Lauga-
veg 26.
Vesturbær: I Fjólu, Vestur-
götu 29 og í Félagsheimili KR
við Kaplaskjólsveg. En.nfremur
verða miðar seldir í bifreiðum
í Miðbænum.
Menn ættu ekki að draga til
síðustu stundar að kaupa miða,
enda mun margan fýsa að
hreppa hina glæsilegu vinn-
inga. Eflið íþróttasjó'ð! Styrkið
heilbrigt starf æskunnar í
landinu.
til ágóöa fyrir barnaspítalasjóöinn veröur opnuö
í dag í hátíöasal Menntaskólans og stendur í
5 daga.
Opiö frá kl. 10 — 10,
nema á páskadaginn frá kl. 2 — 10.
Hjálpumst öll að búa upp litlu hvítu rúmin
í barnaspítalanum.
\
HS u ta veltu
heldur Barnakórmn V0RÖID
laugardaginn 17. þ.m. kl. 2 e.h. í Edduhúsinu viö
Lindargötu (í fundarsalnum á efstu hæð).
Engin núll — Ekkert happdrætti
DrátSurinn 1 kzóna Aógangur 2 krónur
Stúdentafélag Eeykjavíkur
Sumcsrf cigncsður
veröur haldinn í Sjálfstæöishúsinu miövikudag-
inn 21. þ.m. kl. 9 e.h.
DAGSKRÁ:
1. Ræða: Halldór Halldórsson, dósent
2. Söngur: Dr. Sigurður Þórarinsson
3. Nýr gamanþáttur: Gestux Þorgrímsson
4. Dans til kl. 2.
Aðgöngumiðasala í Sjálfstæöishúsinu þriöju-
daginn kl. 5—7 og miövikudag frá kl. 8 e.h. —
Borð tekin frá á sama tíma.
-—------—» '—"-“'S’t j’-ó-T n in.