Þjóðviljinn - 07.05.1954, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 07.05.1954, Blaðsíða 1
Föstudagur 7. maí 1954 — 19. árgaugur 101. tölublað Kvikmyndasýning MÍB: Á MÍIW'uiidioura í kvöW verður sýnd i'alleg Irtkvik- mynd: Námumennimir viff Doú, sem m.a. sýnir námu* vinnu neðanjarðaj*. Fnndur- inn befst kl. 8 í kvöld í MlB- salnum að ÞinghoHsstrseti 27. Samvinna íhaldsandstæðinga í bæjarstjórn um lausn húsnæðismálanna heldur áfram Flytja sameiginlega tillögur uni byggingu 100 nýrra íbúða og kröfu uin að íhaldið efni loforð sitt um lóðir undir 1500 nýjar íbúðir ; 100 ibúSir til vi&bótar áður samþykktum 56 ibúðum „Bæjarstjórn Reykjavíkur samþykkir að heíja nú þegar byggingu 100 íbúða til viðbótar þeim 56 í- búðum, sem ákveðið var á síðasta bæjarstjórnar- íundi að byggja á þessu ári. íbúðir þessar verði þriggja og ijögurra herbergja íbúðir í sambyggðum tveggja hæða raðhúsum og seldar fokheldar með hitalögn með hagkvæmum kjörum því íólki, sem nú býr í bröggum eða öðru óhæíu húsnæði. Fjár til þessara byggingaíramkvæmda felur bæj- arstjóm borgarstjóra og bæjarráði að afla með lán- töku, svo að notuð verði til fulls sú 10 milljóna króna lántökuheimild í þessu skyni, sem samþykkt var við afgreiðslu fjárhagsáætlunar Reykjavíkur- bæjar fyrir árið 1954”. Framanskráða tillögu fluttu fuUtrúar minnihlutaflokkanna fjögurra á bæjarstjórnarfundi í gæi’, þeir Alfreð Gíslason. Ingi R. Helgason, Þórður Björnsson og Gils Guðmundsson. Fyrsti flutningsmaður tillög- unnar, Alfreð Gíslason læknir, hafði framsögu fyrir henni þar sem hann lýsti þörf nýrra bygg- inga, hvernig vanrækt hefði ver- ið árum saman að uppfylla árlega íbúðaþörf bæjarbúa svo nú væri húsnæðisleysið enn verra en fyrr. Jafnframt vék hann að tillögu þeirri er meirihluti bæjarstjórn- arinnar, íhaldið, samþykkti á sl- fundi um byggingu 56 íbúða, sem væri alls ófullnægjandi. Minnti hann á að við afgreiðslu fjár- hagsáætlunar bæjarins heíði ver- ið heimilað að bærinn tæki 10 miTlj. kr. lán til íbúðabygginga, og væri í tillögu minnihlutaflokk- anna aðeins farið fram á að bæj- arstjórnin notaði þá heimild. Hinsvegar kvað hann þörf vera miklu fleiri íbúðabygginga, en þrátt fyrir það hefðu fulltrúar minnihlutaflokkanna komið sér saman um að fara ekki fram á meira i bili en aðeins að íhaldið efndi fyrirheit sín. Gils Guðmundsson, Ingi R. Helgason, Þórður Björnsson og Guðmundur Vigfússon töluðu einnig allir fyrir tillögunni. Borgarstjóra, Gunnari Thor- oddsen varð fátt um varnir og St$órnarbylting í Paraguay Gerð hefur verið tilraun til stjórnarbyltingar i Paraguay, en í gærkvöld var enn eklci Ijóst, hvort hún hefði tekizt. Fréttir af byltingunni bárust fyrst með ferðamönnum sem komu með flugvél frá Paraguay til Buenos Aires og sögðu þeir að hópur foringja úr hernurn hefðu gert uppreisn gegn for- seta landsins, dr. Chaves, og hefðu m.a. náð lögreglustöðinni ■ í liöfuðboi'ginni, Asuncíón, á sitt vald. Símasambandslaust er við Paraguay og útvarpsstöðin þagnaði skyndilega í gær svo að enn er óljóst, hvað hefur gerzt. Dr. Chaves komst til valda fyrir fimm árum eftir óblóðuga byltingu og höfðu þá fjórar stjórnarbyltingar verið gerðar í landinu á einu ári. greip til þess ráðs að segja að tillaga minnihlutaflokkanna væri byggð á röngum forsendum, þvi fyrst yrði að útvega féð áður en ákveðnar væru byggingar. ann- ars væru slíkar samþykktir þýð- ingarlausar, auk þess sem það hefði alls ekki verið ætlun íhalds- ins að vei-ja þessum 10 millj. öll- um til íbúðabygginga, heldur einnig til holræsagerðar! Lagði borgarstjórinn til að tillögunni yrði vísað frá til bæjarráðs. Fulltrúar minnihlutaflokkanna spurðu hvort vissa væri fyrir að fé fengist með engu móti og væri ekki að vænta að borgarstjóri leitaði eftir því ef ætlunin hefði aldrei verið að nota heimildina. Spurði Ingi R. Helgason borgar- stjóra hvort samþykkt íhaldsins í vetur um lieimild til 10 millj. kr. lántöku til íbúðabygginga hefði einungis verið til að sýnast. Nafnkall var haft um húsnæð- ■ismálatillögu