Þjóðviljinn - 16.03.1955, Page 10

Þjóðviljinn - 16.03.1955, Page 10
ÞJÖÐVILJINN — Miðvikudagur 16. marz 1955 10) — Kuup ■ Sala Mun’ð kalda borðið aö Röðli. — RöðulL Nýbakaðar kökur með nýlöguðu kaffi. — Röðulsbar. Fyrst til okkar Húsgagnaverzlunin Þórsgötu 1 Munið Kaffisöluna Hafnarstræti 16. Myndir og málverk sem legið hafa 6 mánuði eða lengur, verða seldar næstu daga, ódýrt. Rammagerðin, Hafnarstræti 17 Ragnar Olafsson hæstaréttarlögmaður og lög- giltur endurskoðandi. Lög- fræðistÖrf, endurskoðun og fasteignasala, Vonarstræti 12, sími 5999 og 80065. Otvarpsviðgerðir Radíó, Veltusundi 1. Sími 80300. Sendibílastöðin h.f. Ingólfsstræti 11. — Simi 5113. Opið frá kl. 7.30-22.00. Helgi- daga frá kl. 9.00-20.00. Saumavélaviðgerðir Skrifstofuvélaviðgerðir S y 1 g j a . Laufásveg 19, sími 2656. Heimasími: 82035. 1395 Nýja sendibílastöðin Sími 1395 Ljósmyndastofa Laugaveg 12. Viðgerðir á rafmagnsmótorum og heimilistækjum. Raftækjavinnustofan Skinfaxi Klapparstig 30. — Sími 6484. Ó d ý r i r flókainniskór: barna- unglinga- kven- karla Aðalstræti 8, Laugaveg 20, Garðastræti 6. Vinnuskór Hinir margeftirspurðu karl- mannavinuuskór komnir aft- ur. — Verð kr. 92,80. SKÓBtJÐIN SPÍTALASTIG 10 Sendibílastöðin Þröstur h.f. Sími 81148 Otbreiðið Þjóðviljann Atvinnuleysistrygglngar Framhald af 7. síðu bands Islands, sem setti fram og samþykkti einróma kröfu til Alþingis og ríkisstjórnar- innar um, að nú á þessu þingi yrðu samþykkt lög um full- komnar atvinnuleysistrygging- ar, sem væru látnar koma til framkvæmda hið bráðasta. Áður höfðu verið gerðar ein- róma samþykktir í þessu máli á tveim eða þrem þingum ASÍ. Verkamannafélagið Dags- brún, ásamt fjölmörgum verk- lýðsfélögum víðs vegar um land, hefur samþykkt áskor- anir til Alþingis og ríkis- stjórnar, þar sem skorað hef- ur verið á þessa aðila að sam- þykkja frumvarpið. Allar óskir og kröfur verk- lýðssamtakanna í þessu mikla hagsmuna- og réttlætismáli þýðusamtakanna hafa til þessa verið að engu hafðar. Bak við kröfuna um, að komið verði á viðunandi atvinnuleysis- tryggingum, stendur íslenzk verklýðshreyfing einhuga, og mun þeirri kröfu verða fylgt fast eftir. Mun reynast erfitt fyrir andstæðinga þessa máls að spyrna við fótum öilu leng- ur gegn þessu réttlætismáli — fremur en 8 stunda vihnudeg- inum og 12 stunda hvíld á togurum. Enda þótt mikið hafi lagazt með atvinnu að undanförnu, sérstaklega á Suðvesturland- inu, þá er málið jafnbrýnt og fyrr. í fjölmörgum bæjum og sjávarþorpum á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi er stöðugt atvinnuleysi marga mánuði á ári, hvernig sem árar í atvinnulífinu, og þó að nú sé sæmilegt at- vinnuástand sunnan- og suð- vestanlands, er ekkert hægt að fullyrða um það, hvort nú- verandi atvinnuástand verður til langframa. Enn er því í fullu gildi það, sem sagt var í greinargerð frumvarpsins á þinginu 1952, en þar segir m.a.: „Það er ekki sjáanleg nein stefnubreyting í fjárhags- og atvinnumálum þjóðarinnar, er valdið geti því, að hér skap- ist atvinnuöryggi, heldur þvert á móti“. Og enn fremur segir á þessa leið: „Það ér því augljóst, að enda þótt verkamenn kjósi atvinnuöryggi fram yfir at- vinnuleysistryggingar, þá verður ekki hjá því komizt að gera núverandi ástandi og horfum 4 þessum málum full skil o§' að þjóðfélagið verði að taka á sig viðeig- andi skyldu sé það ekki fært um að sjá öllum þegnum sín- um fyrir atvinnu. •Frumvarp það, sem hér liggur fyrir, gerir einmitt ráð fyrir stofnun atvinnuleysis- sjóða innan félaga launþega. Stofnfé þeirra skal vera sú upphæð (upphaflega 3 millj. kr.), sem geymd er ásamt vöxtum I þessu skyni hjá Tryggingastofnun ríkisins samkv. lögum nr. 42 14. apríl 1943. Til þess að gefa nokkra hugmynd um, hvaða trygging er fólgin í frumvarpi þessu, ef að lögum yrði, skal hér tekið dæmi af félagi, sem tel- ur 3000 félaga, eins og Verka- mannafélagið Dagsbrún, og miðað við, að greidd vinnu- laun á ári svari til þess, að sé greitt dagkaup alla virka daga. Ef gert er ráð fyrir, að styrkurinn yrði % dagkaups- ins að meðaltali, mundi hann endast handa yfir 450 mönn- um í 6 mánuði, eða 900 mönn- um í 3 mánuði árlega, þótt ékki sé reiknað með stofn- fénu og ekki sé gert ráð fyrir neinum iðgjöldum, sem félagsmenn greiddu sjálfir. Ef hins vegar þarf ekki að ganga á sjóðinn um nokkurt árabil, væri hægt að verja miklu fé úr honum til atvinnufram- kvæmda, enda þótt búið yrði þannig um lánveitingar úr sjóðnum, að tryggt væri, að hann gæti jafnan staðið við löglegar skuldbindingar sínar. Hér er um að ræða mjög mik- ilsverða tryggingu til að halda uppi atvinnu. Þetta var ein- mitt höfuðröksemdin í grein- argerð fyrir frumvarpi því um atvinnuleysistryggingu, sem Brynjólfur Bjarnason flutti í efri deild 1942 og var í öllum aðalatriðum á sömu leið og þetta frumvarp. í frumvarpi þessu er gert ráð fyrir að verklýðsfélögin ráði sem mest sjálf, hvernig tryggingunum er hagað, innan þeirra takmarka, sem lögin setja, svo sem um upphæð styrkja, biðtíma, aldurstak- mörk, iðgjöld hinna tryggðu sjálfra osfrv. Verður það á- reiðanlega affarasælast, þar sem aðstæður eru mismunandi í hinum ýmsu félögum og ýmsu atvinnugreinum". Þess er þó rétt að geta, að nokkurs skoðanamunar hefur gætt um það, hvern hátt væri heppilegast að hafa á fram- kvæmd atvinnuleysistrygging- anna. Sumir flutningsmanna telja margt mæla með því, að einum sjóði eða einni stofnun og þá helzt atvinnu- stofnun ríkisins, sem oftar en einu sinni hefur verið flutt frumvarp um af hálfu Al- þýðuflokksins, yrði falin fram- kvæmd atvinnuleysistrygging- anna um land allt, þannig að auðveldara yrði að koma til hjálpar þeim stöðum, þar sem um sérstaka atvinnuerfiðleika er að ræða. En í frumvörp- um þeim, sem Alþýðuflokkur- inn hefur flutt um atvinnu- stofnun ríkisins, hefur