Þjóðviljinn - 18.03.1955, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 18. marz 1955
ÞlÓOVIUINN
Útgefandl: Samelnlngarflolfkur alþýðu — Sósialistaflokkurlnn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fróttastjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarnl Benediktsson, Guð-
mundur Vigfússon, Ivar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17
annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
1 Standa þeir við hótun sína?
Um síðustu mánaðamót sendi Landsamband íslenzkra
útvegsmanna frá sér yfirlýsingu, þar sem gjaldeyrisbrask-
ararnir kváðust mundu hætta útgerð, ef kjör verkafólks
væru að nokkru bætt. Lýstu þeir því með mörgum orðum
hversu stórlega þeir töpuðu á hverju ári, milljónum og
milljónatugum, og ef þetta tap ætti nú enn að aukast
gætu þeir ekki borið meir. Virtust mennirnir vera að gefa
í skyn að þeir greiddu jafnan hallann úr eigin vasa, og
þótt hann væri rúmgóður væru því takmörk sett hversu
miklu væri hægt að ausa úr honum.
Þessi yfirlýsing vakti almenna kátínu. Fáir ómagar á
þjóðarbúinu eru eins hvimleiðir almenningi og einmitt
gjaldeyrisbraskararnir við Faxaflóa. Þeir eru algerlega ó-
ábyrgir menn í atvinnurekstri sínum; þeir borga aldrei
cyri úr sínum vasa þótt skakkaföll verði á útgerðinni, en
þeir hirða milljónir á milljónh' ofan hvernig sem gengur,
berast mikið á og lifa lúxuslífi. Peningum þeim sem þeir
draga út úr útgerðinni koma þeir fyrir í gróöafyi'irtækjum
og m.a. hafa þeir hreiðrað mjög um sig í milliliðastétt
þeirri sem hefur það að sérgrein að arðræna útgerðina.
Þeir veifa reikningum útgerðarinnar framan í almenning,
cn fela vandlega ofsagróða þann sem þeir hafa af frysti-
húsum, gjaldeyrisbraski, afurðasölu, olíusölu til útgerð-
arinnar og öðru slíku. Þetta eru sem sé einhverjar hvim-
leiðustu afæturnar í íslenzku þjóð'félagi.
Það var þess vegna enginn maður sem leit á yfirlýs-
ingu gjaldeyrisbraskaranna sem nokkra hótun, heldur
sem ánægjulegt fyrirheit; það væri mikil landhreinsun
að losna við þessa ómagastétt. Munu forsprakkar LÍÚ
hafa fundið þetta næsta glöggt, því það hefur verið mjög
hljótt um yfirlýsingu þeirra síðan í íhaldsblöðunum. Engu
að síður hafa braskararnir haldið áfram þeirri iðju sinni
að reyna að koma í veg fyrir samninga við verklýðsfélög-
in. Þó er það svo aö einmitt útgerðarmennirnir eru sá hóp-
ur atvinnurekenda sem kröfur verklýðsfélaganna snerta
sízt: almenn verkamannavinna er sáralítill hluti af rekstr-
arkostnaði útgerðarinnar. Hins vegar eru braskararnir
orðnir vanir því að nota hvert tækifæri sem gefst til þess
að góma eitthvað sjálfir, og þeir hafa talið það ágætt
tækifæri að beita einskonar fjárkúgun í sambandi við
verkföllin, þannig að ekki væri unnt að leysa þau án þess
að peningar rynnu einnig í þeiiTa vasa.
Afstaða almennings er hins vegar sú að það béri að taka
þessa menn á orðinu, negla þá við yfirlýsingu sína frá því
í mánaðarbyrjun. Og það sama á raunar við um atvinnu-
rekendastéttina alla. Framkoma hennar í samningum
þeim sem nú hafa staðið um mánaðarskeið hefur mótazt
af fullkomnu ábyrgðarleysi. Atvinnurekendur hafa ekkert
gert — nákvæmlega ekki neitt — til þess að koma til móts
.við réttlætiskröfur verklýðssamtakanna. Það eru þeir og
þeir einir sem nú bera óskipta ábyrgð á því að til stöðv-
unar er komið. Með því hafa þeir sannað á ótvíræ'ðasta
hátt að þeir eru gersamlega ófærir um að hafa með
liöndum atvinnutæki þjóðarinnar og framleiðslukerfi. Hin
neikvæða afstaða þeirra er jafnframt yfirlýsing og játn-
ing um það þeir ráði ekki við það hlutverk sem þeir hafa
tekið sér, og eigi að festa nokkum trúnað á barlóm þeirra
mætti ætla að þeir yrðu manna fegnastir að losna við á-
hyrgð sína. Þeir ættu þá einnig að taka því með gleði að
lifa framvegis á kaupi Dagsbrúnarverkamanns eins og
það er nú; og ekki myndi standa á almenningi að greiða
þeim kaupið — jafnvel þótt þeir gerðu ekki handarvik —
aðeins ef þeir vildu hætta að skipta sér af atvinnumálum
þjóöarinnar.