minnihlutaflokk- anna og samþykktu þessir Sjálf- stæðismenn að vísa henni frá til bæjarráðs: Gunnar Thoroddsen, Ólafur Björnsson, Gísli Halldórs- son, Guðbjartur Ólafsson, Þor- björn Jóhannesson, Gróa Péturs- dóttir, Árni Snævarr og Guð- mundur H. Guðmundsson. LóS/r undir 500 ibúSir verSi tilbúnar fyrir 1. júli nk. „Bœjarstjórn telur, að vegna liinnar brýnu þarfar á auknum íbúðahúsabyggingum í bœnum, sé það óviðun- andi, að skortur á lóðum af bœjarins hendi, sé látinn. standa i vegi fyrir byggingu þeirra íbúöahúsa, sem fyrir- hugaðar eru af hálfu einstaklinga og byggingarsamtáka. Lýsir bæjarstjórn því yfir, að hún leggur áherzlu á að greiða á állan hátt fyrir úthlutun og afhendingu lóða til íbúöarhúsabygginga í bœnum. Bœjarstjórn telur óhjákvœmilegt, að gerðar verði ráð- stafanir til þess að lokið verði eigi síðar en 1. júlí n.k., úthlutun og afhendingu þeirra lóða fyrir 1500 íbúðir, se^n borgarstjóri lýsti yfir opinberlega 20. janúar s.l. að bœr- inn hefði þá tilbúnar til úthlutunar og hœgt vœri að 1; ef ja byggingu á nú í vor. Felur bæjarstjórn bcrrgarstjóra og bœjarráði fram- kvœmdir í þessu efni“. Flutningsmenn þessarar tillögu voru Þórður Björnsson, Ingi R. Helgason, Gils Guðmundsson og Alíreð Gíslason og hafði fyrsti flutningsmaður tillögunnar, Þórður Björnsson, framsögu fyr- ir henni. Kvað hann undanfarið hundruð manna, máske væru þeir orðnir á annað þúsund, hafa sótt um lóðir undir hús, en fengju þær ekki. Lágmarkskrafa væri hinsvegar að bærinn stæði ekki þannig í vegi fyrir íbúðabygg- Framhald á 11. síðu 200 beiðnir um aðstoð vegna húsnæðisleysis Nær helmingur þeirra á enn ekkert víst 14. maí L Ingi R. Helgason beindi þeirri fyrirspum til borgrar- stjóra á bæjarstjómarfundi í gær hve margar beiðnir um aðstoð bænum hefði bori/.t undanfarið vegna flutninga og uppsagna 14. maí, og hvað bærinn hefði gert eða liyggð- ist gera í því máli. Borgarstjóri kvað hafa bor- i/.t 200 bciðnir um aðstoff við útvegun húsnæðis vegna upp- sagna 14. maí. Ilúsnæðismála- fulltrúi hefði reynt að fá framlengda samninga eða út- vega annað húsnæði og fram- færslunefnd hefffi einnig veitt Ián til að fullgera ibúffir, greiða fyrirframleigu og jafn- vel kaupa íbúðir og liefði þannig verið ráðið fram úr vandræðum rúmlega helmings þessara aðstoðarbeiðenda, en ekki væri enn fengið húsnæði fyrir nær hundrað þeirra sem aðstoðar leituðu. Ein milljón króna fyrir 17. jú 35.000 Kvenfélag sósíalista leggur til 19.400 kr. Söfnuuln í Sigfúsarsjóð er hafln, og henni verður haldlð sleitu laust áfram tll 17. júni. Þessl söfnim er stærri í sniðiun en nokkur önnur sem ráðlzt hefur verið í á vegum Sósíalistaflokics- Ins; til þess að ná markinu verði* að safnast 25.000 kr. á dag aff meðaltall, í beinum framlögum eða loforðum sem grelðist íyrir áramót. I gær, fyrsta dag söfnunarinnar. komu inn 35.000 kr. — allt í stór- um upphæðum. Melrihluti þeirrar upphæðar — kr. 19.100 — koni frá Kvenfélagi sósíaUsta. Hélt félaglð fund í fyrralcvöld og sani- þyklvtt elnróma að afltenda hús- sjóð félagsLns í söfnunina. Var mlkill áhugi og gleðl á fundinuin j'fir því að ráðizt hefur verið í l>etta stóra fraintak, sem mun bæta injög starfsskilyrði kven- félagslns eins og annarra aðila h reyf lngarinnar. Ber sérstaklega að þakka þessa myndarlegu gjöf kveimanna; hún er sönnun þess að þær munu ekki láta sitt eftir iiggja í síarflnu. Biimig kaus kvenféiagið í söfnunarnefndina Hallfriði BrjTijólfsdóttur og I.auf- eyju Magnúsdóttur Engilberts. Söfnunargögnin eru nú tilbúin og verða afiient i dag að Þórsgötu 1. Er nauðsyidegt að sem allra flest- ir nálgist gögnin þegar í dag, og taki þátt í starfinu fiá uppliafl. Hér fyrir neðan er lítil svört ör sem táknar upphaf söfnunar- innar. Hún lengist á hverjum degi eftlr því seiu söfnunin vex, og liún á að hafa náð hús- inu 17. ji'mí, þegar söfnunin er komin upp i eina milljón. Eeggj- um öil liönd að þvi mikla verki. /----- ’ >4 millj. |-- ’ V-. millj. % millj. 35.000 kr.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.