Þjóðviljinn - 06.05.1954, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 06.05.1954, Blaðsíða 10
10) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 6. maí 1954 ✓--—* J Sélma Lagerlöf: KARLOTTA LÖWENSKÖLD 83. Hann skildi það svo, að Karlotta liði ósegjanlegar kval- ir þessa stundina, þégar hún var tilneydd að rétta hon- um hönd sína. — Náðuga ungfrú, mér þykir það leitt....... — Ég heiti Karlotta, sagði hún og hneigði sig lítið eitt. Og ég hef hugsað mér að kalla þig Iíinrik. Schagerström hneigði sig í þakklætisskyni. — Ég hef hugsað.mér að kalla þig Hinrik, endurtók Karlotta og rödd hennar titraði lítið eitt. Mér skilst að fyrri konan þín hafi kallað þig Gústaf. Ég ætla að leyfa henni að eiga það nafn. Maður á ekki að taka af þeim látnu það sem þeirra er. Schagerström varð enn meira úndrandi. Honum fannst þessi orð hennar gefa til kynna að hún hefði ekki eins mikla andúð á honum og þegar þau hittust síöast 1 Örebro. Honum leið betur. Hefðu tortryggni og auðmýkt ekki verið svo ríkir þættir í skapgerð hans hefði hann verið fullkomlega hamingjusamur. Karlotta spuröi hann, hvort honum stæði á sama þótt hjónavígslan færi fram í ytra herbergi prófastsins, þar sem svo mörg brúðhjón höfðu verið gefin saman á liðnum árum. ■— Prófastsfrúin vildi heldur að vígslan færi fram í stóra salnum uppi á loftinu, sagði Karlotta, en mér finnst hátíðlegra hérna niðri. En þannig var mál með vexti að Karlotta sem hafði notað morguninn til að' tala aivarlega við hina gömlu vini sína, hafði ekki leýft prófastsfrúnni að eyða tím- anum í hreingerningar í salnum sem ekki hafði verið notaður í háa herrans tíð. Gamla konan hafði ekki einu sinni fengið að undirbúa hádegismatinn, sem hún ætlaöi brúðhjónunum. Ungi verksmiðjueigandinn hafði ekkert við prófasts- herbergiö að athuga, og hjónavígslan fór fram þegar í stað. Ökumaöurinn og þjónninn frá Stóra Sjötorpi, húsvörðurinn og kona hans og allt þjcnustufólkið á prestsetrinu voru viðstödd hina hátíðlegu athöfn. Gamli prófasturinn framkvæmdi vígsluna, fyrir utan opna gluggann kvökuðu þrestir og spörfuglar svo glatt og fjörlega, að það var eins og þeir vissu hvað um var að vera og syngju brúðkaupsljóð hver í kapp við annan. Þegar allt var um garð gengið stóð Schagerström dá- lítið' vandræðalegur og vissi ekki hvað hann átti af sér að gera, en Karlotta sneri sér að honum, bauð honum várirnar og kyssti hann léttum kossi. Hún gerði hann eiginlega aiveg finglaðan. Hann hafði búizt við öllu, gráti, stirðnaðri örvæntingu, kulda og stormennsku, — öllu öðru en þessari áhyggjulausu uppgjöf. „Ég er viss um að allir sem sjá okkur halda, að það sé ég sem hef verið neyddur út í þetta hjónaband, en ekki hún,“ hugsaði hann með sjálfum sér. Hann gat ekki fundið aöra skýringu á þessu en þá, að Karlottu fyndist það bezt samrýmast stórmennsku sinni, að sýnast glöð og ánægð. „En henni tekst það með ágætum,“ hugsaöi hann og ekki var laust við að hann fyndi til aödáunar. Þegar þau fjögur settust að borðum að máltíð sem prófastsfrúin sagði að orðið hefði til fyrir kraftaverk og var mjög vel heppnuð, gerði Schagerström tilraun til að hrista úr sér ólundina. Prófastshjónin sem skildu mætavel hugarástand hans, gerðu það sem þau gátu til að hressa hann upp og loks var ekki annað að sjá en þeim hefði tekizt það. Þeim tókst að minnsta kosti að fá hann til að leysa frá skjóðunni. Hann fór að tala um ferðalög sín um ó- kunn lönd, tilraunir sínar til að umbæta sænskan járniðnað með hliðsjón af því sem hann hafði lært í Englandi og Þýzkalandi. Meðan hann talaði sá hann að Karlotta hlustaði á hann með óskiptri athygli. Hún starði á hann galopn- um augurn og drakk í sig hvert orð sem hann sagði. Hann taldi víst að þetta væri ekki annaö en leikur. „Hún gerir þetta vegna gamla fólksins,“ hugsaði hann. „Það er óhugsandi að hún hafi áhuga á þessum málum, . sem hún botnar ekkert