Þjóðviljinn - 09.03.1955, Page 3

Þjóðviljinn - 09.03.1955, Page 3
Miðvikudagur 9. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (3 ¥erkamenn kreijast jafnverðmæts kaups og þeir höfðu fyrir 7 órum og hlutdeildar í aukningu þj óðar teknanna síðan Hlutur verkalýðsins hefur minnkað — hlutur auðstéttarinnar stækkað Hér fcr—á eftir kafli úr hinni merku og ýtarlegu ræðu um efnaliagsástandið og kaupgjaldsmálin, sem Einar Olgeirsson flutti á fundi sameinaðs þings í fyrradag. • Við erum báðir, við hæstv. dómsmálaráðherra, sammála um, að stórfenglegustu ráðstafanir ís- lenzkrar sögu, sem gerðar liafa verið til aukinnar, praktískrar framleiðslu, hafi verið gerðar á árunum 1944—1946. Og við erum þá vonandi líka sammála um, að þessar stórfelldu ráðstafanir lögðu eðlilegan, efnahagslegan grundvöll að bættum lífskjörum. Og nú segir hæstv. dómsmála- ráðherra og aðrir ráðherrar með honum, að síðan 1947, þá hafi líka orðið gífurleg aukning á framleiðslunni. Hvað sú aukning hefur orðið, hefur ver- ið undir stefnu ríkisstjórnarinn- ar komið. Við skulum þá slá því föstu, að í fyrsta lagi á grund- velli stefnunnar 1944—-1946 hafi skapazt mjög mikill og góður grundvöllur fyrir bætt lífskjör íslenzkrar alþýðu og við skulum segja, að síðan 1947 hafi líka farið fram mikil aukning fram- leiðslunnar, þó að við séum máski ekki alveg sammála um, hvort henni hefur verið beint alls stað- ar inn á réttar brautir. 'i * ^ Hámarkið — í des. 1947 í desember 1947 stendur verkalýðurinn í liámarki þeirra lífskjara og launa, sem hann hefur haft. 1947 eru raunveruleg laun verkalýðsins á íslandi, miðuð við 1939, um 50% hærri. Ef við setjum 1939 = 100, þá verður desem- ber 1947, hvað kaupmátt tíma- kaupsins snertir, 156. Það er hámarkið, sem verkalýðurinn þá hefur náð. Og nú skulum við skjóta fram þeirri spurningu: Þoldi íslenzka þjóðfélagið í desember 1947 þessi launakjör verkalýðsins? ^ Þoldi þjóðíélagið þau launakjör? - Já, íslenzka þjóðfélagið þoldi þessi launakjör. Meira að segja I. maí nefnd full- truaráðsins kjörin Á fundi Fulltrúaráðs verk- lýðsfélaganna í Reykjavík sem haldinn var í fyrrakvöld var kjörið í 1. maí nefnd fulltrúa- ráðsins-. Kosin voru: Björn Bjarnason (Iðja), Guðmundur J. Guðmundsson (Dagsbrún), Guðjón Jónsson (Fél. járniðn- aðarmanna), Guðbjörg Bryn- jólfsdóttir (Framsókn), Sigurð- ur Eyjólfsson (HÍP) og Victor Þorvaldsson (Þór). Auk þess tilnefna verklýðsfélögin hvert sinn fulltrúa í nefndina. Framsóknarflokkurinn hélt þvi fram, að þegar verkalýðurinn hafði þessi launakjör, hafi auð- mannastéttin í Reykjavík grætt þannig, að hún hafi aldrei grætt annað eins. Framsóknarflokkur- inn hélt því fram, að það hefði verið stórgróði hjá auðmanna- stéttinni á þessum tíma. Og ein aðaládeila Framsóknarflokksins á öllum þessum árum á okku’" sósíalista var: Þið létuð auðvaldið græða allt of mikið. Og það vill líka svo til, að við höfðum staðreyndir frá des. 1947, um hvort íslenzka auðmanna- stéttin þoldi það kaupgjald, sem verkalýðurinn hafði þá. ^ Gííurleg auðsöínun Eignakönnunin fór frani i þeim mánuði. Og það sýndi sig þá, að 100 rikustu menn og félög í Reykjavík áttu 88 millj. króna. þá i skuldlausum eignum, eins og talið er fram til skatts. Það er vani hag- fræðinga að tólffalda þessa tölu, vegna þess að þarna er átt við fasteignamat og fast- eignamatið er jafnvel oft allt að því tvítugfaldað, þamiig að ef maður bindur sig við þessa tölu, þá áttu 100 ríkustu menn og félög i Reykjavík 1056 millj. kr. í skuldlausum eign- um. Eignasöfnunin hafði ver- ið gifurleg. Og samt var