Atvinnurekendur hafa nú áunnið sér fordæmingu og
xeiði allrar þjóðarinnar. Kemur það víða fram; m.a. hefur
stjórnarblaðiö Tíminn lýst yfir eindreginni andstöðu við
framferði þeirra, og það er langt síðan að sá tónn hefur
sézt í því blaði. Það mun því ráð fyrir atvinnurekendur
að gá að hag sínum; annars kann svo að fara að hugleiö-
ingamar um að losna við afskipti þeirra af atvinnutækj-
nnum breytist úr spotti í raunhæft viðfangsefni fyrr en
yarir. " *
Breytingar á lögum um lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins, bamakennara og hjúkrunarkv.
Stjórnarliðið hindrar nauðsynlegar breytingar
Alþingi hefur nú til meðferð-
ar þrjú lagafrumvörp, sem gera
ráð fyrir nokkrum breytingum
á lögum eftirtalinna lifeyris-
sjóða: Lífeyrissjóðs starfs-
manna ríkisins, Lífeyrissjóðs
barnakennara og Lífeyrissjóðs
hjúkrunarkvenna.
Öðrum þræði miða lagabreyt-
ingar þessar að því að fella
lögin um hvern þessara sjóða
í eitt, en ýmsar breytingar hafa
verið gerðar á þeim á undan-
förnum árum, þannig að nú
er lög þeirra hvergi á einum
stað að finna, heldur í stjórn-
artíðindum ýmissa ára, auk
lagasafns. En nú er svo til ætl-
azt að lögin um sjóðina verði
gefin út að nýju og í heild.
En frumvörpin fela líka í sér
ýmsar breytingar frá gildandi
ákvæðum. Miða þau flest til
bóta og auðvelda framkvæmd
þeirrar starfsemi, sem sjóðun-
um er ætluð.
Öðru máli gegnir þó um fá-
ein atriði, og er þeirra mikil-
vægast niðurfelling þess ákvæð-
is, að samanlagður aldur og
þjónustutími, sem nær 95 ár-
um, gefi fullan lifeyrisrétt.
Þessi breyting tekur til lífeyris-
þega í sjóði ríkisstarfsmanna
og kennara.
í greinargerð frumvarpanna
eru sömu rökin færð fyrir
breytingu þessari í báðum til-
fellum, sem sé þau, að nú ger-
ist menn sjóðfélagar yngri en
áður tíðkaðist.
Að því er tekur til Lífeyris-
sjóðs ríkisstarfsmanna mun
nokkuð til í þessum röksemd-
um, enda ná lög sjóðsins allt
niður til fólks, sem er 18 ára.
En allt öðru máli gegnir um
bamakennara. Þeir hafa ekki
rétt til að hefja starf sem slík-
ir undir 21 árs aldri og er það
með öllu óbreytt frá því, sem
jafnan hefur tíðkast. Það er
því algerlega á rangri forsendu,
sem þessu ákvæði á nú að
breyta að því er kennarana
varðar, enda í fullkominni ó-
þökk kennarasamtakanna gert.
Rétt er það að vísu að sá
möguleiki er til að barnakenn-
arar öðlist lífeyrisrétt eftir 37
ára þjónustu 58 ára gamlir, en
það er alkunna að kennarar
slitna fyrr en flestir menn aðr-
ir og svo sem störfum þeirra
er háttað verður það að teljast
mjög vafasamur hagur fyrir
þjóðfélagið að sporna gegn því,
að kennarar eigi þess kost
að láta af störfum eftir svo
langa þjónustu.
Við afgreiðslu neðri deildar
Alþingis á málinu lögðu þeir
Karl Guðjónsson og Gylfi Þ.
Gíslason fram nokkrar breyt-
ingartillögur við frumvörpin
um Lífeyrissjóð ríkisstarfs
manna og Lífeyrissjóð barna-
kennara.
Auk þeirra, sem í frumvarpi
er gert ráð fyrir að geti gerzt
sjóðfélagar í sjóði ríkisstarfs
manna ( en það eru starfs-
menn ríkis og bæja) lögðu þeir
Karl og Gylfi til að starfsmenn
sjálfeignastofnana þeirra, sem
lúta stjórn sem skipuð er ein-
göngu af sveitarstjómum, rík
isstjóm eða Alþingi eigi rétt
til að gerast sjóðfélagar. Mið-
ar þetta einkum að því að
tryggja starfsmönnum sjúkra-
samlaganna úti um land sama
rétt og starfsmenn Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur þegar hafa.
Sá heilbrigðiseftirlitið aldrei haugana
f rá því í f yrrasumar og þar til 1. marz?
