Þjóðviljinn - 30.10.1954, Page 1
Afturhaldið hélt
Hreyfli
Kosningu lauk í Hreyfli kl. 10
í gærkvöldi. Listi afturhaldsins
sigraði, hlaut 272 atkv. B-listinn
hlaut 157 atkv. 20 seðlar vora
auðir og 1 ógildur.
r
Fiskircmnsóknir Islendinga
anknar verulega á næsta ári
Þjó&verjar smí&a nú iullhomnasta rann-
sóhnarship og rer&a hér ri& iand a& sumri
Þeir Jón Jónsson yfirmaSur Fiskideildarinnar og DavíS
Ólafsson fiskimálastjóri eru nýlega homnir heim af fundi
AlþjóSa hafrannsóknarráSsins, sem haldinn var í París.
íslenzkum fiskirannsóknum mun á næsta ári haldiS á-
fram í svipuSu horfi en þó auknar, þar sem 3 ungir-
fiskifræSingar munu bætast til starfa á næstunni.
Á næsta sumri munu ÞjóSverjar einnig hefja rann-
sóknir á norSvestursvæSinu, á nýju skipi er mun vera
hiS fullkomnasta sinnar tegundar nú.
Hafiiði náðlst ekki á fl©t
Togariim lekur mikið og botit
Siaus talin mikið skemmdur
Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Togarinn HafliSi fór frá bryggju hér um sexleytið í
fyrrakvöld og strandaði í Staðarhólsfjörunni, beint á,
móti hafnarbryggjunni. -Er talið sennilegt að stöðvun
hafi orðið í vél skipsins.
Tilraunir til að ná honum á flot, þá um nóttina og
í gær reyndust árangurslausar. Mikill leki er kominn aS
togaranum og botn hans talinn mikið skemmdur.
Fundur Alþjóðahafrannsókn-
arráðsins var haldinn í Sor-
bonneháskólanum í París 4.-12.
þ.m. Aðilar að rannsóknarráð-
inu eru nú allar þjóðir á vest-
urströnd Evrópu frá Portúgal
til Noregs, ennfremur ísland,
England, Irland og Finnland,
eða 13 þjóðir. Rússar og Pól-
verjar áttu nú áheyrnarfulltrúa
á fundinum og er vænzt þátt-
töku þeirra á næstunni. Enn-
fremur voru áheyrnarfulltrúar
frá hafrannsóknarráðum við
Miðjarðarhaf, Indlandshaf svo
og stórum hafrannsóknastöðv-
um og háskólum. Héðan voru
mættir 2 fulltrúar, Jón Jónsson
og Davíð Ólafsson, og 2 sér-
fræðingar, þeir dr. Hermann
Einarsson og Unnsteinn Stef-
ánsson.
Alþjóða hafrannsóknarráðið.
Alþjóða hafrannsóknarráðið
hefur aðsetur í Kaupmanna-
höfn. Formaður þess er Bretinn
Dobson, varaform. er Nórð-
maðurinn Sverdrup, einn mesti
haffræðingur núlifandi, og aðal-
ritari eða framkvæmdastjóri er
Árni Friðriksson.
Starfsemin er í því fólgin að
rannsóknunum er skipt í svæða
nefndir og eru svæðin þessi:
Norð-vestursvæðið (Island, Fær
eyjar, Grænland), Norðaustur-
svæðið (við Noregsstrendur)
Dönsku sundin, Norðursjór,
Eystrasalt og Atlanzhafssvæðið
(sunnan Ermarsunds).
Nefndir sérstakra viðfangsefna.
Auk þsss eru nefndir sem
fást við ákveðin viðfangsefni,
t. d. síldarnefndin, er Árnl
Friðriksson var formaður í áð-
ur en hann gerðist aðalritari
eða framkvæmdastjóri ráðsins.
Slíkar nefndir eru uppsjávar-
fiskanefnd, laxa- og silunga-
nefnd, sviffræðinganefnd og
sjófræðinganefnd er fjallar um
sjórannsóknir er ná yfir allt
Norður-Atlanzhafið.
Nú var gerð sú breyting að
norðuraustur- og norðvestur-
svæðið voru sameinuð í eina
Norður-Atlanzhafsnefnd og
nýrri nefnd fengið það sérverk-
efni að fást við rannsóknir á
þorskfiski, aðallega þorski og
ýsu.
fslenzkar fiskirannsóknir
auknar.
Norðvestur-nefndin hélt tvo
fundi, annan um störf s. 1. árs,
hinn um verkefni komandi árs.
Rannsóknir er Islendingar leysa
af höndum verða í stærri stíl
en áður því 3 nýir fiskifræð-
ingar munu taka hér til starfa
á næsta ári. Einn þeirra, Aðal-
steinn Sigurðsson, er kominn
og mun vinna að rannsóknum
á flatfiski. Annar Ingvar Hall-
grímsson, mun ljúka prófi í
Noregi bráðlega og starfa að
svifrannsóknum. Þriðji Jakob
Magnússon lýkur bráðum námi
í Kiel og mun fara í karfa-
rannsóknir. Vakti það athygli
á fundinum að Islendingar ætla
að setja sérstakan mann í
krafarannsóknir, en engin þjóð
nema Bandaríkjamenn mun
hafa sett sérstakan mann í það
verk. Karfinn er hinsvegar orð-
inn mjög þýðingarmikill fyrir
fiskveiðar Islendinga og það
hefur því mjög mikla þýðingu
fyrir okkur að fá sem mesta
þekkingu á lifnaðarháttum
karfans. Hefur Jakob rannsak-
að fjölgun karfastofnsins og
þegar gert ýmsar athyglisverð-
ar athuganir.
