Þjóðviljinn - 23.01.1955, Blaðsíða 2
g) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 23. janúar 1955
Munið kvöld-
vökuna í Skáta-
heimilinu í
kvöld kl. 8.30.
Helgidag&læknir
er Oddur Ólafsson Hávaliagötu
1, sími 80686.
Næturvörður
er í læknavarðstofunni Austur-
bæjarskólanum, sími 5030.
Næturvarzla
er í Jteykjavíkurapóteki, sími
1760.
O 1 dag er sumiudagurinn 23. ^
janúar. Emerentiana. 23. dagur j
ái-sins — Guðspjall: Jesús gekk
&i fjalllnu. — Tungl I hásuðri kL I
12.14 — Ásdegisháflæði kl. 5.15.
Síðdegisháflæði kl. 17.30.
910 Veðurfregnir.
— 9.20 Morguntón-
^\\l\ leikar: Frönsk tón
f \. ^ ]isf — (9 30 Frétt-
ir). Sönglög, ein-
leikslög og hljóm-
Eveitarverk eftir Poulenc Couper-
in,’ Saint-Saens, Delibes, Debussy,
Bizet, Ravel, Milhaud, Massenet,
Auber, Gounod og Francaix. 11.00
Messa í Laugarneskirkju (Prest-
Ur Séra Garðar Svavarsson. Org-
anleikari: Kristinn Ingvarsson).
13 J5 Erindi: Hugleiðingar um
Hávamál frá sálfræði'.egu og sið-
fræðilegu sjónarmiði; síðara er-
jndi (Símon Jóh. Ágústsson).
1530 Miðdegistónleikar: 1) Kamm-
erhljómsveit úr Fílbarmonísku
hijómsveitinni í Ha.mborg leikur;
Ernst Schönfeider stjórnar (Hljóð-
ritað á tón’eikum í Austurbæjár-
bíó 9. júní 1952). a) Sinfónia i A-
dúr eftjr Mozart. b) Sinfónia í
B-dúr eftir Schubert. 2) Þýzkir
dansar eftir Schubert (Fí’harmon-
iska hljómsveitin í Berlín leikur;
Leo Blech stjórnar piötur). 17.30
Barnatími (Ba.’dur Pálmason).
18.30 Tónleikar; 1) Þýzki fiðlu-
ieikarinn 'Oerliard Taschner leik-
ur; Martin Krausé ’ íéikur á píanó
(Hljóðritað á tónleikum í Austur-
tæjarbíó 7. desember s.l.): a) Són-
ata í D-dúr eftir Hándel. b) Cha-
conna í d-moli fyrir einieiksfið’.u
eftir Bach. c) Sónata í d-moll eft-
ir Brahms. 2) Paganini-tilbrigðin
op. 35 eftir Brahms (Egon Petri
ieikur á píanó; p’ötur). 20.20 Tón-
leikar: Andre Kostelanetz og
hljómsveit hans leika iög frá
Mexikó, Kúbu og Suður- Ameríku
(plötur). 20 45 Leikrit: Leikið á
ieirflautu, gamanleikur eftir Lars-
Leevi Lestadius, í þýðingu Ragn-
s.rs Jóhannessonar. Leikstjóri: Æ.
Kvaran. Leikendur: Róbert Arn-
finnsson, Herdís Þorvaldsdóttir,
Ævar Kvaran, Jón_ Aðils, Þor-
steinn Ö. Stephensen, Indriði
Waage, Inga Þórðardóttir og
Rósa Sigurðardóttir. 2205 Dans-
)ög. 23.3Ö Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
13.15 Búnaðarþáttur: Frá vett-
vangi starfsins; VI. (H a’.'.'i’dur
Árnason héraðsráðunautur á Sjá-
varborg í Skagafirði). 18.00
Dönskukennsla; T. fl. 18.30 Ensku-
kennsla; II. fl. 18.55 Skákþáttur
(Ba)dur Möller). 19.15 Tónleikar:
Lög úr kvikmyndum pl. 20.30 Ut-
varpshijómsveitin; Þórarinn Guð-
mundsson stjórnar: a) Spænsk
kaprísa e. F. Curzon. b) Hindúa-
söngur eftir Rimsky-Korsakow.
c) Kossavals eftir Johann Strauss.
20.50 Um daginn og veginn (Gisli
Ástþórsson ritstjóri). 2110 Ein-
söngur: Primo Montanari syngur;
Fritz Weisshappel ieikur undir á
píanó. a) Ti voglio tanto bene e.
de Curtis. b) Aría úr óperunni
Werther e. Massenet. c) Aría úr
óperunni Carmen e. Bizet. dj.Aria
úr óperunni Fedora e. Giordano.
21.30 Útvarpssagan: Vorköid jörð
e. Óiaf Jóh. Sigurðsson; V. (H.
