Þjóðviljinn - 06.11.1954, Blaðsíða 4
4) _ ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 6. nóvember 1954
Mmningarsjóður
íslenzkrar alþýðu um
Sigíús Sigurhjartarsen
Bréf til Indriða
Waage leikstjóra
Tjarnargata 20
Munið að gera skil á greiðslu-
loforðum til sjóðsins.
Ódýrt! Ódýrt!
Haustvörurnar komn-
ar, mikið vöruúrval.
Gjaíverð
Vörumarkaðurinn,
Hverfisgötu 74:
NIÐURSUÐU
VÖRUR
Kæri Indriði.
Það er ömurlegt að lesa þann
fáránlega þvætting sem Morg-
unblaðið leggur á borð fyrir
okkur sem dóm um leikritið
Lokaðar dyr sem þú stjórnar
í Þjóðleikhúsinu,,í>að var vissu-
lega viðbúið að einhverjir spá-
menn myndu rísa upp til að
bægja frá sér og okkur svo
voðalegum umhugsunarefnum
sem leikurinn hlýtur að vekja
hverjum sem telst skynvera
með nokkrum rétti. Málsvarar
apamannakabaretta hljóta að
vera ánægðir með niðurstöður
þess sem gerður er út sem
gagnrýnandi Morgunblaðsins. í
þetta sinn er sú afsökun ekki
tiltæk að hann hafi ekki kynnt
utameeús
Si&uumatiraRð ou
Minningarkortin eru til sölu
í skrifstofu Sósíalistaflokks-
ins, Þórsgötu 1; afgreiðslu
Þjóðviljans; Bókabúð Kron;
Bókabúð Máls og menning-
ar, Skólavörðustíg 21; og í
B'ó! averzlun Þorvaldar
Bjarnasonar í Hafnarfirði.
sér það sem hann skrifaði um:
ég sá hann sjálfur í leikhús-
inu.
Ég er alveg gáttaður á þvi
fólki sem kemur ósnortið alls
frá því að sjá svoná leik. Þetta
angistar- og heimsþjáningaróp
er svo magnað og svo satt og
svo átakanlegt áð ég held að
leikhús sé yfirleitt ekki fyrir
það fólk sem verður ekki fyrir
áhrifum af því. Það ér lið apa-
mannsins: það eru þeir sem
þora ekki að hugsa út í það
hverskonar heimi við lifum í,
vilja ekki láta skelfa sig með
þeim svimandi djúpum þján-
ingarinnar sem birtast í þessum
leik, geispa í staðinn og segja
æ ég er alveg að sofna eða
snúa sér uncjan og segja iss
og taka því ákafar til við þau
myrkrahöfðingjans instrúment
sem hér kveður svo mikið að
í leikhúsum og kvikmyndahús-
um: sælgætisposana.
En svo maður snúi sér aftur
að gagnrýnandanum: ósköp er
það ömurlegt að vita til þess
að útbreiddasta blað landsins
skuli helzt nota sem fræðend-
ur fólksins um flest menningar-
mál kavaléra sem virðast helzt
vilja einhverjar hreppabarn-
ingssmáþústakitlur mislukkaðar
máraguddur og annað kyrlátt og
tilþrifalaust smælki en verða
reiðir þeim sem vilja hrífa
fólk úr viðjum vanans og svifta
það tómlætisins svefnró.
Má ég þakka þér fyrir.
Thor Vilhjálmsson
Blaðamaður sem kemur víða við — Nýjar frjósem-
iskenningar — „Léttir tónar” á skökkum stað —
Þáttarleysi eða svefnleysi.
SV. M. HEFUR SENT Bæjarpóst-
inum eftirfarandi línur: •
„Kæri Bæjarpóstur. Maður
nokkur nefnif sig Þ. Th. Hann
er víst blaðamaður við Mbl.
Þetta er sjálfsagt allra vænsti
maður, einhvernveginn hef ég
aldrei getað fellt mig við pilt-
inn síðan hann ruddist inn í
afmælisveizlu til Sigurðar
Guðnasonar, naut þar gestrisni
og vináttu, en greiddi síðan
beinann með „viðtali" að mestu
uppsoðnu frá eigin brjósti, allt
var svo þetta „produkt“ að sjálf-
sögðu saman soðið til að þókn-
ast peningapúkum þeim sem
eiga Mbl. Þá má og geta þess
að maðurinn hefur stundum
flutt „þáttinn frá útlöndum“ í
útvarpinu. Er mér minnisstæð-
astur þáttur hans um svert-
ingjavandamálið, en þar reyndi
hann að fegra Bandaríkjamenn
af svertingjaofsóknum þeirra.
Mér hefur sem sagt þótt fyrir-
brigðið Þ. Th. heldur leiðinlegt.
En engum er alls varnað og
ekki heldur téðum blaðamanni.
Hann hefur sem sagt sínar
björtu hliðar. Maðurinn er
„specialist" í frjósemismálum.
Ég hef verið haldinn þeim
barnaskap að halda að einung-
is konur yrðu ófrjóar við visst
aldurshámark og yrðu hreint
«
ekki frjóar úr því. Nú hefur
títt nefndur blaðamaður sann-
að að þessu er eins farið um
karla, nema skilst mér að þeir
geti orðið frjóir aftur. Sem
dærrii um slíkan karlmann tek-
ur Þ. Th. engan smákarl,
hvorki meira né minna en
nóbelsverðlaunahöfundinn Hem-
ingway. Orðrétt segir greinar-
höfundur í Morgunblaðinu
föstudaginn 29. okt. 1954, 2.
siðu:
„Hemingway er einn þeirra
fáu hamingjusömu, sem öðl-
ast viðurkenningu í lifanda lífi.
Ekki er hægt að segja að hann
sé gamall maður — 56 ára. En
nú hafa menn óttast að hann
stæði e. t. v. á hættulegum
tímamótum, á þeim aldri þeg-
ar margir rithöfundar taka að
verða ófrjóir.“ Það skal tekið
fram, að grein Þ. Th. er ekki
„viðtal“ við Hemingway.
Sv. M.“
SVO KEMUR hér bréf frá H.
B. u,m fstaðsetningu .jLéttra
tóna.“
„Bæjarpóstur.
Eitt er það í sambandi við
vetrardagskrá útvarpsins, sem
mér finnst illþolandi.. Það er
Framhald á 11. síðu.
100 vinninga - happdrætti Þjóðviljans
Bezta happdrætti ársins!
Húsgögn
Stofuskápur
Málverk
Plötuspilari
Isskápur
Þvottavélar
Strauvél
Hrærivélar
Ryksuga
Hraðsuðukatlar
Straujárn
Brauðristar
Kvendragt
Kápa
Nælonsokkar
Allt til heimilisins
Verðlaunakrossgáta
í hverri blokk
Þrenn verölaun
Dregið 4. desember
Drœtti alls ekki frestað
Aðeins einn mánuður eftir
Afgreiösla á
Skólavörðustíg 19 og
Þórsgötu 1
Kvöldsloppur
Karlmannsföt
Karlmannafrakki
Kuldaúlpur
Reiðhjól
Myndavél
Tjald
Skíði
Skíðaskór
Svefnpoki
Bakpoki
Skautar
Ritvélar
Bækur (samkvæmt
vali).
Kaupið miða strax í dag! Aðstoðið við dreifingu og sölu!
100-vinninga-happdrættismiða í hvers manns hönd!
ÞJÓÐVILJINN