Þjóðviljinn - 07.05.1954, Side 8
ws
H) — ÞJÓBVTUINNr _ Föstudagur 7. maí 1954
Japanir eiga alltaf góða
sundmenn og alltaf koma þar
fram glæsilegir einstaklingar.
Nú er það komungur Japani
Mazary Furukawa sem sett
hefur nýtt heimsmet á 200 m
bringusundi og þar með bætt
met Danans Knud Gleie. Sagt
er að Furukawa hafi ætlað 3ér
að séræfa sig í flugsundi en
ekki náð sérlega góðum á-
ran'gi'i eða 1.15.8 á 100 m og
2.39.0 á 200 m. En þá tók
hann upp á því að séræfa sig
í bringusundi og þá lét árang-
urinn ekki á sér standa.
Bókasafn í Höín
Framhald af 6. gíðu.
heíma, sem vildi veita þeim við-
töku. Ummæli þessara góðu
manna valda því, að ég leyfi
mér að snúa mér til almennings
heima, bæði bókaútgefenda og
annarra og fara þess á leit við þá
að þeir sendi safninu okkar
nokkrar bækur — íslenzkar —.
Ólafur Gunnarsson sálfræð-
ingur, Miklubraut 60 Reykjavik,
hefur góðfúslega lofað að' veita
bókunum víðtöku og koma þeim
til safnsins. Óiafur var einn með-
al þeirra er vann að stofnun
bókasafnsins og mun allra
manna kunnugastur hugsunar-
hætti og smekk landa í Ðan-
mörku, mun hann svara öllum
fyrirspumum sem berast kynnu
í sambandi við þetta mál. Heima-
sími hans er 2892.
Ég veit að margir munu senda
okkur góða íslenzka bók og fyr-
ir svo góðar gjafir Séndi ég
fyrirfram mínar beztu þakkir.
Virðingarfyllst,
Ólafur Albertsson
Öster Farimagsgade 35
Kbh. Ö.
! Bannister hljóp
1 nílnna á 3,59.4!
\
í í gær hljóp brezki milli-
í vegalengdahlauparinn Roger
; Bannlster eina enska mílu
(,,draumKiíIuna“) á 3 mín.
í 59 4 sek. sem er nýtt heims-
mct. Er Bannisíer fyrsti
hlauparinn sem tekst aff
hiaupa míluna á skemmri
tíma en 4 mín. Elúra heims-
J metiff átti Svíinn Gunder Hágg
í og var þaff 4.01.4, sett í Malmö
mótið á SMinudag
Svigkeppni Kolviðarhólsmóts-
ins 1954 fer fram í Jósefsdal n. k.
súnriudag og hefst kL 10 árdegis.
Keppt verður í öllum flokkum
Larla og kvenna og eru meðal
þátttakencla allir beztu svigmenn
Ksýkjavíkur.
Ilér höfum við beztu menn
á 200 m bringusundi: Furu-
kawa Japan 2.35.4, (1954),
Gleie Danmörk 2.37.4 (1953),
Petrusevicz Pólland 2.37.4
(1954), Minachkine Sovétríkin
2.38.2 (1953), Dumesnil Frakk-
land 2.38.7 (1952), Hamuro
Japan 2.39.0 (1939),Marakenko
Sovétríkín 2.39.4 (1952). Cor-
tomet Frakkland 2.39.6 (1953),
Keldar Holland 2.39.8 Saszoda
Sovétríkin 2.39.8 (1953). —
Eins og sjá má eru 9 af þess-
um tíu afrekum með á tveim
sl. árum og er það þakkað auk-
inni tæknilegri þróun sem orðið
hefur í bringusundi.
Gildl tómshmdanna
Framhald af 7. síðu.
er að starfi og þarfnast hvíld-
ar og viðgerðar með vissum
fresti, verður að gefa honum
frí frá störfum.
Ályktunarorð hins fræga
læknis eru þessi:
Bezt er tomstundinni lýst
sem tímabili skynsamlegrar
en slremmtilegrar hvíldar eftir
langa skorpu erfiðrar and-
legrar vinnu. Slæpinginn eyðir
lífi sínu í fánýti. Handverks-
maðurinn snýr frá erfiði til
hvíldar. Maður hins andlega
starfs blandar vinnu sína með
tómstundum, tímabilum, ^sern
heili hans er notaður en ekki
rekinn áfram. Slíkum manni
er tómstundin ekki aðeins
þýðingarmikil heldur nauð-
synleg. 1 vinnustundunum
birgir hann upp huga sinn og
birgir hann svo hratt og svo
mikið, að hinir nýfengnu
fjársjóðir eru ekki réttilega
metnir, flokkaðir, skipaðir
niður og teknir til notkunar
áður en aðrir hrúgast að. í
tómstundinni er tækifæri til
að ná saman endum. Flækjan
greiðist, stíflaðir farvegir opn-
ast og eigandinn snýr aftur
til að komast að raun um, að
meðan hann var í burtu, hef-
ur öll óreiðan sem hann fór
frá, skipað sér þannig í rnynd
að hún virðist hafa einhverja
merkingu.
