Þjóðviljinn - 18.03.1955, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 18.03.1955, Blaðsíða 7
Föstudagur 18. marz 1955 — ÞJÓÐVILJINN' — (7 Dagsbrúnarverkamaður skriíar: og gengislækkunin Ein af „umbótum“ Kristiiis Guömundssonar á hernáms- samningnum er aö heimila Bandaríkjamönnum sjón- varp á Keflavíkurflugvelli. Þessi tegund „skemmtunar“ fjallar í Bandaríkjunum mest um glcepi, ofbeldi og hryöjuverk — og því er hún talin nauösynleg til þess aö halda verndurunum viö efnið. Myndin hér fyrir ofan er sýnishorn af því sem helzt er á boöstólum í banda- rísku sjónvarpi. Halldór Pétursson: Bæjarréttmdi til handa Kópavogshreppi Benjamín 1 Morgunblaðinu 10. marz heldur dr. Benjamín áfram og talar um gengislækkun og verðhækkun. Hann segir m.a.: ,,Með afgreiðslu fjárlaganna fyrir 1950 var brotið blað i dýrtiðarmálunum. Greiðslu- hallinn hjá ríkissjóði var — frá peningahliðinni — helzta uppspretta dýrtíðarinnar". — Ennfremur segir hann: „Laun- þegasamtökin eru sífellt með nýjar kaupkröfur þegar svona stendur á, sem ekki er óeðli- legt. Dýrtíðarskrúfan er í fullum gangi svo lengi sem ný dýrtíð myndast (og greiðslu- jöfnuðurinn er svo eftir því, ef genginu er haldið óbreyttu). Verðlag getur hækkað af öðr- um orsökum en þessum, en mér finnst rétt að nota orðið dýrtíð fyrst og fremst við svona þróun“. Er dýrtiðin þá afstæð? Mér finnst rétt að nota orð- ið dýrtíð fyrst og fremst við svona þróun, segir dr. Benja- mín. Hér eru umræðumar raunar komnar á það stig að dýrtíð sé, þegar öllu er á botninn hvolft, afstæð. Það getur verið velmegun hjá meg- inþorra þjóðarinnar þó lítið fari fyrir peningum í ríkis- kassanum, það getur verið hungurástand hjá meginþorra þjóðarinnar þó ríkiskassinn sé útúrfullur af peningum, það getur vantað rekstrarfé til sjávarútvegsins þó atvinnu- Þessa dagana er að koma út nýtt hefti af tímaritinu „Vinn- an og verkalýðurinn". Það er ástæða til að benda verkafólki hvarvetna á landinu á þetta tímarit og gildi þess fyrir verkalýðsstéttina. „Vinnan og verkalýðurinn“ er nú að hefja fimmta árið. Útgáfa þess hófst árið 1950 að tilhlut- an Útgáfufélags alþýðu. Þessi ár hefir „Vinnan og verkalýðurinn* verið eina tíma- ritið sem íslenzk verkalýðs- hreyfing hefir gefið út, og svo er enn. Tímaritið hefir verið virkur þáttur í verkalýðsbaráttunni. Það hefir tekið til meðferðar öll baráttumál, sem á hverjum tíma hafa verið efst á dagskrá. Það hefir birt fræðandi greinar um hagsmunamál verkalýðsins og fræðslugreinar um sjálf verkalýðssamtökin, uppbygg- ingu þeirra og starfsemi. Samtímis hefir það verið föst regla, að birta í hverju hefti þess markverðustu fréttirnar úr baráttu alþýðunnar í öðrum löndum og hefir Björn Bjarna- son unnið þar mikið og þarft verk. — Sömuleiðis hefir les- endum tímaritsins verið flutt margvisleg fræðsla um líf og starf verkalýðsins á þeim hluta jarðar, sem leystur hefir verið undan ánauð og arðráni auð- valdsins — heimi sósíalismans. En auk þess hefir „Vinnan og verkalýðurinn“ ílutt greinar um margskonar önnur efni, auk kvæða og kviðlinga, smásagna rekendurnir hafi fullar hend- ur fjár og standi í alls kyns lúxusframkvæmdum fyrir sjálfa sig, það getur vantað peninga til þess að auka land- búnaðinn þó að verzlunin sé með alla sína sjóði úttroðna af peningum og það getur vantað lán til húsbygginga þó að bankarnir hafi nóg af láns- fé. En hvemig á bara að greiða úr svona flækju ? Til þess vantar öfluga vinstri stjóm. Gengislækkunin og doktorinn Dýrtíðarskrúfan er í fullum gangi svo lengi sem ný dýr- tíð myndast (og greiðslujöfn- uðurinn er svo eftir því, ef genginu er haldið óbreyttu), segir doktorinn. En doktor- inn veit það vel, að þetta er eins og hver önnur lygi. Hús- næðisvandamálið veldur m.a. mikilli dýrtíð. Sú dýrtíð sem af því stafar, hverfur ekki fyrr en það vandamál er úr sögunni. Til þess að leysa hús- næðisvandamálið í eitt skipti fyrir öll þarf að framkvæma áætlanir um íbúðabyggingar. Sú áætlun þyrfti að standa í mörg ár. Eftir slíka áætlun yrði svo byggt í hlutfalli við eðlilega þróun og breytingar. Dýrtíðin af húsnæðisvandræð- unum myndi þá fyrst hverfa. Að greiðslujöfnuðurinn þurfi að hafa einhver áhrif á geng- ið eða gengið á greiðslujöfn- og heimilisþátta o. s. frv. Þannig befir þetta tímarit, sem er í svo þægilegu broti, að það kemst vel fyrir í jakkavasa — orðið eitt hið fjölbreyttasta Jón Rafnsson. tímarit, sem út er gefið í land- inu, og þegar orðið verðmæt eign fyrir alla þá, er halda tímaritum til haga. Jón Rafnsson hefir lengst af verið ritstjóri tímaritsins og helgað því hæfileika sína og elju. „Vinnan og verkalýðurinn" er tímarit, sem á erindi inn á hvert launþegaheimiii í land- inu. Allir þeir, sem hafa áhuga fyrir verkalýðssamtökum, vexti þeirra og viðgangi, ættu því að gerast áskrifendur að því og stuðla að sem mestri útbreiðslu þess. E Þ. uðinn er tóm endaleysa. Rúss- ar hafa t.d. hátt gengi, en við fáum eins mikið í vörum fyrir sama vöruverðmæti hvort heldur sem rúblan er há eða lág. Hinsvegar skipuðu Banda- ríkin Vestur-Evrópuþjóðunum að lækka gengið vegna þess að Bandaríkin voru búin að draga svo mikið af gullforða þessara landa til sín. Okkur Islendingum var skipað að lækka gengið vegna hernáms- ins. Hið sanna um gengislækkanirnar Til þess að komast að ein- hverri skynsamlegri niður- stöðu um það, hvað er að gerast í þessum málum, þýðir ekki að einblína á ísland sem eitthvert einangrað fyrirbrigði frá heimsverzluninni og heimsstjórnmálunum. Hvers vegna var gengi íslenzku krónunnar lækkað svona gíf- urlega 1950? Hvað hafði gerzt í heimsverzluninni fyrir þann tíma er leiddi til þessarar hryllilegu og ég vil segja glæpsamlegu ráðstöfunar? — Þetta verður hver hugsandi maður að gera sér ljóst. Hvað hafði gerzt? Kjarni málsins Árið 1947 var hlutdeild Bandaríkjanna í heimsútflutn- ingnum 31%. Þetta sama ár eykst samkeppnin á heims- markaðinum. Mörg ríki sem voru farin að ná sér á strik í framleiðslunni eftir stríðið voru farin að senda mikið magn af vörum á heimsmark- aðinn. Sum ríki t.d. í Suður- Ameríku, sem höfðu verzlað mikið við Bandaríkin fyrir strið, framleiddu nú vörur og fluttu út samskonar vörur og þau höfðu áður flutt inn frá Bandaríkjunum. Einnig komu til sögunnar ríki, sem höfðu mjög ófullkominn iðnað eða jafnvel engan iðnað fyrir stríð og fluttu út „háþróaðar" iðn- aðarvörur. Þetta jók sam- keppnina og árið 1948 er hlutdeild Bandaríkjanna í heimsútflutningnum komin niður í 22.8% af þessum völd- um. Og fyrstu 10 mánuðina 1949 niður í 20.5% miðað við sama tímabil 1947. Hér höfum við hvorki meira né minna en undirrót kalda stríðsins. Vegna þess að iðn- aðarkerfi Bandaríkjanna varð ekki fyrir neinum búsifjum af völdum striðsins stóðu Banda- ríkin betur að vigi en t.d. Vestur-Evrópuþjóðirnar. Þessa aðstöðu notuðu Bandaríkin. sér. Þau kúguðu