Mig langar til að gera smá-
athugasemd við grein borgar-
læknis sem birtist í Þjóðvilj-
anum 6. þ. m., þar sem hann
segir:
„Jafnskjótt og heilbrigðiseftir-
litinu varð kunnugt um hauga
þá er mokað hafði verið út úr
hænsnahúsinu, að sögn daginn
áður . . .“
Það var hringt til borgarlæknis
og kvartað yfir umræddum
haugum, en það er hvorki í
fyrsta skipti sem hefur verið
kvartað né heldur geri ég ráð
fyrir að nokkur af þeim sem
hringdu hafi sagt að haugun-
um hafi verið mokað út þriðju-
daginn 1. marz s. 1. Hitt var
rétt að þann dag gat fólkið
varla komizt þarna framhjá, því
svo skarpt var ausið út um dyr
og glugga hænsnahússins, því
hænsriin hafa sennilega verið
að drukkna í vatni og skít, þar
sem farið var að rigna, og sást
stafli af dauðum hænsnum inn-
an við dyrnar. En svo ég víki
aítur að haugunum þá hafa
þeir staðið þama síðan í ágúst
á s. 1. sumri en auðvitað alltaf
bætzt við þá, og er ótrúlegt að
menn frá heilbrigðiseftirlitinu
skuli aldrei hafa rekið augun
í þá, þar sem borgarlæknir seg-
ir að þeir hafi stöðugt eftirlit
með mjólkurbúðum og fiskbúð-
um. En það má kannske ekk-
ert gera nema fólk kæri. Það
liggur við að maður trénist upp
á að vera alltaf að kæra, og fari
að langa til að taka til sinna
ráða. í smáþorpum úti á landi
má ekki hafa hauga. Þar verð-
ur að steypa loftþétt haughús,
en hér í bæ, þar sem menning-
in er sennilega meiri, má geyma
hrossaskít í trékössum, en auð-
vitað með loki yfir af því að
kassinn stendur rétt hjá mjólk-
urbúð og fiskbúð. — Og enn
um haugana. Þeir voru farnir
að renna út um allt og getur
maður því ímyndað sér hvern-
ig lyktin verður þegar fer að
hlýna. Það verður því að bera
ofan í svæðið kringum hænsna-
húsið og mjólkurbúðina, — og
burt með hænsnaskúrinn og all-
an óþrifnaðinn honum meðfylgj-
andi.
Eg geri ráð fyrir að við reyn-
um öll að lagfæra eitthvað í
kringum okkur í vor eftir efn-
um og ástæðum. — En vill nú
ekki borgarlæknir gefa okkur
hugmynd að fyrirmyndarhverfi?
Á. H.
Þá lögðu þeir Karl og Gylfi
til að engar breytingar yrðu
gerðar á 95 ára ákvæðinu í lög-
um um lífeyrissjóð kennaranna.
En ríkisstjórnarliðið felldi all-
ar breytingatillögur þeirra enda
virðist stjórnarsamvinnan nú.
orðið vart hanga saman á öðru
en sameiginlegum fjandskap I-
haldsins og Framsóknar við al-
menn réttindamál fólksins í
landinu.
Vert er að geta þess, að með
niðurfellingu 95 ára ákvæðisins
verður enginn réttur tekinn af
þeim sem þegar eru orðnir sjóð-
félagar í þessum sjóðum. Þetta
er viðurkennt í greinargerðum
frumvarpanna. En stjórnarliðið
felldi einnig þá tillögu Karls og
Gylfa að flytja þetta greinar-
gerðarákvæði inn í lögin sjálf,
og getur sá verknaður vart ver-
ið framkvæmdur í annarri vou
en þeirri að freista þess að ein-
hverjum sjáist yfir það er fram
líða stundir, hver réttur hans
er, því lögin geymast 1 laga-
söfnum, sem víða eru handbær,
en greinargerðir gista fremur
kistubotna.
Vinnuveitenda-
sambandið segir
ésatt
Þjóðviljanum hefur borizt yf-
irlýsing frá Vinnuveitendasam-
bandi Islands þar sem því er
haldið fram að sambandið hafi
aldrei fengið neinar greiðslur
frá bandaríska hernámsliðinu
og Hamiltonfélaginu. Þjóðvilj-
anum er fullkunnugt um að
þessi yfirlýsing Vinnuveitenda-
sambandsins er ósönn, enda
hefur sambandið gegnt þjón-
ustustörfum fyrir hernámsliði.ð
um langt skeið í viðskiptum
við verkalýðssamtökin. Tilgang-
urinn með því að taka Hamil-
ton-félagið inn í Vinnuveitenda-
sambandið átti eirinig að vera
m. a. sá að koma þessum
greiðslum á fastan grundvöll.
Það ber hins vegar vott um
snefil af samvizku hjá atvinnu-
rekendum að þeir reyna nú að
sverja af sér að hafa þegið
stórfelld fjárframlög — þótt
það sé á engan hátt stórmann-
legra að gegna þjónustustörf-
unum ókeypis.
Bretar þakka ís-
lendingum björg-
un sjómanna
Framkvæmdastjóri Samtrygg-
ingar brezkra togaraeigenda í
Grimsby, The Grimsby Steam
Fishing Vessels Mutual Insur-
ance and Protecting Co. Ltd. Mr.
J. V. Chatbrun, hefur sent Slysa-
varnafélagi fslands þakkarbréf
fyrir björgun áhafnarinnar af
Grimsby togaranum King Sol
og biður félagið að koma þakk-
læti sinu á framfæri vð alla við-
komandi aðila.