Þjóðviljinn - 30.10.1954, Síða 8
S) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 30. október 1954
% ÍÞRÓTTIR
RJTSTJÓRl FRÍMANN HELGASON
——------------------
Franskir knattspynuunenn eiga að
æfa eítir ungverskri fyrirmynd
Frammistaða Frakka í H.M.
keppninni í Sviss hefur valdið
nokkrum átökum og smábylt-
Sngu innán franska knattspyrnu
sambandsins. Blöð og almenn-
jngur var óánægður — og það
ameð réttu að því er fréttamað-
iur U.P. skýrir frá.
Nú hefur Frakkland fengið
eða ráðið einn mann til
að velja liðið. Þetta er ennþá
aðeins á byrjunárstigi eða sem
tilraun. Þó eru margir sem
yilja fastráða mann þennan
og til nokkurra ára en hann
lieitir Paul Nieholas,
Þá hefur sambandið sam-
|?ykkt að ráða tvo landsliðs-
þjálfara. Áhrifamikil og sterk
sérfræðileg nefnd hefur verið
stofnsett. Ákveðið hefur verið
að í framtíðinni skuli þjálfar-
ar atvinnumannafélaga í Frakk
landi spurðir ráða þegar að því
kemur að velja landslið. Leik-
menn þess eiga að æfa eftir
ungverskri fyrirmynd, sem
sagt að láta þá æfa og leika
eins oft saman og þeir geta.
En það er fleira sem þeir
háfá á prjónunum. Tæknilega
nefndin á að stofna knatt-
spyrnuskóla um allt landið. Þar
skal sérstaklega safnað saman
ungum drengjum (II. fl.) og
þeim kennd leikni og „taktik".
Viðkoman hefur verið mjög
léleg í franskri knattspyrnu, en
Fjölbreytt vetrarstarfsemi Armanns
Glímufélagið Ármann hefur
íyrir nokkru hafið vetrarstarf-
semi sína og er hún að venju
rhjög fjölbreytt. Innan félagsins
starfa nú 10 íþróttadeildir og
innan þeirra deilda er rúm fyrir
áólk á öllum aldri, allt frá börn-
;um til öldunga.
Fjölmennasta og jafnframt
leikskennari er Ásgeir Guð-
mundsson frá Hvanneyri. Hnefa-
leika kennir Þorkell Magnússon,
róðrarkennari er Stefán Jónsson,
handknattleiksdeild þjálfar und-
ir handleiðslu beztu meistara-
flokksmanna félagsins. Víkivaka
og þjóðdansa kennir frú Ólöf
Þórarinsdóttir í vetur. Aðsókn
ffelpnaflokkur Ármanns, sem sýndi blómavalsinn á afmælis
hátíð félagsins í Þjóðleikhúsinu í fyrravetur.
timfangsmesta deildin að vetrin-
tum til er fimleikadeildin, sem
æ-fir í 8 flokkum ungra og gam-
slla. Fimleikakennslu hafa á
ibendi: Frú Guðrún Nielsen, sem
kennir bæði telpnaflokki og
kvennaflokkum, frúarflokki
kennir Auður Jónasdóttir, Hann-
es Ingibergsson kennir drengja-
<og öldungaflokki, en Vigfús Guð-
brandsson kennir körlum áhalda-
i:eikfimi. Allir eru þessir kenn-
arar þekktir að dugnaði í fagi
sínu og fyrir hinar glæsilegu
sýningar, sem þeir hafa haft með
kemendum sínum.
Glímukennslu annast í vetur
hínn góðkunni glímusnillingur
Guðmundur Ágústsson. Frjálsar
íþróttir kennir Stefán Kristjóns-
=on, sund og sundknattleik
kenna nú um stundarsakir ýmsir
fceztu sundmenn félagsins vegna
fjarveru sundþjálfarcns Þor-
síeins Hjálmarssonar, er dvelst
r.ú í Bandaríkjunum. Körfuknatt-
barna og unglinga að þjóðdöns-
um hjá félaginu hefur verið
meiri undanfarin ár en hægt
hefur verið að taka á móti, en
vinsældir þessara flokka eru
löngu kunnar fyrir margar glæsi-
legar sýningar þeirra á undan-
förnum árum. Skíðafólkið mun
að sjálfsögðu þjálfa á vetri kom-
andi hjá skiðaskála félagsins í
Jósepsdal og hinum ágætu skíða-
skálum Ármenninga í Ólafs-
skarði og Himnaríki í Bláfjöllum.
