Þjóðviljinn - 30.10.1954, Page 5

Þjóðviljinn - 30.10.1954, Page 5
Laugardagur 30. október 1954 — ÞJÓÐVILJINN — (5 Enri engin lausn á hafnardeilunni Fjöldaíundir verkfallsmanna í 8 brezkum hafnarborgum í dag Þrátt fyrir góðar samkomulagshorfur í brezku hafn- ardeilunni í fyrrakvöld hefur ekki tekizt að leysa hana enn. Fulltrúar vinnuveitenda, verk- fallsmanna og verkamálaráðu- neytisins sátu á fundum í allan gærdag og gekk ekki saman með þeim. Aðeins eitt ágreiningsat- riði er nú eftir. Gengið hefur verið frá málamiðlun þess efnis, ^kærur við Kínaströnd Stjórn Sjang Kajséks á For- mósu tilkynnti í gær, að komið hefði til bardaga milli herskipa úr flota hennar og kínverska flótanum við eina af eyjunúm, sem Formósustjórn hefur á valdi sínu við strönd meginlandsins. Strandvirki alþýðuhersins, skutu á stöðvar Formósumanna á Kvimoj. Múhameðsbræðra- lagíð leyst upp Egypzka stjórnin bannaði í gær Bræðralag Múhameðsmanna, en áður höfðu meira en 500 af félög- um þess verið handteknir. Aðal- bækistöðvum bræðralagsins í Kaíró og 200 deildarskrifstofum þess um allt landið hefur verið lokað og eignir þess, sem nema milljónum egypzkra punda, verið gerðar upptækar. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem bræðralagið er bannað, en þau bönn hafa hingað til verið áhrifa- lítil, því að félagsmenn eru vel undir leynistarfsemi búnir. að verkfallsmenn taki upp vinnu aftur og jafnframt verði hafnir samningar um nýja skipulagn- ingu eftirvinnunnar og að meðan þeir samningar standi yfir skuli verkamönnum í sjálfsvald sett hvort þeir vinna eftirvinnu. En ágreiningur er enn um það, hvort þessi málamiðlun skuli aðeins gilda um höfnina í London, þar sem verkfallið byrjaði, eða eins og fulltrúar verkfallsmanna vilja, að hún gildi um vinnu í öllum brezkum höfnum. i Fjöldafundir í dag í dag verða haldnir fundir verkfallsmanna í þelm átta höfn- urti, sem verkfollin ná til, og múnu leiðtogar þeírra bera undir þá tiflögur um hvað gera skuli. Nokkrar líkur eru taldar á því, að þær tillögur geti leitt til þess að vinna hefjist að nýju. Skipasmiðaverkfallið Engar horfur eru aftur á móti á skjótri lausn deilu skipasmiða í London við vinnuveitendur. Þeir hafa verið i verkfalli lengur Mendes-France lækkar skatta Franska stjórnin tilkynnti i gær, að hún mundi leggja fyrir þingið frumvarp um jlækkun skatta á lágtekjufólki og smáat- vinnurekendum. Allar tekjur lægri en 5500 kr. verða skatt- frjálsar, en skattur á tekjur innan við 10.000 kr. verður lækkaður úr 18% í 9%. en hafnarverkamenn og verkfall þeirra nær til 8000 manns. Við- gerðir á mörg hundruð skipum hafa tafizt vegna verkfallsins. Eisenhower gerður íit Eisenhower Bandaríkjaforseti flutti kosningaræður í fjórum fylkjum Bandaríkjanna í gær. Hann ferðaðist í flugvél og flutti ræðurnar á flugvöllum í Ohio, Michigan, Kentucky og Delaware. í öllum þessum fylkj- um telur flokksstjórn republik- ana hættu á ferðum, en þeir eiga nú 32 fulltrúa af 48 frá þessum fylkjum og 6 af 8 öldungadeildar- þingmönnum. Þykist flokks- stjórnin sjá fram á, að demo- kratar muni vinna af þeim þing- sæti nema persónulegar vinsæld- ir Eisenhowers verði þyngri á metunum en óánægjan með stjórn repúblikana. „Moby Dick" ógnar skipum Brezka útvarpið sendi í gær út aðvörun til skipa á hafinu undan strönd Wales og Suðvest- ur-Englands, að stór hvítur hval- ur, 25 metra langur og 12 lestir að þyngd ræki þar fyrir straum- um. Hvalur þessi hefur þó aldrei verið lifandi, heldur er hann eftirlíking, sem notuð var við upptöku á kvikmynd, sem byggð er á hinni kunnu skáldsögu Her- mans Melvilles um hvíta hval- inn