Þjóðviljinn - 07.05.1954, Qupperneq 11
Föstudagur 7. maí 1954 — MÓÐVILJI?rN — (11
Auglýsing
um skoöurt kifreiða á Keflavíkurflucjvelli
Aðalskoöun bifreiða á Keflavíkurflugvelli fer
fram við lögreglustöðina á KefLavíkurflugvelli,
mánudaginn 10. maí til föstudagsins 14. maí n.k.,
að báðum dögum meötöldum.
Skoðunin fer fram frá kl. 10—12 f.h. og frá kl.
1—5.30 e.h.
Við skoðunina skulu menn sýna kvittun fyrir
greiðslu á bifreiðaskatti, skoðunargjaldi og vá-
tryggingargjaldi ökumanns fyrir s.l. ár. Séu gjöld
þessi ekki greidd verður skoðunin ekki framkvœmd
og búast má við að bifreiðin verði tekin úr um-
ferð.
Þá ber að sýna skilríki fyrir því, að lögboðin
vátrygging fyrir hverja bifreiö sé í lagi.
Við bifreiðaskoðunina skulu bif-
reiðastjórar sýna fullgild ökuskírteini.
Þeir bifreiðaeigendur, er eiga lög-
heimili á Keflavíkurflugvelli, ber að
limskrá bifi'eiðir sínar en einlcennis-
bókstafur fyrir Keflavíkurflugvöll er J.
Umskráning bifreiðanna getur fariö fram sam-
tímis bifi’eiðaskoöuninni.
Vanraeki einhver að fara með bifreið sína til
skoðunar hér, á framangreindum tíma, verður
hann látinn sæta ábyrgð skv. bifreiðalögunum
og bifreið hans tekin úr umferð, hvar sem til
hennar næst. Geti bifreiðastjóri, eða umráða-
maöur bifreiðar ekki af óviðráðanlegum ástæð-
um, fært bifreið til skoðunar, er áríðandi að þeir
tilkynni það skoðunarmönnum bréflega.
Þetta tilkynnist öllum, er hiut eiga að máli.
Keflavíkurflugvelli, 4. maí 1954.
Lögeeglustjéri
ús Jónsson
tenór
Söngskemmtnn
i Gamla bíó, sunnudag 9. maí kl. 3 síðdegis
Við hljóðíærið Fritz Weisshappel
Aðgöngumiðar hjá Eymundson, Bækur og rit-
föng Austurstræti 1 og Bókav. Kr. Kristjáns-
sonar Laugaveg 7.
Looir undir
500 íbúðir
Framhald af 1. síðu.
ingum. íhaldið væri furðu lagið
við að draga menn á lóðaúthlut-
unum, þannig hefði Reykjavík á
einu ári úthlutað aðeins 60 smá-
íbúðalóðum á sama tíma og eitt
lítið nágrannahreppsfélag, Kópa-
vogur, hefði úthlutað á annað
hundrað. Nú legðu fulltrúar
minnihlutafloklcanna aðeins til
að íhaldið efni kosningaloforð
sitt frá því í janúar um úthlutun
lóða undir 11500 íbúðir.
Það var eins og komið væri við
kviku á borgarstjóranum þegar
Kópavogur („ríki Finnboga
Rúts“) var nefndur. Jós hann úr
sér um „óhugsuð orð“ og „yfir-
boðstillögur“ kommúnista. Brosti
Þórður breitt á meðan. Að lóða-
uthlutun kom borgarstjórinn
ekki, fyrr en hann sagði allt
einu að hægt væri nú þegar að
úthluta lóðum undir 1500 ibúðir
— vel að merkj-a ef einnig og
verulega væru byggðar sam-
byggingar.
Þórður bað hann gera bæjar-
búum þann greiða að r.efna í
hvaða hverfi mætti eiga von á
slíkri úthlutun, en borgarstjór-
inn kom sér undan að svara.
Ingi R. Helgason kvað þýðing-
arlaust að taka hóp manna og
úthluta þeim sameiginlega lóð
undir sambyggingar því fjárhag-
ur væri svo misjafn að fram-
kvæmdir myndu stranda á því.
Hinsvegar, ef til væru sambygg-
ingar myndu.fleiri en vildu.vera
reiðubúnir til ýmist að leigja eða
kaupa og því kæmi að því sem
sósíalistar hefðu alltaf haldið
fram, að bærinn og bygginga-
samvinnufélög ættu að reisa slík-
ar sambyggingar.
