Þjóðviljinn - 09.03.1955, Page 12

Þjóðviljinn - 09.03.1955, Page 12
Sýslunefndzn mótfallin kaup- staðarstofnun í Kópavogi Telur hana ekki koma til mála gegn vilja meiri- hluta sveitarstjórnar og íbúanna sjálfra Sýslunefnd Gullbringu- og Kjósarsýslu samþykkti með sam- hljóða atkvæðum 7. þ.m. eftirfarandi: Viðvíkjandi erindi félags- málaráðuneytisins til sýslu- nefndar Kjósarsýslu um það, hvort Kópavogshreppur skuli skilinn frá Kjósarsýslu og gerður að kaupstað, með venju- legum kaupstaðarréttindum og skyldum, vill sýslunefndin taka fram: 1. Sýslumaður Kjósarsýslu hef- ur upplýst að löggæzla, skattheimta og fleiri opinber starfræksla sé erfið í fram- kvæmd í Kópavogshreppi við það sveitarstjórnarfyrir- komulag, sem nú er þar. Fellst sýslunefndin á að ráða þurfi bót á þeim erfið- leikum. 2. Kjósarsýsla er eitt minnsta sýslufélag landsins, telur að- eins fimm hreppa, og af þeim er Kópavogshreppur lang- f jölmennastur. Það mundi því veikja ath'afnamöguleika sýslunnar verulega, ef Kópavogshreppur verður skilinn frá lienni. 3. hegar einstökum hreppum hefur, með sérstökum lögum, verið veitt kaupstaðarrétt- indi, mun frumkvæðið að því, eða beiðni um slikt liafa komið frá viðkomandi 100 manna varalið úr Holsteini Eins og skýrt var frá í blaðinu í gær er hafinn náinn kosninga- undirbúningur milli fram- kvæmdastjóra Alþýðuflokksins og skrifstofu íhaldsins fyrir að- alfund Alþýðuflokksfél. Reykja- víkur á sunnudaginn. Hafa framkvæmdastjórarnir legið yfir meðlimaskrá Alþýðuflokksfélags- ins og dregið menn í dilka til hægri og vinstri, en jafnframt hefur skrifstofan í Holsteini gert lista um lítt kunna íhaldsmenn sem eiga að ganga í Alþýðu- flokksfélagið á sunnudag. í gær mun þessi hjálparlisti hafa verið kominn upp í 100 manns. Samvinna um járnbrautarsam- göngur . Tilkynnt var í Belgrad í gær að stjórnir Júgóslavíu, Tékkó- slóvakíu og Ungverjalands hefðu gert með sér sam/iing um járnbrautasamgöngur. — Munu járnbrautaferðir milli landanna, sem legið hafa niðri síðan 1948, hefjast með eðlilegum hætti 1. aprí!. Ungverjar og Tékkar fá að flytja vörur út og inn um júgó- slavnesku höfnina Rijeka án þess að greiða af þeim tolla. hreppsfélögum, enda lítur sýslunefndin svo á, að það sé liinn eðlilegi gangur mál- anna. I þessu tilfelli liggur það ekki fyrir eins og nú standa sakir. Ef aftur á móti fram kemur eindregin viljayfirlýsing meiri liluta sveltarstjórnar Kópavogs- lirepps, eða óumdeilanlegs meiri liluta atkvæðisbærra íbúa hans, um kaupstaðarréttindi fyrir lireppinn, telur sýslunefndin eðlilegt að Kópavogshreppur fái kaupstaðarréttindi. Okrið orðið óhugn- anlegt fyrirbæri Vel tekið í tillögu sósíalista um rannsóknamefnd Á fundi neörideildar Aiþingis uröu í gær allmiklar um- ræöur um tillögu þriggja sósíalistaþingmanna, um skip- un rannsóknamefndar samkvæmt 39. gr. stjórnarskrár- innar til rannsóknar á okri. VarÖ fyrri umræöu lokið. Einar Olgeirsson fylgdi til- en svo á móti því að slík mál lögunni úr hlaði með nokkrum yrðu könnuð