Aðeins tómstund getur
komið ofreyndum huga aftur
á laggir. Lyf veita hlé, frek-
ar en hvíld. Þau setja hemla
á vélina, í stað þess að láta
hana renna hægt og stöðvast
án hemla. Tómstundin veitir
henni dag á verkstæði, þar
sem hún fær viðgerð og al-
menna innstillingu.
UG6UB LB !B I
Ódýrt — Ödýrt
Chesterfieldpakkinn 9.00 kr.
Barnasokkar frá 5.00 —
Andlitspúður frá 5.00 —
Handsápa 2.00 —
Blautsápa 4.50 —
Þvottaduft 2.75 —
Amerískur varalitur 8.00 —
Amerísk dömubindi 5.75 —
Kaffipokar frá 2.50 —
Þvottapokar 5.00 —
Dömupeysur frá 45.00 —
Herraskyrtur 85.00 —
Herrasokkar frá 10.00 —
Barnahúfur frá 12.00 —
Svuntur frá 15.00 —
Ný vöruparíí daglega.
Vörumarkaðurinn
Hverfisgötu 74.
Á
RITSTJÓRi. FRtMANN HELGASON
11. fundur sambandsráðs ÍSÍ
Fundur var haldinn í sam-
bandsráði íþróttasambands ísl.
.24. og 25. apríl 1854 í Reykja-
vík. — Fundinn setti og stjórn-
aði forsti ISÍ Ben. G. Waage.
Á fundinum voru tekin fyrir
og rædd ýms mál íþróttahreyf-
íngarinnar, fluttar skýrslur
framkvæmdastjórnar ISÍ og
sérsambanda, lagðir fram fjöl-
ritaðir reikningar sambandsins
og fjölrituð skýrsla Ólympíu-
nefndar íslands. Að öðru leyti
voru helztu gjörðir og sam-
þykktir fundarins þessar:
Samþykkt var eftirfarandi
skipting á kennslustyrkjum
milli íþróttagreinanna í sam-
ræmi við kennsluskýrslur árs-
ins 1953:
Handknattleikur, fímleikar,
glíma, körfuknattleikur og fl.
50.800.00 kr.
Frjálsar íþróttir 18.000.00 kr.
Skíðaíþróttir 1.300.00 —
Golfíþróttin 3.000.00 —
Knattspyrna 22.400.00 —
Sund 9.500.00 —
Samtals 105.000.00 —
Ólympíunei'nd íslánds.
Fyrir fundinum lágu tillögur
um nýjar starfsreglur fyrir ÓL
íslands frá undirbúningsnefnd,
og voru þær samþykktar ó-
breyttar. Helztu breytingar eru
þær, að fjölgað er í nefndinni
úr 13 manns í 15. Nefndin kýs
úr sínum hópi 5 manna fram-
kvæmdanefnd og er einn nefnd-
armanna skipaður eftir tilnefn-
ingu menntamálaráðherra.
Kjömir voru í ÓL íslands
þessir menn:
Benedikt G. Waage,
Ásgeir Pétursson,
Guðmundur Sigurjónsson,
Sigurjón Jónsson,
Gísli Kristjánsson,
Erlingur Pálsson.
Lúðvík Þorgeirsson og Her-
mann Guðmundsson. Án til-
nefningar: Gísli Halldórsson,
Bragi Kristjánsson, Magnús
Brynjólfsson, Helgi H. Eiríks-
son, Jens Guðbjörnsson, Ólaf-
ur Sveinsson, Þorvaldur Ás-
geirsson. Varamenn: Óðinn
GeirdaJ, Þorgiis Guðmundsson,
Þorgeir Sveinbjarnarson, Lárus
Halldórsson, Ragnar Lárusson,
Georg Lúð^íksson, Þórður Guð-
mundsson, Konráð Gíslason og
Guðjón Einarsson.
Breyting á dóms- og refsi-
ákvæðum ÍSÍ.
í tilefni af erindi frá íþrótta-
dómstóli ÍSÍ, sem óskaði þess
að‘sambandsráð gerði scrstak-
ar ráðstafanir, þar sem dómur-
inn væri óstarfhæfur í vissu
rnáli var eftirfarandi breyting
á dóms og refsiákvæðum sam-
þykkt:
Viðbót við 6. grein 7. tölu-
lið:
„Þó skulu aldrei það margir
dómendur víkja sæti, að dóm-
stóllinn verði óstarfhæfur."
