Þjóðviljinn - 06.05.1954, Page 11
• Fimmtudagur 6. maí 1954
ÞJÖÐVILJINN — (11
teknai fram í dag
Stór númer
MARKAÐOR
Laugaveg 100.
^wywvww
Hirðing og við-
hald skipa
Á sl. vetri lét Fiskifélag ís-
lands útbúa og gefa út lítið
rit um hirðingu og viðhald véla
og skipa.
Er ritinu skipt í tvo aðal-
hluta og skrifar skipasmíða-
ráðunautur félagsins Bárður
G. Tómasson, verkfræðingur
hinn fyrri um skipin sjálf en
vélfræðiráðunautur félagsins
Þorsteinn Loftsson skrifar
hinn síðari um vélarnar.
Er rit þetta fyrst og fremst
ætlað þeim aðilum, sem við
skip og útgerð fást svo sem
útgerðarmönnum, yfirmönnum
á skipum bæði í vél og öðrum.
Rakið er það helzta, sem.
þýðingu hefur í sambandi við
hirðingu og viðhald skipa og
véla, rík áherzla iögð á nauð-
syn þess að þessum tækjum
sé vol við haldið og gefnar
vísbendingar um á hvern hátt
það verði bezt framkvæmt.
Er rit þetta mjög gagnlegt
fyrrgreindum aðilum og ættu
þeir að kj’nna sár efni þess.
Hefur ritið verið sent trún-
aðanuönnum Fiskifélagsins
veiðistöðvunum sem annast
dreifingu þess og auk þess geta
menn fengið það á skrifstofu
félagsins.
Eitt herbergi og eldhús
óskast sem fyrst.
Upplýsingar í síma 80872 frá 7—8 í dag
og á morgun.
Lítið hús
til sölu við Digranesveg, Kópavogi, 2 herbergi,
eldhús, bað og þvottahús. — Alls 63 fermetrar.
Útborgun 50 þúsund. Upplýsingar í
síma 80300 á daginn.
. SUMARÁÆTLUN „GULLFAXA" Gildir frá 1. maí 1954. Reykjavík—Osló—Kaupmannahöf n
FI 210 - FI 211
LAU 1 STAÐTÍMAR SUN
8:00 b. .. Reykjavík .... k. , i 18:00
15:00 k. .. Osló, Fornebu . . b. 12:30
15:45 b. .. Osló, Fornebu .. k. 11:30
17:45 > ^ Ic. .. Kaupm.höfn .... b. 9:30
Reykjavík—Glasgow—London
FI 200 FI 201
MÁN STAÐTÍMAR ÞRI
8:30 b. .. Reykjavik .... k. j k 16:30
14:00 k. .. Glasgow, Prestw. k. 12:45
14:30 b. .. Glasgow, Prestw. k. 12:00
16:30 > ^ k. .. London b. 10:00
b: Brottfarartími — k: Komutími.
Reykjavík—KaupmannahÖfn
FI 280 FI 281
MIÐ STAÐTÍMAR MIÐ
Frá 15/6 Frá 15/6
8:00 | b. .. Reykjavík .... k. i 4 23:45
15:45 y k. .. KaupmJiöfn .... b. 1 17:30
Karlakórinn Fósthræður
Kvöldvðka
(Kabarett)
í Sjálfstæðishúsinu annað kvöld klukkan 9.
Gamanþœttir, eftirhermur, gamanvísur,
söngur o. fl. — Dansað til kiukkan 1.
Aðgöngumiðasalan veröur opin í Sjálfstæðis-
húsinu í dag kl. 4—7. Borð tekin frá um leið
— Sími 2339.
Bezta skemmtira ársms
Erlend tíðindi
Frapahald af 6. síðu.
í heiminum. Sérstaklega tók
þéssi ráðstefna Asíuríkjá un-dir
sjálfstæðiskröfur landsbúa í
frönsku nýlendunum Túnis og
Marokkó í Norður-Afríku.
i
llfl'ennirnir sem gerðu þessar
samþykktir eru fjórir
borgaralegir þjóðernissinnar og
sá fimmti, U Nu.frá Burma, er
hægfara sósíaldemókrati. Riki
þeirra eru öll á því svæði sem
bandarískir áróðursmerin vilja
kalla „hinn frjálsa heim“. Þrjú
ríkin, Ceylon, Indlánd og Pak
istan, eru í brezka heimsveld
inu. Hin tvö, Burma og Indó-
nesía, eru meðal þeirra sem
Eisenhower Bandaríkjaforseti
lýsti yfir um daginn að yrðu
„útþenslustefnu kínverska
kommúnismans“ að bróð ef
sjálfstæðishreyfingin sigraði
Indó Kína. Sastroamidjojo for-
sætisráðherra lýsti því þá yfir
á þingi Indónesíu að það væri
óþarfa ómak af forseta Banda-
ríkjanna að' gera sér slíkar á-
byggjur út af Indónesum, sjálf-
ir væru þeir allsendis óhræddir
bæði við Kína og sjálfstæðis-
hreyfinguna í Indó Kfna. Þetta
rólega svar þeirra sem eiga að
vera í yfirvofandi háska við
móðursýkisæðinu í Washington
hefur nú verið enduflekið á
ráðstefnunni í Colombo. Borg-
aralegar stjórnir fólksflestu
ríkja Suður-Asíu standa með
"Trommúnistum Kína gegn
Bandaríkjunum, með sjálfstæð-
ishreyfingu Indó Kína gegn
Prökkum, með kúguðum ný-
ienduþjóðum hvar sem er gegn
kúgurum þeirra, brezkum,
frönskum og bandarískum.
Þessi staðreynd hefur verið að
skýrast smátt og smótt undan-
fariri ár og eftir ráðherra-
fuiidinn í Colombo má hún
vera ljós öllum þeim sem hafa
augun opin. M. T. Ó.
Byggingaverkf ræðsngH r
óskast á skrifstofu bæjarvei’kfræðingsins
í Reykjavík.
Bæjarverkíræðingur
»ii i Hi i M
Skemmtisigling til Isaf jarðar
Um hvítasunnuna verður farin þriggja daga
skemmtiferð til ísafjarðar með m.s. Heklu. Lagt-
verður af stað eftir hádegi á laugardag (5. júní)
og komið aftur til Reykjavíkur á þriðjudags-
morgun (8. júní).
Farþegar búa um borð í m.s. Heklu, og er allt
innifálið í fargjaldinu.
Hljómleikar, skemmtanir og dansleikir verða
um borð og á ísafirði. Kunnar hljómsveitir og
skemmtikraftar skemmta. Nánari upplýsingar í
síma 5035.
Áskriftalisti liggur frammi í Músikbúðinni
Hafnarstræti 8 fram til 15. maí.
Lúðrasveit Reykjavíkwr
Þjóðviljann vantar ungling
til að bera blaðið til kaupenda á
GrímssSaðahoIt
HðBVILJIM, Skólavörðustíg 19, sími 7500
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við
andlát og jarðarför eiginkonu minnar
Guðrúnar Helgaðóttuz
Fyrir mína hönd og annarra vandamanna.
Áitii Ármasou