til hlítar. Virtist orðum. Minnti hann á að þess ráðherrann hlynntur því, að til- mundu dæmi að fé væri lánað ^ lagan um rannsóknarnefnd yrði samþykkt. í Reykjavík með kjörum sem samsvara 60-70% ársvöxtum. Okrið væri orðið óhugnanlegt fyrirbrigði í fjármálalífi íslend- inga, en erfitt væri að komast að því. Ríkisstjórnin hefði ekki séð ástæðu til rannsóknar á stórfelldum okurmálum, og væri því tillagan komin fram um þingnefnd, sem tæki mál þetta til rannsóknar. Bjarni Ben. talaði þrisvar og vildi nú ekki fortaka að okur kynni að fyrirfinnast á íslandi, og gekk jafnvel svo langt að telja það hliðstæðu skattsvika. Sór hann og sárt við lagði að ríkisstjórnin sem heild hefði enga vitneskju fengið um okur- mál, og engin kæra um slíkt hefði borizt til dómsmálaráðu- neytisins. En hann væri síður Viðsjár i Kam- hodsja Víðsjár miklar eru í Kam- bódsja, einu af Indókínaríkjun- um, eftir að konungur iandsins sagði af sér og fékk völdin í hendur föður sínum. Hafa skæruliðasveitir tekið að myndast á ný, en forseti her- ráðsins leitað á náðir Bandaríkj- anna um ,,hjálp“ til að þjálfa herinn. Bergur Sigpirbjörnsson og Gunnar M. Magnúss mæltu einnig með samþykkt tillög- unnar. Atkvæðagreiðslu var frestað. Dtínsk kjarn- orknnefnd Danska ríkisstjórnin hefur skipað 50 manna nefnd sem á að fjalla um hagnýtingu Dana á kjarnorku til friðsamlegra nota. Formaður nefndarinnar er kjarneðlisfræðingurinn heims- kunni prófessor Niels Bohr. þlÓÐWLJINN Miðvikudagur 9. marz 1955 — 20. árgangur — 56. tölublað <s>~ > Frumvarp um atvinnu- leysistryggingar ílut! a! þingmönnum Sósíalistaflokksins og Alþýðuflokksins Fimm þingmenn Sósíalistaflokksins og Alþýðuflokksins flytja á Alþingi frumvarp um atvinnuleysistryggingar, og er það sama frumvarp og sósíalistar hafa flutt á undan- förnum þingum. Flutningsmenn eru Gunnar Jóhannsson, Hannibal Valdimarsson, Eggert Þorsteinsson, Einar Olgeirsson og Karl Guðjónsson. Þetta merka frumvarp mun kynnt hér í blaðinu næstu daga. 4 Friðfinnur Guðjónsson lótinn Friðfinnur Guðjónsson leik- ari lézt að heimili sínu í fyrri- nótt, á 85 aldursári. Friðfinnur Guðjónsson var fæddur að Bakka í öxnadal 21. sepL 1870. Hann lagði stund á prentnám, lauk prófi í Kaup- mannahöfn tvítugur að aldri, en hans verður þó fyrst og fremst minnzt í sögunni sem leikara. Hann var einn af stofn- endum Leikfélags Reykjavikur 1897, en hafði áður starfað með hópnum er gekkst fyrir stofn- un Leikfélags Reykjavíkur. Var Friðfinnur ritari í fyrstu stjórn Leikfélagsins. Hann lék hjá Leikfélaginu um 60 ára skeið, og enginn leikari mun hafa notið jafn mikilla vinsælda jafn lengi og Friðfinnur Guðjónsson. Er hann methafinn í hlutverka- f jölda hjá Leikfélaginu, lék alls 136 hlutverk hjá því. Jafnframt leiklistinni stundaði Friðfinnur prentiðn í meir en 50 ár, en hann var einn af stofnendum Hins ísl. Prentarafélags. Líbannn á báðum áttum Salar Salem, upplýsingamála- ráðherra Egyptalands, kom heim til Kairó í gær frá Beirut í Líbanon. Fréttamenn þar segja að