Vestur-Evr- ópuþjóðirnar til þess að hætta að verzla við þjóðir A-Evrópu. Og til þess að breiða yfir hinn sanna tilgang þessa banns var kalda stríðið kallað barátta gegn kommúnisma. Bandaríkin vildu fá meiri hlutdeild í út- flutningnum, það var hið raunverulega markmið. En Bandaríkin juku ekki inn- flutning sinn frá þessum sömu rik jum í staðinn. Þvert á móti. Og hver varð afleiðingin af þessu ? Anðvitað úlfaþytiur milli þessara elskulegu lýð- Framhald á 10. síðu. Kópavogshrepp vantar enn sem komið er flest þau skilyrði, sem útheimta það, að hér sé myndað bæjarfélag og engin aðkallandi mál, sem krefjast þess. Öll þau bæjarfélög, sem mynduð hafa verið hér á landi, hafa aðra meiri undirstöðu í þessu tilliti. Má þar nefna hafnir og skil- yrði til sjávarútgerðar, verzlun við stór héruð umhverfis þau, gistihúsahald og fleira. Þrátt fyrir þessi atvinnuskil- yrði, ríkir i flestum þessum bæjum fjárhagslegt öngþveiti, fólkið flýr í burtu og verður að skilja eftir sem vonarpening þau fasteignaverðmæti, sem það hefur komizt yfir. Kópavogshreppur er nýbyggð, úthverfi frá Reykjavík. Fólkið hefur flúið hingað af þeirri einu ástæðu, að hér var reynt að gefa mönnum þau beztu skil- yrði, sem völ var á til þess að þeir gætu komið þaki yfir höfuð sér. í þetta hefur orka og fé íbú- anna farið þessi fáu ár, ásamt því að koma á nauðsynlegustu umbótum svo sem skóla, vegum vatnsveitu og fl. Þetta hefur kostað miklar fórnir, þar sem lán eru lítt fáanleg og þess- vegna hefur ekki nema að litlu leyti enn verið hægt að snúa sér að því að mynda hér sjálf- stætt atvinnulíf. Ef Kópavogsbúar eiga nú of- an á þetta að bæta á sig bæjar- stjóra, lögreglustj., skipulagsstj., heilbrigðisfulltrúa, byggja yfir þetta allt með því starfsliði, sem því fylgir, þá hyggjum vér að mörgum Þyki þröngt fyrir dyrum, hvaða flokki sem þeir fyigjá. Hér hafa verið nefndir nokkr- ir liðir, en auðvitað eru þeir margir fleiri. Sumt af þessii greiðir ríkið að sjötta hluta, en slíkt er hverfandi. Fríheitin sem koma á mótl þessu öllu er „bær“ í staðinn fyrir „hrepp“ Þó eru enn ótalin alvarlegustu rökin í þessu máli: Eins og sakir standa, sækja flestir Kópavogsbúar atvinnu sína til Reykjavíkur. Félagssvæði verkalýðsfélag- anna í Reykjavík nær nú yfir þennan hrepp, en yrði hann gerður að sérstöku bæjarfélagi, kæmi það af sjálfu sér, að hér yrðu stofnuð ótal launþegafé- lög. Með þessu misstum við þá aðstöðu að fá að vera í laun- þegafélögunum í Reykjavik og ættum engan rétt þar til at- vinnu, nema þar vantaði vinnukraft. Á móti þessu verður sjálfsagt borið, en þá vil ég vísa til hinna kaupstaðanna í þessu til- liti svo ekkert fari á milli mála, Eins og atvinnulífi okkar er nú komið og því stjórnað, aðeins í samræmi við vorn blessaðan her, þarf ekki annað en þessi „blessun“ breytist, sem alls ekki er vonlaust. Þá mundi Kópavogur sem bær eiga lítið athvarf í Reykjavík. Spurningin verður því: Hvar ætlar þetta fólk að fá atvinnu, meðan ekki er meiri atvinnu- grundvöllur hér og hann verður ekki lagður á stundinni, hvort sem þetta heitir hreppur eða bær. Verði þetta gert að bæ og hann kæmist síðan í fjárhags- legt þrot, þá byrjar auðvitað flóttinn héðan, húsin standa eft- ir, en hverjir vildu þá kaupa. FramKald á 11. síðu. ___________________________________® Vlnnan og verkalýðurinn — tímaiit verklýðsstéttarinnar

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.