Þjóðviljinn - 29.06.1954, Page 8

Þjóðviljinn - 29.06.1954, Page 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 29. júui 1954 Hvers vepa var í vetur var á Alþingi gefin undanþága frá lögbanni á inn- flutningi á kjötvörum, vegna þess að innlend framleiðsla á þeim var orðin með öllu ófull- nægjandi vegna niðurskurðar fjár á sýktum svæðum og harð- indakafla í nokkrum hluta landsins. Yfirdýralæknir okkar, Sig- urður Hlíðar, var sendur til Danmerkur til að líta eftir að danskir dýralæknar gengdu embættisskyldu sinni, svo eng- inn húsdýrasjúkdómur slædd- ist hingað til landsins með inn- flutta kjötinu, því við vitum af sárri reynslu hvað óaðgætni í þessu tilliti getur kostað þjóð- ina, enda segir gamalt mál- tæki að brennt barn forðist eldinn. Þess vegna fannst mér það virðingarvert að Sigurður Hlíðar yfirdýralæknir fann svo til ábyrgðar gagnvart bændum, að hann reyndi að tryggja eins og í hans valdi stóð, að engin pest flyttist hingað tii lands með kjötinu, enda var hann þekktur gegnum langa starfs- ævi fyrir samvizkusemi og á- byrgðartilfinningu. En fyrir skömmu heyrði ég að hann hefði leyft Þorvaldi í „Síld og fisk“ að flytja mat- arleifar Bandaríkjamanna á Keflavíkurflugvelli að Litlu Vatnsleysu og fóðra á þeim svín. Nú veit ég ekki, hvort hann hefur skipt um skoðun um áhættuna við algert eftir- litsleysi með innflutningi á hverskonar matarúrgangi, því fyrir nokkrum árum bannaði hann með öllu að matarleifar Bandaríkjamanna væru notað- ar til svínaeldis. Eg efast um að hann hafi skipt um skoðun í þessu máli, hitt er líklegra að hann hafi verið þvingaður til þess af yfirboðurum sínum í stjórn landsins til að ógilda fyrra bann sitt, vegna þess að gróðafýkn auðugs manns hafi með ýmsum ráðum orðið sjálf- sagðri varúð og ábyrgðartil- finningu ráðherra landsins yf- irsterkari. Nú langar mig til þess að vita, hvers vegna bannið var afnumið, því ef svo er að gróðafíkn eins auðmanns er þyngri á vogarskálinni en sér- fræðiþekking og ábyrgðartil- finning gagnvart landi og þjóð, er kominn tími til að athuga sinn gang. Við lásum eftir stríðslok, að konur og börn erlendis þurftu til að bjarga lífinu, að hreinsa sorptunnur bandaríska hersins af öllu því er meltanlegt var. Ekki datt mér þá í hug, að nokkur maður hér á landi, mundi árið 1954 sækja fast að mega sækja matföng í sorp- tunnur bandaríska hersins, en oft og tíðum lítur út fyrir að til se fólk, sem telur líf sorp- rottunnar í leifum hersins æðsta hnoss til að sækjast eftir. Einar Petersen. um kjötskoðon Samkvœmt lögum nr. 5 22. febr. 1949 um kjöt- mat o.fl. skal heilbrigðisskoðun og gæðamat fara fram á öllu kjoti og innyflum af sláturfénaði, sem ætluð eru til sölu í kjötbúðum, veitingahúsum eöa öðrum opinberum sölustöðum. Allt kjöt, sem ekki hefur verið heilbrigðisskoðað og gæðametið, og sem slátrað hefur verið innan lögsagnarumaæmis Reykjavíkur eða flutt hefur verið til lögsagnarumdæmisins í framangreindu augnamiði, ber, með vísun til ofanritaðs, að flytja til skoöunar í kjötskoðunarstað 1 húsakynnum Sláturfélags Suðurlands við Skúlagötu, frá cg meö 1. júlí n.k. Það varðar sektum, ef út af er brugðið. En skoöunargjald fer eftir gjaldskrá, sem atvinnu- málaráðuneyt'ö staöfestir. Reykjavík 29. júní 1954 Borgaríækiúr r RITSTJÚRI. FRtMANN HELGASON Heimsmeistarakeppnin i knattspyrnu: Urnguay og morgun Fjögur lönd eru nú eftir í heimsmeistarakeppn- inni í knattspyrnu: Austurríki, Ungverjaland, Urug- uay og Þýzkaland, og keppa þau til undanúrslita á morgun. Um s.l, helgi voru leiknir fjórir leikir í keppninni og urðu úrslit þessi: Á laugardag sigr- aði Austurríki Sviss 