Þjóðviljinn - 22.08.1954, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 22.08.1954, Blaðsíða 8
8) — ÞJÓÐVILJINN-Sunnudagur ; 22. ágúst 1954 % RITSTJÓRl. FRÍMANN HELGASON í gær lögðu- íslenzku knatt- spyrnumennirnir leið sína til Svíþjóðar til að keppa annan landsleik sinn við landslið Svía. Fýrsti leikurinn fór fram í Reykjavík 29. júní 1951 og mun verða lengi minnisstæður, svo óvæntur. var'sigurinn 4:3 en í hálfleik stóðu leikar 2:0. Þessi dagur var líka minnis- stæður fyrir það, að þá unnu frjálsíþróttamenn landskeppni bæði gegn Noregi og. Dan- mörku. I gær vildi svo til að í sömu fiugvél fór flokkur frjálsíþróttamanna á EM í Bern og knattspyrnumennirn- ir til Svíþjóðar. Engir munu iáta sig dreyma um að sagan endurtaki sig að þessu sinni, þ. e. að þ>sssir hópar komi með fangið fulit af sigrum heim. títaf fyrir sig er það sigur að vera með í þessu íþróttasam- starfi svo sriar þáttur sem þær eru orðnar í lífi og daglegum viðfangsefnum fólks- ins, og fyrirfram verðum við að gleðiast yfir þessari sam- vinnu, hvernig svo sem leikar fara. ;■ ■ Það er jafn víst að taplejk- ur Svíanna hér 1951 var þeim 'ekki síður minnisstæður en okkur þó á annan veg sé, og margir hafa látið orð falla að því, að á þriðjudag komi dag- ur hefndarinnar og þá megi ís- lenzka iiðið biðja fyrir sér. Kvað sem skeður þá verður varla um að ræða dómsdag fyrir íslenzka knattspyrnu. Hun heldur áfram að verða tii og vonandi þroskast. ■að það lék sér að Finnum eins og köttur að mús á fljúgandi hálum og blautum vellinum. Verði aðstæður slíkar er út- litið ekki glæsilegt, en í þurru veðri og á þurrum velli er ekki ólíklegt að úrslitin verði 5-6:0. Hvað það verður minna -er framistaðan góð. Heppni í byrjun leiks getur líka. haft sín rniklu góðu áhrif. Er iiðið vel valið? Um val þessa landsliðs má sjáifsagt margt segja og deila. Það er ekki alltaf eins og móti Norðmönnum í vor að liðið var nærri sjálfvalið. Frá þeim tíma hafa orðið tvær breytingar, en vegna meiðsla verður Halldór Sigurbjörnsson ekki með og er það mikill skaði svo leikinn sem hann er orðinn og samleik- inn þeim félögum sínum af Akranesi. 1 hans stað koma aðeins tveir til greína, Óskar, sem hefur verið valinn og Gunn- ar Guðmannsson. Óskar hefur sýnt mikla framför frá í fyrra, og Víkingar rómuðu hann mjög í utanför félagsins og hann fékk þar !íka góða blaðadóma. Er ekki óiíklegt að einmitt kvikur maður og baráttufús eins og Óskar er geti hitað hin- um sterku' Svíum. Gunnar hef- ur líka marga góða kosti, er ieikinn og fljótur ef hann vill. Hans veila liggur meira í skap- gerðinni og því ekki gott að sjá fyrir fram hvernig til tekst með það. Það getur því vel staðizt að velja Óskar. Hin staðan er bakvarðarstað- 30:1 aðvörun. Leikur Svíanna 10:1 við Finná er ógnandi og ögrandi, en það ætti líka að stappa stáli í okkar menn, og vera mætti að það fengi sænska liðið til að taka þennan leik ekki alveg eins hátíðlega. Eitt er víst að sænska iiðið I dag er sterkt, og an. Þr.r sem Karl hefur dregið sig til baka. Guðbjörn luffur því miður ekki sýnt á undanförnum leikjum þá leikni að hann geti komið inn sem bakvörður. Af bakvörðum er Kristinn Gunn- laugsson mikiu nær. Af ein- hverjum ástæðum virðist úr- tökunefndin hafa bitið sig í það að binda sig við einhverja á- kveðna menn, sem valdir voru Frá úrslitum 100 m hlaupsins á meistaramótinu. Sigurvegarinn, Ásmundur Bjarnason KR, kemur í mark, annar er Guðmundur Viihjálmsson IR og þriðji Hilmar