Eins og áður er sagt er starf-
semi Ármanns mjög fjölbreytt
og hún höfð þannig, að bæði
ungir og gamlir geti tekið þátt
í henni, enda er alltaf að auk-
ast sá hópur sem vinnu sinnar
vegna þarf á íþróttum að halda,
og kjörorð félagsins er: íþróttir
fyrir alla. Allar nánari upplýsing-
ar um starfsemi félagsins er að
fá í skrifstofu félagsins í íþrótta-
húsinu við Lindargötu, sími
3356. — (Frá Ármanni).
það er mikið til af efnilegum
ungum mönnum, aðeins ef þeir
fá að læra leikinn rétt.
Fyrir leikinn í Hannover
voru þeir nokkuð vongóðir
enda gekk allt vel fyrir Frökk-
um því að þeir unnu 3:1, að
vísu gegn hnignandi heims-
meistaraliði.
HM í lyftingum
fór fram í Vín
8 heimsmet voru sett
í keppni þessari eins og svo
mörgum öðrum voru það
Sovétríkin og Bandaríkin sem
börðust um efsta sætið. Fetígit
Rússar 18 stig en Bandarikin
15. Þessi tvö lönd tóku öll
fyrstu verðlaunin. Sovét 4 en
Bandaríkin 3. Alls voru sett
8 heimsmet og áttu Rússar 5
en Bandaríkjamenn 3.
Sigurvegarar urðu:
Bantamvigt: Farkutdinoff
Sovétr. 315 kg. (2. Udodoff
Sovétr. 315 kg.).
Fjaðurvigt: Tjimiskian Sovét-
ríkjunum 350 kg. (2. Saksan-
off Sovétr. 337.5 kg.).
Léttvigt: Ivanoff Sovétr. 267.5
kg. (2. George Bandar. 360).
Millivigt. George Bandar.
405 kg. (2 Kono Bandar. 407.5)
Léttþungavigt; Kono Bandar.
435 kg. (2. Vorobjeff Sovétr.
430 kg.).
Þungavigt: Sehemansky
Bandar. 487.5 kg. (2 Hepbum
Kanada 467.5 kg.).
Vill fara
skemmstu leið —
yfir norðurpóliiín
Ríkisþjálfarinn sænski Gösta
Holmer hefur lagt ákveðið til
að sænskir íþróttamenn fari
með flugvél yfir norðurpólinn
til Melbourne í Ástralíu. Það
er langskemmsta leiðin þangað
segir Holmer, en hann hefur
sagt fréttamönnum að því mið-
ur standi hann einn um þessa
skoðun ennþá. Sænska olymp-
íunefndin hefur enn ekki vilj-
að taka afstöðu til málsins.
Holmer bendir á að innan
skamms muni S.A.S. hefja
reglubundnar ferðir yfir pólinn
til Los Angeles. Þessa ferð
segir hann að Svíar eigi að
taka og halda svo áfram það-
an til Ástralíu.
liggnr leiðin
Vor að haustnóttum
Framhald af 7. síðu. og sjálfstæði sveitunga sinna,
með sagt af því, sem manni
er efst í huga, þegar maður
minnist hennar á þessum
merkisdegi. — Það er ekkert
ofmælt, þótt sagt sé, að hún
sé í hópi hinna stórbrotnustu
kvenna sinnar samtíðar og að
sama skapi stórbrotnari, sem
hún hefur minna flíkað því
í fasi sinu. Lífssaga hennar
hefur verið með þeim hætti,
að enga sögu þekki ég aðra,
sem meira hefur til brunns
að bera til að vera uppistaða
í stórbrotnu skáldverki, þar
sem þrek og jafnvægi mann-
legs anda væri þungamiðja.
