Þjóðviljinn - 15.06.1954, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 15.06.1954, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 15. júní 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Frá síðustu þingkosningum í júní 1953 hefur aukin athygli beinzt að Sosíalistaflokki Ítalíu. Siðan 1950 hafði það verið al- menn skoðun að hinar tvær klofningar í flokknum 1947 og 1948 hefðu riðið Sósíalistaflokki Ítalíu að fullu og að hann væri nú áhrifalaus. Samt sem áður er það einmitt frá árinu 1950, sem telja má að endurnýjun og endurskipulagn- ing Sósíalistaflokks Ítalíu hefj- ist eftir kosningarnar. Af þess- um ástæðum komu úrslit kosn- inganna 1953 mönnum á óvart, ekki sízt sósíaldemókrötum. Sósíaldemókrataflokkur Sara- gats beið ósigur, hlaut einungis 1200000 atkv. 1953, en 1800000 1948. Sósíalistaflokkur Ítalíu hlaut 3,5 milljón atkv. og 75 þingsæti en áður 42. Aukning flokksfylgisins hefði þó getað orðið meiri, ef skipulagning flokksins hefði verið betri, eink- um á Suður-Ítalíu. Að okkar skoðun er hinn hag- stæði árangur kosninganna að þakka einingarstefnu flokksins, sem er aðalatriði í stefnuskrá hans. Erlendis heíur sú skoðun komið fram að kosningasigur flokksins eigi rætur sínar að rekja til þess að ekkert kosn- ingabandalag var að þessu sinni milli sósíalista og kommúnista eins og 1948. Á Ítalíu hefur þessi áherzla, sem iögð er á sjálfstæða stefnu flokkanna fengið á sig mynd andkommúnisma og andstöðu gegn einingu alþýðunnar. En niðurstaða kosninganna 1953 reyndist ekki hliðstæð þessari stefnu. Kommúnistaflokkurinn fékk 6.200.000 atkv. og vann 1% millj. atkvæða frá 1946. Þessi atkvæðaaukning er þó án efa að þákk'a heilsteyptri stefnu flokksins og' ágætri skipulagn- ingu hans. Ef bomar eru saman at- kvæðatölur Alþýðufylkingar- innar 1948 og samanlagðar töl- ur Sósíalista- og Kommúnista- fiokksins 1953, þá sést að þær hafa þsekkað úr h. u. b. 8 millj. í h. u. b. 10 millj. Þetta sýnir aukið fyigi við einingarstefnu vinstri flokkanna, og myndi ár- angur Sósíalistaílokksins þó hafa orðið betri, hefði aldrei komið til klofnings 1947—48. Það hafði í íör með sér, að fylgi Sósíalistaflokksins dreifð- ist. og gekk yfir til kommúnista, og í öðru lagi að flokkurinn tapaði fylgi meðal millistéttar- fólks, án bess þó að það færi yfir til sósíaldemókrata eins og sést af hinu litla fylgi þeirra í þeirri stétt. Réttmæti stefnu Sósíalista- flokks Ítalíu hefur verið stað- fest á annan hátt. Stefna hans er í fyrsta lagi mótuð af stigi því sem stéttabaráttan er á í Ítalíu, og í .öðru lagi af kenn- ingum marxismans sem Sósíal- istaflokkurinn hefur því nær alltaf fylgt. Baráttuaðferð flokksins er að vísu nokkuð frá- brugðin baráttuaðferðum ann- arra sósíalistaflokka í Evrópu. Þetta á þó rót sína að rekja til hinna óvenju skörpu stéttaand- stæðna á Ítalíu, sem eru marg- falt skarpari þar en í Englandi, Frakklandi eða Þýzkalandi, að ekki sé minnzt á Norðurlond. Barátta okkar fyrir stjórnmála- Samvinna verkalýðsfiokk* anna er grundvallaratriði legu lýðræði hefur alltaf verið og mun halda