Hjörvar). 22.10 Is’enzkt mál (Bj.
Vilhjálmsson). 22.22 Létt lög: Tino
Rossi syngur og leiknir verða vals-
ar e. Waldteufel pl. 23.10 Dag-
skrárlok.
Kvöldvaka
S V 1 R
verður í Skátaheimilinu Snorra-
braut í kvöld og hefst kl. 8.30.
Kristján skáld frá Djúpalæk flyt-
ur erindi, Karl Guðmundsson leik-
ari les upp, ennfremur verður
lúðrab'.ástur, kórsöngur og að lok-
um dans.
Dáinsboð og feigðarfurða
Þess er getið í sögu Gunnars Hámundarsonar á Hlíðar-
enda (fyrra hluta Njálu), að blóð féll á atgeir hans.
Spurði Kolskeggur hvað það merkti. Gunnar sagði,
að í útlöndum kölluðu menn slíkt „benrögn“ og þætti
vera fyrir stórfundum. Hér er það metið feigðarboð
og eins þegar blóðinu rigndi á þá Bróður víking (Brjáns-
þáttur). En þegar blóð kom á messuhökul prestsins á
Svínafelli, getur það eins verið dáinsboð.
Enn á dögum þykir það geta komið fyrir, að blóð
falli úr lofti og er það þá oft álitið feigðarfurða, en
eins oft haldið, að það komi frá þeim dánu. I desember
1907 kom blóðdropi niður á borð hjá trésmið í húsi, er
verið var að byggja. En að morgni var smiðurinn
fenginn til að smíða þar utan um konu, sem var ný-
dáin i sveitinni.
Blóðdropi féll einnig niður úr lofti fyrir framan rúm á
loftherbergi í Stakkahlíð í Loðmundarfirði eigi miklu
síðar, snemma sumars, er menn gátu engan veginn
skilið, hvernig á stóð. Var athugull piltur í rúminu.
Blóðdropinn sást þar lengi síðart á gólfinu, nálaegt faðmi
frá rúminu. Rétt ár eftir frétti fjölskyldan þar lát
merkrar frændkonu sinnar.
(Þjóðsögur Sigfúsar Sigfússonar)
Kvöidvakan
hans Þórbergs
Það er í kvöld, sem kvö’.dvaka
Landnemans með samfelldri dag-
skrá úr verkum Þórbergs Þórðar-
sonar og stuttu erindi um hann
stendur í Tjarnarkaffi. Hefst hún
kl. 9, en aðgöngumiðar fást í dag
á skrifstofu Æsku'ýðsfylkingar-
innar Þórsgötu 1 kl. 2-7 síðdegis
og við innganginn í kvöld.
Á morgun verður frú Ingibjörg
Ásgeirsdóttir Lokastíg 23 fimm-
tug. Hún er gift Óskari Giss-
urarsyni, starfsmanni Hitaveitu
Reykjavíkur. Þjóðviljinn árnar
þeim hjónum ailra heilla í til-
efni afmælislns.
Tveir embættismenn
fá launahækkun.
Bæjarráð samþykkti á fundi sín-
um 21. þm. að verða við ósk
Jóns Sigurðssonar slökkviliðs-
stjóra um launa/hækkun. Var á-
kveðið að færa slökkviliðsstjórann
úr 5. í 3. flokk launasamþykktar
bæjarins. Ennfremur var sam
þykkt að hækka húsameistara úr
4. í 3. launaflokk.
Skáklausnir
Lausnir:
Dæmi Sveins Halldórssonar:
1. Bd8 Bxe5 2. Rd6 og mátar.
1.— Rbl 2. Bxf5 Hb3 og mátar.
Tafllok Laskers:
1. Kb7 Hb2f 2. Ka7 Hc2 3.
IIh5f Ka5.
Svarti kóngurinn má ekki víkja
af a-línunni, því að þá leikur
hvítur Kb7 og vinnur auðveld-
lega.
4. Kb7 Hb2f 5. Ka6 Hc2 6.
Hh4f Ka3 7. Kb6 Hb2f
8. Ka5 Hc2 9. Hh3f Ka2 10.
Hxh2! og vinnur!'(Svárti hrók-
urinn verður að drepa nafna
sinn, þá vekiír hvitur drottn-
ingu og vinnur gegn hrók).
Miliilandaflu:
Sólfaxi, millilanda-
fl.ugvél Flugfé’ags
Islands, kemur frá
Kaupmannahöf n
kl. 16.45 í dag. —
Hekla, miliilandaflugvél Loftleiða,
er væntan’eg til Rvíkur kl. 7 ár-
degis í dag og heldur áfram kl.