En hér er ekki staður að gera
því efni skil. — Það sem mér
er efst í huga á þessum
merkisdegi hennar, það er
varðveizla hennar æsku í gegn
um allt og fram á þennan
dag. Hún átti líka fagra
æsku og girnilega til varð-
veizlu. Hún er dóttir hug-
sjónafrömuðsins Jakobs Hálf-
dánarsonar, hún var eitt af
börnunum, sem kallað var til
að bera sinn hluta af braut-
ryðjendastörfum samvinnu-
hugsjónarinnar, á þeim tíma,
þegar forstaðan yar ekki ör-
ugg og hálaunuð staða, held-
ur hugsjónastarf, sem fyrst
og fremst gerði kröfur til
mikilla fórna. — En hugsjón-
in, sem frú Aðalbjörg drakk
í sig með móðurmjólkinni í
föðurhúsum, hefur ekki stein-
gerfzt né tjóðrazt við aukna
verzlunarveltu eina saman eða
aukna fjármagnsframleiðslu
og samvinnu við okurbraskara
þjóðlífsins undir skjaldar-
merki samvinnustefnunnar,
heldur hefur hún þróazt í
samræmi við þróun tímanna
með grundvallarneistann —-
samstarf alþýðu manna gegn
okrurunum og einingu þjóð-
arinnar gegn erlendri drottn-
un — að leiðarljósi. — Síð-
an hún sem barn ól hugsjón
samvinnu við brjóst sér hafa
stórfelldustu breytingar farið
fram í sögu þjóðar -okkar,
brennandi viðfangsefni líðandi
stundar skipt hömum nærri
þvi svo oft sem ný ársól hef-
ur heilsað, en frú Aðalbjörg
hefur átt því láni að fagna,
að geta mætt hverju nýju við-
fangsefni í krafti sömu meg-
inaflanna, sem hún kynntist í
baráttu föður sins fyrir frelsi
trúarinnar á mátt samtaka og
skilnings á því, að frelsi og
sjálfstæði eru meginstoðir
mannlegrar hamingju og þær
stoðir verða aðeins reistar og
varðveittar af hugsjón í
brjósti og fórn í starfi. —
Þess vegna er það hennar
kærsta umræðuefni enn í
dag, hvað til bjargar megi
verða í aðsteðjandi þjóðar-
vanda, þess vegna er það
henni látlaust viðfangsefni,
hvernig þróun mála muni
skipast í næstu framtíð og
hversu langt muni að bíða, að
yfirvofandi hættum verði frá
steðjað. Hún er ein þeirra
sem aldrei getur glatað trúnni
á vaxandi hag þjóðar og
mannkyns á þeirra hugsjóna,
sem helgaðar eru samvinnu í
þess orðs fyllstu merkingu.
í dag mun frú Aðalbjörgu
gefast enn eitt tækifæri til að
veita vinum og kunningjum
af gestgjafaalúð sinni. En
fleiri eru þó hinir, sem fjær
og nær senda henni alúðar-
kveðjur og heillaóskir í til-
efni sjötíu og fimm ára af-
mælisins. Og þá ósk á ég
heitasta henni til handa, að
henni megi endast aldur og
heilsa til að fagna þeirri
stundu, sem táknar ný tíma-
mót til bjartari frelsisdaga í
lífi íslenzku þjóðarinnar.
Gunnar Benediktsson.
S a 11 k j Ö4
Skólavörðustíg 12,
sími 1245 og 2108
Andspyrnu-
hreyfingin
hefur skrifstofu í Þingholts-
stræti 27. Opin alla virka
daga kl. 7—9 síðd., sunnud.
kl. 4—6.
Komið og takið áskriftalista
og gerið skil.
Málverkasýning
Harðar Águstssonar
í Listamannaskálanum er opin daglega
írá klukkan 10 til 22.
Þjóðviljann vantar unglinga
til blaðburðar í
SKIÓLIN og við
HLIÐARVEG í Kópavogi.
Talið við aígreiðsluna. Sxmi 7500.