áfram að verða harðari en í téðum löndum, að undanteknu Þýzkalandi þó. Þannig hefur Sósíalistaflokk- ur Ítalíu ávallt fylgt sósíalist- iskri vinstri stefnu, hliðstæðri stefnu annarra sósíalistaflokka í Evrópu og annarsstaðar í heiminum. í upphafi gætti nokk uð áhrifa stjómleysingja, en þau hafa aigerlega þorrið á síð- ari árum. Flokkurinn hefur stöðugt staðið fremst í fylkingu í baráttunni gegn nýlenaustyrj- öldum, allt frá stríðsæviniýri ít- ölsku borgarastéttarinnar 1885 í Erítreu til stríðsins 1911 í Líbíu. Andstaðan gegn Eþiópíu- styrjöld Mússólínis 1935—36 tók á sig aðra mynd, þar sem öll frjáls samtök alþýðu höíðu verið kúguð niður í 10 ár. Enníremur barðist flokkurinn harðvítugt gegn heimsvalda- styrjöidinni 1914—18,- cg þó að grundvöllur þeirrar baráttu hans i kenningu og starfi hafi ekki verið eins traustur og kenning Leníns um heimsvalda- stefnuna, þá stóð ílokkurinn þó nálægt henni. Sósíalistaflokkur Pictro Nenni Ítalíu var og einhuga í að segja sig úr öðru Alþjóðasambandinu árið 1919 og er einn af stofn- endum hins þriðja. Árið 1921 skildu þó leiðir flokksins við 3. Alþjóðasambandið, án þess þó að það hefði áhrif á stuðning hans við Októberbyltinguna. Á Ítalíu voru andstæðurnar milli sósíalista og kommúnista engu minni en í Frakklandi og Þýzkalandi. Margir héldu þó fram þeirri skoðun, að flestar deilur milli þeirra væru byggð- ar á misskilningi og væru á- stæðulausar frá fræðilegu og sögulegu sjónarmiði. Af þessum sökum var alltaf af okkar hálfu reynt að finna grundvöll Eftir Pietro Nenni, forseta Sósíalista- flokks Ítalíu fyrir samvinnu og gagnkvæman skilning, þrátt fyrir misjafnar undirtektir af hálfu kommún- ista. Árið 1934 náðist samkomulag um samvinnu milli flokkanna, og þveröfugt við sósíalistaflokka í öðrum löndum (t. d. Frakk- landi og Spáni) hefur Sósíal- istaflokkur Ítalíu aldrei rofið þetta samkomulag, að undan- teknum árunum 1939—40, frá griðasáttmála Þýzkalands og Ráðstjórnarríkjanna og þar til Hitler hóf aðra heimsstyrjöld- ina. Það sem jók samvinnuvilja flokkanna 1934 var hættan af fasismanum, sem vofði jafnt yfir báðum og bóðir flokkarnir töldu helztu sk^ddú sína að berjast á móti. Þriðja Alþjóða- sambandið hafði þó tekið ein- dregna afstöðu gegn sósial- demókrötum á 6. þingi sinU 1928. í Þýzkalandi leiddi sú stefna til hættulegs klqfnings1 vinstri aflanna og varð það m. a. til þess að auðvelda Hitler valdatökuna 1933. Á þingi Alþjóðasambands sósíaldemókrata í Paris í ágúst 1933 lagði ég fram tillögur um sameiginlegar aðgerðir sósíal- demókrata og kommúnista gegn fasisma og til varnar friði. Und- ir þessar tillögur mínar tóku bezt Ottó Bauer í Austurríki og Zyromsky í Frakklancli. En í þessu máli, sem mörgum öðr- um var fólkið sjálft á undan flokkunum til aðgerða. Vinn- andi fólk Frakklands gerði alls- herjarverkfall i febrúar 1934 til að mótmæla tilraunum aftur- haldsins að afnema þingræðið. Áhrif verkfalls þessa voru mik- il, bæði í Frakklandi og ó ít- alíu. Samvinnusáttmáli vrar undirritaður milli sósíaldemó- krataflokks Frakklands i júlí 1934 og í ágúst 