Þjóðviljinn - 18.03.1955, Qupperneq 1
VILI
Flokkiflpinn
1. ársfjórðungur féll í gjald-
daga 1. janúar. Greiðið flokks-
gjöld ykkar skilvíslega í skrif-
stofu flokksins.
Föstudagnr 18. marz 1955 — 20. árgangur •— 64. tölublað
Atvinnurekendur neifuSu oS nota frestinn sem verklýSsfélögin veittu:
VERKFÖLLIN HÖFUST í NÖTT
7000 manna berjast eínhuga fyrir réttlætiskröfum sínum með stuðning þjoðarinnar að
bakhjalli gegn þröngsýnni og einangraðri atvinnurekendaklíku
Verkfall yfir 7000 manna í 12 verkalýðsfélögum í Reykjavík og Hafnar-
firði hófst á miðnætti í nótt. Var þá ekki enn kunnugt um nokkur jákvæð til-
boð í kaupgjaldpmálunum frá atvinnurekendum, og hafa þeir þannig eyði-
lagt alla þá möguleika sem verkalýðsfélögin höfðu opnað til þess að samn-
ingar gætu náðst án vinnustöðvunar. Samningafundir stóðu enn yfir þegar
blaðið fór í prentun.
Verkalýðsfélögin hafa komið sér upp mjög víðtæku kerfi til þess að tryggja
það að verkföllin verði alger. Hefur einhugur manna sjaldan eða aldrei ver-
ið jafn mikill í nokkurri kjaradeilu, og stuðningur þjóðarinnar er algerari en
nokkru sinni fyrr.
A-ð verkföllunum standa eftir-
talin félög: Verkamannafélagið
Dagsbrún; Iðja, félag verksmiðju-
fólks í Reykjavík; Félag járn-
iðnaðarmanna; Félag bifvéla-
virkja; Félag blikksmiða; Sveina-
félag skipasmiða; RJúrarafélag
Reykjavíkur; Málarafélag
Reykjavikur; Trésmiðafélag
Reykjavíkur, Flugvirkjafélag fs-
lands, Verkamannafélagið Hlíf,
Hafnarfirði, og Iðja, félag verk-
smiðjufólks í Hafnarfirði. A.S.B.
og Mjólkurfræðingafélag íslands
hafa frestað verkfallsaðgerðum
sínum samkvæmt ósk samninga-
nefndar verkalýðsfélaganna og
sömuleiðis Dagsbrún hjá Mjólk-
urstöðinni. í félögum þeim sem
felldu niður vinnu í nótt eru
um 7000 manns.
• Sameiginleg
verkfallsstjórn
Stjórn verkfallsins er þannig
háttað að mynduð hefur verið
sameiginleg verkfallsstjórn með
fulltrúum allra félaganna. Hefur
hún aðsetur sitt á skrifstofu Full-
trúaráðs verkiýðsfélaganna á
Hverfisgötu 21. Auk þess hefur
svo hvert félag sína verkfalls-
nefnd, sem sér um framkvæmd
verkfallsins á sínu samnings-
svæði.
• Skrifstofa í
kjallara
Alþýðuhússins
Víðtækust verður verkfalls-
varzla Dagsbrúnar, en miðstöð
hennar er í kjallara Alþýðuhúss-
ins. Mun mikill fjöldi Dagsbrún-
armanna stunda verkfallsvörzlu,
en ætlunin er að verkfallsvakt-
irnar verði margar en stuttar
og þurfa virkir þátttakendur að
vera þeim mun fleiri. Hefur
Hjóðviljinn verið beðinn að skora
á Dagsbrúnarmenn að hafa sam-
band við skrifstofuna í kjallara
Alþýðuhússins; og sama máli
gegnir um meðlimi annarra verk-
lýðsfélaga; þeir þurfa að hafa
sem bezt samband við verkfalls-
nefndir sínar.
• Skip og flugvélar
stöðvast
Verkföllin munu þegar lama
allar athafnir í Reykjavík og
Hafnarfirði. f höfninni er þannig
ástatt að Tröllafoss kom í gær-
kvöld og hafði vinna aðeins haf-
izt í honum er verkföllin hófust.
Gullfoss er væntanlegur á morg-
un og síðan hvert skipið af öðru.
Hefur Dagsbrún skrifað Alþýðu-
sambandinu og farið þess á leit
að gerðar yrðu ráðstafanir til
þess að skip, sem átti að afgreiða
hér, verði ekki afgreidd annars-
staðar, og tekur það að sjálf-
sögðu einnig til fiskibáta. Flug-
ferðir innlendu flugfélaganna
stöðvast einnig.
Þá eru í höfninni tvö olíuskip,
rússneskt skip sem landar í
Laugarnesi hjá B. P. og ítalskt
skip sem landar í Örfirisey hjá
Esso. Verða félögin að greiða háa
dagpeninga meðan þessi skip
eru hér um kyrrt. Af fyrirtækj-
um þeim sem fljótlega munu
stöðvast af óbeinum ástæðum
er Áburðarverksmiðjan, en þar
vérður fljótlega hráefnaskortur
ef verkfallið leysist ekki hið
skjótasta,
• Brunahætta
af hamstri
Þá stöðvast allir vöruflutning-
ar að og frá bænum, nema
mjólkin. Benzínafgreiðsla stöðv-
ast einnig, en undanfarna daga
hefur verið hamstrað' ókjörum
af benzíni. Er mikil furða að
slökkviliðsstjóri skuli hafa látið
þau ósköp afskiptalaus, en ben-
zíni hefur verið komið fyrir á
ótryggilegasta hátt í kjöllurum,
skúrum, lóðum og húsagörðura
— og stafar af því mjög miki!
brunahætta víða. Er afskiptaleysi
slökkviliðsstjóra í fullri andstöðu
við þær almennu reglur sem
látnar eru gilda í bænum til að
forða brunahættu.