ástandið þann- ig þá, að 1/10 hluti Reyk- vikinga átti meirihlutann af allri skattskyldri eign, en 100 skattskyldir Reykvíkingar áttu 14% af allri skattskyldri eign. En 2/3 Reykvíkinga áttu >á ekki svo mikið að þeir kæm- ust í eignaskatt. Með öðrum orðum, það er engum efa bundið, að launakjör verkalýðsins í desember 1947, þau hæstu sem hann nokkurn tíma hefur haft, voru ekki nema skikkanleg hvað það snerti, að auðmannastéttinni var eftirskil- inn mikill gróði og að gífurleg auðsöfnun hafði farið fram. Og þetta er eiginlega eina árið, þar sem við höfum það skjalfest, hve mikil auðsöfnun íslenzkra auðmanna v’ar, vegna þess að eignakönnunin fór fram í lok þess árs. ^ Stórfelld aukning framleiðslunnar Síðan 1947, — og þar vorum við sammála, ég og hæstv. ráð- herrar, sem talað hafa — hefur þjóðarframleiðslan í heild auk- izt og aukizt stórum. Síðan 1947 hafa allir nýsköpunartogararnir og öll nýsköpunartæknin komið í gagnið. ' Togararnir voru að byrja að koma, sá fyrsti í febrú- ar 1947, og héldu áfram að koma 1948 og 1949. Síðan 1948 hefur ísland fengið allar Marshallgjaf- irnar. Síðan 1947 hefur ísland fengið stór lán, sem vaíalaust eiga að geta borið bætt líf?kjör. Það er að segja, þjóðartekjumar hafa aukizt og verkalýðurinn á sínar þakkir skilið fyrir að hafa knúið fram, meira að segja gesn vilja afturhaldsins, mikið af aukningu þessara þjóðarrekns. Verkalýðurinn knúði fram, gegn vilja þáverandi afturhalds, allar launahækkanir á árunum 1942—1944, sem skópu þann út- lenda gjaldeyri, sem við áttum 1945. Verkalýðurinn knúði fram þá stefnu, sem tryggði að er- lendu innstæðurnar væru, að svo rniklu leyti sem hans áhrif náðu til, hagnýttar til kaupa á stór- virkum framleiðslutækjum, sen, þjóðin nú byggir atvinnulífið á. Hlutdeild verkalýðs- ins heíur minnkað Og þá vil ég spyrja: hvad hefur svo verkalýðurinn feng- ið af bættum lífskjörum frá því 1947 í krafti hinnar stór- auknu framleiðslu, sem liann lagði gi'undvöllinn að? Hvar hefur verkaiýðurinn uppskor- ið ávextina af allri nýsköpun- inni, sem hann átti sinn stóra hlut i, og af allri aukningu þjóðarteknanna síðan? Hefur hiutdeild íslenzks verkalýðs í þjóðartekjunum aukizt frá því 1947? Þetta er spurning, sem við verðum að leggja fyrir okkur hér á Alþingi og svara. Og hvert er svarið? Þar eru hagskýrslurnar alveg tæmandi, alveg réttar og alveg óvéfengjanlegar. Hlutdeild verkalýðsins lief- ur minnkað frá des. 1947. Hún hefur minnkað í þjóðartekj- unum, hún hefur minnkað hvað snertir kaupmátt tíma- kaupsins. Aðeins til þess að hafa það sama eins og verka- lýðurinn hafði 1947 þyrfti a. m. k., þegar ekki er reiknað eð húsaleigunni, eitthvað í krúig uin 20% hækkun. Og ef reiknað er með húsaleig- unni, þá brjálast öll vísitalan. Vísitalan eins og hún er núna þyrfti að hækka þá um 47.5%. Staðreyndirnar eru sem sé þær: Frá því 1947 hefur hlut- deild verkalýðsins minnkað. Hlutur auðstéttarinn- ar heíur stækkað En hefur nú hlutdeild auð- mannastéttarinnar á íslandi vax- ið eða minnkað síðan 1947? Hvað segir lífið í Reykjavík um þann hlut, ef við bara lítum í kringum okkur hérna í Reykja- vík, —- hvort ísienzka auðmanna- stéttin hefur tekið upp sparnað- arhætti og lífsvenjubreytingar síðan? Nei, bararnir, lúxusbíl- arnir og margt fleira sýnir okk- ur að lífskjör auðmannastéttar- innar og lúxus hennar hefur vaxið. Hlutdeild hennar í þjóð- artekjunum hefur vaxið. Frá 1947 hefur hlutdeild verkalýðs- ins minnkað, og það þrátt fyrir þótt öll nýsköpunartækin séu komin í gagnið síðan að heita má, og öll þessi mikla fjárfesting, sem