Mál framkvæmdastjórnar ÍSl
gegn Erni Clausen, Inga Þor-
steinssyni og Þorsteini Löve
var mikið rætt á fundinum
og eftirfarandi samþykkt gerð:
„Með tilvísun til dóms Hér-
aðsdómsstóls ÍBR í málinu
framkvæmdastj. ISÍ gegn Erni
Clausen, Inga Þorsteinssyni og
Þorsteini Löve, uppkveðnum
30. marz 1954, samþykkir sam-
bandsráðsfundur ÍSl að ekki sé
ástæða fyrir ÍSÍ til að áfrýja
dóminum, né ákæra fleiri af
Ólympíuförunum.“
Kennslumál íþrótta-
hreyfingarinaar.
Voru mjög mikið rædd. Svo-
hljóðandi tillaga var samþykkt:
Sambandsráðsfundur ISl hald-
inn í Reykjavik 25. apríl 1954
ályktar að fela nefnd sem sam
anstæði af fulltrúum frá fram-
kvæmdastjórn tSÍ, sérsambönd
unum, stjórn UMFl og íþrótta-
fulltrúa ríkisins, að gera til-
lögur um öll kennslumál í-
þróttahreyfingarinnar og
hversu það fé scm henni á-
skotnast til kennslumála nýtist
bezt, bæði íþróttalega og fé-
lagslega.“
Blóðgjafir til blóðbanka.
í því máli var eftirfarandi
samþykkt gerð:
„Fundur sambandsráðs ÍSf
haldinn 24. og 25. apríl 1954,
skorar á íþróttamenn að gefa
blóð til blóðbanlca, þar sem
þeir eru stárfræktir.“
Skilgreining á íþróttum og fé-
lögum er leggja stund
á íþróttir.
Mjög ýtarleg tillaga kom
frarn í máli þessu frá íþrótta-
fulltrúa og var lienni vísað til
framkvæmdastjórnar fSÍ til
frekari athugunar.
Samnorræna sundkeppnin.
Mikill áhugi kom fram á
fundinum að gera þátttöku ís-
lendinga sem mesta í samnor-
rænu sundkeppninni, sem fer
fram í sumar.
Að lokum sleit forseti ÍSÍ
Ben. G. Waage fundinum,
þakkaði fundarmönnum gott
starf og óskaði utanbæjar-
mönnum góðrar heimferðar.
(Frá fSÍ).
Óskar Mathisen látinn
Þeir sem hafa svolítið fylgzt
með skautaíþróttinni hafa
heyrt nafnið Oskar Mathisen
nefnt. Norðmenn telja liann
sjálfir frægasta íþróttamann
sem Noregur hefur alið. Mathi-
sen lézt nú fyrir nokkrum dög-
um 66 ára gamall. Hann var
aðeins 18 ára er hann varð
fyrst Noregsmeistari en 6 sinn-
um alls vann hann þann titil
áður, en hann gerðist atvinnu-
maður í skautahlaupi.
„Hann var bezti sendiherra
Noregs, með fánann á brjósti
fór hann sigrandi land úr
landi“, segir eitt blaðið í eft-
irmælum sínum. — Hann var
jafngóður á öllum vegalengd-
um og átti um skeið heimsmet
á þeim öllum og er sá eini í
heiminum sem unnið hefur það
afrek.
; Auk liinna 6 Noregsmeistara-
titla varð hann 5 sinnum heims
meistari og þrisvar Evrópu-
meistari, auk margra annarra
stórsigra. Fjórum sinnum
bætti hann metið á 500 m.
Hann átti heimsmetið á 1000 m
í nær mannsaldur.
Fjórum sinnum bætti hann
heimsmetið á 1500 m, tvisvar
á 5000 m og þrisvar á 1000. Á
árunum 1909—1916 setti hann
samtals 18 norsk met. Af ýms-
um hefur honum verið líkt við
hlauparann Nurmi.
En Oskar Mathisen var einn-
ig mjög góður sundmaður, dýf-
ingamaður, og ágætur hjól-
reiðamaður. Hann skrifaði bók
um íþróttaferil sinn sem hann
nefndi „Mitt livs Iöp“ sem er
skemmtileg aflestrar þar sem
hann segir m.a. frá drengjaár-
um sínum, og þeim árum er
hann var atvinnumaður þar
sem bæði mótlæti og meðlæti
mættu honum. Noregur hefur
með fráfalli O. Mathisen misst
„góðan Norðmann sem var mik-
ill íþróttamaður — sá mesti
þeirra allra — skautakónginn“,
eins og Sportsmanden orðar
það.
F r jálsíþrottaiijám-
VOROBÉFF, sovézkur meist-
ari og heimsmethafi í lyfting-
um (léttþungavigt).
Frjálsíþróttanámskeið það
sem IR gengst fyrir og er opið
öllum byrjar á sunnudagsmorg-
uninn og hefst klukkan 10.30.
Það heldur svo áfram mánu-
dag, miðvikudag og föstudag
klukkan 6 alla daga. Námskeið-
ið á áð standa um mánaðar-
tíma.
Kennarar verða Guðmundur
Þórarinsson, Finnbjörn Þor-
valdsson, Örn og Haukur Clau-
sen.