7—5 og Uruguay England 4—2, en á sunnudag sigraoi Ungverjalan.d Brasilíu 4—2 og Þýzkaland Júgóslavíu 2—Ð. Enska lióið, sem lék gegn heimsmeisturunum frá Uru- guay, sýndi ágætan leik og mikinn baráttuvilja. — Þrjár breytingar höfðu verið gerðar á liðinu frá leiknum við Sviss- lendinga um fyrri helgi: Hinn gamli, góði Stanley Matthews var settur inn á aftur ásamt Lofthouse, og Finney gerður að vipstri útherja. Breytingar þessar voru taldar til mikilla bóta, því að Matthews sýndi mjög góðan leik og var einn bezti maður liðsins en Loft- house skoraði annað mark Eng- lendinganna. Uruguay tók forustuna í leiknum þegar í byrjun, er mið- framherjinn skoraði á 6. mín. Lofthouse jafnaði 10 mín. síð- ar en heimsmeistararnir tóku aftur forustuna 2:1, er 2 mín. voru eftir af fyrri hálf- leik. Strax á fyrstu mín. síðari hálfleiks settu þeir síðan þriðja mark’ð, Finney skoraði annað mark Englendinga skömmu síð- ar, en er 13 mín. voru eftir af leik kom fjórða og síðasta mark Uruguay. SLAGSMAL — BROTTVISANIR Leikur Ungverjalands og Brasilíu í Bern varð allsögu- legur. Vitað var fyrirfram að leikurinn yrði harður og jafn, því að liðin voru talin tvö af þrem beztu kappliðunum á heimsmeistaramótinu. Fyrirliði Ungverja, Puskas, gat ekki keppt með félögum sínum að þessu smni vegna meiðsla;. hann meiddist allilla á fæti í leikmím við Þjóðverja fyrra sunnudag og varð þá að yfirgefa völlinn, er 20 mín voru liðnar af síðari hálfleik. Þrátt fyrir þetta mikla óhapp tókst ungversku meisturunum. að sigra hina skæðu keppipauta sína frá Bras'líu með 4 mörk- um gegn 2 (í hálfleilc stóðu leikar 2:1 fyrir Ungverja). Þegar leið á leikinn færð- ist mikil harka í hann og áttu hinir blóðheitu Brasilíu- menn sök á því. Varð dómarinn, Englendingurinn Arthur Ellis, loks að vísa þrem leikmönnum út af vell- inum: tveim Brasilíumönn- um og einum Ungverja. — Ungversku leikmennirnir, dómari og línnverðir urðu að yfirgefa völlin undir lög- regluvernd í leikslok. 1 sambandi við leik Austur- ríkis og Sviss á laugardaginn má geta þess að Svisslending- ar höfðu um eitt skeið þrjú mörk yfir Austurríkismenn. Eins og áður var sagt fara undanúrslit heimsmeistara- keppninnar fram á morgun. Á laugardaginn leika svo þær þjóðir, sem tapa á morgun, um 3. og 4. sæti keppninnar, en úrslitaleikurinn fer fram á sunnudaginn. Enski langhlauparinn Jim Peters sigraði í maraþonhlaupi : í Englandi sl. laugardag og hljóp vegalengdina (rúma 42 : km) á 2 klst. 17 mín. 39.4 sek. Er það bezti tími, sem náðst hefur í maraþonhlaupi til þessa, en staðfest heimsmet er ekki til í íþróttagreininni. Fyrra ,,heimsmetið“ átti Jim Peters einnig og var það 2; 18.34,8, sett í Turku í Finnlandi í októ- ber 1953. ‘ i Lokað vegna sumarleyía írá 5.—21. júlí Efnagerðin Rekord I byrjun maí. sl. var haldin alþjóðleg keppni í hjólreiðum á leiðinni Varsjá-Berlín-Praha. Þátttakendur voru fjölmargir, en sigurvegari varð Daninn El- Uf Dalgárd. — Sigurvegari á fyrsta hluta leiðarinnar Var- sjá-Lodz varð Pólverjinn Wis- zewskí (á myndinui við hlið- ina) en hann var sjöundi í öll- um kappakstrinum. A mynd- inni fyrir ofan sjást nokkrir þátttakendur á lciðinni tíl Lodz. Fleiri myndir frá þess- ari keppni verða birtar hér á síðunni næstu daga. Finnarnir sýna í Ytri-Njarðvík á morgun Finnski f;mleikaflokkurinn sýndi tvisvar í Tívolí á sunnu- daginn við mikla hrifningu. 1 gær fór flokkurinn til Gullfoss og Geysis í boði bæjarstjórn- ar Reykjavíkur. Á morgun er áætlað að fim- leikamennirnir sýni í Ytri- Njarðvík. Sennilega verður haldin e;.n sýning ennþá hér í Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.