Þjóðviljinn - 06.05.1954, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 06.05.1954, Blaðsíða 12
Umræður um Sndó Kína í vikulokin Búizt er við að umræður um frið í Indó Kína geti hafizt á ráðstefnunni í Genf á föstudag eða laugardag. Þetta varð kunnugt eftir að Gromiko, aðstoðarutanríkisráð- herra Sovétríkjanna, og sendi- herra Frakklands í Sviss höfðu ræðzt við um málið í gær. Enginn fundur var í gær á ráðstefnunni en formenn sendi- nefndanna ræddust við einslega í boðum hver hjá öðrum. Eden, utanríkisráðherra Bretlands, og Bedell Smith, aðstoðarutanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, snæddu hádegisverð saman og Molotoff, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, sótti Eden heim í . kvöldverðar- boð. Hermálaviðræður í Singapore Fréttaritari brezka útvarpsins i Genf segist hafa góðar heimild- Spyrja skal að leikslokum Eisenhower Bandaríkjaforseti sagði blaðamönnum í gær að hann væri ekki sammála blöð- um þeim og demókrataþing mönnum sem segja að stefna Dulles utanríkis'ráðherra á ráð stefnunni um Asíumál í Genf hafi orðið til þess að Banda ríkin hafi beðið einhvern mesta ósigur sinn í milliríkjamálum. Sagði Eisenhower að ekki væri hægt að tala um ósigur í bar- daga sem enn stendur yfir. Hann kvaðst álíta Dulles snjall- asta utanríkisráðherra sem Bandaríkin hefðu átt síðan hann myndi fyrst eftir sér. 60 fórust í námuslysi Taiið er að um 60 manns; hafi beðið bana í námuslys-; inu á Mið-ltalíu í gær þeg- ar spreuging og skriðufall; urðu í mókolanámu. Björg-; unarsveitir höfðu í gærkvöld J náð yfir 20 líkum. Þegar; sprengingin varð voru 90; menn niðri í námunui. ir fyrir því að brátt muni hefj- ast i Singapore á Malakkaskaga í Suðaustur-Asíu viðræður her- foringja frá Bretlandi, Frakk- . landi, Bandaríkjunum, Ástralíu og Nýja Sjálandi. Umræðuefnið verði, hvernig þessi ríki geti í sameiriingu ábyrgzt að vopnahlé í Indó Kína verði haldið ef um það skyldi semjast í Genf og sömuleiðis hvernig bregðast skuli Norðmenn og Skotar háðu vlð ef engir samningar um Indó! landsleik i knattspyrnu í Glas- Kína takist á Genfarráðstéfn-1 gow í gær. Skotar unnu með unni. * einu marki gegn engu. Skotland vann Noreg með 1:0 lÓÐVIU Fimmtudagur 6. maí 1954 — 19. árgangur 100. tölublaó Öriygur Sigurðsson opnaði mólverkasýningu í gœr Örlygur Sigurösson listmálari opnaði í gærkvöld sýn- ingu í Listvmasalnum við Freyjugötu, og er þaö 5. sýn- ing hans hér í Reykjavík. Gaullistar hafa líf frönsku stjórnarinnar í hendi sér Það fer eftir afstööu gaullista hvort franska stjórnin íellur viö atkvæöagreiðslu á þingi í dag. Rœða um Saar Skrifstofustjórar utanríkis ráðuneyta Frakklands og Vestur- JÞýzkalands settust í gær enn einu sinni á rökstóla til að reyna að semja um framtíð Saarhéraðs* ins, sem byggt er Þjóðverjum en er hluti af efnahagskerfi Frakk- lands. Ræðast þeir við í París. Juin sifur Yfirherstjórn A-bandalagsins í París tilkynnti í gær að franski marskálkurinn Juin, sem rekinn var úr öllum stöðum í franska hernum fyrir að gagnrýna hug- myndina um Vestur-Evrópuher, yrði áfram yfirmaður landhers bandalagsins í Mið-Evrópu. Aðalfundur ÆFR verður haldlnn i MlB-salnum, Þinglioltsstrieti 27, í kvöid kl. 8:80. Á dagskrá eru venjuleg aðalíundarstörf, en