honum hafi ekki telc- izt að fá stjórn Líbanon til að heita aðild að hernaðarbanda- lagi Egj-ptalands og Sýrlands. Er það bandalag mótleikur gegn bandalagi því sem Tyrkland og írak hafa gert með sér fyrir á- eggjan Bandarikjastjórnar. Salem sagði að Líbanon myndi í hvorugt bandalagið ganga að svo stöddu. Itrekaðar tilraunir voru gerðar til að þagga niður mál Ingimars Jónssonar Rannsókn málsins torvelduS vegna jbess oð gögn um fjárhag skólans vanfar um mörg ár Sækir fund frið- arhreyfingarinnar Miðstjórn Heimsfriðarhreyf- ingarinnar hefur boðað til fund- ar í Vínarborg. Sækir Kristinn E. Andrésson fundinn af Is- lands hálfu og fer hann utan flugleiðis í dag. Á fundinum verður rætt um undirskrifta- söfnun þá sem þegar er hafin til þess að mótmæla undirbún- ingi kjarnorkustyrjaldar og jafnframt um næsta friðarþing þjóðanna sem hefst í Helsinki 22. maí nk. Hátt í ár mun liöiö síöan uppvíst varö um fjárhags- hneyksli séra Ingimars Jónssonar. Hafa verið geröar ítrek- aöar tilraunir til þess aö jafna máliö og þagga það niður — en þær mistókust vegna þess aö alltaf kom nýtt og nýtt misferil í ljós, og virtist máliö að lokum vera alveg botnlaust. Upphaflega gerðu menn sér vonir um að óreiðan í bókhaldi skólans stafaði af trassaskap, en endurskoðendur komust þó brátt að raun um að svo gæti ekki verið; skólastjórinn hefði gert sig sekan um stórfelldan fjár- drátt. Hófust þá tilraunir til þess að jafna málið í kyrrþey, og gengu samstarfsmenn Ingi- mars Jónssonar í hægri klíku Alþýðuflokksins í það að út- vega fé til þes að greiða þær upphæðir sem horfið höfðu — enda tíðkast það mjög að hneykslismál valdamanna séu jöfnuð á þann hátt, ef þeir eru í nægilega miklum metum hjá stjórnarflokkunum. Var búizt við að málið væri leyst á þeryian hátt á s.l. hausti, en þá stóð til að séra Ingimar Jónsson héldi áfram skólastjóra- störfum í vetur og hætti svo í vor með heiðri og sóma og við- eigandi þakklætiskveðjum fyrir dyggilega forustu í uppeldismál- um þjóðarinnar: Mál þetta var rætt í innsta hring Alþýðuflokksins fyrir flokksþingið í haust. Voru uppi raddir um það að ekki væri hægt að kjósa sér Ingimar í miðstjórn áfram eftir þá vitn- eskju sem fengin væri, en hægri klíkan kvað þær raddir algerlega niður — enda hefur Ingimar Jónsson verið einn mesti valdamaður í hægra armi Al- þýðuflokksins áratugum saman, og einkum fengizt við fjármál flokksins eins og rakið var í blaðinu í gær. Rannsókn á fjármálum skól- ans hélt svo áfram í vetur og leiddi í ljós að ótrúlega mikið fé hafði horfið á löngum tíma. S.l. föstudag kom svo loks að því að rannsóknarlögreglan tók öll gögn um fjárhag skólans í sína vörzlu, og sama dag sagði Ingimar af sér. Búizt er við að rannsókn máls- ins taki alllangan tíma. Torveld- ast hún mjög af því að gögn um fjárhag skólans á löngu tímabili eru horfin. Ber séra Ingimar að þau hafi brunnið þegar kveikt var í Franska spítalanum þar sem skólinn 1949. var til húsa, 27.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.