8.30 áleiðis til Oslóar, Gautaborg-
ar og Hamborgar. — Edda, milli-
landaflugvél Loftleiða, kemur til
Rvíkur kl. 19 í kvöld frá Ham-
borg, Gautaborg og Osló. Vélin
heldur áfram til N. Y. kl. 21. —
I*an American flugvél er vænt-
anleg til Keflavíkur fi-á Helsing-
fors, Stokkhólmi, Osló og Prest-
vík í kvöld kl. 21.15 og heldur
áfram cftir skamma viðdvöl á-
leiðis til N.Y.
Innanlandsf lug:
1 dag eru ráðgerðar flugferðir til
Akureyrar og Vestmannaeyja. Á
morgun er ráðgert að fljúga til
Akureyrar, Bildudals, Fagurhóis-
mýrar, Hornaf jarðar, Isafjarðar,
Patreksfjarðar og Vestmannaeyja.
Styrktarsjóður
munaðarlausra barna, sími 7967.
Gengisskráning:
Kaupgengl
1 sterlingspund ..... 45,55 kr
1 Bandaríkjadollar .. 16,28 —
1 Kanadadollar ...... 18,26 —
100 danskar krónur .... 235.60 —
100 norskar krónur .... 227,75 —
100 Bænskar krónur .... 314,45 —
100 finnsk mörk ......
1000 franskir frankar .. 46,48 —
100 belgískir frankar .. 32,65 —
100 svissnesklr frankar . 873,30 —
100 gyllini ........... 429,70 —
100 tékkneskar krónur . 225,72 —
100 vestur-þýzk mörk .. 387,40 —
1000 lírur ............ 28,04 —
Ný kvöldverzlun.
Bæjarráð samþykkti 21. þ.m. að
leyfa Magnúsi H. Valdimarssyni
að hafa opna verzlun að Réttar-
holtsvegi 1 til klukkan 23 30 að
kvöldi. 1 verzluninni verða selt
tóbak, sælgæti, blöð, timarit o.
S. frv.
Söfnin eru opin
Bæjarbókasafnið
Útlán virka daga kl. 2-10 síðdegis.
Laugardaga kl. 2-7. Sunnudaga kl.
5-7. Lesstofan er opin virka daga
kl. 10-12 fh. og 1-10 eh. Laugar-
daga kl. 10-12 og 1-7. Sunnudaga
kl. 2-7.
Landsbókasafnið
kl. 10-12, 13-19 og 20-22 alla virka
daga nema laugardaga kl 10-12
og 13-19.
Náttúrugripasafnlð
kl. 13:30-15 á sunnudögum, 14-15 á
þriðjudögum og fimmtudögum.
Þjóðminjasafnið
kl. 13-16 á sunnudögum, kl. 13-15
á þriðjudögum, fimmtudögum og
laugardögum.
Þjóðskjalasafnið
á virkum dögum kl. 10-12 og
14-19.
Kvenstúdentafélag Islands
heldur fund í veitlngahúsinu
Naustið annaðkvöld, mánudaginn
24. janúar, kl. 8.30. Rædd verða
áríðandi félagsmál.
Þorbjöm heitir
maður og er Jó-
hannesson. Hann
er miklU áhuga-
maður um verziun
og félagsmál og
hefur hagnazt aíl-
vel á verzluninni en félagsmálaá-
huginn fært honura ýmsar tylli-
stöður, sem sagt er að hann kunni
að meta á svipaðan hátt og gróð-
ann af kjötsölunni. Ein virðingar-
staða Þorbjörns er formennska í
Dýravemdunarfélagi Islands (um
skeið var hann jafnfnunt gjald-
keri skotfélagslns!) Þorbjörn er
skyldurækinn elns og bezt sést á
því að hann lætur útvarpið flytja
reglulega nú í frosthörkunum á-
minniugu til almennings um að
þröngt sé í búi hjá smáfuglunum
og áskorun um
að gefa þeim
njatvæli. Er
þetta sjálfsagt
og virðingar-
vert. En Þor-
-björn á það til
að vera skrýt-
iiui. Hann er
vinur smáfugl-
anna en lætur
sér fátt um þá
meðbræður
sína finnast sem þjást af völdum
vetrarkuldanna í bröggum og
lireysum liöfuðborgarinnar. Kald-
ur og rólegur rétti Þorbjöm upp
höndina gegn því á síðasta bæj-
arstjórnarfundl að braggabúunum
yrði liðsinnt með viðgerð og upp-
hitun á íbúðunum, og það jafnt
þótt fyrir lægju greinargóðar
upplýsingar frá fyrstu hendi um
það neyðarástand sem rikir í
bröggunum. Eftir fimdinn snéri
Þorbjörn sér til útvarpsins og
mlnnti það á að gleyma ekki að
láta lesa áskorun um aðstoð við
smáfuglana í næsta auglýsinga-
tima!