í. Hún vill að prófastshjónin ■ haldi að henni þyki vænt um mig. Það er skýringin“. Og þessi skýring þótti honum þægilegri en hin fyrri. ' Honum þótti vænt um hvað kona hans tók mikið tillit til þessara góðu gömlu hjóna. í lok máltíðarinnar var þó eins og skugga bæri á ■ gleðina. Gömlu hjónin á prestsetrinu gátu ekki annaö en hugsað um, að eftir nokkur andartök ætti Karlotta 1 að fara frá þeim. Karlotta, þessi lífsglaöa stúlka, eld- fjörug og uppfindingasöm, orðhvöt og bráð. Karlottá sem þau höfðu svo oft þurft að áminna, Karlotta sem , þau hlutu að fyrirgefa allt vegna hjartagæzku hennar, ■ færi burt úr húsi þeirra. Hve líf þeirar yrði tómlegt og 1 innihaldslaust! — Það er gott að þú kemur hingað á morgun og pakkar niður eigum þínum, sagði prófastsfrúin. Schagerström skildi að þau voru að reyna að hugga • sig við það að Karlotta færi ekki langt burt, heldur ■ fengju þau aö sjá hana endrum og eins, en samt sem áöur þóttist hann sjá að bök þeirra bognuðu og hrukk-.. urnar dýpkuðu í. andlitum þeirra. Frá og með þessum ■ degi gæti enginn varnað ellinni inngöngu til þeirra. — Við erum svo glöð, élsku Karlotta mín, sagöi prófasturinn, yíir því að þú eignast fallegt heimili og ,, góðan mann, en eins og þú skilur, eins og þú skilur...... Við munum sakna þín, sakna þín ósegjanlega. Hann var gráti nær: en prófastsfrúin bjargaði málinu • við með því að segja Schagerström frá því sem mað- " ur hennar hafði einu sinni trúað henni fyrir að hann mundi gera, ef hann væri fimmtíu árum yngri og , ókvæntur. Allir fóru að'skellihlæja og hinar ömurlegu,, hugsanir voru lagðar á hilluna. Þegar skrautvagninn ók upp að dyrunum og Karlotta • gekk til prófastsfrúarinnar til að kveðja hana, dró ’ f Nýft Beyers fizkuhlaS Nýlega er komið nýtt Beyers tizkublað, sem er mjög fallegt og mnihaldsríkt. Öllum mynd- unum fylgja mynstur til að búa til snið eftir, og þótt manni lítist oft ekki á að eiga að teikna eftir þessum krubbu- legu mynstrum, þá kemst það fljótlega upp í vana, og kjól- arnir eru fiestir svo lát’ausir og einfaldir í sniðum, að við- vaningar geta saumað þá. Mjög einfalt snið er á kjóln- um með samsvarandi jakka úr eins efni. Jakkinn er hvorki með lcraga né hornum, sem gera byrjanda’ lífið brogað. Og þetta er ljómandi fallegur bún- ingur þótt látlaus sé, og eng- um dettur í hug að hann sé valinn vegna þess eins livað auðvelt er að sauma hann. I blaðinu eru einnig flíkur handa rosknum og feitlögnum konurn, en því miður er þungt yfir þeim fie3tum. P+* Faðirinn: Ertu búinn að géra góðverkið þitt í dag? Sonurinn: Já, pabbi, ég hjálpaði g'ama'.li konu yfir götuna, en það var dálítið erfitt, því.Úiún ætlaði al’s ekki yfir hana. * * * * Faðir: Sá sem kvænist dóttur minni fær sérstök verðlaun. Tiivonandi: Má ég heyra hver þau eru? * * * * Læknir: Veikindi yðar eru ekki hættuleg. Úr þeim deyja yfir- leitt ekki nema þrír af hundr- aði. Sjúklingur: Eru þá þessir þrír dánir? * * * * Agnar'ítif.l snáði sat á húströpp- um með vínglas í annarri hendi og vindil í hinni. Af hverju ertu ekki í skólan- um? spurði vogfarandi þennan einkenni'ega unga mann. O, maður er nú ekki skólaskyid- ur fyrr en maður er fimm ára, svaraði drengur kotroskinn. ■5f vv -X- Hún: Eg vil láta barnið heita Jú íönu. ! Hann: Prýðilegt, þá minnir hún mig á fyrstu stúlkuna sem ég varð verulega ástfanginn af. Hún hét einmitt Júl.iana. Hún (eftir stutta þögn): Kei, við skulum annars bara láta •hana heita Símoníu eftir henni mömmu. Auk þess eru þarna margar skemmtilegar prjónauppskrift- ir... Víða köflótta peysan sem getur koniið í stað jakka er falleg og auðvelt að prjóna hana. En það þarf þolinmæði til að prjóna þetta köfiótta mynstur og maður þarf um- fram allt að gæta þess að kaupa litekta garn. SardÍRHefai í fallegu úrvali IiOLT Skólavörðustíg 22 fi v____________________y

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.