1934 milli Sósial- istaflokks Ítalíu og Kommúnista flokks Ítalíu. Tveim árum síðar var hliðstæður sáttmáli undir- ritaður milli sósíaldemókrata og kommúnista á Spáni, er borgarastyrjöldin stóð sem hæst. 7. þing þriðja Alþjóða- sambandsins, sem haldið, var í júlí og ágúst 1935 hallaðist og að sameiginlegri baráttu verka- lýðsflokkanna gegn fasisma. Þessi stefna sannaði réttmæti sitt í hinum glæsilega kosn- ingasigri Alþýðufylkingarinnar í Frakklandi 1936 og myndun ráðuneytis Blums. Þessi samvinna var að skoð- un okkar ítalskra sósíalista ekki miðuð við tímabundin vandamál, heldur grun’dvallar- atriði. Á ítaliu hefur hún nú staðið í 20 ár. Þessum 20 árum má skipta í 4 aðgreind tímabil. Fyrsta tíma- bilið, frá 1934—1943 var tíma- .i »o áttu fyrir friði og hlutleysi lands okkar, gegn þátttöku í Atlantshafsbandalaginu, sem stoínar öryggi og friði í hættu, varið réttindi borgaranna, sem troðin eru undir hæl amerískrar og geistlegrar yfirdrottnunar, og stöðugs stuðnings sósíal- demókrata við hana, barizt gegn plágu atvinnuleysisins og ör- birgðinni, sem hvergi í Evrópu er jafn himinhrópandi, nema ef vera skyldi í Grikklandi og Spáni. 7. júní 1953 hefst hið fiórða tímabil. Þó að kosningarnar hefðu ekki áhrif á. stjórnmála-* ástandið í grundvallaratriðum, sköpuðu þær hagstæðari bar- áttuaðstöðu fyrir vsrkalýðs- flokkana. Hefðum við sósíalist- ar hlotið einni milljón atkvæða meira, hefðu skapast möguleik- ar á sósíalistískri ríkisstjórn. En skilyrði fyrir henni væri samt að kristilegir demókratar neyddust til samkomulags við vinstri öflin. Á þingi berjumst við nú fyrir því, en utan þings 5p, Œf >(i Leiðtogar ítölsku verklýðsflokkanna: Pietro Nenni og Palmiro Togliatti. bil baráttu gegn fasisma og hinu fasistíska stríði. Annað var frá 1944—1947, tímabil sigurs yfir fasismanum og út- rýmingar hans, stofnunar lýð- veldis’ á Ítalíu, 2. júní 1946. Þriðja tímabilið hófst 1947 með sundrun samvúnnu kommúnista, sósíalista og kristilegra demó- krata í rikisstjórn undir for-. sæti De Gasperis, en það var gert að undirlagi Bandaríkj- anna, Vatíkansins og hins í- haldssamari hluta borgarastétt- arinnar, en hún, hafði hreiðrað um sig í efnahagslífinu og þar af leiðanói á hinu pólitíska sviði. Á þesstim sex síðustu ár- um höfum við háð stöðuga bar- fyrir einingu alþýðunnar, en án hennar myndi baráttan á þingi leiða til hentistefnu. Þannig gegnir Sósíalistaflokk- ur Ítalíu forystuhlutverki í baráttu verkalýðs- og bænda- stéttar landsins fyrir friði, til að halda uppi málstað, lýðræðis með því að viðhalda efnahags- legu lýðræði. Frá þessum sjónarhól hefur Sósíalistaflokkur Ítalíu ekki einungis þjóðlegt, heldur og al- þjóðlegt gildi. Flokkurinn er í engum tengslum við mig per- sónulega, heldur samsvarar hann brýnum þörfum verka- iýðsstéttárinnar og öreigalýðs- ins alls á Italíu. Fundur verður haldinn í élcgi ðslands, laugardaginn 19. júní kl. 15, í fundarsal Slysa- varnafélags íslands, Grófin 1. Stjórnin. Mimið Sigfúsarsfóð - Söfnuninxii lýkur 17. júnx

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.