verið gert ráð fyrir því, að verk- efni hennar yrðu þessi: 1) Skráning vinnuafls þjóðarinn- ar og samning á launaskýrsl- um. 2) Atvinnuleysisskráning. Síðdegiskjólar Jerseykjólar MARKAÐURINN Laugaveg 100 Nauðungaruppbcð Eftir kröfu Hauks Jónssonar 'hdl., og Gunnars Jóns- sonar hdl., verður v.b. Petter, tilheyrandi Verzluninni Áhöld, seldur við Grandagarð, hér í bænum, föstudaginn 18. þ.m., kl. 3.30 e.h. | Greiðsla fari fram við hamarshögg. ■ ■ Borgarfógetinn í Reykjavík. Tilkynning frá Rafmagnsveiium ríkisins ■ ■ ■ Útboð á byggingarvinnu að fyrirhugaðri aflstöð við j Grímsárfoss i Skriðdal á Fljótsdalshéraði auglýsist hér j með. Skilmálar, lýsing og uppdrættir fást á skrifstofu : raforkumálastjóra, Laugaveg 1Í8, Reykjavík, gegn fimm | þúsund króna skilatryggingu. Tilboðum skal skilað fyrir kl. 11.00 þann 29. apríl j 1955. Bjóðendur skulu standa við tilboð sín eigi skemur : en tvo mánuði frá þeim degi. Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða ■ hafna öllunu ■ ■ Reykjavík, 15. marz 1955 Eiríkur Briem. m Minningarathöfn um móður mína ÁSTU KR. ÁRNADÓTTUR NORMAN fer fram í Fríkirkjunni í Reýkjavík á morgun fimmtudag- inn 17. marz, kl. 2 e.h. Bálför liinnar látnu var gerð í Vesturheimi 7. febrúar s.l. og hafa leifarnar verið flutt- ar heim til Islands, eftir ósk hennar sjálfrar. Njáll Þórarinsson, Heiðargerði T22. 3) Vinnumiðlun. 4) Leiðbein- ingar um stöðuval. 5) Vinnu- þjálfun. 6) Skipulagning ör- yrkjavinnu. 7) Skipulagning unglingavinnu. 8) Ráðstöfun atvinnubótafjár. Ekki er þó rétt að láta ágreining um framkvæmdaatriði verða þess valdandi, að hugmyndin um atvinnuleysistryggingar nái ekki fram að ganga í einhverri mynd, ef þess er kostur, enda er gert ráð fyrir því í bráða- birgðaákvæðinu, að lögin yrðu endurskoðuð á árinu 1957, og mætti þá hafa hliðsjón af þeirri reynslu, sem fengizt hefði varðandi heppilega til- högun trygginganna. Að síðustu má benda á, að í fjölmörgum löndum heims, svo sem i Englandi og á Norðurlöndum, eru og hafa verið mörg undanfarin ár at- vinnuleysistryggingar. Það verður því ekki séð, hvers ís- lenzkur verkalýður á að 'gjalda, að vera settur skör lægra í þessu máli, en stéttar- systkirti hans |í nágranna- löndunum. Það er margsannað mál, að íslenzkt verkafólk til sjávar og sveita skilar stórum meiri afköstum við vinnu, hvort sem er við vinnu á hafi úti eða i landi, en í nokkru öðru landi veraldar. Verkafólkið á Islandi á því hina fyllstu kröfu á því, að búið sé að því á sem beztan og öruggastan hátt á öllum sviðum. Eitt af mörgu, sem þarf að gera til aukins öryggis og bættrar af- komu verkafólksins í landinu, er að koma á fót viðunandi atvinnuleysistryggingum. Það er ófrávíkjanleg krafa verk- lýðshreyfingarinnar. Frá þeirri kröfu verður ekki hörfað. !■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ J ■«■■■■••>■

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.