Þjóðviljinn - 09.03.1955, Síða 1
VILHNN
Miðvikudagur 9. marz 1955 — 20. árgangur — 56. tölublað
Verkalýðsfélögiu hafna „tilljoði*’ stjórnarinnar um „rannsókn“:
Tillöguxini ætloð að tefja fyrir samningum
Atvinnurekendur og rikisstjórn hafa ekki enn sýnt
nokkurn lit á jákvœSri afstöSu i vinnudeilunum
Átta dagar eru nú liönir síðan verkföll áttu að hefjast
ef verklýðsfélögin hefðu ekki veitt frest til þess aö reyna
að tryggja samninga án þess aö til framleiðslustöðvunar
kæmi. Nær þrjár vikur eru liðnar síöan verklýðsfélögin
afhentu kröfm' sínar. Meira en fimm vikur eru liðnar
síöan verklýðsfélögin sögðu upp samningum. Allan þenn-
an tíma hefur ekkert komið frá atvinnurekendum og ríkis-
stjórn annað en neikvæð afstaða og vífillengjm: — og síð-
asta uppátæki ríkisstjómarinnar var „tilboð“ það um
,,rannsókn“ sem sagt var frá í blaöinu í gær. Verklýðsfé-
lögin hafa nú hafnaö því að taka þátt í þeim augljósa
skollaleik og sendu forsætisráðherra bréf þess efnis í gær.
Bréf verklýðsfélaganna er á
þessa leið:
„Reykjavík 8. marz 1955.
Samninganefnd verkalýðsfé-
laganna hefur borizt í hendur
bréf ríkisstjómarinnar dags. 7.
inarz þ. á., með tilmælum um
tilnefningu tveggja fulltrúa í
Forysta Verkamannafl. leggur
drög að brottrekstri Bevans
Þingfréttamenn í London segja, aö forysta Verka-
mannaflokksins hafi ákveðið aö reyna að víkja Aneurin
Bevan úr flokknum.
Síðan 1951, þegar Bevan
sagði af sér ráðherraembætti
ANEURIN BEVAN
vegna þess að hann var ósam-
þykkur hervæðingunni og nið-
urskurði fjárframlaga til fé-
lagsmála sem af henni leiddi,
hefur hann verið foringi vinstri
arms flokksins utan þings og
innan.
Fyrst úr þingflokknum
Stjórn þingflokks Verka-
mannaflokksins sat á fundi í
gær og varð þar að ráði að
lögð skvldi fyrir þingflokkinn
tillaga um að víkja Bevan úr
honum. Talið er að tillagan
verði rökstudd með því að
Bevan hafi brotið af sér með
því að sitja hjá við atkvæða-
greiðslu á þingi í síðustu viku
um tillögu flokksins um her-
mál.
Bevan sjúkur
Þingflokkur Verkamanna-
flokksins átti að koma saman
á fund í dag en vegna þess
að Bevan liggur sjúkur hefur
fundinum verið frestað í viku.
Samþykki þingflokkurinn
brottvikningartillögu flokks-
foringjanna er búizt við að þeir
leggi til að miðstjórnin geri
Bevan flokksrækan.
Hægrisinnaðir flokksforingj-
ar með Herbert Morrison í
broddi fylkingar ákváðu að
láta skríða til skarar gegn Bev-
an þegar hann fyrir skömmu
fékk 113 af 295 Verkamanna-
flokksþingmönnum til að undir-
rita með sér ályktunartillögu,
þar sem lagt var til að reynt
verði að semja um sameiningu
Þýzkalands áður en samning-
arnir um hervæðingu Vestur-
Þýzkalands eru fullgiltir.
Framhald á 1-1. síðu.
nefnd er athugi „hvort efna-
hagsástandið í landinu sé þannig,
að atvinnuvegirnir geti borið
hækkað kaupgjaid, og hvort
kauphækkanlr mundu leiða til
kjarabóta fyrir verkalýðinn“.
Samninganefndin hefir i dag
lagt erindi rikisstjórnarinnar
fyrir fulltrúanefnd verkalýðsfé-
laganna, og ákvað hún að til-
nefna ekki fulltrúa í slíka rann-
sóknarnefnd, þar sem hún telur
óhugsandi að framkvæma svo
umfangsmiklar rannsóknir á
þessu stigi launadeilunnar, enda
miklar líkur til, að tillagan sé
nú fram komin til að tefja fyrir
samningum. Verkalýðsfélögin
telja, að ríkistjórnin hefði fyrr
átt að koma fram með þessi til-
mæli, hafi henni verið umhugað
um að fá slíka rannsókn, og vilja
þau í því sambandi benda á, að
19. jan. s.l. boðaði ríkisstjórnin
stjórn Alþýðusambandsins á sinn
fund, þeirra erinda að fá öllum
launadeUum frestað fram á sum-
ar, en var þá gert fullljóst, að
svo myndi ekki verða.
Alþýðusambandið hefir látið
sérfróða menn athuga kaupmátt
launanna síðan 1947 og kom í
ljós við þá athugun, að kaup-
mátturinn hefir rýrnað til mik-
illa muna. Niðurstöður þessara
athugana munu verða birtar inn-
an fárra daga. Öllum má vera
ljóst, að á sama tíma hafa þjóð-
artekjurnar aukizt mikið og hlut-
ur launþeganna í þeim hefir
minnkað.