Moby Dick. Höfðu festar slitnað, þegar var verið að draga líkanið til lands. Strandgæzlubát- ar og flugvélar úr brezka flug- hernum leituðu að „Moby Dick“ i allan gærdag. Samkeppni um Olympíu- söng Alþjóða Ólympíunefndin hef- ir efnt til alþjóðasamkeppni um Ólympíusöng. Lagið á að syngja við setningu og slit Ólympíuleikja hér eftir. r~ Mál og menning T E K U R upp þá nýibreytni íélagsmönnum til hagræðis að af- greiða til þeirra bækurnar beint frá forlaginu í Þingholtsstræti 27 (hornsalnum) í dag (laugardag) kl. 5 til 7 e.h. og á morg- un kl. 2 til 5 e.h. Á þessum tíma munu nokkrir höfundanna ver'öa viðstaddir og árita bœkur sínar fyrir þá er þess óska. MÁL OG MENNING Félagsmenn i Hafnarfirði vitji bókanna í Verzlun Þorvaldar Bjarnasonar. Bakpokfim fl|úgandi i Franski hugvitsmaðurinn Georges Sáblier þarf ekki annað en gera eina handhreyfingu og þá er hann kominn á loft. Hann hefur sjálfur smíðað þennan helikopter, sem vegur ekki nema tœp 30 kíló. Vélin getur borið hann í 10 klukkutíma samfleytt með 50 kílómetra hraða á klukkustund og farið upp í 2500 metra hœð. Borgarstjóri í Vest- ur-Berlín settur af Hafði misbeitt valdi sínu í þágu nazista Borgarstjórn Vestur-Berlínar samþykkti í gær van- traust á einn af borgarstjórum borgarinnar, dr. Conrad, og setti hann úr embætti. Dr. Conrad hefur haft stjórn heilbrigðismála borgarhlutans á hendi. Hafa stjórnarstörf hans verið gagnrýnd mjög, og hefur hann þótt beita valdi sinu í þágu gamalla nazista. Upp úr sauð fyrir nokkrum vikum, þegar komst upp um, að hann hafði neitað lyfsala af gyðingaættum um leyfi til að starfrækja lyfsölu í húsakynnum, sem hann hafði haft til afnota í því skyni, áður en gyðingaof- sóknir nazista bitnuðu á honum. Lyfsalinn missti alla sína nán- ustu í fangabúðum nazista. í staðinn hafði dr. Conrad látið gamlan nazista fá leyfið. Sósíaldemokratar í borgar- stjórninni hafa lengi krafizt þess, að dr. Conrad færi frá, en flokks- Danðadóinar i Iran Áfrýjunarherréttur í íran stað- festi í gær dauðadóminn yfir Hussein Fatemi, fyrrv. utanríkis- ráðherra írans. Annar herréttur staðfesti dóma yfir 12 foringjum í íranska hern- um, sem dæmdir höfðu verið til dauða fyrir „njósnir í þágu Sovétríkjanna“. Þeir voru annar hópur liðsforingja, sem leiddir hafa verið fyrir rétt fyrir sömu sakir, en alls hafa um 600 for- ingjar í hernum verið handteknir. Dauðadómunum verður fullnægt í dag. menn hans, fulltrúar Frjálsa lýð- ræðisflokksins, og fulltrúar ann- arra hægri flokka hafa hingað til haldið hlífiskildi yfir honum. Eftir þetta síðasta hneyksll treystu þeir sér ekki til þess lengur og var vantrauststillaga sósíaldemokrata samþykkt me5 75 atkvæðum gegn 35. Fulltrúar Frjálsa lýðræðisflokksins sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Adenauerhrað- ar sér heim Konrad Adenauer hefur ákveð- ið að stytta dvöl sína í Banda- ríkjunum. Hann fer heim þegar á inorgun, en ætlunin hafði verið að hann dveldist fyrir vestan fram á fimmtudag í næstu viku. Eng- inn vafi er talinn á því, að hanra vilji hraða sér heim til að hindra þá upplausn sem tekin er að gera vart við sig í flokki hans út af Saarsamningunum, en 10 af þingmönnum flokksins hafa iýst yfir að þeir muni ekki greiða atkvæði með fullgildingu þeirra. Adenauer flutti raéðu í Wash- ington í gær og komst m. a. svo að orði, að nauðsyn bæri til, að Vesturveldin gerðu öryggis- sáttmála við Sovétríkin og önnur ríki Austur-Evrópu. Þó mætti ekki gera slíkan máttmála, fyrr en gengið hefði verið að fullu frá samningunum um hervæð- ingu Vestur-Þýzkalands.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.