auk þess | flylur Einar Olgeirsson erlndi um vandamál togaraútgerðar- ianar, og Steinþór Guðmunds- son ávarp um húfenæölskaup Sigfúsarsjóðsins. há verða ennfremur rædd hús- uæðismál svo og önnur mál. Áríðandi er að alllr ÆFR-fé- - lagar mæti og koml stundvís- Í lega. — Stjóm ffiFB Laniel forsætisráðherra hef- ur lýst yfir að hann geri það að fráfararatriði ef þingið sam- þykkir ekki tillögu hans að að þingflokkur gaullista van- treysti Bidault utanríkisráð- herra og telji hann hafa haldið illa á málum á ráðstefnunni umræðu um Indó Kína verði Genf. Þeir eru einnig andvígir frestað framyfir ráðstefnuna í Genf. Fréttaritarar í París segja Snyrtisfofan Heba 6 ára Snyrtistofan Heba á 6 ára starfsafmæli um þessar mundir, en hún var fyrsta snyrtistofan hér á landi, sem tók upp svo- nefnda hressingar- og megrun- arleikfimi fyrir viðskiptavini sína. Hefur leikfimi þessi notið mikilla og sívaxandi vinsælda, einkum meðal kvenna. Snyrtistofan Heba var fyrst til húsa í Austurstræti 14 en fluttist á sl. hausti í ný húsakynni að Brautarholti 22. Forstöðukona er Margrét Árnason. Byrjað að ryðja Siglufjarðarskarð Siglufirði. Frá frétta- ritara Þjóðviljans 1. maí Fyrir nokkru var byrjað að ryðja snjó af veginum yfir Siglufjarðarskarð. Vannst verk ið vél og væri að líkindum búið nú, cf ýtan liefði ekki bilað. Tíðarfar hefur verið eindæma gott í vetur, aldrei legið snjór á láglendi nema, stuttan tíma í einu. Veðurblíða hefur verið, sólskin og hlýindi undanfarnar vikur, þar til fy-rir nokkrum dögum að brá til norðanáttar. Jörð er tekin að grænka fyrir nokkru. Fyrirspurnir um íurðu- ílugvélar H. C. Hansen, utanríkisráð- herra Danmerkur, skýrði utan- ríkismálanefnd þingsins frá þvi í gær að fyrirspurnum vegna ó- þekktra fíugvéla, sem fyrir skömmu flugu yfir Danmörku ó nætúrþeli, hefði verið beint til stjórna Bandaríkjanna, Bret- lands og Sovétríkjanna. Pleven landvarnaráðherra og á móti Vestur-Evrópuhernum, sem meirihluti ríkisstjórnarinn- ar styður. Engu að síður er talið að gaullistar muni skirrast við að fella Stjórn Laniels. Þeir vilji ekki taka á sig ábyrgð á stjórnarkreppu meðan ráð- stefnan í Genf stendur. Á þessari sýningu eru rösk- lega 40 myndir, aðallega olíu- málverk. Eru myndirnar um ýms efni, en mannamjmdir og atvinnulífsmyndir eru teinna mest áberandi. Árið 1945 hélt. örlygur fyrstu sýningu sina í Reylcjavík, og er þetta hin fimmta í röðinni. Ennfremur hélt hann sýningu í Vestmannaeyjum í fyrra, og áður hafði hann efnt til sýn- ingar á Akjrreyri. Örlygur var sncmma snjall teiknari og málari, og er hann löngu einn eftirtektarverðasti málari í hópi yngri manna. ■« í." #■; s--. itgii'i i-s* i.> » 2700 ára gullhringir grafnir úr jörð í í Danmörku Bóndi á Norður-S.jálandi í Danmörku fann nýlega á akri sínum þr.já gull- hringi og eina gullstöng. Gripir þessir eru nú komnir á Þjóðminjasafn Dana og segja safnverðir að þeir séu frá bronsöld hinni síðari eða um 2700 ára gamlir. — Verðmæti gullsins í gripunum nem- ur um 6000 krónum. Söngfélag verkalýðssamtakanna söng í Sandgerði 1. maí á samkomu verkalýðs- og sjómanna- félagsins Sandgerði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Verkalýðsfélagið hér gekkst fyrir mikilli söngskemmt- un 1. maí. Fékk þaö kór Söngfélags