Þorbjörnsson Á. Þeir Ás- mundur og Guðmundur eru meðal hinna 7 íslenzku frjálsíþrótta- manna, sem valdir voru til þátttöku í EM í Bern. Keppir. Ás- mundur í 100 og 200 m lilaupum og Guðmundur í 100 m lilaupi. til æfinga um nokkurt skeið undanfarið. Manni virðist eðli- legt að allar stöður séu alltaf lausar fyrir hvern þann, sem er betri en sá sem fyrir er, og skiptir þar ekki máli, hvort það kemur fram viku fyrr eða síðar. Hvorugur þessara manna hefur sem sé verið valinn en í staðinn settur maður sem aldrei hefur komið þar áður sem sé Halldór Halldórsson. Eru dæmi þess raunar mörg, og þeg ar um er að ræða reyndan varnarleikmann eins og Hall- dór ætti hann að geta sloppið sæmilega frá því, eigi að síður er það lakara að menn hafi ekki nokkra reynslu í svo ábyrgðar- mikilli stöðu sem staða 'bak- varðar er. Úr því sem lcomið var virðist þetta djarfa spor nefndarinnar vera vel athug- andi og raunar fátt annað til. Þegar þetta er skrifað er ekki vitað hvort Helgi Daníels- son fer með eða ekki ,en eins og hann lék á móti KR og eins og leikir hans úti í fyrra voru, teldi ég það veikja liðið ef hann gæti ekki farið. „ — Ef skilyrði eru góð“ þá? Eftir æfinguna á föstudag rabbaði ég við Karl Guðmunds- son og spurði hann um álit hans á leiknum sem fyrir dyr- um stendur, en Karl hefur sem kunnugt er verið þjálfari liðs- ins og rækt það með sinni kunnu samvizkusémi. Karl sagði strax: Það er nú bezt að tala sem minnst um það“, en bætir svo við að ef skil- yrðin verði okkur hagstæð og liðið hafi baráttugleði og vilja þá þurfi þetta ekki að verða svo slæmt. Sigurður Sigurðsson íþrótta- fréttamaður útvarpsins fór snemma í gærmorgun áleiðis til Svíþjóðar, þar sem hann á að útvarpa frá leiknum. Við skul- um vona að hann hafi góðar fréttir að segja, og að gangur hans verði til að auka virðingu fyrir íslenzkri knattspyrnu og þó allt sé ekki eins og við vilj- um, þá dugir ekki að vola held- ur hafa vit á að byggja á þeirri reynslu sem við fáum. Það, útaf fyrir sig, er sigur, en þó því aðeins að hann sé not- færður rétt. Gengisskráning Sölugengl: 1 sterlingspund .. 45,70 kr 1 Bandaríkjadollar .. 18,32 — 1 Kanadadollar ....... 16,90 — 100 danskar krónur .... 236,30 — 100 norskar krónur .... 228,50 — 100 sænskar krónur .... 315,50 — 100 finnsk mörk ......... 7,09 — 1000 fransklr frankar .. 46,83 — 100 belgiskir frankar .. 32,67 — 100 svissneskir frankar . 374,50 — 100 gylllni ........... 430,35 — 100 tékkneskar krónur . 226,67 — 100 vestur-þýzk mörk .. 390,85 — 1000 lírur .............. 26.12 — TJncLirstojnanir Sameinuðu pjóðanna inna af hendi víð- tækt starf hvarvetna um heim, liver á sínu sviði. Myndin liér fyrir ofan er tekin af hjúkrunarkonu í pjónustu Al- pjóða heilbrigðismálastofnunarinnar að störfum í Mið- Ameríkuríkinu Salvador. Vinnan og verkaiýðurinn í ár eru liðin 35 ár frá stofnun Alpjóða Vinnumálastofn- unarinnar (ILO). Af pví tilefni liafa Sameinuðu pjóðirn- ar gefið út frímerki pað sem sést hér fyrir ofan. Það er teiknað af mexíkönskum listamanni, José Renau. flytur greinar um verkalýðsmál, erlend sem innlend jöfnum höndum, ennfremur al- mennan fróöleik, Esperantópátt, kvæði, vísnabálka o. fl. Afgieiðsia Skélavörðustíg 1S — Simi 7500 einkasímar: Björn Bjarnason formaöur Út- gáfufélags alþýðu 6297 — Jón Rafnsson ritstjóri 81077. er eina verkalýðsmálatímaritið, sem út kem- ur að staðaldri hér á landi. Vinnan og verkalýfSurimi

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.