íhaldið vísaði síðan tillögunni
frá til bæjarráðs með 8 atkv.
gegn 7 atkv. hinna flokkanna.
Afmælishóf
Kvennadeildar
SVFf í Reykjavík
Kvennadeild S. V. F. í. í
JReykjavík hélt upp á 24. ára af-
mseli sitt 26. apríl. Yfir 300 konur
sátu afmælisfagnað þennan, þar
á meðal allir kvenfulltrúar, sem
sátu 7. landsþing S. V. F. í.
Áður en skemmtiatriðin hóf-
ust, setti form. deildarinnar, frú
Cuðrún Jónasson, fund fyrir
deildarkonur. Efni fundarins var
að bera upp til samþykktar tillög-
ur frá deildarstjórninni að láta
20 þúsund krónur til S. V. F. í.
sem afmælisgjöf og skyldu þær
ganga til greiðslu á nýju sjúkra-
flugvélinni. Önnur tillaga var og
borin upp, að láta 5.300 kr. til
kaupa á útbúnaði handa brim-
róðrabáti S. V. F. Vopnafjarðar.
Báðar þessar tillögur voru sam-
þykktar í einu hljóði. Gjafir þess-
ar voru afhentar forsela S. V. F.
í. á hinum raunverulega afmælis-
degi deildarinnar 28. apríl, en þá
hafði stjórn S. V. F. í. boðið öll-
um þingfulltrúum á sameiginlegt
hóf í minningu 25 ára afmæli
S. V. F. í. Eftir þessi sliyldustörf
deildarinnar" hófust skemmtiat-
riði. Margar konur, sem sátu
landsþingið tóku til máls og
snerust ræður flestra um starfið
og deildirnar.
Fölsuð málverk á
listasafni
Forstöðumaður listasafnsins á
Ordrupgaard í Danmörku, Leo
Swane, hefur uppgötvað, að þrjú
málverkanna, sem talin voru
einna dýrmætust í safninu, eru
falsanir. Talið hafði verið, að
Toulouse-Lautrec hefði máleð
þær, en Swane hefur sýnt fram
á, að þær séu eftirlíkingar, að
vísu mjög vel gerðar.
Lögreglan í Nairobi hóf her-
ferð gegn Kíkú.júmönnum í
borginni fyrir tveim vikum.
Hafa verið gerðar húsrannsókn-
ir í öllu Kíkújú-hverfi borgar-
innar og 26,000 manns teknir
til yfirheyrslu til að komast
fyrir um hvaða hug þeir beri
til brezku nýlendukúgaranna.
Af þessum 26,000 hafa Bret-
ar aðeins talið óhætt að sleppa
2000, hinir 24,000 eru enn í
haldi grunaðir um hollustu
við bjóðfrelsishreyfingu lands-
manna.
Ef Jiér þurfið að mála
Þá hötum \ið efnið og áhöldin
Gúmmímálning
í mestu litaúrvali, sem hér
hefur þekkzt.
HARP0 og HAMPEi S
ryðvarnar- og útimálning í skærum og fallegum
litum.
Penslar og málningarmilur við alira iiæfi
yRoitta
vanfar 1 sumar að leikskólanum í Grænuborg.
Umsóknir sendist skrifstofu Bamavinafélags-
ins Sumargjarfar fyrir 20. þ.m.
Stjórnin
Byggingarféiag verkamanna í Beykjávík
Þriffla berbagja ibúB
tíl sölu
í fjórða byggingarflokki. Félagsmenn skili um-
sókntun sínum fyrir 12. þ.m. í skrifstofu félagsins
Stórholti 16, og tilgreini félagsnúmer.
Sijómin
Sósíalistar Hafnarfirði
Aðalfundur Sósíalistafélags Hafnarfjarðar verð-
ur haldinn sunnudaginn 9. maí kl. 2 e.h. í Góð-
templarahúsinu uppi.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. önnur mál.
FÉLAGAR! mætið allir stundvíslega.
Stjómin.
Þjóðviljaim vaiitar unglins
til að bera blaðið til kaupenda á
Grímssiaðaholt
HÖMILJINN, Skólavörðustíg 19, sími 7500
- Aðeins 2 söludanar effir í 5,
Happdrœtti Háskóla íslands