Þjóðverjar á fullkomnasta
rannsóknarskipinu.
I sumar bætast Þjóðverjar í
hóp þeirra þjóða er stunda
rannsóknir á hafinu umhverfis
Island. Verða þeir á nýju rann-
sóknarskipi, Anton Dohrn, sem
er byggt sem togari, tveggja
þilfara, 800 tonn, og mun vera
Framhald á 3. síðu.
Þhigmenn úr öllum flokkum
af Vestfjörðum og Austurlandi
flytja á Alþingi tillögur um
stækkun friðunarsvæðisins úti
fyrir Vestfjörðum, Austfjörðum
Það var um fjöru þegar tog-
arinn strandaði. Var þá tölu-
verður norðaustanvindur, en
tiltölulega sjólítið. Hann fór
frá bryggjunni vegna Heklu,
sem var að koma frá Akur-
eyri til að sækja farþega er
ætluðu á málverkasýningu
Kjarvals. Hekla felldi ekki nið-
ur landganginn heldur lét far-
þega til Siglufjarðar stökkva
niður. á bílpall á bryggjunni og
hélt svo rakleitt togaranum til
aðstoðar.
og Suðausturlandi.
í þingsályktunartillögu er
Hannibal Valdimarsson og Eirík-
ur Þorsteinsson flytja er lagt til
að takmörk friðunarsvæðisins
Flóð var um kl. 11 í fyrrá-
kvöld og reyndi Hekla þá að
ná togaranum á flot, en vírina
slitnaði. Skipshöfnin var öll um.
borð í togaranum í fyrri nótt.
Á flóðinu í gærmorgun kom
Ægir á vettvang og reyndi að
draga Hafliða á flot með tog»
vír, en hann slitnaði.
Mikill leki kominn að
togaranum.
Mjög mikill leki kom að skip«-
Framhald á 12. síðu.
fyrir Vestfjörðum verði ákveðið
af sjávarútvegsmálaráðuneytinu
16 sjómílur utan við grunnlínu-
punktana Bjargtanga, Kópanes„
Barðann, Straumnes og Kögur,,
sem miðað er við í reglugerðinni
um verndun fiskimiðanna um»
hverfis ísland.
Við þessa tillögu flytja allir
þingmenn af Austurlandi (nema
Eysteinn Jónsson) þeir Halldór
Ásgrímsson, Vilhjálmur Hjálm-
arsson, Lárus Jóhannesson, Páll
Þorsteinsson, Páll Zóphoníasson,
Lúðvik Jósefsson og Eggert Þor-
steinsson, breytingartillögu 4
þessa leið:
•
Ennfremur skal friðunarlínan,
fyrir Austfjörðum og Suðaustur-
landi á svæðinu milli Langaness
og Ingólfshöfða dregin þannig, að
takmarkalína núverandi friðun-
arsvæðis, þar sem hún er dregin
utan við grtmnlínupunkt nr. 12
í reglugerðinni (Langanes), fram-
lengist í beina línu og liggi 1&
sjómílum utar en grunnlínu-
punktar nr. 15 og 16. Þaðan skal
línan dregin þannig, að hún liggi
16 sjómílum utar en grunnlínu
punktar nr. 17—19 og í útlínu
núverandi friðunarsvæðis við
Hvalbak (grunnhnupunkt 50)',
Þaðan sé línan framlengd og
liggi 16 sjómílum utar en grunn-
línupunktar nr. 24 og 25, þangað
til hún nær línu, sem framlengist
í beina stefnu frá takmarkalínu
núverandi friðunarsvæðis utan
við grunnlínupunkt nr. 28. (Ing-
ólfshöfða).
Á uppdrættinum sem hér fylgir
er sýnt hvernig takmörk friðun-
arsvæðisiris fyrir Austurlandi
yrðu samkvæmt tillögunni.
Ungmennafélag Njarftvíkur skorar
á önnur ungmennafélög að krefjast
brottfarar hersins af landinu
Heitii’ imdirsknftasöÍBimmiii fulium síuðningi
„Fundur haldinn í Ungmennafélagi Njarðvíkur
25. okt. 1954 lýsir fullum stuðningi við samtök
pau, sem beita sér fyrir undirskriftasöfnun undir
áskorun um uppsögn herverndarsamnings íslands
og Bandaríkja Nor&ur-Ameríku.
Jafnframt skorar Ungmennafélag Njarðvíkur á
önnur ungmennafélög í landinu að taka upp skel-
egga baráttu fyrir pví, að hinum erlenda her verði
vísað úr landi og ísland verði fyrir íslendinga.“
TiUögur fluttar á Alþingi:
Stækkun friðun arsvæðisins út
af Vestfjörðum og Husturlandi