Skýli yfir bílasíma.
Samvinnufélagið Hreyfill hefur
snúið sér til bæjarráðs með beiðni
um að fá að reisa lítil skýli yfir
bílasima félagsins víðsvegar um
bæinn. Bæjarráð vísaði erindinu
á fundi sínum 21. þm. til um-
saghar byggingamefndar.
•Trá hofninni
Skipaútgerð ríkisins.
Hekla er væntanleg til Siglufjarð-
ar klukkan 7-8 árdegis í dag á
vesturleið. Esja er í Rvik. Herðu-
breið er í Rvík. Skjaldbreið er í
iRvík. Þyrill er í Rvík. Skaft-
fellingur fer frá Rvík á þriðju-
daginn til Vestmannaeyja.
Skipadeild S.l.S.
Hvassafell er í Grangemouth.
Arnarfell kom við i St. Vincent
í gær á leið til Brazilíu. Jökul-
feil er í Hamborg. Dísarfell losar
á Húnaflóahöfnum. Litlafell er í
olíuflutningum á Suðurlandshöfn-.
um. Helgafell fór frá N.Y. 21.
þm. áleiðis til Rvíkur.
Flokkiipinn
Deildai-fundur verðúr í Valla-
deild þriðjudaginn 25. þessa
inánaðar klukkan 9:30 síðdegis
á Hringbraut 88.
Krossgáta nr. 561.
Gátan
Fugl veit ég einn fjaðralausan,
er settist á garð einn jarðlausan,
þá kom ein jómfrú gangandi.
Hún tók fuglinn handlaus,
steikti hann eldlaus
og át hann munnlaus.
Ráðning síðustu gátu: Dauður
sauður vargétinn.
Lárétt: 1 gleði 4 leit 5 núna 7
fiskur 9 forskeyti 10 ennþá 11
neyðarmerki 13 ull 15 dúr 16 hal-
ur.
Lóðrétt: 1 á fæti 2 siæm 3 ákv.
greinir 4 datt 6 afskekkt svæði
7 fisks 8 tínir 12 mælt mál 14
tón 15 tilvísunarfornafn.
Lausn á nr. 560.
Lárétt: 1 hanzkar 7 ól 8 fari 9
laf 11 lak 12 ók 12 MK 15 örar
17 ós 18 Nói 20 spjalla.
Lóðrétt: 1 ihóll 2 ala 3 ZF 4 kal
5 Aram 6 Rikki 10 fór 13 Kana
15 ösp 16 ról 17 ós 19 il.
Messur,
í
Óperurnar I Pagliacci og Cavall-
eria Rusticana verða sýndar í Þjóð
leikhúsinu í kvöld, og fer þá nú
heldur að styttast þeirra saga
um sinn. Aðeins fimm sýningar
eru eftir, og verður hin síðasta á
laugardaginn, þar sein Stina B.
Melander, er fer ineð eitt aðal-
hlutverkið af þrem í I Pagliaeci,
ei- isanmingsbundin við Stokk-
hólmsóperuna frá og með -1. fe-
brúar. Myndin. sýnir hana í
hlutverki sínu; á söng heiuiar, 1
íélk og áila framgöngu hafa allir
lokið mlklu lofsorði.
dag:
Dómkirkjan
Messa kl. 11 árdegis; séra Óskar
J. Þorláksson. Síðdegisguðsþjón-
usta kl. 5; séra Jón Auðuns.
Bústaðaprestakall
Messa í Fossvogskirkju kl. 2; séra
Gunnar Árnason.
Háteigsprestakall
Messa í hátíðasal Sjómannaskól-
ans kl. 2. Barnasamkoma klukk-
an 10.30; séra Jón Þorvarðsson.
Laugarneskirkja
Messa kl. 11 árdegis. (Ath. breytt-
an messutíma). Barnaguðsþjón-
usta fellur niður. Séra Garðar
Svavarsson.
Langholtsprestakall
Messa í Laugarneskirkju kl. 5;
séra Árelíus Níelsson.
Nessókn
Messa í Kapellu Háskólans klukk-
an 2. Séra Jón Thorarensen.
Hallgrimskirkja
Messa kl. 11 fyrir hádegi. Séra
Jakob Jónsson (Presturinn mæ’ist
til þess við vandamenn ferming-
arbarna að þeir verði við mess-
una). — Barnaguðsþjónusta kl.
1.30. Séra Jakob Jónsson. —
Messa kl. 5. Séra Sigurjón Þ.
Árnason.
Flokksgjöld.
1. ársfjórðungur féll í gjald-
daga við áramót. Komið og
greiðið flokksgjöld ykkar skil-
víslega. Skrifstofan er opin alla
virka daga frá klukkan. 10—
12 og 1—7 eftir hádegi.