Þetta eru þær staðreyndir, sem
verkalýðsfélögin benda á kröfum
sínum til stuðnings.
Virðingarfyllst,
Samninganefnd
verkalýðsfélaganna
Eðvarð Sigurðsson (sign.)
Eggert Þorsteinsson (slgn.)
Hermann Guðmundsson (sign.)
Björn Bjarnason (sign.)
Snorri Jónsson (sign.)
Benedikt Davíðsson (sign.)“.
Atvinnurekendur tóku „til-
boði“ ríkisstjórnarinnar hins
vegnar fagnandi og tilnefndu
Kjartan Thors og Björgvin Sig-
ursson í nefndina.
Sáttasemjari hélt fund
með deiluaðilum í fyrra-
kvöld, stóð hann til kl. 3.30
um nóttina, en ekki munu
atvinnurekendur hafa boðið
kauphœkkun um einn eyri.
í gærkvöld var samninga-
fundur á nýjan leik og var
honum ekki lokið pegar
blaðið fór í prentun.
1 gær skýrði Eden utanríkis-
ráðherra brezka þinginu frá för
sinni til Austurlanda. Kvaðs't
hann hafa komizt að þeirri nið-
urstöðu, að ekki sé tímabært
að reýna að leysa deiluna um
kínversku eyna Taivan með al-
þjóðaráðstefnu. Hins vegar
kvaðst hann sannfærður um að
aðild Kína að SÞ kæmist í eðli-
legt horf ef ljóst væri að hætt-
an á vopnaviðskiptum út af
Taivan væri úr sögunni. Til
þess að svo mætti verða yrði
að flytja lið Sjang Kaiséks
af öllum eyjunum uppi við
strönd meginlands Kína en
Kínastjórn yrði hins vegar að
heita því að reyna ekki að
Framhald á 10. síðu.
Kjarnorkuský
yfir USA
Ský það sem myndaðist við
kjarnorkusprengjutilraunina í
Bandaríkjunum í fyrradag
klofnaði í tvo hluta og berst
annar til vesturs en hinn til
austurs. Er fylgzt vandlega
með ferli skýsins. Rétt eftir
sprenginguna snerist vindáttin
á sprengingarstaðnum og urðu
þá 600 henr.enn og 200 sérfræð-
ingar að flýja í skyndi til þess
að verða ekki fyrir geislavirku
ryki sem féll niður úr skýinu.
<a-
~<8>
Fulltrúaráð verklýðsíélaganna
skorar á allan almenning ú
styðja verklýðsíélögin
Krefst tafarlausra samninga við verkalýðinn
Á fundi Fulltrúaráðs verklýðsfélaganna í Reykjavík,
sem haldinn var í fyrrakvöld var einróma samþykkt svo-
hljóðandi ályktun:
„Fundur haldinn í Fulltrúaráði verklýðsfélag-
anna í Reykjavík 7. marz 1955, lýsir yfir fullum
stuðningi sínum við kröfur þeirra verklýösfélaga,
er sagt hafa upp samningum.
Um leið og fundurinn krefst pess að samið verði
án tafar við verklýðsfélögin skorar hann á allan
almenning að veita peim fullan stuðning í bar-
áttu peirra, sem jafnframt er barátta fyrir bætt-
um kjörum allrar alpýðu“.
4>-
Lánardrottnar Ragnars Blöndals h.f
Undanfariö hefur verið mikið rætt og ritað um
mál Ragnars Blöndals h.f. og þaö mikla lánstraust
sem fyrirtækið naut bæði hjá bönkum og einstak-
lingum. Munu 50—60 aöilar hafa veriö lánardrottn-
ar fyrirtækisins og upphæöirnar verið mjög mis-
jafnlega háar. Hér fer á eftir listi yfir 14 úr hópi
stærstu lánardrottnamia, og er þar um að ræöa
ýmist vörulán eða peningalán, en um lánskjör aö
ööru leyti er Þjóöviljanum ekki kunnugt:
Brandur Brynjólfsson, tögfræðingur Kr. 700.000.00
Einar Magnússon, innheimtumaður — 109.208.31
Guðjón Hólm, lögfræðingur — 260.000.00
Guðlaugur Ásgeirsson, klæðskeri —• 500.000.00
Guðm. H. Þórðarson f jármálamaður — 600.000.00
íslenzk erlenda verzlunarfélagið — 358.876.47
Heildverzlun Árna Jónssonar — 2.665.230.05
Hörður Ólafsson, lögfræðingur — 234.000.00
Jónas Thoroddsen, fulltrúi borgarfógeta — 120.000.00
Magnús Haraldsson, heildsali — 98.077.00
Kagnar Ingólfsson, skrifstofustjóri — 222.000.00
Sigurður Berndsen, fjármálamaður — 390.000.00
Sverrir Bernhöft li.f. — 1.096.863.80
Þorsteinn Sigurðsson, kaupmaður — 200.000.00
Samtals nema þessar upphæðir hálfri áttundu
milljón, en þá eru ótalin lán bankanna og tugir
smærri einkalána, eins og áöur segir. Menn þeir
sem aö ofan greinir gengu frá lánum þeim sem
veitt voru, en Þjóöviljanum er aö sjálfsögöu ekki
kunnugt hvort aðrir standa á bak viö þá aö ein-
hverju leyti.