verkalýðssamtak- anna í Reykjavík til þess að halda hér samsöng. Söng kórinn fyrir troðfullu húsi og við hinar beztu móttök- ur. Var söngskráin fjölþætt og mikil stígandi í söngnum, er náði hámarki sínu með lögum þeirra Skúla Halldórssonar og Sigursveins D. Kristinssonar við ljóðin Heil, íslenzka ættargrund, Forsetinn kemur í fyrramálið Forseti íslands, hr. Ásgeir Ásggirsson og forsetafrú koma heim með ms. Gullfossi í fyrra- málið úr hinni opinberu heim- sókn til Norðurlandanna. Þegar Gullfoss leggst að hafnarbakkanum, er gert ráð fyrir, að þar verði ráðherrar, fulltrúar erlendra ríkja, borg- arstjóri og forseti bæjarstjórn- ar til að bjóða forsetahjónin velkomin til landsins. Þegar forsetahjónin ganga í land, flytur forseti bæjarstjórn- ar, frú Auður Auðuns, ávarp. Lúðrasveit Reykjavikur leik- ur við komu skipsins. Islendingur, mundu það, og Hvort var þá hlegið í hamri? Varla mun svo steinrunnið hjarta, að ekki hafi þá slegið örar og fyllzt hrifningu og ást til fósturjarðar sinnar, enda fór saman ágæti ljóða og laga og snilldarflutningur kórs og ein- söngvarans, Guðmundar Jóns- sonar, undir frábærri stjórn söngstjórans, Sigursveins D. Kristinssonar, en Skúli Halldórs- son lék undir á píanóið og varð það enn til þess að auka reisn- ina í flutningnum. Framhald á 9. síðu f Sýningin er opin næsta hálfa mánuð, kl. 2-10 daglega. Álitshnekhir fyrir f'JSA Eisenhower Bandaríkjafor.’eti komst sr/o að orði á blaða- mannafundi í gær að rifrildi McCarthys öldungadeildar- manns og Stevens hermálaráð- herra, sem nú er búið að vera til rannsóknar í hálfan mánuð fyrir þingnefnd og hvergi sér fyrir endann á, hafi stórskað- að álit Bandaríkjanna ,erlendis og sjálfsvirðingu bandarísku þjóðarinnar. Hann kvaðst bera fullt traust til Stevens. «fárnlira«it sexspreitgd Franska herstjórnin í Indó Kína skýrði frá því í gær að sveitir úr sjálfstæðisher lands- búa hafi spfengt járnbrautar- línuna mitli borganna Hanoi og Haiphong á Kauðársléttunni sex sinnum undanfarinn sólar- hring. Bardagar lágu að inestu niðri við Dienbienpliu, þar sein allt flóir nú í leðju vegna stórrign- inga. Törngren myndar iinnska stjórn Ralf Törngren, foringi Sænska flokksins, myndaði í gær ríkis- stjórn í Finnlandi. Stjómin er samsteypustjórn flokksbræðra Törngrens, sósíaldemókrata og Bændaflokksmanna. Verkamanna- flokkurinn vinnur á í bæjarstjórnarkosningum í Skotlandi hefur Verkamanna- flokkurinn unnið töluvert á, náð meirihluta í sex borgum sem hann réði ekki áður en tapað einni. Um næstu helgi fara fram bæjarstjórnarkosningar í Eng- landi. Ágætur a!!i á handfæri við Langanss Neskaupstað. Frá fréttaritara Þjóðviljans Bátar sem stundaö hafa handfæraveiöar við Langanes undanfariö hafa aflaö ágætlega. Fjórir vélbátar héðan hafa stundað þessar veiðar, en fleiri munu sennilega bætast við. Tveir höfðu með sér net, en annar þeirra lagði þau ekki vegna þess hve vel fiskaðist á færin. Hinn báturinn lagði netin, en fékk lít- inn afla í þau. Einn bátanná, sem á eru 4 menn, fékk 45 skippund á viku. Aflann leggja þeir upp hér í Neskaupstað. Egill rauði lagði 279 tonn af saltfiski og 13 af nýjum fiski á land hér s.l. mánudag og fór á miðvikudag aftur á veiðar í ís.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.