Framhald á 3. síðu.
átvinnurekendur hvetja
til verkfallsbrota!
Alþýðusambandið hét í gær á verkalýðsíé-
lögin úti á landi að afgreiða ekki skip er væru
í banni þeirra félaga sem nú eiga í verkfalli.
Síðar í gærkvöldi birti útvarpið tilkynningu
frá Vinnuveitendasambandinu, þar sem það
,,.að gefnu tilefni" bent á að allxr þeir sem ekki
era iélagar í féiögum þeim í Reykjavík og
Hafnarfirði, er hafa boðað verkfall hafa heim-
ild til að vinna þétt til verkfalls komi.
Þessi tilkynning Vinnuveitendasambands-
ins verður ekki skilin á annan veg en opinská
áskorun til verkalýðsins og ófélagsbundinna
manna um að gerast verkfa.llsbrjótar.
Þessari fádæma ósvífni atvinnurekenda
svara verkalýðsfélögin á verðugan hátt með
því að snerta ekki á afgreiðslu skipa né ann-
arri vinnu sem er í banni þeirra félaga sem nú
eru í verkfalli.
SÖSÍALISTAFLOKKURINN SVARAR BRÉFI ALÞÝÐUSAMBANDSINS UM VINSTRI SAMVINNU:
Án stuðnings verklýðssamtakanna
verður engin vinstri stjórn mynduð
~"1
Sósíalistaflokkurinn svaraði í
gær tillögu Alþýðusambands ís-
lands um viðræður íhaldsand-
Almenningur mun
dæma þann aðila hart
S.l. miövikudag komst stjórnarblalðið Tíminn
þannig að oröi í forustugrein um kjaradeilurnar:
„Almenningur mun fylgjast vel með þvi sem gerist
i þessum málum nœstu daga. Hann krefst sann-
girni og réttsýnis af öllum aðilum. Hann krefst
þess að allt sé gert sem réttmœtt er til að hindra
það böl sem verkfaU er. Hann mun því dæma þann
aðila hart, er vegna óbilgirni og skammsýni yrði
til þess að hindra það, að samkomulag nœðist.“
stæðinga um vinstri samvinnu
og er svarbréfið á þessa leið:
„17. marz 1955.
Miðstjórn
Alþýðusambands íslands,
Reykjavík.
Miðstjórn Sameiningarflokks
alþýðu — Sósíalistaflokksins
þakkar heiðrað bréf yðar dag-
sett 6. marz. Hefur miðstjórnin
tekið það til meðferðar í dag og
samþykkt einróma svohljóðandi
svar:
Miðstjórn Sameiningarflokks
alþýðu — Sósíalistaflokksins
fagnar því frumkvæði, senx
stjórn Alþýðusambands íslands
hefur tekið um að reyna fyrir
sitt leyti að stuðla að myndun
vinstri ríkisstjómar á íslandi,
„rikisstjórnar, sem í aðalatrið-
um marki stefnii sína á þann
veg, að vinnandi stéttir lands-
ins gætu borið til hennar fullt
traust og veitt henni stuðning.“
Er oss það Ijóst, að án stuðn-
ings Alþýðusambands íslands
og þeirra verklýðssamtaka, sem
það er fulltrúi fyrir, væri ó-
hugsandi fyrir vinstri ríkis-
stjórn að starfa og framkvæma
stefnu sína, landi og lýð til
heilla. Vér vonum þVí, að við-
leitni stjórnar Alþýðusambands
íslands til þess að stuðla að
myndun slíkrar ríkisstjómar
verði bæði til þess að tryggja
slíkri stjórn, er mynduð yrði,
það atfylgi alþýðusamtakanna
utan þings, sem liún þarf að
hafa, og eins til liins að greiða
fyrir öflun þess þingfylgis, sem
er skilyrði til myndunar slíkrar
stiórnar og starfs heimar alls.
Miðstjórnin lýsir því ánægju
sinni yfir tillögu stjórnar AI-
þýðusambands íslands unx að
hef ja viðræður um möguleikana
á vinstri samvinnu i Iandinu og
ákveður að kjósa nefnd manna
til viðræðna við yður uni það
nxál. Mun sú nefnd þá og i-æða
við yður brýnustu hagsmuna-
og hugðarmál vcrkalýðsins, sem
stjórn Alþýðusambandsins sér-
staklega ber fyrir brjósti, og
þau önnur þjóðmái, sem ólijá-
kvæmilega þarf að i-æða til
þess að skapa grundvöll að
starfi ríkisstjórnar, er viinni
í þágu vinnandi stéttanna í
landinu.
Með stéttarkveðjum
F.h. miðstjórnar Sameiningar-
flokks alþýðu — Sósíalista-
flokksins“.