ríkisstjórnin stærir sig af, hafi farið fram síðan. ^ Réttlætiskröíur verkalýðsins Hver er þess vegna réttiæt- isltrafa verkalýðsins í dag? Hún er í fyrsta lagi eðlilega sú, að hann nái því, sem hann hafði 1947, fái þá hækkun, hver hún nú er, eitthvað um 20 eða 30%, eða hvað sem hún kann að vera, þegar tillit væri tekið til húsaleigunnai' og annars slíks líka. Og í öðru lagi, að hún fái sinn hluta í aukningu þjóðartekn- anna síðan. Sém sé í fyrsta Iagi að liann fái að uppskera það, sem liann sjálfur hjálpaði tii að sá með nýsköpunlnni 1944—1947, og í öðru Iagi að hann fái eitthvað af þeim auknu þjóðartekjum sem rík- isstjórnirnar á síðustu 6—7\ árum segjast hafa aflað með því að auka framleiðslu þjóð- arinnar, að festa fé á skyn- samlegan hátt og öðru slíku. Þetta eru réttlætiskröfur verkalýðsins. Og hæstv. ráðherr- ar hafa lýs't því yfir að það eigí að fara fram kauphækkun eins 0£ framleiðsluafköstin frekast þoli. Eg þykist hafa gert nokkra grein fyrir, að verkalýðurinn eigi réttlætiskröfur á kauphækkun- um, að hann sé að gera upp sakirnar við efnahagspólitík síð- ustu 6—7 ára, hann sé að gera kröfu til að fá að uppskera sjálf- ur það, sem hann hjálpaði til að sá með nýsköpuninni. Rannsókn á aðbúð fanga í Reykjavík brýn nauðsyn Dómsmálaráðherra játar að aðbúð þeirra sé óviðunandi Tillaga Gunnars M. Magnúss um rannsókn á aðbúnaði fanga í Reykjavík var rædd á fundi neðri deildar Alþingis í gær. Flutti Gunnar ýtarlega fram- söguræðu, sem verður birt hér í blaðinu á morgun. Röðin komin að Helga Sæmmidssyni! Hægri klíkan í Alþýðuílokknum sér alstaðar fjandmenn og svikara Hægri klíkan 1 Alþýöuflokknum sér nú alstaöar fjand- menn og svikara og nú er röðin komin aö Helga Sæ- mundssyni, hinum nýdubbaöa ritstjóra Alþýðublaðsins. í gærkvöld átti að kalla Helga Sæmundsson fyrir framkvæmda- nefnd flokksins og þar átti hann að svara til saka. Munu ákæru- atriðin aðallega vera tvenn. í fyrsta lagi hafi Helgi verið al- gerlega máttlaus í árásunum á vinstri menn flokksins og hafi verið greinilegt að hugur fylgdi ekki máli í skrifum hans. I ann- an stað hafi Helgi vanrækt allt of mikið að svara ákærum Þjóð- viljans og verið of deigur í „bar- áttunni gegn kommúnismanum". Átti að leggja fyrir Helga að taka þegar í stað upp hið glæsi- lega fordæmi Stefáns Pétursson- ar, en jafnframt var honum til viðvörunar bent á örlög Alfreðs Gíslasonar. Væntanlega kemur það í ljós næstu daga hvort reiðilesturinn Bjarni Ben. játaði að aðbún- aður fanga í kjallaranum væri með öllu óviðunandi, en nú værii í ráði að hefja í sumar byggingu á hluta af lögreglustöð fýrir Reykjavík, sunnan sænska frysti- hússins, og yrðu þar fullkomnar fangageymslur. Gylfi Þ. Gíslason minnti á að í lögunum um meðferð ölvaðra og drykkjusjúkra frá 1949 væru skýr ákvæði um allt aðra með- ferð á þeim föngum sem tíðastír gestir eru í kjallara lögreglu- stöðvarinnar. Taldi hann ámæl- isvert að þeim lögum hefði ekki1 verið framfylgt. Tillögu Gunnars, sem fjallar um skipun nefndar til að rann- saka aðbúð fanga í Reykjavík, var vísað til allsherjarnefndar og umræðunni frestað. yfir Helga ber tilætlaðan árang- ur eða hvort honum verður út- skúfað eftir skamman ritstjórn- arferil. Elliði fékk 280 tonn 1 Siglufirði í gær. Frá fréttaritara Þjóðviljans. í morgun kom togarinn Elliði af veiðum með um 280 tonn af fiski eftir tæplega 7 daga veiði- ferð. Aflinn fer til herzlu og frystingar. Veður hefur verið ágætt síð- ustu daga og gæftir góðar. Afli hefur hins vegar verið trégur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.